Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Páskar í Stresa & Lerici
sp
ör
eh
f.
Vor 4
Í þessari ferð lætur heillandi umhverfið engan ósnortinn!
Ferðin hefst í blómlega bænum Stresa en margar töfrandi
skoðunarferðir standa til boða, svo sem siglingar á Comovatni
og Lago Maggiore vatni. Ferðin heldur áfram frá fallega
bænum Lerici þar sem verður m.a. siglt úti fyrir brattri
klettaströnd Cinque Terre, farið til gömlu virkisborgarinnar
Lucca í Toskana héraði og til Pisa sem tekur á móti okkur með
sínum fræga skakka turni.
11. - 21. apríl
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 319.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið! Útför Jóns Sigurðssonar, fyrrver-
andi ráðherra, seðlabankastjóra og
skólastjóra, var gerð frá Fossvogs-
kirkju í gær að viðstöddu fjölmenni
og var athöfninni streymt.
Séra Kristján Björnsson vígslu-
biskup og séra Örn Bárður Jónsson
jarðsungu. Kórinn Vox Nobile
söng, Jónas Þórir kantor lék á org-
el og píanó. Örnólfur Kristjánsson
lék einleik á selló og Matthías Stef-
ánsson á fiðlu og gítar. Líkmenn
voru Snorri Jónsson, Helgi G.
Björnsson, Sigurður Örn Ein-
arsson, Allan Vagn Magnússon,
Kristján Sigmundsson, Þorsteinn
A.G. Guðnason, Kristján Jóhanns-
son og Sigurður Kr. Sigurðsson.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útför Jóns Sigurðssonar
af öngþveiti en hvetur fólk þó til þess
að mæta tímanlega og skilja bílinn
eftir heima ef það er unnt. „Við opn-
um klukkan 12 með húllumhæi og
biðjum fólk að mæta tímanlega. Við
höfum biðlað til fólks í hverfinu að
koma gangandi eða hjólandi og aðra
að sameinast í bíl. Eins vonum við að
íbúar í hverfinu sýni okkur þol-
inmæði. Það verður þungt ástand
varðandi bílastæði og við vonum líka
að lögreglan sýni því skilning. Þetta
er þjóðfélagslega mikilvægur við-
burður, rétt eins og bólusetning í
Laugardalshöll, svo við vonum að
þeir sleppi því að sekta,“ segir hann
og skellir upp úr.
Aðspurður segir Haraldur að mik-
il stemning og tilhlökkun sé í Foss-
voginum. „Við höfum ekki verið í
þessum sporum síðan 1991 og fólki
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta mjakast ágætlega hjá okkur
og við verðum klár í baráttuna,“ seg-
ir Haraldur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Víkings.
Lokaumferð Pepsi Max-
deildarinnar í knattspyrnu karla
verður leikin í dag klukkan 14.
Óvenjumikil spenna er fyrir leikjum
dagsins enda er Víkingur Reykjavík
flestum að óvörum í kjörstöðu. Vík-
ingar mæta Leikni úr Breiðholti á
heimavelli og sigur í þeim leik trygg-
ir fyrsta Íslandsmeistaratitilinn síð-
an 1991. Á sama tíma mætir Breiða-
blik, sem er í öðru sæti deildarinnar
stigi á eftir Víkingi, grönnum sínum í
HK. Tvö lið geta því orðið meistarar
og önnur tvö berjast um það hvort
þeirra fylgir Fylki niður í Lengju-
deildina.
Allir áhorfendur í hraðpróf
Uppselt er á leikinn í Víkinni og að
mörgu er að huga fyrir Harald og
samstarfsfólk hans. Á tímum sam-
komutakmarkana er farið fram á að
áhorfendur framvísi neikvæðu hrað-
prófi við innganginn. Af þeim sökum
mega Víkingar taka á móti 1.500
áhorfendum auk barna og ung-
menna.
„Gamla vallarmetið er um 1.800
áhorfendur. Ég hugsa að það verði
2.200 hjá okkur núna. Það er búið að
selja alla 1.500 miðana og ég geri ráð
fyrir nokkur hundruð krökkum.
Þetta verður alvöru stappa. Ég veit
ekki hvernig við förum að þessu,“
segir hann og skellir upp úr.
Stúkan í Víkinni tekur 1.100
manns í sæti en auk þess verða stæði
fyrir 400 fullorðna. „Allt áhorf-
endasvæðið er eitt svæði. Það er
bara einn inngangur og það geta all-
ir farið í sömu sjoppuna. Við verðum
með app frá landlæknisembættinu
sem skannar QR-kóðann á hraðprófi
sem fólk sýnir,“ segir Haraldur.
