Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 6
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Mikil sátt ríkir um gjaldtöku við Ker-
ið í Grímsnesi. Þetta segir Óskar
Magnússon, einn eigenda þess. Mikill
styr stóð um gjaldtökuna á sínum
tíma þegar henni var komið á. Að-
gangseyrir er 400 krónur sem inn-
heimtur er á staðnum og rennur m.a.
til uppbyggingar mannvirkja á staðn-
um, stíga, palla, auk þess sem starfs-
fólk sinnir viðhaldi, ruslatínslu og
öðru því sem til fellur. Gjaldtakan átti
sér hins vegar langan aðdraganda og
þegar Óskar, í félagi við Ásgeir Bolla
Kristinsson og bræðurna Jón og Sig-
urð Gísla Pálmason, keypti kerið um
aldamótin síðustu stóð ekki til þess að
taka gjald af gestum staðarins. Hins
vegar hafi ágangur aukist jafnt og
þétt og vegna sprengingar í ferða-
þjónustu hafi ekki verið stætt á öðru
en að hefja gjaldtöku árið 2013.
Áður hafði Kerfélagið, sem fer með
eignarhald á náttúruvættinu, komið í
veg fyrir að rútufyrirtæki sem gera
út á akstur ferðamanna um hinn svo-
kallaða Gullna hring, stoppuðu án
endurgjalds á svæðinu.
„Þegar við förum að fá tekjurnar
þá notum við þær strax í uppbygg-
ingu og endurbætur, stígagerð, smíð-
um fallegan gríðarlega öflugan pall
úr bryggjuviði, ekki stáli, allt hannað
af fínustu arkitektum og snillingum.
Þetta er nánast listaverk. Síðan för-
um við að gera tröppur þar sem voru
tíu stígar niður, allt í mold og drullu
og allt stórhættulegt. Svo erum við
búin að gera tröppur sem eru gerðar
úr íslensku lerki sem er fengið úr
Kjarnaskógi á Akureyri og þetta er
allt gert af nokkurri dýpt.“
Þessar framkvæmdir hafi orðið til
þess að ferðaþjónustan hafi tekið
gjaldtökuna í sátt, enda ljóst að allir
nutu góðs af henni. Óskar segir þó að
vatnaskil hafi orðið í umræðunni og
viðhorfi til gjaldtöku á ferðamanna-
stöðum þegar bílastæðagjöld voru
tekin upp á Þingvöllum. Lýsir hann
þeirri atburðarás sem „snilld“ sem
runnin hafi verið undan rifjum Ólafs
Haraldssonar, þáverandi þjóðgarð-
svarðar. Sú gjaldtaka skili Þjóðgarð-
inum um milljarði króna í árferði þar
sem ferðaþjónustan er á fullum snún-
ing og að það hafi reynst mörgum
auðveldara að kyngja því að greiða
fyrir aðgang að bílastæði heldur en
aðgang að göngustígum, pöllum og
tröppum.
Örfáir skirrast við að borga
Slík er sáttin um gjaldtökuna við
Kerið að sögn Óskars að nær aldrei
komi sú staða upp að fólk vilji ekki
greiða fyrir aðgang að svæðinu. Þeg-
ar það hafi gerst hafi þar ætíð verið
um Íslendinga að ræða. Þó sé einn Ís-
lendingur sem greiði ekki aðgangs-
eyri og um það ríki sátt. Það er Ög-
mundur Jónasson, fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra.
„Ögmundur borgar ekki inn í Ker-
ið í dag. Hann er eini maðurinn sem
fær frítt og það vita það allir sem þar
vinna en það er gert til þess að hann
fái ekki tækifæri til þess að vera með
uppistand og málflutning á staðnum.“
Starfsmanna- og salernis-
aðstaða á teikniborðinu
Kerfélagið stefnir á frekari upp-
byggingu við Kerið og að það ferli
hafi í raun tafist vegna deiliskipulags-
vinnu sem nú sér fyrir endann á.
Bendir hann á að lengi hafi verið kall-
að eftir salernisaðstöðu á svæðinu en
þá sé einnig þörf á starfsmanna-
aðstöðu og þá komi einnig til greina
að reisa veigameiri byggingar undir
verslun og veitingaþjónustu. Segir
hann að í fyrsta fasa megi gera ráð
fyrir að kostnaðurinn hlaupi á 100 til
150 milljónum en að í heildina gæti
þetta verkefni kostað um hálfan millj-
arð króna. Félagið skilaði tapi í fyrra
en í hefðbundnu árferði er reksturinn
traustur.
Mikil sátt um gjaldtökuna við Kerið
- Eigendur Kersins hyggjast verja hundruðum milljóna til uppbyggingar á komandi árum
- Tap varð af rekstrinum 2020 - Fleiri feta sömu leið - Ögmundur Jónasson sá eini með frípassa
Kerið Fjórir viðskiptafélagar keyptu Kerið um aldamótin og hófu gjaldtöku
þar árið 2013 þegar ágangur á svæðinu var orðinn gríðarlega mikill.
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Kristjana S.
