Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 21.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-20230 23.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-2046 25.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-2123 25.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-20800 20.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-20180 21.995.- / St. 36-40 Vnr.: PIA-20754 24.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-2134 24.995.- / St. 36-41 Vnr.: PIA-2134 24.995.- / St. 36-41 Vnr.: PIA-2134 22.995.- / St. 36-41 Vnr.: PIA-20586 22.995.- / St. 37-41 Vnr.: PIA-20586 22.995.- / St. 36-41 Vnr.: PIA-20586 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS Árið 1941 kom út í Bandaríkjunum bókin „Flóttinn undan frels- inu“ eftir þýska sál- greinandann Eric Fromm. Hann var gyð- ingur sem hafði flust vestur um haf vegna frelsis- og mannrétt- indabrota nasista. Í bókinni greinir hann hvernig hægt er að setja fólk í viðjar ófrelsis þannig að það telur sig ekki finna fyrir þeim og vill umfram allt ekki frelsi. Hver er sálfræðilegur grundvöllur þjóðfélags- ófrelsis? Viðbrögð ríkisstjórnarinnar í mál- efnum faraldursins hafa hingað til verið í takt við þessar fræðikenn- ingar, enda eru þær alþekktar. Hún veðjar á að vinna komandi kosningar með áframhaldandi frelsis- og mann- réttindatakmörkunum, sóttkvíum, de facto útgöngubanni á ungt fólk á nótt- unni og lögreglueftirliti og valdboð- um, bæði innanlands og á landamær- unum. Þannig metur hún hag sínum best borgið. Þetta er öndvert því sem Danir, Svíar og Finnar gera og er greinilega ætlað til heimabrúks, en væntanlega aðeins um stund. Af því að ábyrgðin á framtíð þjóðarinnar bíður þess að rík- isstjórn, kannski ný ríkisstjórn, axli hana. Óhjákvæmilegt er annað en að búa með Covid-19-veirunni. Það þarf hjarðónæmi hjá þjóðinni, bæði með bólusetningum og náttúrulegu ónæmi. Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin hefur gefið út að bóluefni dags- ins í dag verji ágætlega gegn þekkt- um afbrigðum veirunnar og ný bólu- efni munu koma fram sem andsvar við nýjum afbrigðum. Lyfjafyr- irtækin eru að reyna að sjá fyrir stökkbreyt- ingar veirunnar og miða næstu bóluefni við það. Faraldurinn þarf óhjákvæmilega að ganga yfir hér innan- lands, annars erum við ekki þátttakendur í opnum frjálsum heimi. Slík yfirferð er kaupverð farsællar framtíðar og stjórnvöld þurfa að út- skýra þetta vel fyrir okkur – vegna þess að henni gæti fylgt eitthvert álag sem við þurfum að bera um tíma. Faraldurinn þarf að ganga yfir hjá fé- lagslynda fólkinu; ungu fólki á vinnu- markaði og sem sækir samkvæm- islífið, skólafólki á öllum aldri og hann mun ef til vill í þeirri yfirferð ná til fleiri hópa. Svo mótsagnakennt sem það er, meðal annars í ljósi lokana skemmtistaða á nóttunni, þá hefur það alltaf legið fyrir að besta vörn við- kvæmra og aldraðra er að fé- lagslynda fólkið myndi hjarðónæmið. Þetta er það sem verið er að gera í okkar nágrannaríkjum og sum þeirra eru nánast komin með hjarðónæmi, til dæmis Svíþjóð og jafnvel Bretland. Önnur nágrannaríki eiga yfirferð far- aldursins eftir að mismiklu leyti. Framtíðarsýn flóttans Ekki verður annað séð en rík- isstjórnin sjái framtíðina þannig fyrir sér að veirunni verði haldið niðri um alla framtíð hér á landi, ekki síst með- al félagslyndu hópanna. Þetta þýðir að frelsis- og mannréttinda- takmarkanir verða varanlegar og þjóðin í spennitreyju – og missir af væntum ábata af auknum ferða- mannastraumi til landsins því að ferðatakmarkanir í Leifstöð verða óhjákvæmilega að fylgja. Sennilegt er talið að umferðin um Norður- Atlantshafið fari síður um Leifsstöð þegar hindranir þar