Hann kveðst ekki hafa áhyggjur
finnst vera tími kominn til,“ segir
hann en ítrekar þó að ekkert sé enn í
hendi. „Leiknir er annað af þeim
tveimur liðum sem við höfum tapað
fyrir í sumar. Það fæst ekkert gef-
ins.“
Góð stemning í Kópavogi
Eysteinn Pétur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Breiðabliks, segir að
mikið hafi verið lagt í undirbúning
fyrir leikinn í dag. „Við erum í ofan-
álag með stóran kjörstað í Smár-
anum þannig að það verður nóg af
fólki hérna. En við erum með gott
fólk í að stýra mannskapnum og höf-
um biðlað til fólks að koma helst
gangandi,“ segir hann.
Miðasala á leikinn hefur gengið
vel að sögn Eysteins. „Við seljum
bæði í gömlu og nýju stúkuna og
núna eru rétt undir þúsund miðar
seldir. Við ættum að geta tekið á
móti hátt í 1.300 manns þegar allt er
talið,“ sagði Eysteinn um hádegisbil
í gær.
Hann segir að góð stemning sé í
bænum fyrir leiknum enda mögu-
leiki á titlinum og ekki skemmir fyrir
að andstæðingarnir eru grannarnir í
HK. „Kópavogsslagur, það eykur
bara á stemninguna,“ segir Eysteinn
sem kveður Blika ekki hafa gefið
upp vonina um Íslandsmeistaratit-
ilinn þó Víkingar standi með pálm-
ann í höndunum. „Númer 1, 2 og 3 er
að þetta eru tvö frábær lið sem eru
að berjast um titilinn. Við verðum
bara að klára okkar leik og svo kem-
ur þetta í ljós. Við setjum kassann út
og hausinn upp. Svo sjáum við hvað
gerist rétt fyrir klukkan fjögur.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Undirbúningur Víkingar undirbjuggu vallarsvæðið í Víkinni í gær fyrir stórleikinn í dag. Frá vinstri eru Benedikt
Sveinsson verkefnastjóri, Fannar Helgi Rúnarsson íþróttastjóri og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri.
Búast við 2.200 áhorfendum
á stórleikinn í Víkinni í dag
- Spenna fyrir lokaumferðina í Pepsi Max-deildinni - Gamla vallarmetið slegið
„Ég er gríðarlega spenntur. Ég vona
að kjörsókn verði góð og held að hún
verði það,“ segir Anton Kári Hall-
dórsson, formaður samstarfs-
nefndar um Sveitarfélagið Suður-
land.
Samhliða kosningum til Alþingis í
dag verður kosið um sameiningu
fimm sveitarfélaga á Suðurlandi.
Sveitarfélögin sem um ræðir eru
Rangárþing eystra, Rangárþing
ytra, Skaftárhreppur, Mýrdals-
hreppur og Ásahreppur. Ef íbúar
samþykkja sameiningu verður til
víðfeðmasta sveitarfélag landsins,
15.659 ferkílómetrar eða um 16% af
heildarstærð landsins.
Anton Kári segir að atkvæði í
kosningunni verði talin á hverjum
stað. „Þetta er ekki flókin talning og
úrslit eiga að vera ljós fyrir mið-
nætti, jafnvel klukkan 23,“ segir
hann. Anton fær úrslitin í sínar
hendur þegar þau liggja fyrir og
mun samstarfsnefndin sjá um að
koma þeim á framfæri. hdm@mbl.is
Úrslit verði
ljós fyrir
miðnætti
36 kórónuveirusmit greindust inn-
anlands á fimmtudag. Er það svip-
aður fjöldi og verið hefur undan-
farna daga. Alls hafa rúmlega
11.600 manns greinst með Covid-19
hér á landi.
24 þeirra sem greindust smitaðir
voru bólusettir en 12 óbólusettir.
Aðeins átta þeirra sem greindust
voru utan sóttkvíar við greiningu
en það er minnsti fjöldi greindra
smita utan sóttkvíar síðan 14. sept-
ember. 8 lágu á sjúkrahúsi á
fimmtudag, þar af 4 á gjörgæslu.
1.164 eru í sóttkví, 348 í ein-
angrun og 328 í skimunarsóttkví.
Sýnataka Fólk á leið í sýnatöku.
36 greindust með
kórónuveirusmit