Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stóra verkefnið nú í byrjun vetrar
er að bjóða fleiri krökkum í skáta-
starfið, sem er skemmtilegt og
þroskandi,“ segir Helga Þórey Júl-
íusdóttir, nýr framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra skáta. Hún tók
við starfinu nú í byrjun vikunnar og
mun sem stjórnandi leiða breytingar
á starfsemi Skátamiðstöðvar við
Hraunbæ í Reykjavík. Þar stendur
til að renna styrkari stoðum undir
fræðslu, stuðning við dagskrá, miðl-
un og þjónustu við skátafélögin í
landinu.
Krakkarnir þjálfi
með sér þrautseigju
„Þetta er áhugavert starf og við
okkur blasa ýmsir spennandi mögu-
leikar,“ segir Helga Þórey. Hún er
frá Akureyri og tók á barns- og ung-
lingsaldri virkan þátt í skátastarfinu
þar. Segist eiga margar góðar minn-
ingar frá fundum og ferðalögum, svo
sem í skátaskálana í Glerárdal og
Vaðalheiði. Síðustu árin hefur hún
verið félagsforingi og stofnaði deild
fjölskylduskáta innan Skjöldunga
sem starfa í Laugardalnum í
Reykjavík.
Sú stefna hefur nú verið mörkuð
að efla foringjaþjálfun innan skáta-
hreyfingarinnar og skapa sterkari
stuðning við þau sem taka að sér for-
ystustörf. „Fræðsla og stuðningur
er lykilatriði í þessu sambandi. For-
ingjarnir í flokkum og sveitum
marka línurnar í starfinu. Þar þekkj-
um við skátafundi og útilegur, þar
sem inntakið er að krakkarnir læri
að bjarga sér og þjálfi með sér
þrautseigju. Skátastarf er lífsstíll og
áhrif þess fólk endast út ævina.“
Allt sem ég lærði í skátunum á
Akureyri í gamla daga hefur nýst
mér í lífinu,“ segir Helga Þórey sem
er sérkennari að mennt. Starfaði
sem slík síðastliðin 12 ár við Tækni-
skólann og hefur því mikla reynslu
af starfi með ungu fólki.
Starfssemi útilífsmiðstöðvar á
Úlfljótsvatni hefur ekki farið var-
hluta af því ástandi sem heimsfar-
aldurinn hafa skapað. Nú stendur til
að efla þá starfsemi, svo sem með
skóla- og sumarbúðastarfi.
Fjölbreytnin ræður
„Foreldrar vilja fá krakkana úr
tölvunum og símunum í skemmtilegt
tómstundastarf þar sem fjölbreytnin
ræður. Ögrandi verkefni og útivist
eru í aðalhlutverki,“ segir Helga
Þórey sem hvetur krakka til að
kynna sér skátastarfið. Alls eru um
1.500 krakkar á aldrinum 7-14 ára
þar þátttakendur í skátafélögum á
landinu öllu. Á höfuðborgarsvæðinu
eru félögin alls þrettán; öllum opin
og möguleikarnir margir. Draum-
urinn sé síðan fjölga skátafélögum
með aðstoð við fólk í fámennari
byggðum út um land þar sem áhugi
er á því að stofna til skátastarfs.
Skátastarf er skemmtilegt
- Helga Þórey ný í forystusveit skátanna - Fræðsla og fjölskyldustarf
- Leiðtogaþjálfunin verður efld - Bjóða stuðning til að fjölga félögum úti á landi
Morgunblaðið/Eggert
Úlfljótsvatn Leikur á skátamóti í sumar. Alls eru um 1.500 krakkar þátttakendur í skátafélögum á landinu öllu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þroski Skátastarf er lífsstíll og áhrif þess á fólk endast út ævina, segir
Helga Þórey Júlíusdóttir sem hefur lengi verið öflug í skátahreyfingunni.
