Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 ✝ Dagný Jeremí- asdóttir fædd- ist í Grundarfirði 22. desember 1958. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands Akra- nesi 18. september 2021. Foreldrar Dag- nýjar voru Jeremí- as Kjartansson, f. 28. júní 1913, d. 3. júlí 2003 og Cecilía Kristjáns- dóttir, f. 10. maí 1919, d. 15. október 2006. Systkini Dagnýjar eru Krist- ín, f. 1. apríl 1940, Svandís, f. 7. apríl 1942, d. 23. júlí 2021, Sal- björg Steinunn, f. 9. ágúst 1943, d. 7. september 2001, Ás- laugur Ingiberg, f. 18. apríl 1945, Kjartan, f. 7. júlí 1946, d. 15. desember 2018, Laufey, f. 3. ágúst 1947, d. 10. apríl 2010, Þórdís, f. 30. desember 1948, Hulda, f. 31. júlí 1950, Ásta, f. 31. október 1952, Sæunn, f. 1. maí 1954. Dagný hóf sambúð með Sig- urði Þorkelssyni 1980 og giftu þau sig 23. júní 2013. Börn þeirra eru Hugrún Dögg, f. 28.12. 1975, í sambúð með Svavari Háv- arðarsyni, sonur þeirra er Atli, f. 29. mars 2007. Davíð, f. 29. maí 1984, giftur Krist- ínu Stefánsdóttur, börn þeirra eru: Alexander, f. 12 september 2014 og Eva, f. 1. júlí 2017. Dagný stundaði nám við grunnskóla Grundarfjarðar og síðan Héraðsskólann í Reykja- nesi. Dagný bjó um tíma í Reykja- vík og vann þar við ýmis störf þar til hún flutti til Grund- arfjarðar. Lengst af starfaði Dagný hjá fiskvinnslu Guð- mundar Runólfssonar hf., síðan við þrif hjá Framhaldsskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Útför Dagnýjar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 25. september 2021, kl. 13. Streymi verður frá útför- inni: https://youtu.be/0CT4az7dYYg Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Elsku mamma/tengdamamma og amma. Á sama tíma og við sitjum eftir hálftóm og dofin yfir að hafa misst þig svona snögglega, erum við líka full af þakklæti fyrir að hafa haft þig í lífi okkar. Þú varst alltaf svo hlý, hjálpsöm og jarðbundin. Við munum líka sakna húmorsins þíns og glaða viðmótsins, sem fyr- ir þér var alltaf sjálfgefið. Þú tókst á við veikindin þín af miklum styrk. Það var mikil gjöf hversu mörg ár þú náðir að lifa eftir greininguna. Samt sem áður ertu farin of snemma. Það er svo sárt að hugsa til þess hversu langt það er síðan við hittum þig. Stundum er lífið svo ósanngjarnt og óskiljanlegt. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera, og elskaðir ömmuhlutverkið. Það var svo gaman að sjá hversu skemmtilegt þér fannst að tala við börnin og leika við þau. Það var líka alltaf greinilegt hversu vænt þeim þótti um þig. Þau töluðu oft um þig, sama hversu langt var síðan við vorum á Íslandi eða þið hér í Dan- mörku. Við höldum fast í góðu minn- ingarnar á þessum erfiðu tímum. Takk fyrir allt elsku besta mamma, tengdamma og amma Dagný. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Davíð, Kristín, Alexander og Eva. Kæra vinkona, Er mér bárust tíðindin um lát þitt, reikaði hugurinn til æskuár- anna í Grundarfirði. Við bjuggum hlið við hlið á Grundargötunni. Hjá þér var stórt tún og m.a. hlaða. Það var gaman að príla þar upp og stökkva niður í heyið, finna lykt- ina og verða allur í grasi. Bak við þitt hús var „parís“. Þú áttir margar eldri systur sem höfðu oft leikið þann leik þar og voru komnar djúpar holur í gras- ið – eitthvað skemmtilegt við þennan „parís“ því hvergi vissi ég um annan slíkan sem var svo mik- ið notaður að djúpar holur mynd- uðust (náðu okkur í ökkla). Einn- ig var nokkuð farið í „danskan“ og sumir náðu að nota marga bolta í einu – töluverð samhæfing hugar og handar þar. Við mitt hús var sandkassi, ról- ur og vegasalt. Við sátum stund- um í rólunum og spjölluðum. Eitt sinn er mér sérlega minnisstætt. Við þá ca 6-7 ára stelpur og talið barst að buxum. Við vorum í þröngum niðurmjóum buxum en tískan var að byrja með útvíðar buxur. Við vorum sko alveg sam- mála með að við ætluðum aldrei í svoleiðis ….. það væri svo hallær- islegt. Aldrei! Annað vinkonuspjall snerist um að veginn til Reykjavíkur. Á