Williams
Sýning í Gallerí Fold
14.-28. ágúst
„It lies
in the eyes
upstairs“
Sýningaropnun
14. ágúst kl. 14.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
vegna komandi alþingiskosninga
hefst á skrifstofu sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu á morgun,
föstudag, verði tilkynning um þing-
rof og kjördag 25. september auglýst
í Stjórnartíðindum í dag, eins og til
stendur. Það sama á væntanlega við
önnur sýslumannsembætti. At-
kvæðagreiðslan á höfuðborgarsvæð-
inu færist í Smáralind og Kringluna
síðar í mánuðinum en enginn kjör-
staður verður í Laugardal að þessu
sinni.
Langt er síðan ákveðið var að
stefna að kosningum til Alþingis 25.
september en það er ekki fyrr en í
dag sem það verður tilkynnt form-
lega. Því hefur ekki verið hægt að
opna fyrir atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar. Sýslumenn hafa eigi að
síður undirbúið opnun kjörstaða.
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumað-
ur á höfuðborgarsvæðinu, segir að
allt sé tilbúið til að taka á móti fólki í
skrifstofuaðstöðu embættisins að
Hlíðasmára 1 í Kópavogi. Þar verður
opið á skrifstofutíma. Sigríður segir
að afgreiðslutíminn verði lengri eða
frá klukkan 10 til 22 eftir að kjör-
staðurinn verður fluttur í Smáralind
og Kringluna 23. eða 24. ágúst næst-
komandi.
Segir Sigríður að áætlanir emb-
ættisins geri ráð fyrir að aðsókn
verði þó nokkur enda hafi verið að
fjölga í þeim hópi kjósenda sem vel-
ur að greiða atkvæði utan kjörfund-
ar.
Blýantarnir sprittaðir
Gætt verður vel að sóttvörnum á
kjörstöðum. Hlutir sem kjósendur
snerta á, svo sem blýantar og fleira,
verða sótthreinsaðir eftir hverja
notkun og gætt verður að fjarlægð-
armörkum við uppröðun á kjörklef-
um og í biðröðum. Þess vegna verður
ekki grímuskylda.
Verið er að taka saman hvað mik-
inn mannskap þarf til að framkvæma
utankjörfundaratkvæðagreiðsluna.
Þar hefur afgreiðslutíminn áhrif.
Sigríður segir að ákveðið hafi verið
að hafa rúman afgreiðslutíma til að
dreifa kjósendum meira og draga
þannig úr áhættu vegna smita. Það
kalli á fleiri starfsmenn.
Dómsmálaráðuneytið hefur opnað
fyrir rafræna söfnun meðmæla með
framboðslistum og umsóknum um
listabókstafi. Fer hún fram á Ísland-
.is og þarf að nota rafræn skilríki til
að taka þátt.
Rafræn söfnun meðmælenda er
nýr valkostur fyrir stjórnmálasam-
tök en einnig verður hægt að safna
meðmælum á pappír eins og gert
hefur verið hingað til.
Morgunblaðið/Eggert
Utan kjörfundar Kosið verður að þessu sinni í Smáralind og Kringlunni.
Tilbúin fyrir at-
kvæðagreiðslu
- Atkvæði greidd í verslunarmiðstöðvum
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Fraktflutningafyrirtækið ORyx Jet
Ltd. krefst fimm milljóna punda,
jafnvirði 829 milljóna króna, úr
hendi Icelandair vegna tjóns sem
starfsmaður Icelandair olli á vél fé-
lagsins þegar hann lestaði hana af
mat og drykk í september 2018.
Málaferli hafa staðið yfir síðan þá
og segir Skarphéðinn Pétursson,
lögmaður hins breska félags, að Ice-
landair ehf. hafi reynt að teygja mál-
ið eins og hægt er. Hann segir að
Icelandair viðurkenni að hafa orðið
valt að tjóninu, enda var viðkomandi
starfsmaður próflaus á vinnuvél sem
hann ók utan í vél Oryx. Þrátt fyrir
það hefur ekkert gagntilboð um
skaðabætur borist frá Icelandair að
sögn Skarphéðins.
Rándýrir arabískir fálkar
Skaðabótakrafa Oryx, og mála-
ferlin öll raunar, snýst ekki um tjón-
ið á vélinni sjálfri heldur þær tekjur
sem félagið varð af við tjónið og við-
gerð í kjölfarið. Oryx hafði nýlega
gert samning við sádiarabíska olíu-
fursta, sem flytja vildu rándýra fálka
í þeirra eigu með vélum Oryx, sem
síðan féll um sjálfan sig þegar önn-
ur tveggja véla félagsins varð fyrir
tjóni. Í gær féllst Héraðsdómur
Reykjavíkur á spurningar sem
Skarphéðinn fær að spyrja dóm-
kvaddan matsmann í málinu. Verk-
efni hans verður að leggja mat á
hversu sennilegt það sé að Oryx hafi
misst af samningi við furstana vegna
tjónsins. oddur@mbl.is
Krefst 829 milljóna í bætur
- Starfsmaður Icelandair ók réttindalaus á fraktflutningavél