Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 30

Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir stutta og snarpa kosninga- baráttu ganga kjós- endur í dag að kjör- borðinu. Í hugum margra er hátíð- arbragur yfir kjördegi. Þá gefst kostur á að nýta dýrmætan rétt, sem síður en svo er sjálfgefinn þótt komið sé fram á 21. öldina. Nú er að ljúka mjög óvenju- legu kjörtímabili. Segja má að kórónuveiran hafi riðið flestu öðru á slig og sett úr skorðum í eitt og hálft ár. Það er ekki áhlaupaverk að takast á við heimsfaraldur og þegar horft er til annarra landa er augljóst að hér hefur að mestu leyti tekist vel til. Ekki þurfti að grípa til jafn harka- legra takmarkana og víða ann- ars staðar, aðgerðir ríkisstjórn- arinnar til að hjálpa fyrirtækjum að halda sér á floti þegar ferðaþjónusta lagðist af hafa gert sitt gagn og óvíða gengið betur að bólusetja fólk, þótt blikur hafi verið á lofti í þeim efnum í upphafi. Stjórnarandstaðan hefur því ekki getað hamrað á stjórnar- flokkunum vegna veirunnar því að þar er ekki mikinn höggstað að finna. Stjórnarflokkarnir virðast hins vegar ekki ætla að njóta góðs af því hvernig gekk að eiga við faraldurinn. Í raun hefur lít- ið sem ekkert borið á umræðu um hann í kosningabaráttunni, þrátt fyrir það mark, sem hann hefur sett á und- anfarin misseri. Velsæld er mikil á Íslandi um þessar mundir og hefur sjaldan verið meiri. Hér ríkir meiri jöfnuður en víðast hvar annars staðar. Kaupmáttur hef- ur aukist á kjörtímabilinu og mest hjá þeim, sem minnst hafa milli handanna. Atvinnuleysi jókst verulega í faraldrinum, en er nú á hraðri niðurleið. Skuldir ríkisins hafa vaxið vegna faraldursins, en svo vel var haldið um fjármálin og sax- að á skuldirnar áður en hann brast á að staðan til að takast á við skuldahalann gæti vart ver- ið betri. Eins og staðan er ættu kost- irnir í þessum kosningum því að vera skýrir. Það er ekki að ástæðulausu að skoðanakann- anir hafa sýnt að mikil velvilji ríkir í garð stjórnarinnar. Sá hængur er á að fleiri styðja stjórnina en hyggjast kjósa flokkana, sem í henni sitja, ef marka má kannanirnar. Undanfarna daga hafa kosn- ingaloforðin streymt í stríðum straumum og getur verið freist- andi að nota atkvæðið til að láta á þau reyna, frekar en að horfa til reynslunnar af undanförnum fjórum árum. Fyrir þeim kosti eru þó gild rök að dæma menn frekar af verkum sínum en lof- orðum. Fyrir þeim kosti eru gild rök að dæma frekar af verkum en loforðum} Skýrir kostir Eldur varð laus í Miðgarða- kirkju í Grímsey á þriðjudagskvöld og virðist hún hafa brunnið upp á 20 mínútum. Var haft eftir sjónarvottum að eldurinn hefði „bókstaflega étið kirkjuna upp á svipstundu“. Harmur er kveðinn að Grímseyingum vegna þessa válega atburðar og er ljóst að merkar menningar- minjar hafi þarna farið for- görðum. Samkvæmt heimildum var kirkja fyrst vígð í Grímsey ein- hvern tíma á árunum 1110 til 1120. Segir að kirkjan í Grímsey hafi fyrst staðið á Kirkjuhól. Hún hafi fokið út á sjó í aftaka- veðri og núverandi kirkjustæði sé þar sem viðinn úr henni rak á land þar sem heitir Viðarvík eða Stertuvík. Hafist var handa við að reisa Miðgarðakirkju árið 1867 var var byggingu hennar lokið árið eftir. Hún var svo stækkuð árið 1932. Árið 1956 var hún gerð rækilega upp og endurvígð og hefur sætt margvíslegu viðhaldi síðan sem ekki var alltaf í sam- ræmi við hina upprunalegu kirkju. Í kirkjunni glöt- uðust margir mun- ir. Má þar helst nefna altaristöflu eftir Arngrím Gíslason alþýðu- listamann frá 1879. Fyrirmynd hans var kvöld- máltíðarmynd Leonardo da Vinci. Ekki er vitað hvað olli brun- anum í Grímsey, en getum hef- ur verið leitt að því að kviknað hafi í út frá rafmagni. Bruninn er áminning um mikilvægi þess að huga rækilega að brunavörn- um í kirkjum landsins. Hér á landi voru 216 friðlýstar kirkjur árið 2018 og 208 þeirra voru rúmlega einnar aldar gamlar. Það er brýnt að vernda þann