Morgunblaðið - 25.09.2021, Page 20
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Vonir eru bundnar við að markaðs-
átak fyrir íslenskar sjávarafurðir í
Frakklandi skili íslenska þjóðar-
búinu auknum útflutningstekjum.
Herferðinni Fishmas var hrint af
stað fyrr í mánuðinum en hún er
hluti af verkefn-
inu Seafood from
Iceland og að því
koma um 30 fyrir-
tæki í veiðum,
vinnslu, sölu og
þjónustu við sjáv-
arútveginn,
ásamt Samtökum
fyrirtækja í sjáv-
arútvegi og Ís-
landsstofu.
Fishmas-
herferðin í Frakklandi er framhald
af herferð sem hófst í Bretlandi síð-
asta haust en heiti hennar vísar til
jólanna eða christmas. Björgvin Þór
Björgvinsson, fagstjóri sjávarútvegs,
útflutnings og fjárfestinga hjá Ís-
landsstofu, segir herferðina hafa
reynst vel í Bretlandi. „Við vorum
mjög ánægð með hvernig til tókst
þar og auðvitað erum við að vinna
áfram inn á Bretland.“ Þá var síðast í
sumar stuðst við Fishmas-markaðs-
efni í tengslum við hátíð þar í landi er
tengist þjóðarréttinum fiski og
frönskum.
Hann segir alltaf hafa staðið til að
nýta Fishmas-herferðina víðar en í
Bretlandi. „Þegar þessi herferð varð
til í fyrra var þetta hugsað fyrir fleiri
markaði en bara Bretland enda
kostnaðarsamt að fara í svona vinnu
og svona herferð. Svo fórum við í
upphafi árs að skoða [í samstarfi við
auglýsingastofu] hvort þetta myndi
virka inn á franska markaðinn, þetta
er annað tungumál og önnur menn-
ing.
Niðurstöður gáfu til kynna að hug-
myndin skilst, en í Frakklandi er
meiri áhersla lögð á matinn og mat-
arupplifunina,“ útskýrir Björgvin
Þór.
Stærsti markaðurinn
Hann viðurkennir að það kunni að
vera einfaldara að ýmsu leyti að færa
herferðina inn á annan enskumæl-
andi markað enda ljóst að tengingin
milli „fishmas“ og „christmas“ sé
bundin við ensku, En Frakkland er
stór og mikilvægur markaður fyrir
íslenskt sjávarfang og talið að þar sé
grundvöllur fyrir markaðssókn, að
sögn Björgvins Þórs.
Frakkland er stærsti markaðurinn
fyrir íslenskar sjávarafurðir og nam
útflutningsverðmæti afurða, sem
þangað fóru í fyrra, 36,4 milljörðum
króna. Þorskur vegur þar þyngst og
stendur tegundin undir 78% útflutn-
ingsverðmætanna til Frakklands, en
5% má rekja til ýsu, 5% til karfa, 4%
til ufsa og 35 til steinbíts. Ef ein-
göngu er horft á útflutnings-
verðmæti þorskafurða er Frakkland
í fyrsta sæti með 28,3 milljarða króna
sem gerir 21% af heildarútflutnings-
verðmætum þorsks frá Íslandi.
Spurður hvernig hafi tekist að að-
laga markaðsefnið frönskum að-
stæðum svarar Björgvin Þór: „Það
tókst ágætlega til með þýðingu og
talsetningu á myndbandi. Við erum
nýfarin af stað í Frakklandi og verð-
ur áhugavert að sjá mælingar á því
hvernig þessu verður tekið.“
Markaðsetningin beinist fyrst og
fremst að neytendum í gegnum sam-
félagsmiðla og leggur áherslu á
tengingu við uppruna afurðanna, að
sögn Björgvins Þórs.
Markaðsherferðin hófst formlega
10. september er efnt var til fishmas-
veislu í sendiherrabústað Íslands í
París og mætti þar franskt fjölmiðla-
fólk, áhrifavaldar og fulltrúar frá
kaupendum á franska markaðnum.
Unnur Orradóttir Ramette, sendi-
herra Íslands í París, ávarapaði gesti
og kynnti Lea Gestsdóttir Gayet,
fagstjóri almannatengsla hjá Ís-
landsstofu, herferðina. Þá eldaði
margverðlaunaði kokkurinn Viktor
Örn Andrésson fjóra rétti úr íslensk-
um gæðafiski og tóku gestir virkan
þátt í eldamennskunni.
Blása til sóknar
í Frakklandi
Herferð Þann 10. september var íslenskur fiskur kynntur frönsku áhrifafólki í París.
Björgvin Þór
Björgvinsson
Markaðssókn Egill Ólafsson í hlutverki Le Père Fishmas, eða fiskisveins-
ins, í auglýsingaherferð íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og Íslandsstofu.
Markmiðið með herferðinni er að auka útflutningsverðmæti sjávarafurða
með því að styrkja vitund og hafa áhrif á viðhorf neytenda til íslenskra
sjávarafurða. Skilgreindur var markhópur sem hlotið hefur vinnuheitið
„stálpað fjölskyldufólk“ og er skilaboðunum beint markvisst að þeim
hópi í gegnum birtingar á samfélagsmiðlum. Sérstök áhersla er lögð á
einstök gæði íslenska fisksins og Frakkar hvattir til að elda íslenskan fisk
a.m.k. tvisvar í viku. Samstarf verður við fjölmarga franska áhrifavalda
sem munu fá ferskan þorsk sendan heim og elda úr honum girnilegar
uppskriftir og birta á sínum samfélagsmiðlum. Fjölmörg ný Fishmas-
uppskriftamyndbönd er að finna á vefsíðu herferðarinnar.
Stálpað fjölskyldufólk
MARKMIÐIN
- Frakkland er stærsti markaður fyrir íslenskar þorsk-
afurðir - Fishmas-herferðin gaf góða raun í Bretlandi
þú