Morgunblaðið - 16.09.2021, Page 72

Morgunblaðið - 16.09.2021, Page 72
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fjórar systur, sem ættaðar eru frá Hvoli í Vesturhópi og búa á Hvamms- tanga og í næsta nágrenni, eru miklar listakonur en hver í sinni listgrein. „Við erum alltaf eitthvað að dunda,“ segir Gréta Jósefsdóttir, sem rekur Leirhús Grétu, gallerí og vinnustofu, á Litla-Ósi, skammt frá þjóðvegi 1, um fjóra kílómetra frá Hvamms- tanga. Gréta vinnur eingöngu með leir og býr til fjölbreytta muni. Oddný fæst við útskurð, tálgar fugla og býr til karla og kerlingar úr steinum sem hún málar. Jóhanna vinnur með hrosshár, fléttar armbönd og háls- festar, sútar gærur, saumar púða og býr til ýmislegt úr hornum. Kristín skapar furðufugla úr trjágreinum. Reynslan dýrmæt María Hjaltadóttir, móðir systr- anna og fjögurra annarra barna sem komust á legg, málaði mikið og systk- ini hennar fengust töluvert við listir. „Listsköpun og handverk var liður í uppeldinu,“ segir Gréta og bendir á að á uppvaxtarárum systranna hafi hvorki verið sjónvarp, farsímar né tölvur og því lítið um utanaðkomandi áreiti. „Snemma fengum við prjóna og var kennt að draga lykkju, mamma kenndi okkur alls konar föndur og eitt leiddi af öðru. Við gerð- um það sem fyrir okkur var haft, fór- um svo á nokkur námskeið, þegar við höfðum aldur til, en höfum fyrst og fremst lært handverkið af reynslunni og ef til vill af þeim mistökum sem við höfum gert í gegnum tíðina.“ Hún bætir við að faðir þeirra, Jósef Magnússon, hafi verið handlaginn. Hann hafi meðal annars smíðað skeif- ur, búið til höfuðleður eða beisli og múla fyrir hesta og prjónað sokka og vettlinga á fjölskylduna. „Ég held að það hafi verið frekar fátítt að hús- bóndinn prjónaði í frístundum.“ Gréta segir að ferðamenn hafi sýnt vörum þeirra töluverðan áhuga. „Ég geri mest platta, kindur, fugla, seli og fleiri smáhluti úr leir fyrir ferðamenn og núna er ég einkum að vinna bolla, smjörkrúsir og annað slíkt.“ Leir- listin er aðalstarf Grétu en auk þess er hún í 30% starfi hjá Heilsugæsl- unni á Hvammstanga. „Það kallaðist áður læknaritari en nú dugir ekkert minna en heilbrigðisgagnafræð- ingur.“ Eftirspurn eftir vörunum hefur fyrst og fremst haldið systrunum við efnið og ánægjan við verkið, að skapa eitthvað, hefur líka haft mikið að segja. „Þetta hefur oftast verið mjög skemmtilegt,“ segir Gréta. Hún legg- ur áherslu á að það sé líka gott að vera í annarri vinnu með og fara að- eins af bæ, sérstklega yfir veturinn. Fyrir um áratug minntist stór- fjölskyldan Maríu með sýningunni Maríudögum, þar sem verk eftir hana voru sýnd í lagfærðu útihúsi á Hvoli. „Við ætluðum bara að vera með þessa einu sýningu en í fyrrasumar voru þær orðnar tíu á jafnmörgum árum,“ segir Gréta. Á þessum sýningum voru sýnd verk eftir Maríu og systk- ini hennar, verk eftir fyrrnefndar systur, gamlar ljósmyndir úr lífinu í sveitinni og fleira. „Við höfum ekki ráðgert fleiri sýningar í bráð,“ segir Gréta, en verk eftir systurnar eru til sölu í Bardúsu á Hvammstanga. Handverk og listsköp- un liður í uppeldinu - Var ungum kennt að draga lykkju og eitt leiddi af öðru Systurnar Frá vinstri: Oddný, Gréta, Jóhanna og Kristín fyrir framan. Listsköpun Úrval muna eftir systurnar fjórar frá Vesturhópi. ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 Virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 Virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is TAX FREE Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24% virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin 19,36% er alfarið á kostnað ILVA. *Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. Gildir á meðan birgðir endast. 16.-20. SEPT. AF ÖLLUM VÖRUM* FAST SENDINGAR- GJALD MEÐ PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER! FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Ríkjandi Íslandsmeisturum Vals er spáð efsta sætinu í úrvalsdeild karla í handkattleik, Olísdeildinni, í spá fyr- irliða, þjálfara og forráðamanna fyrir komandi keppnis- tímabil. Nýliðum Víkinga og HK er báðum spáð falli og þá má eiga von á harðri baráttu um sæti í úrslitakeppn- inni. Haukar, sem spáð er 2. sætinu, unnu deildina með miklum yfirburðum á síðasta tímabili en Valur náði á endanum að krækja í 3. sætið með góðum endaspretti. Því er búist við að þessi tvö lið verði sterkust á kom- andi tímabili og muni berjast um titilinn. »62 Valur og Haukar líklegustu liðin til að ná árangri í efstu deild ÍÞRÓTTIR MENNING Danska leikkonan Trine Dyrholm verður heiðursgestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem hefst í lok mánaðar, og verður viðstödd Íslandsfrumsýningu á kvikmyndinni Margarete den første, Margréti fyrstu, sem verður lokamynd hátíðarinnar. Dyrholm leikur í henni Margréti drottningu sem helgaði líf sitt gerð Kalmar- sáttmálans. Dyrholm verður einnig formaður dómnefndar í Vitranaflokki RIFF þar sem níu kvikmyndir ungra kvikmyndaleikstjóra keppa um Gyllta lundann, aðalverðlaun hátíðarinnar. Önnur mynd með Dyrholm í aðalhlutverki verður sýnd á RIFF, Drottningin frá árinu 2019, og mun leikkonan ræða við áhorfendur í Bíó Paradís í tengslum við þá mynd. Margrét fyrsta er samstarfsverkefni allra Norðurlandanna og voru með- framleiðandi myndarinnar, Kristinn Þórðarson hjá True North, og leikkonurnar Tinna Hrafnsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir, sem leika í myndinni, viðstödd frumsýn- ingu fyrir rúmri viku. Dyrholm heiðursgestur RIFF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.