Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
595 1000
Tenerife
er
ð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
f
r
ar
a
18. ágúst í 7 nætur
Verð frá kr.
71.100
Verð frá kr.
94.200
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
„Þetta er ótrúlega merkileg reynsla
að vera fastur í fjötrum inni á eigin
heimili,“ segir séra Bolli Pétur
Bollason í samtali við Morgunblaðið.
Hann hafði nýlega losnað úr 10 daga
einangrun eftir að hafa smitast af
kórónuveirunni þegar blaðamaður
náði tali af honum.
Bolli var þó ekki einn í einangrun
því bæði eiginkona hans, séra Sunna
Dóra Möller, og dóttir þeirra, Matt-
hildur Þóra Möller, smituðust af
veirunni og voru þær því skikkaðar í
einangrun líka. „Nú erum við dótt-
irin sloppin út en samkvæmt plani á
frúin að klára sína prísund á mið-
vikudag,“ segir Bolli.
Þar sem fjölskyldan kláraði ein-
angrunina ekki á sama tíma urðu
Bolli og dóttir hans að fara út af
heimilinu að einangrunartíma sínum
loknum. „Ég get þó farið heim, setið
á sólpallinum og kallast á við konuna
mína ef hún stendur í eldhúsglugg-
anum.“
Fjölskyldan býr í fjölbýli, sem
Bolli segir hafa komið sér illa í ein-
angruninni enda sé þar sameigin-
legur útgangur og þvottahús. Fjöl-
skyldan mátti eðli máls samkvæmt
ekki fara út á meðal fólks meðan á
einangruninni stóð, m.a. til að fara
út í búð. Þess í stað nýttu þau sér
heimsendingarþjónustu matvöru-
verslana fyrir mat og aðrar nauð-
synjavörur. Lítið hafi þó farið fyrir
eldamennsku meðan á einangrun-
inni stóð, að sögn Bolla, enda misstu
þau bæði bragð- og lyktarskyn sem
þau hafa ekki endurheimt að fullu
ennþá. „Við borðuðum aðallega ein-
hverja upphitaða 1944-rétti,“ segir
hann. Dóttir þeirra hélt þó fullu
bragð- og lyktarskyni og því ákváðu
hjónin að elda handa henni lamba-
hrygg eitt kvöldið í einangruninni.
„Það er í fyrsta skiptið sem ég borða
lambakjöt án þess að finna bragð af
því. Núna finnst mér allt sem ég
borða bragðast eins og plast,“ segir
Bolli.
Samveran í einangruninni gekk
„ljómandi vel“ að sögn Bolla. Fjöl-
skyldan hafi notið þess að vera sam-
an og nýtt tímann í að spjalla.
Þá las fjölskyldan bækur og horfði
á sjónvarp sér til dægrastyttingar.
Það hafi þó ekki síður verið til að
dreifa huganum að sögn Bolla. „Þeg-
ar manni er kippt svona út og maður
fer í einangrun í sinni eigin veröld
inni á heimilinu þarf maður svolítið
að kljást við hugann. Það er margt
sem sækir á mann og verður
kannski svolítið ýktara þegar maður
fær svona mikinn tíma til að hugsa,“
segir hann. „Það er ótrúlegt hvað
það er mikilvægt að hafa gott og
göfgandi lesefni. Maður fer inn í
ákveðinn heim við það að lesa. Það
dreifir huganum.“
Á meðan Sunna bíður eftir að
losna úr einangrun fagnar Bolli því
að vera frjáls ferða sinna og geta
farið í sund og göngutúra á ný.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einangrun Prestshjónin séra Bolli Pétur Bollason og Sunna Dóra Möller spjalla í gegnum gluggann heima hjá sér.
Merkileg reynsla að
vera fastur í fjötrum
- Misstu bæði bragð- og lyktarskyn - Andlega erfitt
Umboðsmaður Alþingis telur að
Tryggingastofnun beri að birta nöfn
þeirra starfsmanna sem standa að
ákvörðunum stofnunarinnar. Það hef-
ur stofnunin ekki gert til að vernda
starfsfólk sem ítrekað hefur verið
hótað og áreitt í kjölfar ákvarðana.
Maður kvartaði til umboðsmanns
Alþingis yfir því að ákvörðun og rök-
stuðningur Tryggingastofnunar um
örorkumat hans hefðu verið nafnlaus.
Í þeim skjölum kæmu ekki fram nöfn
þeirra starfsmanna sem stóðu á bak
við þau. Í skýringum Tryggingastofn-
unar til umboðsmanns var meðal ann-
ars vísað til þess að ákveðið hefði ver-
ið að hætta að birta nöfn starfsmanna
við afgreiðslu mála vegna þess að
stofnunin hefði talið nauðsynlegt að
grípa til aðgerða til að vernda starfs-
fólk hennar. Þá nyti það persónu-
verndar lögum samkvæmt.
Umboðsmaður benti á að það hefði
grundvallarþýðingu út frá réttar-
öryggissjónarmiðum að tilgreina
nöfn þeirra starfsmanna sem stæðu
að ákvörðun. Þannig gæfist málsaðila
til dæmis færi á að ganga úr skugga
um að viðkomandi starfsmenn hefðu
verið bærir til að taka slíka ákvörðun
auk þess sem það hefði grundvallar-
þýðingu til að hann gæti metið hvort
aðstæður væru með þeim hætti að
efast mætti um hæfi starfsmanns.
Taldi umboðsmaður ekki að
ákvæði persónuverndarlaga stæðu í
vegi þess að nöfn starfsmanna væru
birt, eins og Tryggingastofnun
byggði á. Ef stofnunin teldi ástæðu
til að gæta trúnaðar um slíkar upp-
lýsingar bæri að leggja mat á hags-
muni aðila máls gagnvart þeim al-
manna- og einkahagsmunum sem
væru undir í málinu, í samræmi við
ákvæði stjórnsýslulaga.
Mæltist umboðsmaður til þess að
Tryggingastofnun tæki málið til
meðferðar að nýju, ef eftir því yrði
leitað, og leysti þá úr því í samræmi
við sjónarmið í álitinu. Jafnframt að
gera viðeigandi ráðstafanir til úrbóta
á formi og framsetningu stjórnvalds-
ákvarðana stofnunarinnar.
Sigríður Lillý Baldursdóttir, for-
stjóri Tryggingastofnunar, segir að
farið verði yfir álit umboðsmanns og
ákvarðanir teknar í kjölfar þess.
helgi@mbl.is
Starfsmenn skrifi
undir ákvarðanir
- Starfsmönnum TR ítrekað hótað
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza
Reid buðu ólympíuförum á Ólympíuleika fatl-
aðra í heimsókn á Bessastaði í gær. Leikarnir
hefjast í Tókýó 24. ágúst. Í heild fer 20 manna
teymi út en keppendur Íslands eru sex: Patrekur
Andres Axelsson og Bergrún Ósk Aðalsteins-
dóttir keppa í frjálsum íþróttum, Róbert Ísak
Jónsson, Már Gunnarsson og Thelma Björg
Björnsdóttir keppa í sundi og Arna Sigríður Al-
bertsdóttir keppir í handahjólreiðum. Ásamt
keppendum fara með út Þórður Árni Hjaltested,
formaður Íþróttasambands fatlaðra, Ólafur
Magnússon, framkvæmdastjóri sambandsins,
þjálfarar, liðslæknir, fararstjóri og aðstoðar-
menn. Guðni og Eliza héldu stutta hvatningar-
ræðu fyrir hópinn og buðu honum upp á kaffi,
kleinur og pönnukökur. Þá færði hópurinn for-
setahjónunum liðstreyjur að gjöf.Morgunblaðið/Eggert
Buðu ólymp-
íuförum á
Bessastaði