Morgunblaðið - 25.09.2021, Page 8

Morgunblaðið - 25.09.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Kjarval Frumsýning í dag borgarleikhus.is Tryggðu þér miða Popúlistar í framboði draga al- mennt ekki af sér þegar kosn- ingar nálgast. Þá er öllu tjaldað til. Viðreisn fullyrðir til dæmis að út- gjaldaloforð flokksins séu „full- fjármögnuð“, aðallega af því að flokkurinn segist geta auk- ið hagvöxt og lækkað vaxta- kostnað ríkisins. Þetta er aug- ljóslega hrein sýndarmennska og þeir sem setja svona lagað fram telja eflaust að enginn skoði hvaða forsendur búa að baki fullyrðing- unum. - - - Þá eru flokkar sem láta eins og hér á landi sé bullandi ójöfn- uður þegar staðreyndin er sú að bæði eignir og tekjur eru hér með allra jafnasta móti. Tekjujöfnuður til að mynda meiri en annars staðar á Norðurlöndum, sem segir allt sem segja þarf. - - - Þrátt fyrir þetta er þess krafist að skattkerfinu verði beitt af enn meiri hörku til að auka jöfnuð. Vandinn við það er hins vegar sá, að þeir sem eru í fimm lægstu tekjutíundunum, sem sagt helm- ingur fólks, greiða 1% af heildar- tekjuskatti ríkisins, eins og Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri SA, benti á í grein í Viðskiptablaðinu í vikunni. - - - Og þeir sem eru í efstu tekju- tíundinni greiða helming alls tekjuskattsins. Augljóst er af þessu að skattkerfinu er þegar beitt mjög í því skyni að ná fram jöfnuði og fráleitt að halda öðru fram. - - - En popúlistarnir láta það ekki á sig fá og réttlæta eflaust rangfærslurnar með því að tilgang- urinn helgi meðalið. Popúlistar í kosningabaráttu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tilkynnt var um nokkur þjófn- aðarmál til lögreglunnar á Suð- urnesjum í vikunni, m.a. á lömpum úr gróðurhúsi. Þá var brotist inn í vinnuskúra og verkfærum stolið. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Sandgerðisvegi með þeim afleiðingum að hún hafnaði úti í móa. Hann slapp ómeiddur. Nokkrir ökumenn voru svo kærð- ir fyrir of hraðan akstur. Endaði úti í móa Innkaupa- og framkvæmdaráð hefur samþykkt að taka tilboði lægstbjóð- anda í tryggingar Reykjavíkurborg- ar og tengdra fyrirtækja. Sjóvá-Al- mennar hf. áttu lægsta tilboðið. Sáralítill munur var á tveimur lægstu tilboðunum. Þegar tilboð voru opnuð 14. sept- ember sl. kom í ljós að Sjóvá-Al- mennar hf. buðu rúmar 706 milljón- ir, Vátryggingafélag Íslands hf. rúmar 1.368 milljónir og Trygginga- miðstöðin hf. rúmar 1.572 milljónir. Við yfirferð voru tilboð endur- reiknuð og komu í ljós mistök við framsetningu Sjóvár á þann veg að opinber gjöld vegna brunatrygginga reiknuðust ekki inn í samtölu tilboðs og var tilboðið leiðrétt til samræmis. Í tilboði VÍS voru villur í samtölum, sem einnig voru leiðréttar miðað við forsendur útboðsins. Tilboð Tryggingamiðstöðvarinnar var óbreytt eftir yfirferðina. Tilboð VÍS lækkaði í krónur 1.330.075.169 en tilboð Sjóvár hækkaði í krónur 1.328.964.762. Ekki munaði nema rúmri milljón Sjóvá í vil og var til- boði tryggingafélagsins tekið, að til- lögu verkefnisstjóra trygginga. „Sjóvá er lægstbjóðandi og telst einnig uppfylla þær kröfur sem gerðar voru til lægstbjóðanda um hæfi og framlagningu gagna og fjár- hagsskoðun hefur verið framkvæmd af innkaupaskrifstofu Reykjavíkur- borgar,“ segir í niðurstöðu verkefn- isstjórans. sisi@mbl.is Lítill munur á lægstu tilboðum - Reikniskekkja í tveimur tilboðum Morgunblaðið/Eggert Jón Bernódusson, verk- fræðingur hjá Sam- göngustofu, lést á Land- spítalnum Fossvogi sl. miðvikudag af völdum hjartabilunar. Jón fæddist í Vest- mannaeyjum 18. febrúar 1952. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Jóhanna Bergmundsdóttir hús- móðir og verkakona og Bernódus Þorkelsson skipstjóri. Jón varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1974 og fór þá til náms í skipaverkfræði við háskólann í Ro- stock í Austur-Þýskalandi. Árið 1979 fluttist hann til Vestur-Berlínar og var þar í framhaldsnámi og við rann- sóknir í straumfræði fram til 1990 er hann kom heim. Fyrst starfaði hann sem skipaverkfræðingur hjá fyrir- tækinu Atlas, en var 1998 ráðinn til Siglingamálastofnunar og vann þá m.a. að umhverfisvernd í siglingum með rannsóknum sínum um orkuskipti í skipum. Við sameiningu 2013 varð stofnunin hluti af Samgöngustofu og þar starfaði Jón til æviloka. Hann var fagstjóri rann- sókna, þróunar og greiningar. Sérsvið hans síðari ár voru rann- sóknir á nýtingu repju til framleiðslu lífrænnar olíu til manneldis og sem eldsneyti og var hann í forsvari fyrir mörgum rannsóknarverkefnum á þeim vettvangi. Hans síðasta verkefni var að semja skýrslu starfshóps um ræktun og framleiðslu úr orkujurtum sem afhent var samgönguráðherra fyrr í mánuðinum. Átti það málefni hug hans allan. Kona Jóns er Martína Bernódus- son tryggingalæknir. Þau eiga tvær dætur, Maríu Láru lækni sem er í sérfræðinámi í Sviss og Aðalbjörgu Jóhönnu sálfræðing í Frankfurt. Andlát Jón Bernódusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.