Ríkisstjórnin ákvað í vikunni að
veita Múlaþingi og níu ríkisstofn-
unum styrk til að mæta óvæntum
útgjöldum vegna verkefna sem
koma til í kjölfar aurskriðanna á
Seyðisfirði í desember á sl. ári. Alls
eru þetta 640 millj. kr. Stærstur
hluti fjárins fer í ofanflóðasjóð, til
Veðurstofu og almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra.
Einnig hefur verið samþykkt að
styrkja sveitarfélagið Múlaþing um
76 m. kr. vegna Seyðisfjarðarmála.
Sveitarfélagið hefur frjálsar hend-
ur með ráðstöfun fjárins, en upp-
hæðin er eyrnamerkt endurreisn
samfélagsins. Starfshópur fulltrúa
ráðuneyta vinnur nú með sveitarfé-
laginu að málum á Seyðisfirði. Í
undirbúningi er til dæmis að flytja
hús sem hafa menningarlegt gildi
af hættusvæðum á öruggari staði í
bænum. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Hreinsun og endurreisn
eftir skriðuföll í fyrra er stórt verkefni.
Ríkið styrkir endur-
reisn á Seyðisfirði
Bergið head-
space stendur
fyrir uppákomu
á morgun, föstu-
daginn 17. sept-
ember, í tilefni
afmælis samtak-
anna sem reka
Bergið. Kl. 11:30
ganga 500 ung-
menni niður Suð-
urgötuna í
Reykjavík og að Berginu með tón-
list og skemmtun. Talan endur-
speglar hópinn sem sótt hefur
Bergið á sl. tveimur árum. Mark-
miðið er að vekja athygli á mál-
efnum ungs fólks og því hversu
mikilvægt það er að veita því stuðn-
ing og þjónustu þegar mest þarf.
Gengið að Berginu
með tónlist og gleði
Bergið er klettur
ungmennanna.
Biskup Íslands, séra Agnes M. Sig-
urðardóttir, hefur ráðið nýjan bisk-
upsritara, Pétur Georg Markan, sam-
skiptastjóra Biskupsstofu. Mun hann
taka við starfinu 1. október nk.
Hann mun sinna báðum hlutverk-
um, a.m.k. fyrst um sinn.
Pétur tekur við af séra Þorvaldi
Víðissyni sem gegnt hefur starfi bisk-
upsritara frá 2012. Séra Þorvaldur
var ráðinn prestur í Fossvogspresta-
kalli fyrir skemmstu.
Í starfslýsingu segir að biskupsrit-
ari sé persónulegur aðstoðarmaður
biskups Íslands, trúnaðarmaður, ráð-
gjafi og talsmaður. Árið 2012 var starf
biskupsritara auglýst og var séra
Þorvaldur þá ráðinn úr hópi 30 um-
sækjenda.
Pétur Georg fæddist 16. febrúar
1981 og lauk BA-prófi frá Háskóla Ís-
lands árið 2006. Hann hefur starfað
sem samskiptastjóri Biskupsstofu frá
því í ágústmánuði 2019.
Var hann ráðinn úr hópi 26 um-
sækjenda. Áður en Pétur kom til
þeirra starfa var hann sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, ásamt því að leiða
Fjórðungssamband Vestfirðinga og
Vestfjarðastofu.
Pétur starfaði einnig sem verk-
efnastjóri á markaðs- og samskipta-
sviði Háskóla Íslands. Auk þess var
hann framkvæmdastjóri Stúdenta-
ráðs Háskóla Íslands og fram-
kvæmdastjóri Héraðssambands
Vestfirðinga. Pétur lék um árabil með
knattspyrnuliðum hér innanlands,
m.a. Fjölni, Val og Víkingi í úrvals-
deild. Hann lék alls 208 leiki í meist-
araflokki og skoraði í þeim 80 mörk.
Kona Péturs er sr. Margrét Lilja
Vilmundardóttir, prestur í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði, og eiga þau þrjú
börn. sisi@mbl.is
Pétur Markan
biskupsritari
- Tekur við af séra Þorvaldi Víðissyni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðinn Nýr biskupsritari, Pétur G.
Markan, hefur störf 1. október nk.