Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 45

Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Svínadalinn til þín sl. sumar þar sem að þú naust þín á fallegum sólardegi á meðan Eddi var niðri á vatni að veiða í soðið. Við höfð- um ekki komið lengi í þennan sælureit ykkar og þrátt fyrir að vera slöpp þá sýndir þú okkur allar lautirnar og beðin með öll- um fallegu blómunum og þú kunnir nafnið á þeim öllum. Þú talaðir um hvað ykkur langaði að gera meira á landinu ykkar og gafst okkur góð ráð í blómaum- hirðu, sem okkur þótti mjög vænt um. Það var alltaf gott að koma í Svínadal. Undir lokin þá háðir þú mjög harða baráttu við mein sem vildi ekki sleppa þér eða láta í friði. Æðruleysi þitt í þessari baráttu sat oft í mér og ég hef ekki alltaf kunnað að segja réttu orðin við þig til að lýsa því hversu mikið ég dáðist að þér í þessari loka- baráttu þinni við meinið. Takk fyrir að vera frábær mamma, tengdamamma, amma og langamma barna okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við munum minnast þín fyrir hlýjuna, kærleikinn og fegurðina í lífinu og söknuður okkar er mikill. Guðbjartur Stefánsson, Anna Sigríður Jónsdóttir, börn og barnabarn. Mig langar að minnast minn- ar ástkæru og yndislegu tengda- móður. Steina var lífsglöð kona, alltaf hress og skemmtileg, talaði ávallt vel og fallega um fólk. Minnisstæð eru hennar við- brögð, aðeins fallegt bros þegar henni fannst umræðan ekki já- kvæð og tók aldrei undir nei- kvæðni. Hún hlakkaði svo til efri ár- anna, byggði sér sumarbústað í fallegu umhverfi þar sem hún og hennar ástkæri Eddi nutu þess að vera. Það var alltaf jafn ynd- islegt að fylgjast með því hvað þau nutu sín vel saman. Svo samrýmd og falleg hjón alla tíð. Árlegu borgarferðirnar var eitt- hvað sem þau elskuðu og þá sér- taklega Kaupmannahöfn. Það er svo gott á þessari stundu að minnast ferðarinnar sem við átt- um með þeim þar á afmælisdegi hennar fyrir tveimur árum. Það sem einkenndi fjölskyld- una sem ég varð svo lánsamur að verða hluti af aðeins tvítugur var þessi væntumþykja og sam- heldni en tengdamamma lagði sig fram við að koma fjölskyld- unni sem oftast saman og notuð voru öll tækifæri til að hittast og gleðjast saman. Tengdamamma hafði lítið gaman að því að keyra bíl sjálf en okkar allra fyrstu kynni fóru saman í bílnum mínum, þá ný- byrjaður að hitta mína yndislegu Laufeyju sem ég keyrði eitt sinn heim til að passa litlu systur sín- ar, Unni og Elínu, þar sem til- vonandi tengdamamma þurfti far í klippingu en Laufeyju fannst þá einmitt tilvalið að nota tækifærið og láta mig hitta hana í fyrsta skiptið og kynnast. Þarna hófust okkar góðu kynni en við náðum strax vel saman og ég fann að þarna var ég kominn með góðan bandamann í að styrkja mína stöðu um að vinna hug og hjarta dóttur hennar enda lagði ég mig allan fram að klúðra ekki okkar fyrsta spjalli sem gekk mjög vel. Barátta tengdamömmu í sín- um veikindum stóð í nokkur ár og var það aðdáunarvert hvað hún lagði sig fram við að halda utan um sína og skapa með okk- ur góðar minningar. Ég var svo heppinn að fá að keyra hana nokkrum sinnum á Landspítal- ann og heim til sín aftur en í þessum ferðum okkar áttum við mjög góð og einlæg samtöl sem ég mun aldrei gleyma. Þetta gaf okkur báðum að ég tel mjög mikið og okkar tengsl urði jafn- vel enn sterkari. Það veður erfitt að hugsa til þess að mín elskulega tengda- mamma veður ekki í komandi fjölskylduboðum en ég ætla að trúa því að hún haldi áfram að fylgjast með okkur öllum með sínum einstaka áhuga eins og hún hefur alla tíð gert og ég veit að við munum alltaf finna fyrir hennar sterku nærveru þó svo hún sé nú komin á æðri stað. Ég mun sakna þín óendanlega elsku tengdamanna. Þrátt fyrir mikla sorg þá hugga ég mig við minningar um okkar síðasta þétta faðmlag á afmælisdegi Laufeyjar sem ég mun aldrei gleyma ásamt okkar síðustu kveðjustund og ég veit að þú munt taka vel á móti mér þegar minn tími kemur eins og alltaf. Þinn Hilmar. Kæra Steina, tengdamamma og amma barnanna minna, þín verður sárt saknað. Jafnt á gleðistundum sem öðrum meira krefjandi hafðir þú ávallt gleði, hlýju og jákvæðni að leiðarljósi. Við fjölskyldan berum í brjósti