Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 32
32 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Einnota andlitsgrímur 3ja laga 10 stk. pakkningar Type IIR Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ashraf Ghani, forseti Afganistans, heimsótti í gærmorgun hina um- setnu borg Mazar-i-Sharif og reyndi að hughreysta þar varnarlið borg- arinnar. Heimsókn Ghanis féll hins vegar að miklu leyti í skuggann af þeim tíðindum, að nokkur hundruð afganskra hermanna hefðu lagt nið- ur vopn við borgina Kunduz, en þeir höfðu leitað skjóls við flugvöll borg- arinnar eftir að talíbanar hertóku hana um helgina. Ghani ræddi í heimsókn sinni við Atta Mohammad Noor og Abdul Rashid Dostum um hvernig mætti verja borgina gegn talíbönum, en báðir voru á sínum tíma stríðsherrar í baráttunni gegn þeim. Dostum sagði við fjölmiðla fyrir fundinn að talíbanar „lærðu aldrei neitt af sögunni“ og hét því að hann myndi fella íslamistana. „Talíbanar hafa komið norður nokkrum sinnum, en þeir lentu alltaf í sjálfheldu. Það er ekki auðvelt fyrir þá að sleppa,“ sagði Dostum, en hann barðist á sín- um tíma við hlið Sovétmanna eftir innrásina 1979. Níunda borgin hertekin Þá náðu talíbanar einnig á sitt vald borginni Faizabad, höfuðborg Badkhsjan-héraðs. Er borgin ní- unda héraðshöfuðborgin sem talíb- anar hertaka síðan þeir hófu sókn sína á föstudaginn, en það er um fjórðungur allra héraðshöfuðborga landsins. Kunduz er stærsta borgin af þeim níu, og uppgjöf stjórnarhermann- anna við flugvöll borgarinnar þýðir að ólíklegt er að stjórnarherinn muni geta náð henni aftur á sitt vald á næstunni. Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í fyrrinótt að hann sæi ekki eftir þeirri ákvörðun að kalla herlið Bandaríkjamanna heim frá Afgan- istan eftir nærri tveggja áratuga veru þar. Hvatti hann leiðtoga Afg- anistans til þess að taka höndum saman og berjast fyrir þjóð sína gegn ásókn talíbana. „Þeir verða að berjast fyrir sig sjálfa.“ Biden sagði einnig að Bandaríkja- stjórn myndi áfram styðja við bakið á stjórnvöldum í Kabúl, en erindrek- ar Bandaríkjanna vinna nú að því að endurræsa viðræður um vopnahlé á milli talíbana og stjórnvalda, sem nú fara fram í Katar. Lítil von þykir hins vegar til þess að talíbanar muni fallast á slíkt vopnahlé, nema afgönskum örygg- issveitum takist að stemma stigu við árásum vígamanna þeirra á næstu vikum. AFP Heimsókn Ashraf Ghani sést hér stíga út úr flugvél sinni í Mazar-i-Sharif. Leitar á náðir stríðsherra - Ghani ræðir við Noor og Dostum um varnir Mazar-i-Sharif - Talíbanar hertaka níundu höfuðborgina - Biden hvetur leiðtoga Afganistans til að taka höndum saman Stjórnvöld í Súdan munu framselja Omar al-Bashir, fyrrverandi ein- ræðisherra landsins, til alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag, sem og aðra embættismenn sem dóm- stóllinn hefur kært vegna átakanna í Darfúr-héraði. Mariam al-Mahdi, utanríkisráð- herra Súdans, sagði að ríkisstjórnin hefði ákveðið þetta í gær í tilefni af heimsókn frá Karim Khan, aðalsak- sóknara dómstólsins, til landsins, en Khan og al-Mahdi ræddu saman í fyrradag. Ekki er ljóst hvenær Bashir verð- ur framseldur, en enn á eftir að fá lokasamþykki fyrir því frá fullveld- isráði landsins, en það fer nú með þjóðhöfðingjavald í Súdan. Það sam- anstendur af fulltrúum hersins, sem steypti Bashir af stóli árið 2019, og þeirra stjórnmálaafla sem voru ráð- andi í andstöðu við Bashir. Eftirlýstur í rúman áratug Dómstóllinn gaf út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Bashir árið 2009 vegna stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyni í Darfúr-hér- aði, og aðra árið 2010 fyrir þjóð- armorð. Bashir, sem er 77 ára gam- all, lét sér fátt um finnast og ferðaðist ítrekað utan í krafti stöðu sinnar sem þjóðhöfðingi, en hann ríkti með harðri hendi í Súdan í þrjátíu ár eða þar til herinn ákvað að steypa honum af stóli 2019 vegna mótmælaöldu sem hafði staðið í fjóra mánuði. