Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
„Nú er haustið að detta í gang eða svona fólk
að undirbúa sig og fólk að panta alveg í gríð og
erg og við vorum einmitt að bæta við nýjung
hjá okkur sem er hreyfing, æfingaprógramm í
okkar prógrammi, þannig að það eru stóru
fréttirnar hjá okkur,“ segir Ingi Torfi hjá ITS
Macros næringarþjálfun í viðtali við morg-
unþáttinn Ísland vaknar.
Í næringarþjálfuninni hjá ITS er fólk vigtað,
mælt og fær svo að borða eftir eigin formúlu.
„Þú færð svo að púsla saman deginum og
ræður svona nokkurn veginn hvað þú borðar
sjálfur en auðvitað aðstoðum við fólk við það og
síðan áttar þú þig á því að þú varst líklega að
borða of lítið á virkum dögum og svo mögulega
of mikið um helgar og svo allt í einu fer þetta að
jafnast út og við fylgjum fólki í gegnum þetta,
átta vikur að minnsta kosti. Samhliða því er
alls konar svona þar sem við hjálpum fólki að
vinna með hugarfar og jákvæðni og svona,“
segir Ingi.
Orðin ansi sjóuð í því hvað hver
og einn á að borða
Spurður hvernig hann kemst að því hvaða
formúlu hver og einn á að borða eftir segist
Ingi sjálfur vinna eftir ákveðinni formúlu sem
hann er búinn að læra.
„Það er ekki til nein töfraformúla en við er-
um orðin ansi sjóuð í því hvað hver og einn á að
borða mikið miðað við aldur, kyn, hæð og
hreyfingu. Þetta eru breyturnar og svo auðvit-
að getur verið að við byrjum og þú finnur eng-
an mun strax og svo getur verið að við þurfum
að breyta tölum og aðlaga, þetta er „team-
work“ í gegn þannig að það er „feedbackið“
sem við fáum og svo kannski á viku tvö-þrjú er-
um við farin að finna og sjá mun og þá vitum
við að við erum að vinna með réttar tölur. Eða
þá segjum að þú byrjir að finna að þú sért að
hreyfa þig meira og allt í einu segirðu: „Heyrðu
Ingi, ég þarf að hreyfa mig, ég er of kraftmikill,
ég er að fíla þetta og ég er farinn að æfa
meira.“ Þá þurfum við að bæta við tölurnar
mögulega og aðlaga. Þannig að við fylgjumst
með hvernig orkan er, ertu að léttast, eru
sentimetrar að fara? Þú skilar af þér upplýs-
ingum sem við svo vinnum með og þá verður
þetta gott samstarf,“ útskýrir hann.
Ingi segir um 80% af viðskiptavinum hans
vera fólk sem stundar aðeins létta hreyfingu,
svo sem göngutúra.
„Þú getur verið að passa mataræðið ótrúlega
vel en þú ert kannski rétt yfir orkuþörfinni
þinni alla daga og þá gerist ekkert. Þá léttistu
ekki. Ef þú ferð allt í einu að skrá þetta og ferð
að leggja aðeins meiri metnað í matinn og
hreyfingin bara eins að þá allt í einu fer eitt-
hvað að gerast. Um leið og við erum undir
orkuþörfinni förum við að léttast,“ segir hann
og bætir við: „Það eru rosalega margir sem
æfa eins og fagmenn en ná ekki að komast á
draumastaðinn af því að það gerist í eldhúsinu.
Það gerist með því að stúdera mataræðið, þá
nærðu þessum lokaspretti og kemst í mark og
verður ótrúlega glaður.“
Spurður um einn hlut sem hægt sé að byrja á
til þess að koma mataræðinu í betri farveg seg-
ir Ingi Torfi það klárlega vera grænmetið.
„Ég er alltaf voða hlynntur því að borða
grænmeti og ef fólk fókusar svolítið á það að
hafa grænmeti í hádegismat og kvöldmat og
svolítið mikið af því, það er alveg magnað hvað
það gerir fyrir okkur. Sérstaklega fyrir þá sem
eru að reyna að létta sig kannski. Ef þú borðar
meira grænmeti verðurðu saddari og mettari
og líður betur og þú þarft ekki að borða eins
mikið af einhverju sem er kannski ekki gott
fyrir þig. Þannig að fyrsta skrefið getur verið
að borða grænmeti í öll mál með því sem þú
borðar og ósjálfrátt verður bókhaldið þitt
betra,“ segir hann.
Viðtalið við Inga Torfa er hægt að nálgast í heild
sinni á K100.is.
„Við erum orðin ansi
sjóuð í því hvað hver
og einn á að borða“
Ingi Torfi hjá ITS Macros hjálpar fólki að borða eftir formúlu sem
hentar hverjum og einum. Hann segir fólk vera byrjað að undirbúa
sig fyrir haustið og að nóg sé að gera hjá honum þessa dagana.
Skjáskot/Instagram-síða IngaSkjáskot/Instagram-síða Inga
Ingi Torfi Hjálpar
fólki að ná árangri
með mataræðinu.
Mataræðið
skiptir miklu
máli Ingi Torfi
segir flesta við-
skiptavini sína
hreyfa sig létt.