Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Enski boltinn byrjar á morgun þar
sem Arsenal og nýliðar Brentford
mætast. Sjónvarp Símans er með
sýningarrétt á leikjum deild-
arinnar og mun
sýna alla 380
leiki tímabilsins.
Íþróttafrétta-
maðurinn Tómas
Þór Þórðarson
stýrir þættinum
Vellinum í vetur
þar sem farið
verður yfir allt
það helsta sem
gerist í enska
boltanum. Tóm-
as segist ánægður að heimurinn og
enski boltinn sé loksins að komast
yfir kórónuveirufaraldurinn.
„Ég vona að Covid hafi engin
áhrif á deildina í vetur. Sætin á æf-
ingaleikjunum fyrir tímabilið eru
full af lifandi fólki með hjarta og
sál, ekki þessi gerviáhorfenda-
hljóð. Fólkið sem þetta snýst um
er komið aftur og maður hefur séð
á þessum æfingaleikjum hjá Man-
chester United, Liverpool og
Everton að það er alveg ljóst að
ensku stuðningsmennirnir eru til-
búnir að snúa aftur. Það var
smekkfullt hús þegar Liverpool
mætti Osasuna í vikunni og maður
hefur aldrei heyrt aðra eins stemn-
ingu á æfingaleik.“
Gömlu góðu leiktímarnir
Tómas segir þá stefna á að fara
á einn leik í mánuði og næsta
sunnudag verða Eiður Smári Guð-
johnsen og Logi Bergmann ásamt
fótboltagoðsögninni Glenn Hoddle
á leik Tottenham og Manchester
City.
„Síðan er risastórt að við höld-
um öllum 380 leikjunum. Þeim er
ekki lengur dreift yfir 10 leiktíma
þannig að dagarnir eru ekki 12
tímar hvor á laugardögum og
sunnudögum. Það eru bara gömlu
góðu leiktímarnir, fimm til sex
leikir í beinni á laugardögum
klukkan þrjú. Þetta verður enski
boltinn eins og hann á að vera.“
Tómas byggir þáttinn á sama
kjarna og í fyrra þar sem Eiður
Smári, Margrét Lára, Bjarni Þór
Viðarsson og Gylfi Einarsson
verða honum til halds og trausts.
Góðir gestir á borð við Hermann
Hreiðarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson munu koma í viðtöl.
Öll mörkin í enska boltanum koma
inn á mbl.is eftir leik og síðan
verður einn leikur í viku í beinni
útsendingu á mbl.is.
„Svo verða vel valdar klippur frá
vellinum og fullt af upphitunarefni
sem kemur að utan inn á mbl.is
dagana fyrir helgina.“
Tómas býst við alvöru fjögurra
liða toppbaráttu um titilinn á milli
Manchester City, Manchester
United, Chelsea og Liverpool.
„Ég held að við fáum algjörlega
ruglaða baráttu um enska meist-
aratitillinn og ég held að baráttan í
Meistaradeildinni verði ekkert
síðri. Það eru mjög góð lið þarna
rétt fyrir neðan eins og Leicester
sem hefur verið að banka á efstu
fjögur sætin. Svo er það lið eins og
Leeds sem gerði vel á síðustu leik-
tíð.“
Tómas bætir við að nýliðarnir
Brentford séu eitt mest spennandi
lið sem komið hefur upp í deildina
í langan tíma, og segir það í raun
algjörlega einstakt félag.
„Í þessu liði eru bara keyptir
leikmenn samkvæmt miklum töl-
fræðiupplýsingum; þetta félag er
mjög tölfræðidrifið. Þeir komust
upp í úrvalsdeildina algjörlega á
sínum eigin forsendum með tak-
markað fjármagn. Svo það verður
afskaplega gaman að sjá hversu
langt liðið kemst á „moneyball“-
kerfi í sterkustu deild heims.“
Hann segir að Jack Grealish,
Jadon Sancho og Lukaku séu mest
spennandi leikmannakaupin í sum-
ar.
