Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
Hægðu á þér!
Umferðarskilti af öllum stærðum
og gerðum.
Bannmerki
Viðvörunarmerki
Bílastæðamerki
Einkastæði ATHUGIÐ!
Bílastæði eingöngu ætluð
starfsmönnum og gestum
skólanna frá 07:30 - 17:00
Óviðkomandi bílar verða fjarlægðir
Skilti
BSV S:5514000
Boðmerki
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 555 65 00 | xprent@xprent.is
40 ÁRA Justin Shouse ólst upp í Erie í Penn-
sylvanínu og Buffalo í New York , útskrifaðist
með BA-gráðu í kennslufræðum frá Mercy-
hurst-háskóla og spilaði körfubolta með há-
skólaliðinu.
Justin fluttist til Íslands 2005 og spilaði með
Drangi í Vík í Mýrdal. „Það var frábært að vera
þar, yndislegt fólk og landslag.“ Hann spilaði síð-
an með Snæfelli og Stjörnunni. Justin var einu
sinni valinn besti erlendi leikmaður ársins og
tvisvar sinnum besti innlendi leikmaður ársins, en
hann varð íslenskur ríkisborgari 2011. „Það var
gott ár og ég er mjög stoltur að vera orðinn Ís-
lendingur og spila fyrir íslenska landsliðið.“
Nú rekur Justin veitingastaðinn Just Wingiń it ásamt Lýði Vignissyni í Garða-
bæ. „Það hefur gengið frábærlega og gaman að kynna fyrir Íslendingum mat-
arkúlturinn þaðan sem ég kem og þeir virðast elska þetta, en við erum með 31
bragðtegund af kjúklingum.“
FJÖLSKYLDA Sambýliskona Justins er Guðrún Edda Sveinbjörnsdóttir, f.
1984, verkfræðingur hjá Hnit verkfræðistofu. Dætur þeirra eru Sóley Lilja, f.
2017, og Alma Ingibjörg, f. 2021.
Justin Shouse
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú þarft að setja þig vel inn í allar
þær breytingar sem orðnar eru í sam-
skiptum. Leyfðu öðrum að njóta lífsins með
þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er ekki slæmt að þarfnast smá
meiri ástar en vanalega. Líttu á þetta sem
tækifæri til að sýna örlæti og bæta heiminn.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Gerðu það sem þú getur til að
brjóta upp hversdagsleikann í dag. Eitthvað
kemur ánægjulega á óvart í kvöld.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert skýjum ofar því draumar þínir
eru orðnir að veruleika. Ef þú þarft ráðgjöf
sjálfur verðurðu að skipta um hlutverk.
Vertu kurteis en ákveðinn og gefðu þér smá-
tíma til að spjalla.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ferðalög þurfa ekki alltaf að taka svo
mikið á. Ekki gefa loforð sem þú getur ekki
staðið við, sértaklega ekki þeim sem hafa
völd.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú þarft að takast á við ábyrgð og
skyldur þessa dagana. Samræður geta orðið
glaðlegar og borið góðan árangur.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sparsemi er dyggð en níska ekki. Hug-
myndir annarra munu gera það að verkum
að þú ferð að hlusta betur á sjónarmið
þeirra.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Stundum er eins og allt sé und-
ir manni einum komið. Innsæið hjálpar
manni við að leysa vandamálin, og krefst
ekki mikillar áreynslu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú átt gott með að koma fyrir
þig orði og skalt nú viðra gamlar hugmyndir
við félaga þinn. Fólk hefur tekið eftir því hvað
þú hefur lagt hart að þér að undanförnu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Leyfðu voninni að lifa því án
hennar er allt svo lítils virði. Reyndu að sýna
þolinmæði og umburðarlyndi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Varastu að gera nokkuð það sem
getur sett blett á starfsheiður þinn. Biddu
vini þína að segja þér undrasögur og þær
gefa þér von um að þín bíði hinar fullkomnu
aðstæður.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Settu þér það markmið að gera eitt-
hvað skemmtilegt í vikunni. Njóttu hans
meðan tími gefst til, því þú átt allt gott skil-
ið.
eiginkonu sinni, í gegnum sameigin-
lega vini á balli á Iðnó. Þau eign-
uðust saman fimm börn en Gunnar
átti fyrir tvo stráka af fyrra sam-
bandi og Lára eina stelpu. Þau
bjuggu fyrstu árin í Steinagerði 10,
þar sem þau eignuðust saman fimm
börn á níu árum. Það var því orðið
nokkuð ljóst að þau þyrftu að
stækka við sig. Þeim áskotnaðist
lóð, neðarlega í Fossvogsdalnum, og
byggðu þar einbýlishús, þar sem
Gunnar hefur búið síðan.
Gunnar stofnaði smurstöðina
Klöpp árið 1955 við Skúlagötuna
ásamt Páli Ólafssyni og bræðrunum
Sigurhans og Herði Hjartarsonum.
Árið 1988 þurfti að rífa smurstöðina
á Skúlagötunni þar sem það átti að
breikka götuna. „Ég hefði þá orðið
atvinnulaus svo ég ákvað að opna
mína eigin smurstöð.“ Nokkrum
mánuðum seinna var Smurstöðin
Klöpp opnuð við Vegmúlann. „Ég
hitti Sverri Þórðarson sem sagði
mér að það væri tómt verkstæði hjá
Gunnari Ásgeirssyni. Ég talaði við
son hans Gunnars sem heitir Stefán.
