Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Opið streymi Sérstakir formannaþættir í aðdraganda kosninga og á morgun situr Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar fyrir svörum Leiftrandi umræða sem þú skalt ekki láta fram hjá þér fara mbl.is/dagmal 17. sept. Bandalag sjálf- stæðra leikhúsa – SL kallar eftir tafar- lausum björgunar- aðgerðum stjórn- valda. Staða sjálfstætt starfandi leikhúsa og sviðs- listahópa hefur verið afar slæm frá upphafi faraldursins og nú þegar annað Covid- haust gengur í garð eru áhyggjur listamanna jafnvel enn meiri en áður. „Þeir sem hafa tekið það á sig fyrir samfélagið að loka sinni starfsemi hljóta að eiga skilið að fá stuðning frá samfélaginu.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í ræðustól á Al- þingi í apríl 2020. Nú rúmum 16 mánuðum síðar eru sjálfstætt starfandi leikhús og sviðs- listahópar enn að bíða eftir stuðn- ingi. Staða lítilla leikhúsa og sjálf- stæðra sviðslistahópa er graf- alvarleg í kjölfar lokana og íþyngj- andi samkomutakmarkana síðastliðna 18 mánuði. Stjórn SL og framkvæmdastjóri hafa frá því að faraldurinn skall á bent ráða- fólki á að skilyrði sértækra stuðn- ingsaðgerða vegna Covid-19 úti- loka nær alla sjálfstæða sviðslistahópa vegna þess að um rekstur þeirra eru yfirleitt stofnuð almenn félög. Þessir aðilar voru t.a.m. útilok- aðir frá hlutabótaleiðinni mjög snemma og hafa ekki getað sótt um lokunar- eða viðspyrnustyrki heldur. Enn hefur ekkert verið gert til að bæta stöðu þessa hóps og við okkur horfir raunverulegur möguleiki á alvarlegum spekileka og atgervisflótta úr faginu. Það getur ekki verið viljaverk stjórn- valda að valda skemmdarverkum á íslenskum sviðslistum en komi ekki til bjargráða verður útkoman listrænt og menningarlegt tjón. Það voru sár vonbrigði að lög til viðspyrnustyrkja og tekjufalls- styrkja hafi verið afgreidd á Al- þingi án þeirra örfáu breytinga sem til þurfti svo að lítil leikhús og atvinnusviðslistahópar gætu þegið þá aðstoð sem þeim lögum var ætlað að veita. Þegar allar dyr höfðu verið okkur lokaðar var það salt í sárin að sjá sett lög um sér- stakar greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verk- takagreiðslna á tímum kór- ónuveirufaraldurs án þess að taka atvinnufélög í sviðslistum undir þann hatt eins og við bentum á og báðum um. Vandi atvinnufélaga í geiranum varð til í mars 2020 og hefur bara vaxið síðan. Reynslan hefur sýnt að þær efnahagsaðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til í því skyni að bregðast við áhrifum heimsfaraldursins hafa ekki nýst menningarfélögum nema að mjög litlu leyti. Aukinn stuðningur við framþróun og vöxt greinarinnar hefur um langa hríð verið helsta keppikefli SL, enda hefur nýliðun í stéttinni verið mikil og afköstin og framlagið í takt við það. Helsta viðbragð stjórnvalda til að mæta vanda sjálfstætt starfandi sviðs- listafólks hefur verið tímabundin innspýting fjár í launa- og verk- efnasjóði. Nokkuð sem listamenn hafa lengi kallað eftir og óskandi að hlustað væri á raddir þeirra um að þessi viðbót verði til fram- búðar. Þessi ágæta aðgerð er hins vegar eingöngu til nýrra verkefna og hjálpar ekki við skuldbindingar sem þegar var búið að stofna til. Fjölda sýninga sem flytja átti í faraldrinum var frestað, jafnvel oft, sviðslistahóparnir urðu af tekjum í tengslum við þá viðburði, til viðbótar við þann aukakostnað sem lokanir og takmarkanir höfðu