okkar ótal góðar stundir með þér sem við munum gæta að og rifja upp um ókomna tíð. Fráfall ástvinar er sárt og koma ýmsar tilfinningar nú í huga manns. Munum við ætíð gæta þess að hafa gleði, hlýju og jákvæðni ríkjandi um minningu þína líkt og þú geislaðir af í lífinu. Þinn tengdasonur, Jón Ingi. Elsku amma, við söknum þín mikið, þú varst alltaf svo góð við okkur. Takk fyrir að baka góðu pönnukökurnar í sveitinni. Takk fyrir að prjóna fallegar og mjúk- ar peysur handa okkur. Takk fyrir að baka fallegar kökur fyr- ir afmælin okkar. Takk fyrir góða vanillurjóm- ann sem þú bjóst til með jarð- arberjunum sem þið afi rækt- uðuð í sveitinni. Takk fyrir að eiga alltaf þurrkað mangó í skúffunni. Takk fyrir að vera alltaf svona góð og ástrík við okkur. Takk fyrir að fara alltaf með bænirnar fyrir svefninn. Takk fyrir að syngja með okkur. Takk fyrir að elda gott lamba- læri handa okkur í sveitinni. Takk fyrir að kenna okkur hvað fuglarnir heita. Takk fyrir að kenna okkur nöfnin á blómun- um. Takk fyrir að fara með okk- ur í berjamó. Takk fyrir alla góðu göngutúrana saman. Takk fyrir að nenna alltaf að lesa fyrir okkur. Takk fyrir öll mjúku knúsin. Takk fyrir möndlugraut- inn sem við fengum hjá ykkur afa á jólunum. Takk fyrir öll jól- in sem við héldum saman. Takk fyrir að hlusta á okkur. Elsku besta amma okkar, við söknum þess svo mikið að geta ekki leitt þig, strokið mjúku hendurnar þínar og fengið gott knús frá þér. Við vitum að þú ert í hjörtunum okkar eins og þú sagðir okkur og við geymum þig þar að eilífu. Þín, Darri, Birta Guðrún, Laufey, Hákon Jaki, Hekla Lind og Sóley. Það voru sorgarfréttir er við fréttum af andláti Steinunnar Hlínar Guðbjartsdóttur. Þótt okkur hafði verið ljóst um nokk- urn tíma að heilsu hennar hefði hrakað vorum við ekki undir það búin að hún myndi kveðja svo fljótt. Steinunn og Erlendur reistu sér fallegan bústað í landi Kambhóls í Hvalfjarðarsveit og var eftir því tekið hve samhent þau voru í öllu því sem þau tóku sér þar fyrir hendur. Þau hafa bæði verið í stjórn sumarhúsa- félagsins okkar í rúm 10 ár og verið mjög virk í öllum verk- efnum sem félagið hefur tekið fyrir. Það var einstaklega ánægjulegt að eiga samleið með Steinunni því hún var einstak- lega glaðlynd kona sem sem gerði umhverfi sitt svo mikið betra með nærveru sinni, svo einstaklega brosmild, hjálpsöm og glaðleg öllum stundum. Hún skilur eftir sig skarð meðal allra þeirra sem þekktu til hennar og þó sérstaklega hjá Erlendi og fjölskyldu hans sem sakna eiginkonu, móður og ömmu. Félagar í sumarhúsafélaginu í landi Kambhóls kveðja kæra vinkonu og flytja öllum aðstand- endum innilegustu samúðar- kveðjur. Þórður Guðmundsson. Nú hefur Steina okkar kvatt jarðlífið eftir erfið veikindi; veik- indi sem hún tók af því æðru- leysi sem hennar var von og vísa. Við vinkonurnar erum af þeirri kynslóð sem ólst upp þeg- ar uppbygging var mikil í Reykjavík eftir hernámsárin og landsmenn flestir farnir að hafa meiri fjárráð. Foreldrar okkar byggðu sér hús í Smáíbúða- hverfinu, í Akurgerðinu, nánar tiltekið. Við vorum ekki komnar á skólaaldur þegar kynni okkar hófust. Á þeim tíma voru flest börn úti að leika sér alla daga. Þar var ýmislegt brallað sem ekki verður tíundað hér en í mörgu því átti Steina stóran þátt, enda alltaf gaman þar sem hún var nálæg. Við vorum sam- an í skólakórnum, í skólahljóm- sveitinni, þar sem Steina spilaði á fiðlu, og við vorum í handbolta, í Víkingi, að sjálfsögðu. Við lás- um líka mikið og bókasafnið var félagsmiðstöð hverfisins (áður en við komumst á sjoppualdur- inn). Ekki mátti heldur missa af framhaldssögum barnanna í út- varpinu eða framhaldsleikritun- um eins og spennutrylli þess tíma „Hulin augu“. Steina fór alltaf til Eyja á sumrin til ættingja sinna, vann í fiski, var á þjóðhátíð og hafði frá ýmsu að segja við komuna heim. Steina var fyrst okkar til að stofna fjölskyldu og þegar við svo fórum báðar utan til náms og starfa skildi leiðir um tíma. En eftir því sem árunum fjölgaði skipti ekki máli hvort við hitt- umst einu sinni á ári eða jafnvel sjaldnar um tíma því það var alltaf sami sterki þráðurinn á milli okkar. Sem betur fer juk- ust samverustundirnar aftur hin