Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ísland fór á dög-
unum upp um
fjögur sæti í ný-
sköpunarvísitölu
Alþjóðahug-
verkastofnunar-
innar (WIPO).
Landið situr nú í
17. sæti.
Staða Íslands á
listanum hefur
verið ólík milli
ára og þannig féll landið úr 13. í 23.
sæti árið 2018.
Jón Gunnarsson samskiptastjóri
Hugverkastofunnar segir frétt-
irnar jákvæðar. Þær séu áhugavert
innlegg í umræðu um stöðu og
framtíð nýsköpunar hér á landi.
„Þetta er vonandi til vitnis um að
við séum að gera eitthvað rétt hér á
landi. Þegar við féllum niður í 23.
sæti um árið skapaðist umræða um
stöðuna,“ segir Jón.
Vísitalan er helsta nýsköpunar-
vísitala heims, notuð af stjórnvöld-
um og alþjóðastofnunum til að meta
umfang og stöðu nýsköpunar.
Upp um
fjögur
sæti
- Ísland komið í
17. sæti hjá WIPO
Jón
Gunnarsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, segir útlit fyrir að verðbólga á
erlendum mörkuðum muni skapa
þrýsting á verðlag á Íslandi.
„Það er engum greiði gerður með
því að mála skrattann á vegginn. Við
erum hins vegar raunsæ á stöðuna.
Við horfum fram á fordæmalausar
aðstæður en, eins og allir vita, hefur
verðbólga á Íslandi í gegnum tíðina
verið hærri en í nágrannalöndum
okkar. Verðbólga í Bandaríkjunum
er nú hærri en á Íslandi, eða 5,3%, og
í Þýskalandi, landi stöðugleikans, er
hún áþekk og hér og litlu minni í
Bretlandi (3,2%) en hér (4,3%).
Hráefnisverðið á uppleið
Þetta er ný staða en Alþjóðabank-
inn og alþjóðlegir greiningaraðilar
eru sammála um að orsökin sé hinar
gífurlegu hækkanir sem hafa verið
og eru enn á öllum hrávörumörkuð-
um. Þ.m.t. öllum lykilhráefnum til
matvælaframleiðslu og öllum málm-
um til iðnaðarframleiðslu,“ segir
Andrés sem telur þetta hljóta að
skapa þrýsting á verðlag hér á landi
en flutningskostnaður milli heims-
álfa hafi hækkað mikið (sjá graf).
Það eigi sinn þátt í þessari þróun
að stóru alþjóðlegu skipafélögin hafi
lesið rangt í eftirspurn í faraldrinum
og afskráð fjölda flutningaskipa og
sent í brotajárn. Með því hafi fram-
boðið af gámarými verið skert en
eftirspurn eftir ýmsum vörum aukist
mikið í faraldrinum vegna tímabund-
inna breytinga á neyslumynstrinu.
Röskunin hefur víðtæk áhrif
Með hliðsjón af því að nær 30% af
framleiðslu heimsins fari fram í
Kína, og að þar séu sjö afkastamestu
hafnir heims, hafi þessi röskun í sigl-
ingum milli heimsálfa haft mikil
áhrif. Sökum þess að verðbólgu-
þrýstingurinn sé innfluttur, líkt og
fulltrúar Seðlabankans hafi bent á,
hafi bankinn ekki önnur tæki til að
bregðast við því en að hækka vexti,
með tilheyrandi afleiðingum.
Spurður hvort innlend verslun
hafi borð fyrir báru til að taka á sig
hærra innflutningsverð, í ljósi kröft-
ugrar eftirspurnar í faraldrinum,
segir Andrés að samtökin tjái sig
ekki um verðlagningu verslana. Hitt
sé ljóst að með því að utanlandsferð-
ir féllu niður frá mars í fyrra hafi eft-
irspurn innanlands þess í stað aukist
mjög mikið og verslun á Íslandi notið
góðs af því.