í för með sér við að halda verk- efnum við, æfa þau upp og kynna að nýju o.s.frv. Við stefnum nú inn í annan vet- ur þar sem sviðslistafólk þarf að sæta takmörkunum vegna farald- ursins. Þeir aðilar sem náðu að þreyja síðasta vetur gerðu það af eigin rammleik, með sárum nið- urskurði og rekstrartapi. Þeir munu ekki lifa af annan vetur nema til komi sérstakur fjárstuðn- ingur þeim til handa. Þetta eru fá- ir aðilar og fjármunirnir sem þeir þurfa á að halda eru smávægilegir í öllu samhengi, en bráðnauðsyn- legir svo að þeir geti lifað þetta ástand af og verið til staðar til að sinna sínu hlutverki, sem er að auðga listalíf, landi og þjóð til ánægju og heilla. Stjórn SL skorar því á stjórn- völd að koma fram með úrræði til að mæta því þunga höggi sem þvingandi samkomutakmarkanir hafa verið og eru fyrir þennan hóp sviðslistafólks. Virðingarfyllst, f.h. stjórnar Bandalags sjálfstæðra leikhúsa – SL. Staða sjálfstætt starfandi sviðslistafólks Eftir Orra Hugin Ágústsson og Frið- rik Friðriksson »Bandalag sjálfstæðra leikhúsa – SL kallar eftir björgunaraðgerð- um. Staða sjálfstæðra leikhúsa hefur verið afar slæm frá upphafi farald- ursins. Orri Huginn Ágústsson Höfundar eru formaður Bandalags sjálfstæðra leikhúsa SL og fram- kvæmdastjóri SL og Tjarnarbíós. orri@leikhopar.is Friðrik Friðriksson Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra og alþingismaður skrifar grein í Morgunblaðið sunnudaginn 12. sept- ember sem heitir „Nefnd hefur verið nefnd“. Þar segir meðal annars orð- rétt: „Er þá komið að máli málanna. Hvernig skyldu framboðin til Al- þingis ætla að svara spurningu samtaka áhugafólks um spilafíkn? Styðja þau lokun spilakassa eða gera þau það ekki? Já eða nei.“ Við í Flokki fólksins segjum ekki bara já við spurningu hans heldur lögðum fram og mæltum með frum- varpi um bann við spilakössum (151. löggjafarþing – 95. fundur, 11. maí 2021 kl. 17). Þá mælti ég fyrir frum- varpi til laga um breytingu á lögum um happdrætti Háskóla Íslands og lögum um happdrætti (bann við spila- kössum). Í greinargerð með frumvarpi er lagt til að rekstur spilakassa verði með öllu bannaður og þar kemur einn- ig fram m.a. að Samtök áhugafólks um spilafíkn (SÁS) hafa undanfarin tvö ár staðið fyrir átakinu „Lokum spila- kössum“, eða Lokum.is. Stjórn SÁÁ ákvað árið 2020 að draga sig út úr rekstri Íslandsspila þrátt fyrir vænt tekjutap upp á tugi milljóna króna. Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, sagði um ákvörðunina að þeim fyndist það ekki þess virði og ekki samræmast gildum SÁÁ að taka þátt í rekstri á spilakössum og vera þátttakandi í Íslandsspilum. Sagði hann afleiðingarnar fyrir SÁÁ beint vera tugmilljóna króna skerðingu á sjálfsaflafé en traust og virðing væri meira virði. Þá koma þar einnig fram sláandi tölur, eins og Ögmundur bendir á, þar sem SÁS lét framkvæma skoð- anakönnun um viðhorf almennings til spilakassa. Leiddi hún í ljós að um 86% Íslendinga vilja banna slíkan rekstur. Þá var 71% aðspurðra ósátt við að starfsemi í almannaþágu væri fjármögnuð með rekstri spilakassa. Í greinargerð með frumvarpinu segir einnig að spilakassar séu hann- aðir til að ýta undir spilafíkn. Ólíkt happdrætti skila þeir niðurstöðu sam- stundis og hægt er að taka þátt strax aftur. Það ýtir undir vanamyndun og því eru þátttakendur mun líklegri til að þróa með sér fíkn en þátttakendur í happdrætti. Það er orðið löngu tímabært að hætta rekstri