síðari ár og Steina kom með í „saumaklúbbinn“ okkar og end- urnýjaði kynnin við gamlar skólasystur. Þær senda fjöl- skyldunni samúðarkveðjur. Steina var skarpgreind, blómstraði í hverju því sem henni datt í hug að gera. Hún hafði einstaklega góða nærveru, var jákvæð, æðrulaus, með ríka réttlætiskennd og hafði sterkar skoðanir sem hún lagði alltaf fram á einlægan og hreinskipt- inn hátt. Brosið hennar var fal- legt og hlýjan skein af henni. Hún var mikil fjölskyldukona, vildi allt fyrir fólkið sitt gera. Missir Edda, barnanna og fjöl- skyldunnar allrar er mikill. Við þrjár, Steina, Gerður og Hulda, vorum þríeykið úr Ak- urgerðinu. Við höfum verið það í hjartanu síðan. Nú erum við tvær eftir. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að eiga Steinu að vinkonu og fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með henni í gegnum árin. Send- um öllum ástvinum samúðar- kveðjur. Minningin um góða konu lifir að eilífu. Gerður og Hulda. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, SIGURÐUR RAGNAR KRISTJÁNSSON, (Siggi Raggi), lést á Borgarspítalanum sunnudaginn 1. ágúst. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13.00. Streymt verður frá athöfninni, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlát. Þeim sem vilja minnast Sigga er bent á Handverkstæðið Ásgarð, reikningur 528-26-123456, kennitala 610396-2679. Kristján Guðni Hallgrímsson Steinhildur Sigurðardóttir Edda Björk Kristjánsdóttir Jón Trausti Ólafsson Dilja Björk Örvarsdóttir Arnar Ingi Traustason Hildur Karitas Traustadóttir Ástkær móðir okkar, amma, langamma og langalangamma, ÁSHILDUR M. ÖFJÖRÐ, Raftahlíð 69, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 31. júlí. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 13. ágúst klukkan 14. Þórdís Ragnh. Malmquist Konráð Óli Fjeldsted Bergur Ketilsson Gunnur Sigdís Gunnarsdóttir Rögnvaldur S. Valbergsson Hrönn Gunnarsdóttir Aðalbjörg J. Valbergsdóttir Örn Erhard Þorkelsson Valdís Sigrún Valbergsdóttir Jóhannes Snorrason Hannes Valbergsson Flor Maria Flores Castagnoli Snæbjörn Freyr Valbergsson Árný Anna Svavarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTRÍÐUR BALDURSDÓTTIR, Víkurbraut 30, Höfn, sem lést 1. ágúst, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju föstudaginn 13. ágúst klukkan 14. Jarðsett verður í Kotstrandarkirkjugarði. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/xOK_-QHsV-A Jóhann Einarsson Margrét Helga Bragadóttir Vilhjálmur Baldur Bragason Sigrún B. Halldórsdóttir Jón Bragason Ása Jóhannsdóttir Ragnar S. Jónsson Pétur Bragason Guðrún Einarsdóttir og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNBJÖRN JENSSON, Ránargötu 27, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 30. júlí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 16. ágúst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður athöfninni streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar Borghildur Rún Baldursdóttir Friðrik Baldur Gunnbjörnss. Valgerður Sif Hauksdóttir Jens Sigmundur Esra Gunnbjörnsson afabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginmaður minn, HLÖÐVER HALLGRÍMSSON, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 4. ágúst á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 19. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt á https://www.facebook.com/groups/hlodver Guðrún Númadóttir Ásdís Hlöðversdóttir Sædís Hlöðversdóttir Eggert Karvelsson Díana Hlöðversdóttir Sóley Hlöðversdóttir Heiðar Jóhannsson Bjarney Hlöðversdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HILDUR KRISTINSDÓTTIR, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 1. ágúst. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Guðríður Gunnarsdóttir Björn G. Ólafsson Gunnar Már Gíslason Guðrún Helgadóttir og langömmubörn Okkar ástkæri STEINGRÍMUR HÁLFDANARSON loftskeytamaður varð bráðkvaddur á heimili sínu 6. ágúst. Útför verður auglýst síðar. María Hlín Steingrímsdóttir Hanna Steinunn Steingrímsdóttir, Eyjólfur D. Jóhannsson Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir Sindri Máni, Hilmir Snær og Ísak Elí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.