Kane markakóngur með City
„Jack Grealish er að fara til City
og það skiptir nánast engu máli
hverjir eru keyptir þangað, þeir
verða allir góðir undir Pep Guar-
diola. Þegar Chelsea gengur frá
Lukaku þá verður það risastórt því
Chelsea-menn undir stjórn Tuch-
els seinni hluta síðustu leiktíðar
voru algjörlega frábærir, það eina
sem vantaði var að skora fleiri
mörk og hann kemur með það.
Sancho er mikil stoðsendingavél
og ætti að hlaupa undir bagga með
Bruno Fernandes í sköpun færa og
marka.“
Tómas telur að ef City festir
kaup á Harry Kane verði hann
markakóngur næsta tímabils en
annars eru menn eins og Mo Salah
og Lukaku einnig líklegir.
„Guardiola hefur sagt að Totten-
ham sé erfitt að eiga við í við-
skiptum; eðlilega, þetta er Harry
Kane. Þeir fara ekki að selja hann
á tombóluverði. En með hverjum
degi sem líður verður ólíklegra að
hann fari til City, þar sem það er
svo lítið eftir af leikmannaglugg-
anum.“
Hann segir að Leeds sé lið sem
gæti komið á óvart í ár.
„Ég held að Leeds geti farið
rosalega langt með þetta lið og
þennan stjóra. Þeir eru með frá-
bæran stjóra, flotta leikmenn og
síðan spila þeir frábæran fótbolta.
Svo maður í rauninni vonar að
þeim gangi vel vegna þess hvernig
þeir koma til leiks.“
Enski boltinn snýr aftur á morgun
- Allir leikir sýndir í beinni - Einn leikur sýndur í beinni á viku inni á mbl.is - Völlurinn með sama
kjarna og í fyrra - Fólk með hjarta og sál komið aftur á áhorfendapalla - Býst við alvörutoppbaráttu
Fótbolti Leicester vann Manchester City á dögunum og eins og sjá má voru áhorfendapallar troðfullir.
Æfingaleikur Chelsea mætti Tottenham í síðustu viku. Leikurinn fór 2-2.
Tómas Þór
Þórðarson
Raphael Varane og Ben White eru
varnarmenn sem keyptir voru til
nýrra liða í sumar. Varane gekk til
liðs við Manchester United fyrir 41
milljón punda og Ben White var
keyptur til Arsenal fyrir 50 millj-
ónir punda.
Tómas Þór Þórðarson segir
vissulega skrýtið að Ben White
hafi verið dýrari leikmaður en
Varane því Varane var áður leik-
maður í byrjunarliði Real Madríd
þar sem hann vann fjóra
meistaradeildartitla, þrjá titla í La
Liga – spænsku deildinni, vann
heimsmeistaratitilinn með Frakk-
landi og hefur verið valinn í lið
ársins hjá FIFA.
Ben White vann Championship-
deildina með Leeds í hittifyrra.
„Þetta er auðvitað skrýtið og
heimurinn er skrýtinn. Það er dýrt
að kaupa Englendinga; það skiptir
eiginlega engu máli hvað þeir
heita. En svo verður þú líka að
taka með í reikninginn að þú borg-
ar meira fyrir yngri leikmann.“
Ben White er 23 ára og Varane
28 ára.
„Ef við setjum þetta svart og
hvítt á blað þá kostaði Ben White,
sem komst í raun og veru ekki í
enska landsliðið nema vegna
meiðsla, tíu milljónum punda
meira en Raphael Varane. Þetta er
heimurinn sem við búum í í dag.
Að því sögðu finnst mér Ben
White-kaupin alveg frábær.“
AFP
Varnarmaður Ben White var keypt-
ur til Arsenal fyrir 50 milljónir
punda. Hann er 23 ára og vann
Championship-deildina í hittifyrra.
Skrýtið að Ben
White sé dýrari
- Raphael Varane ódýrari