Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a SNJALLTÆKJA VIÐGERÐIR Við gerum við alla síma, spjaldtölvur, tölvur og dróna *Innihald fylgir ekki ný sending Taska kr. 5.000 Taska + Startsett kr. 8.500 Startsett kr. 5.500 Nýlegar skoðana- kannanir gefa til kynna að það gæti staðið tæpt að Miðflokkurinn nái kjörnum manni inn á Alþingi í kosningunum 25. september nk. Þetta má telja með ólíkindum, því að Miðflokkurinn hefur á þessu kjörtíma- bili sýnt í verki að hann er einn helsti málsvari fullveldis, tjáningarfrelsis, atvinnu- frelsis, sjálfbærni í matvælafram- leiðslu og þjóðlegra viðhorfa. Á sama hátt hefur Miðflokkurinn sýnt festu umfram aðra í andstöðu sinni við rót- tæka fóstureyðingarlöggjöf og yfir- gengilegan og varasaman hælisleit- endastraum til landsins og talað skýru máli um að Sundabraut komi strax. Samgönguráðherra Framsóknar- flokksins og borgarstjórinn í Reykja- vík hafa orðið ásáttir um að tefja lagn- ingu Sundabrautar um fimm ár í viðbót og láta borgarlínuskemmdar- verkið fyrir tugi milljarða króna hafa forgang. Fram hefur komið að allt að 90% kjósenda Miðflokks þykir of mikill hælisleitendastraumur vera áhyggju- efni sem verði að taka á. Hlutfallið er aðeins 36% hjá Sjálfstæðisflokknum og fjórum sinnum lægra (22%) hjá Framsóknar- flokknum, sem eitt sinn var þjóðlegur flokkur en má nú muna sinn fífil fegri í þeim efnum. Miðað við ágæta frammistöðu þingmanna Miðflokksins og beitta kosningabaráttu þeirra ættu þeir að vera örugg- ir um að ná á þing. En það gerist aðeins með því að sem allra flest borg- aralegt fólk haldi vöku sinni og kjósi Miðflokkinn. Ef Miðflokkurinn nær ekki inn manni á þing gætu mörg uppbót- arþingsæti fallið samfylkingarflokk- unum og sósíalistum í skaut. Við verðum að forða landi og þjóð frá slíku stórslysi. Forðumst vinstra stórslys Eftir Ólaf F. Magnússon Ólafur F. Magnússon »Ef Miðflokkurinn nær ekki inn manni á þing gætu mörg upp- bótarþingsæti fallið samfylkingarflokkunum og sósíalistum í skaut. Höfundur er læknir og fv. borgarstjóri. „Úttekt á þjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma“ er nafn á grein eftir heil- brigðisráðherra sem Morgunblaðinu birti í sumar. Ég bjóst við að ráð- herra myndi útskýra og rökstyðja af- glæpavæðinguna, en svo var ekki. Greinin er mest um samþættingu í heil- brigðiskerfinu og skráningu upplýs- inga og bindur ráðherra miklar vonir við heildarúttekt á þjón- ustuferlum. Við vinnuna skal beitt „Benchmarking best pract …“, hvað sem það nú er. Úttektin verð- ur „grundvöllur ákvarðana og að- gerða á þessu mikilvæga sviði vel- ferðarþjónustunnar“. Mér skilst að afglæpavæðingin byggist á að leyfilegt verði að eiga og ganga um með neysluskammta án þess að vera handtekinn og fá brotið á sakavottorðið. Gildir það jafnt fyrir vímuefnasjúklinga og sölumenn fíkniefna. Ráðherra rök- styður ekki hvernig þessi laga- breyting muni fækka glæpum tengdum fíkniefnum. Líta má á fíkniefnavandamálið sem tvo gagnstæða póla. Á öðrum pólnum eru helsjúkir einstaklingar, svo háðir eitrinu, að þeir gera hvað sem er til að ná í það. Á hinum pólnum eru gróðafíklar, sem standa að innflutningi og sölu fíkniefna. Þessir sölumenn dauðans svífast einskis til að græða og eykst gróða- fíknin eftir því sem þeir eignast meira. Á milli póla eru milliliðir í sölu og „innheimtu“, sem sjálfir eru fíklar. Ráðherra vill vel með að hjálpa þeim sem hafa orðið fíkninni að bráð, en byrjar á vitlausum enda. Aukið aðgengi fjölgar fíklum og þar með glæpum. Gróðafíklarnir munu græða meira á sölu- mönnum, sem mega ganga um með neyslu- skammta, og á nýjum neytendum. Flestir fíklar byrjuðu með fikti, sem varð til þess að allt sem fíkill- inn vann sér inn fór í kaup á fíkni- efnum. Þegar það dugði ekki til fór hann að selja eigur sínar, síðan tóku við þjófnaðir, svik, sala fíkni- efna og að lokum gat hann orðið þræll þess sem útvegaði honum eitrið. Allt leiddi þetta til aukins gróða hjá gróðafíklum á hinum end- anum. Með því að leyfa fíklum að ganga um með neysluskammta eykst allt aðgengi að eiturlyfjum, hverju nafni sem þau nefnast, og var það nógu auðvelt fyrir. Vinnuaðstaða löggæslu mun versna um allan helming við að seljendur og neyt- endur megi ganga um með efnin á sér. Þannig breytist afglæpavæð- ingin í glæpavæðingu, sem kemur af stað faraldri, sem illmögulegt verður að kveða niður og ekki er hægt að bólusetja fyrir. Yngstu neytendurnir munu kynna efnin þeim, sem ekki hafa prófað þau, og síðan selja þeim til að fjármagna eigin neyslu. Margir yngri fíklar gætu lent í ferlinu sem lýst er hér að ofan og ferming- argjafirnar farið í kaup á hassi. Miðað við ástandið í dag með skorti á meðferðarúrræðum mun af- glæpavæðingin verða að glæpavæð- ingu. Meining ráðherra að hjálpa fíkl- um er góð, en hún byrjar á vitlaus- um enda og stuðlar að enn meiri neyslu og þar með meiri gróða glæpamanna, sem tróna á toppnum og virðast ósnertanlegir, en þeir eru það ekki. Það vantar bara vilj- ann til að taka þá niður. Lögreglan hefur verndað þá fyrir að kjafta frá öðrum glæpamönnum. Í fjölmiðlum hefur oft komið fram að ýmsir eiga meiri eignir en þeir gætu hafa eign- ast með heiðarlegri vinnu. Dómsmálaráðherra gæti, ef vilji væri til þess, afglæpavætt gróða- fíklana á sama hátt og Al Capone var tekinn niður. Erfiðara er fyrir heilbrigðisráðherra að lækna vímu- efnasjúklinga með skriffinnskunni. Það er alveg hægt að sjá hvað á ekki erindi á sakavottorð án þess að opna fyrir allt. Svandís: „Í upphafi skyldi endinn skoða“ og „Of seint er að byrgja brunninn þegar barnið er dottið of- an í“ eru heilræði sem heilbrigðis- ráðherra ætti að hafa í huga. Afglæpavæðing? Eftir Sigurð Oddsson » Svandís: Í upphafi skyldi endinn skoða og Of seint er að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í eru heil- ræði sem þú ættir að hafa í huga. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Allt um sjávarútveg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.