arf. Minjastofnun hefur í sam- vinnu við Mannvirkjastofnun gefið út leiðbeiningar um brunavarnir í friðlýstum kirkjum og leggja verður áherslu á að fara eftir þeim. Margir hafa sent Gríms- eyingum kveðjur vegna brun- ans og haft orð á mikilvægi þess að þar rísi kirkja á ný. Gríms- eyingar eiga skilinn allan stuðn- ing til þess að tryggja að rúm- lega 900 ára kirkjuhefð verði ekki rofin í eynni. Grímseyingar eiga skilið allan stuðning til að kirkja rísi í Grímsey á ný} Kirkjubruninn í Grímsey Í dag göngum við til alþingiskosninga. Flokkarnir hafa kynnt stefnumál sín undanfarnar vikur, hitt og hringt í kjósendur og drukkið ógrynni bolla af kaffi. Við í Samfylkingunni höfum með stolti kynnt okkar áherslupunkta sem lúta að því að jafna kjör almennings í landinu. Við viljum byggja hér upp barnabótakerfi að norrænni fyrirmynd enda mun það koma öllu samfélaginu til góða. Önnur ríki hafa fyrir löngu áttað sig á mikil- vægi alvöru barnabótakerfis en því miður hefur jafnt og þétt verið dregið úr þessum stuðningi hér á landi. Í okkar tillögum fær barnafólk með meðaltekjur og tvö börn á framfæri 650 þúsund krónur á ári eða 54 krónur í hverjum mánuði í barnabætur. Enginn annar flokkur býður við- líka kjarabætur fyrir venjulegt barnafólk né hafa aðrir flokkar lagt fram hvort tveggja útfærðar og fjármagnaðar tillögur í þágu fjölskyldna í landinu. Það eru einnig aðrir hópar í samfélaginu sem hafa jafnt og þétt verið að dragast aftur úr en fólk sem fær greiddan lífeyri, hvort sem er elli- eða örorkulífeyri, hefur þurft að þola óþolandi skerðingar vegna atvinnu- og lífeyristekna sem hafa dæmt stóran hóp til fátæktar. Við viljum hækka grunnlífeyrinn upp að lágmarkslaunum og draga verulega úr skerðingum svo hægt sé að auka virkni og lífsgæði. Vanfjármögnun heilbrigðiskerfisins hefur líka bitnað harkalega á sjúklingum og fjölskyldum þeirra um allt land en einnig á heilbrigðisstarfsfólki. Biðlistaómenning ríkis- stjórnarinnar er ekki náttúrulögmál heldur pólitísk ákvörðun um að leggja mun lægri fjár- hæð hlutfallslega til heilbrigðiskerfisins en þekkist t.d. annars staðar á Norðurlöndum og viljum við í Samfylkingunni gera mun betur með auknu fjármagni, betra skipulagi og minni kreddum. Til þess þarf nýja ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem þorir að sækja tekjur til þeirra sem geta. Stóreignarskatt sem leggst á ríkasta 1% þjóð- arinnar eða fólk sem á eignir yfir 200 milljónir skuldlaust. 1.250 krónur á mánuði af hverri milljón yfir skuldlausum 200 milljónum eru hófstilltir skattar og sanngjarnir. Þá leggjum við til að auðlindagjöld verði hækkuð á 20 stærstu útgerðirnar til hagsbóta fyrir almenn- ing, eigendur auðlindarinnar. Það munar um þessa fjármuni við rekstur samfélagsins, svo sem á heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Kerfi sem grípur allar fjölskyldur í landinu. Jöfnuður er ávísun á gott samfélag, því við eigum öll að hafa jöfn tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi og láta drauma okkar rætast. Um það snýst jafnaðarstefnan sem við í Samfylkingunni brennum fyrir. Með góðri útkomu Samfylkingarinnar í kosningunum aukast líkur á nýrri ríkisstjórn Íslands þar sem virðing fyrir fólki og náttúru verður í hávegum höfð. Núna er tækifærið og við eigum að grípa það. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Samfylkingin fyrir fjölskyldurnar í landinu Höfundur skipar 1. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík norður. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is A ndri Heiðar Kristinsson er framkvæmdastjóri hjá Stafrænu Íslandi. Verkefnið er unnið innan fjármála- og efnahags- ráðuneytisins. Því var ýtt úr vör árið 2018 en ríkið hyggst verja milljörðum til upp- byggingar stafrænna innviða. Spurður hversu stór hluti af verk- efninu hafi verið unninn innanhúss segir Andri að verkefnið hafi alfarið verið unnið af einkaaðilum. „Við erum með verkefnastjóra innanhúss. Þannig að öll forritun og hönnun, og allt slíkt, er keypt í gegn- um útboð,“ segir Andri Heiðar. Ætla megi að tugir sérfræðinga hafi komið að þessari vinnu hjá einka- fyrirtækjum. Spurður hvers vegna þessi leið hafi verið valin segir hann þeirri stefnu hafa verið fylgt að bjóða út öll þau verk sem kostur var. Samnýta fjárfestinguna „Sömuleiðis að gera þetta í opnum hugbúnaði þannig að við getum sam- nýtt opinbera fjárfestingu og byggt á þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hefur sett sér í þessum málum, en kveðið var á um það í ríkisstjórnarsáttmálanum 2017 að gera átak í þessum málum og leggja áherslu á miðlæga þjónustugátt, island.is,“ segir Andri Heiðar. Efnt hafi verið til fjárfestingarátaks í fyrra, eftir að faraldurinn skall á, og framlagið til verkefnisins verið aukið um milljarð króna á ári. En fjárfestingarframlag á fjárlögum vegna Stafræns Íslands, og þróunar á miðlægum upplýsinga- tækniinnviðum ríkisins, sé ríflega 1,6 milljarðar á ári, samkvæmt núgildandi fjárlögum. Andri Heiðar kveðst aðspurður ekki óttast að ríkið tapi með þessu fyrirkomulagi hugverkum, eða þekk- ingu. Það eigi enda kóðann í hinum opna hugbúnaði, sem sé sameign allra. Farin sé svipuð leið og í til dæmis Bretlandi og Eistlandi en hún hafi reynst mjög vel. Samtímis hinni stafrænu upp- byggingu hjá ríkinu hyggst borgin verja um 10,3 milljörðum í þróun staf- rænna innviða á árunum 2021, 2022 og 2023 og verða ríflega 60 sérfræðingar ráðnir hjá borginni í ár. Morgunblaðið hefur fjallað um þessi áform borgarinnar og þá stefnu hennar að byggja upp innviðina með eigin starfsfólki. Hefur sú stefna verið umdeild og var kallað eftir útreikn- ingum sem staðfestu réttmæti þess- arar stefnu. Tímagjaldið væri lægra Óskar J. Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Morgunblaðið síðastliðinn þriðjudag að tímagjaldið hefði reynst mun hærra eftir útboð en þegar borgin ynni verkefnin sjálf. Algengt tíma- gjald í tilboðum væri á bilinu 12-22 þúsund krónur. Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Sam- tökum iðnaðarins, segir það mikla ein- földun að stilla málinu svona upp. „Um er að ræða eitt stærsta upp- lýsingatækniverkefni sem hefur verið ráðist í hér á landi. Stærð og áhrif rík- is og sveitarfélaga hefur áhrif á allan markaðinn og þess vegna skiptir út- færsla svona stórra verkefna miklu máli. Það er mikil einföldun að horfa á þetta út frá kostnaði/tímakaupi á hvern starfsmann í útvistun í sam- anburði við innvistun. Nær væri að horfa á það hvernig hagkvæmast er að leysa verkefnið í heild sinni. Með sömu rökum gætu sveitar- félög rökstutt að ráðast í innhýsingu á fjölmörgum öðrum sviðum. Fjöldi vinnustunda yfir líftíma hvers verk- efnis, heildarkostnaður og enda- afurðin og árangur hlýtur að vera lykilatriðið í þessu sambandi. Fyrir- tæki sem sérhæfa sig í þjónustu á sviði upplýsingatækni í víðum skiln- ingi, þróun hugbúnaðarlausna og stafrænna lausna eru að sjálfsögðu betur til þess fallin að leysa slík verk- efni af skilvirkni en sveitarfélag sem hefur ekki reynslu af slíku. Nærtæk- ast er að líta til þess hvernig aðferða- fræðin er hjá ríkinu í sömu stafrænu vegferð. Þar fer öll eiginleg þróun fram hjá atvinnulífinu sem keppir um einstök verkefni í gegnum útboð. Missa fólk til borgarinnar Félagsmönnum hjá Samtökum iðnaðarins var mörgum hverjum brugðið við fréttir af þessu þar sem ekkert samráð hefur verið haft við upplýsingatækniiðnaðinn um þetta risastóra verkefni. Við vitum af fyrir- tækjum sem hafa misst starfsfólk til borgarinnar og fyrirtækjum sem hafa reynt að nálgast borgina með stafrænar lausnir en mætt lokuðum dyrum,“ segir Sigríður að lokum. Hafa boðið út öll verk hjá Stafrænu Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Borgartúni Netdeildin verður á nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Andri Heiðar Kristinsson Sigríður Mogensen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.