Verðbólguálagið á uppleið
Agnar Tómas Möller, sjóðstjóri
hjá eignastýringu Kviku banka,
bendir á að verðbólguálag ríkis-
skuldabréfa (sjá graf) hafi hækkað
snarpt í aðdraganda kosninganna.
Það endurspegli óvissu um þróun
efnahagsmála með nýrri ríkisstjórn.
Fari verðbólga af stað með óábyrgri
hagstjórn muni Seðlabankinn þurfa
að grípa í taumana og hækka vexti
talsvert meira en ella.
Verðbólguþróunin ytra sé
áhyggjuefni þótt flest bendi til að
hún gangi niður þegar líður inn á
næsta ár. Erlendis sé mikið rætt um
hversu mikill hluti af kostnaðar-
hækkunum sé nú þegar kominn fram
í verðlagi og hvað muni ganga til
baka. Sem dæmi hafi kínverskir
framleiðendur skilað litlum hluta
hennar í verðlag til neytenda – hæg-
ari vöxtur í kínverska hagkerfinu
hafi sitt að segja um það.
Varðandi þróunina hér heima hafi
komið fram í síðustu Peningamálum
Seðlabankans að innlend og innflutt
verðbólga hafi verið að hjaðna en
húsnæðisliðurinn orðið ráðandi í
verðbólgunni.
„Þessar verðhækkanir að utan
munu leiða til eitthvað hærri verð-
bólgu í haust en menn reiknuðu með
í sumar,“ segir Agnar Tómas.
Almennt hafi eftirspurnin í heim-
inum verið að færast úr vörum yfir í
þjónustu, eftir því sem dregur úr
áhrifum faraldursins, og það muni
vega á móti verðbólguþrýstingi.
Hækkandi verð á hrávörum og fram-
leiðsluvörum sé aðeins einn þáttur í
flóknu púsluspili. Til dæmis hafi
framleiðni verið að aukast á móti
víða í faraldrinum.
Gæti haft áhrif á væntingar
Þá telur Agnar Tómas að nú gæti
helst mikillar bjartsýni í hagspám en
ekki sé útilokað að væntingar geti
farið að dempast á ný þegar líður á
veturinn. Meðal annars hafi ferða-
þjónustan ekki tekið jafn hratt við
sér og vonir stóðu til og vaxtahækk-
anir Seðlabankans muni mögulega
bíta „fast inn í óvissu vetrarins“.
Einar Snorri Magnússon, forstjóri
Coca Cola European Partners á Ís-
landi, segir kostnað við gámaflutn-
inga lítið hafa breyst innan Evrópu,
enn sem komið er. Hann hafi hins
vegar aukist mikið á lengri siglinga-
leiðum. Til að mynda kosti nú allt að
tvöfalt meira að flytja vín sjóleiðina
til Íslands frá Suður-Ameríku.
„Ef sú þróun heldur áfram sjáum
við okkur ekki annað fært en að
þurfa að hækka verð á þeim vínum
umtalsvert,“ segir Einar.
Flutningskostnaðurinn sé enda
talsverður hluti af heildarkostnaði
við vöruna á lengri leiðum.
Mun vara fram á næsta ár
Þá hafi verið skortur á áldósum
frá byrjun ársins og Coca Cola á Ís-
landi því þurft að leita annarra leiða
til að fá dósir, á hærra verði. Vegna
þessa hafi Coca Cola á Íslandi aukið
framleiðslu á plastflöskum.
Einar Snorri telur aðspurður að
þetta ástand muni vara a.m.k. fram á
mitt næsta ár. Varðandi framleiðsl-
una á bjór fyrir norðan hafi fyrir-
tækið getað tryggt sér dósir en á
hærra verði. Það geti aftur smitast í
smásöluverð.