spilakassa á Íslandi. Það getur ekki réttlætt svo skaðlega starf- semi að ágóðinn renni til góðgerðar- mála. Það gerir lítið gagn að innleiða svokölluð spilakort. Sú aðferð myndi hvorki leysa fjármögnunarvanda góð- gerðarfélaga né vinna gegn vanda spilafíkla. Það eina sem dugar er algert bann. Þá er það engin afsökun að vísa til þess að Íslendingar hafi aðgang að fjárhættuspilum í gegnum erlendar vefsíður. Það er algjörlega með ólíkindum að Háskóli Íslands sé fjármagnaður með spilafíkn. Ég spyr: Hvernig í ósköp- unum er það hægt að menntastofnun, þar sem siðfræði er kennd, fjármagni á sama tíma ákveðinn hluta af húsa- kynnum sínum með spilakössum! Gróða af spilakössum sem kemur úr vasa spilafíkla, sem er HÍ til háborinnar skammar. Þetta er siðferð- islega kolrangt. Það segir sig sjálft að spila- fíkn hefur valdið gíf- urlegu tjóni hjá við- komandi spilafíkli og ekki síður hjá fjöl- skyldu hans og vinum. Það er ekki bara fjár- hagstjónið heldur and- legt og líkamlegt tjón og það skelfilega ástand sem skapast hjá viðkomandi spilafíkli. Það er ekki hægt að réttlæta það á nokkurn hátt að ríkið setji lög sem eru til þess fallin að ákveðin fé- lagasamtök sem eru að gera góða hluti, SÁÁ, Landsbjörg, Rauði kross- inn og Háskóli Íslands, þurfi að reiða sig á spilafíkla. Það segir sig sjálft að það er okkur algerlega til háborinnar skammar að örfáir veikir ein- staklingar séu að leggja aleiguna undir, aleigu sína og jafnvel fjölskyld- unnar og jafnvel framfærslu fjöl- skyldunnar, jafnvel allt húsnæði hennar eins og við vitum dæmi um. Það verður að segjast alveg eins og er að við verðum að taka ofan fyrir SÁÁ fyrir að draga sig út úr þessu. Það er vonandi fyrsta skrefið í þá átt að hinir geri það einnig, sjái villu síns vegar. Við getum ekki, við eigum ekki og við megum ekki leyfa því að viðgang- ast að æðsta menntastofnun okkar, Háskóli Íslands, sé háð spilafíklum. Það getur ekki á neinn hátt verið réttlætanlegt að ungmenni okkar fari inn í þá stofnun til að leita sér mennt- unar, fari jafnvel í siðfræðideildina til að kortleggja siðferði mannkyns. Hvar á þá að byrja á því siðferði? Auðvitað byrjum við á því að tékka á því hvernig fjármögnun háskólans er háttað. Auðvitað á ríkisstjórnin og við að sjá til þess að ekki þurfi að vera neinn vafi um að ekki eigi að fjármagna neinar svona stofnanir, eins og Landsbjörg, SÁÁ eða Rauða kross- inn, með framlögum spilafíkla úr spilakössum. Því er gert ráð fyrir í 2. og 3. gr. laganna að bæta þessum stofnunum upp áætlað tekjutap. Það er engin afsökun að segja að þetta fari í önnur spil á netinu vegna þess að spilakassarnir eru allt öðru vísi byggðir upp. Þeir eru byggðir upp til þess að valda fíkn, þeir eru byggðir upp til þess að sjá til þess að halda fólki í spilafíkn. Því miður dagaði frumvarpið uppi í nefnd og varð því ekki að lögum, en við í Flokki fólksins munum leggja það aftur fram og hættum ekki fyrr en þetta réttlætismál verður samþykkt. Flokkur fólksins segir: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Lokum spilakössunum Eftir Guðmund Inga Kristinsson » Við getum ekki, við eigum ekki og við megum ekki leyfa því að viðgangast að æðsta menntastofnun okkar, Háskóli Íslands, sé háð spilafíklum. Guðmundur Ingi Kristinsson Höfundur er þingmaður og þing- flokksformaður Flokks fólksins. Gudmundurk@althingi.is Móttaka aðsendra greina Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.