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 300.000 manns hafi verið myrtir og um 2,5 milljónir manna reknar frá heimilum sínum í átökunum í Darf- úr-héraði árið 2003. Súdan hyggst framselja Bashir - Sakaður um þjóðarmorð í Darfúr AFP Í búri Omar al-Bashir hefur verið í haldi frá valdaráni hersins 2019. Sneið úr brúðartertu, sem borin var fram í brúðkaupi Karls Bretaprins og Díönu prinsessu, var boðin upp í gær, og seldist sneiðin á 1.850 sterlings- pund, eða sem nemur um 324 þúsund íslenskum krónum. Sneiðinni fylgdi aðvörun um að borða ekki kökuna, en brúðkaup Karls og Díönu fór fram 29. júlí 1981, eða fyrir rétt rúmum fjórum áratug- um. Chris Albury, uppboðshaldarinn og sérfræðingur í munum tengdum bresku konungsfjölskyldunni, sagði að það hefði komið sér á óvart hversu margir voru tilbúnir til að bjóða í kökusneiðina, en upphafsverð var á bilinu 300-500 pund. Moyra Smith, sem vann fyrir El- ísabetu drottningarmóður, ömmu Karls, fékk sneiðina á sínum tíma, og seldi fjölskylda hennar hana á upp- boði eftir andlát Smith árið 2008. Þá fengust 1.000 pund fyrir hana. BRETLAND AFP Uppboð Kakan er í góðu ásigkomulagi. Varað við að borða tertuna á uppboðinu Saksóknarar í Þýskalandi greindu frá því í gær að þeir hefðu hand- tekið breskan sendiráðsstarfsmann fyrir njósnir í þágu Rússa. Mun maðurinn hafa látið rússnesku leyniþjónustunni leynileg skjöl í té í skiptum fyrir pening. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði að Þjóðverjar litu málið mjög alvarlegum augum þar sem um þegn bandalagsríkis væri að ræða. Bresk stjórnvöld munu veita Þjóðverjum alla aðstoð við rannsókn málsins. ÞÝSKALAND Breti handtekinn fyrir njósnirKínverskur dómstóll ákvað í gær að dæma kanadíska kaupsýslumanninn Michael Spavor í ellefu ára fangelsi fyrir njósnir. Dómurinn í máli Spav- ors féll sólarhring eftir að áfrýjunar- dómstóll staðfesti dauðadóm yfir öðrum Kanadamanni, Robert Lloyd Schellenberg, vegna meints eitur- lyfjasmygls. Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, fordæmdi dóminn yfir Spavor í gær og sagði hann vera „óviðunandi og ranglátan“. Sagði Trudeau í yfirlýsingu sinni að Spav- or hefði nú setið í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir engar sakir, og hefði mátt þola ógagnsæja málsmeðferð og réttarhöld „sem fullnægðu ekki þeim lágmarkskröfum sem al- þjóðalög krefjast“. Spavor var handtekinn árið 2018 ásamt samlanda sínum Michael Kovrig fyrir njósnir, en kanadísk stjórnvöld segja ákærurnar á hend- ur þeim af pólitískum rótum runnar. Kínverjar og Kanadamenn hafa átt í deilu vegna Meng Wanzhou, stjórn- anda í Huawei, sem handtekin var í Kanada vegna framsalsbeiðni Bandaríkjamanna. Framsalsmál hennar er nú fyrir kanadískum dóm- stólum. Dominic Barton, sendiherra Kan- ada í Kína, sagðist í gær ekki trúa því að það væri tilviljun að dómar hefðu fallið í málunum tveimur á sama tíma og verið sé að fjalla um framsalsbeiðnina í réttarsal. Spavor verði sleppt þegar í stað Bandaríkjastjórn fordæmdi einn- ig dóminn og krafðist þess að Spavor yrði sleppt skilyrðislaust úr haldi þegar í stað. Antony Blinken, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði óviðunandi að fangelsa einstaklinga fyrir engar sakir til að beita erlend ríki þrýstingi. „Það á aldrei að nota fólk sem skiptimynt.“ Evrópusambandið lýsti einnig yfir stuðningi sínum við Kanadamenn í málinu og sakaði Kínverja um að hafa neitað Spavor um sanngjörn réttarhöld. Frönsk stjórnvöld for- dæmdu einnig dómana tvo og lýstu yfir samstöðu með Kanadamönnum. Dómurinn óviðunandi og ranglátur - Bandaríkjamenn og Frakkar for- dæma dóma yfir Kanadamönnum AFP Kína Dominic Barton sendiherra ræðir við fjölmiðla eftir dóminn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.