Erlendar verðhækkanir á leiðinni
- Samtök verslunar og þjónustu segja ekki við öðru að búast en að erlend verðbólga hafi áhrif hér
- Verðbólguálag á uppleið - Forstjóri Coca Cola á Íslandi segir innflutt vín geta hækkað mikið í verði
Verðbólguálag ríkisskuldabréfa
Frá júní 2021, fimm ára bréf
3,7%
3,5%
3,3%
3,1%
2,9%
júní júli ágúst september
Heimild: Kvika/
eignastýring
3,72%
Shanghai-vísitalan yfir flutningskostnað
Kostnaður við gámaflutninga frá janúar 2019 til júní 2021
Heimild: Reuters Eikon
2019 2020 2021
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
3.158
1.872
865819
25. september 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.46
Sterlingspund 177.45
Kanadadalur 102.15
Dönsk króna 20.4
Norsk króna 15.042
Sænsk króna 14.959
Svissn. franki 140.08
Japanskt jen 1.1766
SDR 183.73
Evra 151.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.6091
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Höldur – Bílaleiga Akureyrar festi
nýlega kaup á 70 Kia E-Niro rafbílum
hjá bílaumboðinu Öskju. Um er að
ræða stærstu einstöku kaup bílaleigu
hér á landi á rafbílum, að sögn Krist-
manns Freys Dagssonar, sölustjóra
fyrirtækjasölu Öskju.
Bílarnir sem eru með yfir 450 km
drægi á rafmagni, við bestu aðstæður,
verða notaðir bæði í langtímaleigu
Hölds sem og í skammtímaleigu til
viðskiptavina Hölds, að því er fram
kemur í samtali Morgunblaðsins við
Pálma Viðar Snorrason, aðstoðar-
framkvæmdastjóra hjá Bílaleigu
Akureyrar.
Mikilvægur áfangi
„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir
okkur þar sem við erum að stíga sí-
fellt stærri skref í að auka hlutdeild
rafknúinna ökutækja í okkar flota,“
segir Pálmi „Við erum núna með 240
rafbíla í notkun og 600 tengiltvinnbíla
– alls 840 umhverfisvæna bíla. Okkar
kolefnisspor fer því lækkandi með
hverju ári. Á þessu ári höfum við auk-
ið hlutdeild þessara bíla í okkar flota.
Þeir hafa reynst okkur mjög vel bæði
í rekstri og endursölu og notendur
bílanna eru ánægðir,“ bætir Pálmi
við.
Askja, sem er umboðsaðili Kia, hef-
ur á árinu að sögn Kristmanns aukið
hlutdeild sína töluvert og er Kia nú
önnur mest selda bíltegund landsins.
Hlutfall raf- og tengiltvinnbíla af sölu
Kia er á þessu ári um 45%.
„Þetta hlutfall mun hækka töluvert
á næsta ári. Við erum að fá mikið úr-
val tengiltvinn- og rafbíla frá Kia – og
nú er drægni tengiltvinnbíla orðin
mun meiri en áður. Allir tengiltvinn-
bílar frá Kia eru með drægni að lág-
marki um 60 km miðað við bestu að-
stæður og rafbílarnir komast lengst
um 528 km. Auk þess koma fjórhjóla-
drifnir bílar í lok ársins.“
Þróun orkugjafa til bílaleiga á Íslandi
Hlutfall orkugjafa 2017-2021
Fjöldi eftir orkugjöfum 2017-2021
60%
40%
20%
0%
Bensín Dísel
Aðrir orkugjafar
2017 2018 2019 2020 2021
Heimild:
Bílgreina-
sambandið
2017 2018 2019 2020 2021 Samtals
Bensín 4.231 3.485 2.806 859 1.365 12.746
Dísel 3.842 2.959 1.672 587 574 9.643
EV 23 22 39 130 217 431
Hybrid 32 156 164 265 1.038 1.655
PHEV 7 34 146 164 654 1.005
Vetni/gas/metan 20 3 23
52%
58%
49%
36%
15%
35%
7%
47%
1%
Stærstu kaup bílaleigu
- Höldur keypti
70 nýja rafbíla
- Aukin hlutdeild