eru meiri en á öðrum landamærum. Þetta er auðvitað ófær leið. Ríkisstjórnin hefur á síðustu vikum staðið frammi fyrir tveimur val- kostum. Annars vegar að taka ábyrgð á yf- irferð faraldursins sem kostar eitt- hvað á ólíkum mælikvörðum, hversu mikið er að einhverju leyti óvíst; að minnsta kosti öflugri sóttvarnadeild en nú er rekin, væntanlega utan Landspítalans því hann vill ekki eða getur ekki þjónað í faraldrinum – en afleiðingarnar gagnvart fólki verða þó vægar eins og sýnir sig í ná- grannaríkjunum. Hins vegar að hörfa frá verkefninu og flýja frelsið. Kostnaðurinn við ábyrgðina virðist skelfa ríkisstjórn- ina, ekki síst vegna þess að hún, þríeykið og RUV hafa hrætt þjóðina að því marki að hluti hennar kallar á áframhaldandi ófrelsi svipað og Fromm lýsti. Það gefst ekki endilega tími til að vinda ofan af því fyrir kosn- ingar. Ákvarðanir ríkisstjórnarinnar 14. september 2021 tóku væntanlega mið af því hvað gæti reynst henni best í kosningunum sem verða eftir níu daga. En hvort hún sjálf og áð- urnefndir aðilar hafa grafið gröf hennar eða ekki á eftir að koma í ljós. Ábyrgð eða flótti Eftir Hauk Arnþórsson »Hver er ábyrgð ríkisstjórnarinnar gagnvart framtíð þjóð- arinnar? Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. haukura@haukura.is Svo virðist sem stór hluti þeirra flokka sem bjóða nú fram til Alþingis hafi það eitt að markmiði að stækka ríkisbáknið, hækka skatta, draga úr frelsi fólks og þrengja þannig að öllu athafnafrelsi í land- inu. Miðflokkurinn hefur markað sér stöðu með athafnafrelsi og gegn þeirri hugsun sem setur allt á sama klafa. Kjarninn í stefnu okk- ar er virðing fyrir fullveldi landsins og frelsi einstaklinga. Til að tryggja þetta er nauðsynlegt að minnka ríkisbáknið, einfalda reglu- verk og draga úr kerfisræði á Ís- landi. Þannig er hægt að draga úr álögum á almenning og lítil og meðalstór fyrirtæki fá aukið frelsi til að skapa ný störf og aukin verð- mæti. En hvað felst í þessu? Það er ánægjuleg skylda okkar sem stöndum í stjórnmálabaráttu að gera grein fyrir stefnu okkar og hugsjónum. Við í Miðflokknum leggjum áherslu á að einfalda regluverkið þannig að stofnanir ríkisins vinni fyrir borgara lands- ins en ekki öfugt. Einhver gæti sagt að þetta væri sjálfsögð og eðlileg krafa, en það er því miður svo að margir í atvinnulífinu þurfa að eyða stórum hluta starfa sinna við að uppfylla ótrúlegustu kvaðir og sinna pappírsvinnu og skiptir engu þótt hún sé rafræn, hún er alltaf jafn tímafrek og tekur tíma frá verð- mætaskapandi vinnu. Þetta minnir á söguna af manninum sem ákvað að leita í styrkjakerfi Evrópu- sambandsins og komst að því að helmingur styrksins fór í að greiða fyrir vinnuna við að afla hans! Það er vegna þessara þátta sem við miðflokksmenn tölum fyrir einföld- un regluverks, ekki vegna þess að við ætlum að draga úr ábyrgð og skyldum atvinnulífsins heldur að gera því kleift að vaxa og dafna. Við segjum því að ríkisstjórn má ekki innleiða nýtt íþyngjandi reglu- verk nema tvöfalt fleiri íþyngjandi reglur verði afnumdar samtímis í samræmi við stefnu ríkisstjórnar áranna 2013-2016, undir forsæti núverandi formanns Miðflokksins. Mikilsverðar breytingar í skattamálum Allar tillögur Miðflokksins í skattamálum lúta að því sama; auka verðmætasköpun og efla sanngirni og jafnrétti allra lands- manna. Við viljum skattaafslátt á svæðum sem búa við skerta þjón- ustu ríkisins og stuðla að því að fyrirtæki greiði lægra trygginga- gjald í byggðarlögum sem búa við miklar hindranir. Við viljum inn- leiða frítekjumark tryggingagjalds Stétt með stétt – raunverulega Eftir Tómas Ellert Tómasson Tómas Ellert Tómasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.