Hann sagði að það væri upplagt fyr-
ir mig að kaupa plássið en ég keypti
það nú ekki, heldur leigði ég helm-
inginn af plássinu frá bílaleigunni
Geysi sem hafði þá keypt húsnæðið.
Gunnar fór til hans og spurði hann
hvort hann gæti ekki fengið lóð.
„Hann sagði já, Gunnar minn. Það
eru fjórir menn sem vinna hjá bæn-
um sem hafa fengið lóð í Steina-
gerðinu þannig að það hljóta að
vera góðar lóðir, ég læt þig fá lóð
númer 10.“ Hann byggði sér því hús
þar.
Gunnar kynntist Eyrúnu Láru,
G
unnar Björgvin Gíslason
fæddist 16. september
1926. Hann ólst upp á
Óðinsgötu 16 í Reykja-
vík sem þá hét Klapp-
arholt. Gunnar var næstyngstur í
hópi átta systkina.
Hann byrjaði ungur að vinna og
var meðal annars sendill fyrir Veð-
urstofu Íslands, einnig bar hann út
Vísi og Alþýðublaðið. „Foreldrar
mínir áttu kýr og ég rak þær þang-
að sem Reykjavíkurflugvöllur er í
dag. Við vorum með 4-5 kýr á Óð-
insgötunni ásamt nokkrum hestum.
Valsvöllur var þar sem Hótel Loft-
leiðir er í dag og við rákum kýrnar
þar yfir og niður í Vatnsmýrina.
Síðan hjólaði ég með mjólkina í
mjólkursamsöluna við Snorrabraut.
Það voru ekki margir með skepnur í
nágrenninu á þessum tíma, ég
hugsa að það hafi verið á þremur til
fjórum bæjum.“
Gunnar kláraði barnaskólann en
hann var í Miðbæjarskólanum.
Einnig var hann mjög virkur í
íþróttum og keppti meðal annars í
frjálsum íþróttum og knattspyrnu
hjá Ármanni og Val þar sem hann
vann oft til verðlauna.
„Þegar ég var um tvítugt var
smíðaverkstæði fyrir ofan húsið á
Óðinsgötunni, ég var beðinn að
hjálpa til við að smíða skíðasleða og
harmonikkubedda. Síðan var ég
sjálfur að smíða í skúrnum heima á
Óðinsgötunni. Þar smíðaði ég bíla
og kerrur eftir sænskri fyrirmynd
sem ég svo seldi, þetta var ægilega
fínt og mjög vinsælt.“ Hann fór að
vinna í Blikksmiðju Reykjavíkur og
seinna hjá sænsk-íslenska frystihús-
inu. „Þar var vatn sett í form 1 x 1
m og fryst. Síðan var ísinn brotinn í
kvörn og settur í stóra poka. Ísnum
var hlaðið á bíl og keyrt niður á
kæjann þar sem hann var losaður
úr pokanum í rennur og sturtað nið-
ur í lestina á skipunum.“ Eftir það
fór hann að vinna hjá ESSO við
Hafnarstræti og byrjaði þar að gera
við bíla.
Þegar Gunnar vann hjá ESSO
kom maðurinn sem sá um lóðirnar
hjá bænum alltaf til þeirra. Þá var
verið að byggja Smáíbúðahverfið.
Bílaleigan ákvað svo að hætta þann-
ig að ég keypti allt plássið á end-
anum.“ Vinnan var stór hluti af líf-
inu enda þurfti að sjá fyrir stórri
fjölskyldu. „Það var unnið frá sjö til
sjö og oft fram eftir nóttu.“
Gunnar hefur skaffað fleiri
hundruð manns vinnu á þessum
langa ferli og þar á meðal hafa flest-
ir karlmenn í fjölskyldunni unnið
hjá honum. Í dag rekur Gunnar
smurstöðina með hjálp nokkurra
fjölskyldumeðlima. Hann mætti alla
daga í vinnu þar til fyrir tveimur ár-
um þegar heilsan fór að segja til sín.
„Ég læt mér samt ekki leiðast.
Ég geri ennþá við vinnugallana á
smurstöðinni, skipti um rennilása
og geri við götin. Síðan fer ég yfir
og reikna virðisaukann fyrir smur-
stöðina.“ Gunnar hefur á seinni ár-
um haft mikinn áhuga á fótbolta og
fylgist vel með öllum leikjum, það
mætti með sanni segja að hann sé
einn dyggasti stuðningsmaður Man-
chester United á Íslandi og hefur
farið á fleiri leiki en hann getur tal-
ið.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars var Eyrún
Lára Þórey Loftsdóttir, f .13.10.
1926, d. 30.1. 1993, hjúkrunarfræð-
Gunnar Björgvin Gíslason, framkvæmdastjóri Smurstöðvarinnar Klappar – 95 ára
Fjölskyldan Gunnar og börn heima í Haðalandi í Fossvogi. Þar byggði Gunnar sér hús og býr þar enn.
Sinnir enn þá rekstrinum
Feðgar Sigfús og Gunnar.
Til hamingju með daginn
Kópavogur Alma Ingibjörg Shouse er
fædd 6. maí 2021 á Landspítalanum.
Hún var 3.560 g og 51 cm löng. For-
eldrar hennar eru Guðrún Edda Svein-
björnsdóttir og Justin Shouse.
Nýr borgari