þeim tíma var vegakerfið mjög slæmt á Snæfellsnesi, mikið ryk og mikið um holur í veginum. Það sem okkur fannst svo merkilegt að í kringum Reykjavík var veg- urinn svo sléttur og ekkert ryk. Höfðum heyrt að það væri kallað malbik og það var alltaf smá að bætast við slétta vegakaflann. Ætli þannig vegur yrði kominn alla leið frá Reykjavík til Grund- arfjarðar … meðan við lifðum? Við spáðum mikið í þetta. Við vorum báðar svo heppnar að sömu jólin (þá um 8 ára) feng- um við litlar handsnúnar sauma- vélar í jólagjöf. Það var svo setið við – klippt voru göt á dúkkufötin og reynt eftir besta megni að gera við. Samskiptin minnkuðu eins og gengur hin síðari ár en samtal er við áttum er ég varð 60 ára – gladdi mig mjög og sýndi að tengslin voru enn sterk. Elsku Dagný, takk fyrir allt og allt. Er sannfærð um að ljósið umlykur þig þar sem þú ert núna. Sendi Sigga og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Þín vinkona, Lína Björk. Við þekktum þig öll þú varst yndisleg sál hin ástríka lund var þér gefin svo hlaust þú að finna hið fegursta bál er fylgdu þér vissan og efinn þú gekkst alltaf hægt þegar gatan var hál því gæfan þér lýsti öll skrefin. Við áttum hér samleið og óskin var sú að yndisleg reyndist þér dvölin svo finnum við þökk þegar fáum við nú að fylgja þér síðasta spölinn (K.H.) Vináttan er það dýrmætasta sem við eigum og það er ekki sjálfgefið að eignast góða vini eða vinkonur sem fylgja manni í líf- inu í gleði og sorg. En ég er svo heppin að eiga nokkrar. Í dag fylgi ég Dagnýju síðasta spölinn. Dagný vinkona mín er farin í sumarlandið laus við veik- indi síðustu ára sem hún tókst á við með miklu æðruleysi og dugnaði ákveðin í að sigra en því miður fór það ekki svo. Hún var frekar hlédræg, var ekki að trana sér fram. Sam- viskusöm og vandvirk við allt sem hún tók að sér, las mikið, átti ofdekraðan kött. Skemmtileg, hláturmild og hafði góðan húmor en umfram allt traustur vinur, stolt mamma og amma og góð eiginkona. Og hún var vinkona mín. Kannski leið langur tími á milli þess að við hittumst en það er allt í lagi því þannig eru góðir vinir. Vinir sem eru til í að skreppa eitt og annað, t.d. út að Blómsturvöll- um, í Bónus, hittast og spjalla eða syngja saman í góðu partýi, já hálpast að þegar eitthvað bját- ar á eða fara í ferðalög saman. Og fyrir nokkrum árum datt okkur Huldu systur hennar í hug að skreppa út í Flatey með Baldri og Dagný slóst í för og varð þetta byrjunin á „sumarferðunum“ okkar. Þetta voru nú ekki langar ferðir, svona dagleið eða svo, en skilyrði var að veðrið væri gott. Fórum í gönguferð frá Arnar- stapa að Hellnum, já og til baka, reyndum eitt sinn á kjarkinn og fórum niður í Vatnshellinn. Fór- um í siglingu um Breiðafjarð- areyjar, í sumarbústað og margt annað skemmtilegt. Seinni árin létum við nægja að skreppa út að borða. Í síðustu heimsókn minni til hennar var einmitt rætt um að nú væri hægt að fara að gera eitthvað skemmtilegt eftir nokk- urt hlé. Heimsókn sem átti bara að vera stutt innlit en endaði í nærri þremur tímum, þar var ýmislegt rætt, hlegið og flissað eins og smástelpur. Ræddum um börn og barnabörn, þegar maður er kominn á þennan aldur er það vinsælt umræðuefni. Ekki hvarflaði að mér þá að þetta yrði síðasta heimsóknin til hennar og síðast hittum við í búðinni. Það er sárt til þess að hugsa að heimsóknir og sumarferðir verði ekki fleiri. Við áttum eftir að gera svo margt. Hún ætlaði m.a. að koma til mín og klippa rósina sem hún gaf mér sem litla plöntu fyrir sex árum en er nú orðin stórt og fallegt blóm. Ég ætla að hugsa vel um hana og minnast kærrar vinkonu sem reyndist mér vel og kenndi mér margt sem ég geymi með mér. Ég kveð þig með söknuði og trega. Hafðu þökk fyrir allt. Elsku Siggi, Hugrún Davíð og fjölskyldur, systkini hennar og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Sigríður (Sigga), Nýjubúð. Dagný Jeremíasdóttir Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.