Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 41

Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Kíktu til okkar í góðan mat og notalegt andrúmsloft Borðapantanir á www.matarkjallarinn.is Nýttu ferðagjöfina hjá okkur Það var djassbarinn Skuggabaldur við Austurstræti sem reið á vaðið. „Lucky Saint, áfengislausi bjórinn, er gríðarlega vinsæll svo við erum mjög ánægð með að geta nú boðið okkar fólki upp á hann á krana. Við höfum verið með gott úrval af 0% bjór og þetta er því kærkomin við- bót,“ segir Jón Mýrdal, eigandi Skuggabaldurs. Frá því Akkúrat hóf að bjóða veitingastöðum, börum og hótelum upp á úrval af vönduðum 0% drykkjum hefur góður áfengis- laus lagerbjór á krana verið efstur á óskalista viðskiptavina. Það er því mikið gleðiefni að geta nú boðið við- skiptavinum Akkúrat upp á þennan valmöguleika. Sólrún María Reginsdóttir hjá Akkúrat segir þetta skref vera stór- an hluta af hugsjóninni á bak við Akkúrat. „Það er þessi hugmynd um að allir getir verið með og notið þess að drekka góðan drykk við skemmti- leg tilefni. Okkar markmið er að bjóða þeim stóra hópi fólks sem farið er að velja 0% drykki, eingöngu eða stundum, upp á alvöruvalkost. Það er mikilvægt skref í þá átt þegar fólk hér á landi getur nú fengið áfengis- lausa bjórinn sinn í fallegu glasi úr krana eins og hinir, skálað og notið lífsins. Þetta var akkúrat það sem vantaði!“ segir Sólrún María. Lucky Saint þarf vart að kynna en hann hefur hlotið verðlaun um heim allan sem besti áfengislausi bjórinn. Innihaldsefnin eru aðeins fjögur; vatn, bygg, ger og humall, og bjór- inn er ósíaður. Þetta ferli og val á hráefni þýðir að engin þörf er á að bæta við gervi- eða sætuefnum. Hann er þess vegna ekki bara ein- staklega bragðgóður heldur er syk- urinnihaldið aðeins þriðjungur af því sem flestar tegundir áfengs bjórs innihalda, með einungis 53 kaloríum í hverjum bjór. Áfengislaus á krana í fyrsta sinn á Íslandi 0% drykkir njóta sívaxandi vinsælda og áfengislausi lagerbjórinn Lucky Saint hefur slegið í gegn hjá landsmönnum í sumar. Nú er sá hinn sami mættur á krana en þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á áfengislausan bjór með þeim hætti hér á landi. Ljósmynd/Akkúrat Bylting Það er mikil bylting fyrir neytendur að geta fengið áfengislausan bjór á krana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.