Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
TRAUST
Í 80 ÁR
Fjölbreytt úrval
af vetrar-
yfirhöfnum
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í
Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilegaHotel Skt. Petri
í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur
matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu.
Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn meðÁstu Stefánsdóttur
leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega
um sögu Kaupmannahafnar.
Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla
Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um
kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften.
Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið
breytt í „Juleland“ á Aðventunni.
Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavnmeðan hljómsveit
Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil
stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll
síðdegis og flug til Íslands um kvöldið.
Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson
AÐVENTUFERÐIR
ELDRI BORGARA TIL
KAUPMANNAHAFNAR 2021
Síðast seldust allar ferðirnar upp
1. ferð: 21.–24. nóvember
3. ferð: 5.- 8. desember
2. ferð: 28. nóv.–1. des
Verð: 149.500 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald v/gistingar í einbýli er 29.500 kr.
Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting,
m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir,
kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá.
Farþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina og einnig
er hægt að greiða hluta ferðar með punktum.
Gist er á hinu glæsilega
Hotel Skt. Petri 5* sem
er staðsett í miðborg
Kaupmannahafnar.
Bókanir fara fram hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara. Hægt er að
senda tölvupóst á netfangið hotel@hotelbokanir.is eða hafa
samband í símum 783-9300 og 783-9301.
Allar nánari upplýsingar um ferðirnar má nálgast á heimasíðu okkar
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ísland raðar sér í sjötta sæti meðal
Evrópulanda yfir hæsta bensínverð-
ið til neytenda að því er fram kemur í
samanburði Orkuspárnefndar Orku-
stofnunar á bensínverði milli Íslands
og aðildarlanda Evrópusambands-
ins, eða í alls 28 Evrópulöndum. Bor-
ið er saman meðalverð á bensíni á
hvern lítra reiknað í evrum í þessum
löndum í ágúst síðastliðnum.
Orkuspárnefnd bendir á að verð á
olíuvörum er mishátt eftir löndum
sem stafi að miklum hluta af mis-
munandi skattlagningu, en saman-
burður milli landa stýrist einnig af
gengi gjaldmiðla. „Verð á bensíni er
samkvæmt þessu frá 1,13 evrum á
lítra upp í 1,83 evrur á lítra. Hafa
þarf þó í huga að dreifingarkostn-
aður er væntanlega meiri á Íslandi
en í mörgum öðrum löndum sökum
þess hve landið er strjálbýlt,“ segir í
skýrslu nefndarinnar, þar sem birt
er eldsneytisspá til ársins 2060.
Bensínverð fyrir álagningu op-
inberra gjalda hæst á Íslandi
Meðaldæluverðið hér á landi sam-
kvæmt samanburðinum var 1,652
evrur á lítra sem svarar til um 245
króna ef miðað er við meðalgengi
gagnvart evru í ágúst. Útsöluverðið
er hæst í Hollandi og því næst koma
Finnland, Grikkland, Danmörk,
Portúgal og Ísland. Lægst var verðið
í Búlgaríu, Rúmeníu og Póllandi.
Sé eingöngu litið á dæluverðið á
bensíni án opinberra gjalda trónir
Ísland á toppnum en hér á landi var
verðið 0,744 evrur og næsthæst er
það í Danmörku fyrir álagningu op-
inberra gjalda eða 0,714 evrur.
Einnig er borið saman hlutfall op-
inberra gjalda í bensínverðinu og
færist Ísland þá langt niður eftir list-
anum. Er hlutfall opinberra gjalda af
dæluverðinu hærra en hér á landi í
17 Evrópulöndum samkvæmt sam-
anburðinum. Hlutfall opinberra
gjalda af bensínverðinu er hæst í
Hollandi og á Ítalíu.
Fram kemur í skýrslunni að frá
því um 1980 hefur virði innflutts
eldsneytis í hlutfalli við útflutning
Íslendinga farið lækkandi og var um
12% árið 2020. Ætla mætti að verð-
sveiflur á erlendum olíumörkuðum
hafi því minni áhrif á íslenskt efna-
hagslíf í dag en áður, segir þar.
Sjá má af umfjölluninni að bens-
ínverð hér á landi var hæst árið 2012
þegar meðalbensínverð var tæplega
270 krónur á hvern lítra á verðlagi
þess árs. Árið 2019 var áætlaður
orkukostnaður á hverja 100 km
mestur fyrir bensínbíla eða 1.447 kr.
á hverja 100 km á verðlagi þess árs.
Hagstæðast sé að aka rafbíl sem
hlaðinn er heima fyrir, þar sem áætl-
að verð á 100 km sé 246 kr.
Ísland með sjötta
hæsta bensínverðið
- Hlutfall opinberra gjalda hærra en hér í 17 Evrópulöndum
Meðalverð á bensíni
Ísland og ESB-lönd í ágúst 2021,
95 oktan,evrur/lítri
Holland
Finnland
Grikkland
Danmörk
Portúgal
Ísland
Ítalía
Þýskaland
Svíþjóð
Frakkland
Írland
Belgía
Eistland
Króatía
Spánn
Slóvakía
Lúxemborg
Malta
Lettland
Tékkland
Austurríki
Kýpur
Litháen
Ungverjaland
Slóvenía
Pólland
Rúmenía
Búlgaría
1,83
1,71
1,69
1,68
1,66
1,65
1,65
1,6
1,59
1,58
1,55
1,53
1,46
1,45
1,42
1,41
1,36
1,34
1,33
1,32
1,32
1,31
1,29
1,28
1,27
1,25
1,19
1,13
Án opinberra gjalda Opinber gjöld
H
ei
m
ild
:O
rk
us
pá
rn
ef
nd
Morgunblaðið/Eggert
Umferð Bensínið er misdýrt eftir því
hvar það er keypt í löndum Evrópu.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS