Morgunblaðið - 25.09.2021, Blaðsíða 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Stefanía G. Steinsdóttir.
Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur, Ísólfur
Raymond leikur á orgel og Hákon Geir á gítar.
Umsjón hafa Sigrún Magna og Ylfa. Molasopi í
Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 þar
sem fermingarbörn vorsins 2020 taka virkan
þátt með lestrum, leik og söng. Sr. Þór Hauks-
son, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn
Björk Jónsdóttir þjóna. Kór Árbæjarkirkju syngur
undir stjórn Hrafnkels Karlssonar organista. For-
eldrafundur verður eftir messuna. Sunnudaga-
skólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í
umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Thelmu
Rósar Arnarsdóttur.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 13. Séra
Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Viktoría Ásgeirsdóttir og Þorsteinn Jónsson ann-
ast samverustund sunnudagaskólans. Félagar
úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er
Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi í Ási eftir
messu.
Guðsþjónusta á sal á 2. hæð á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson
þjónar. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Al-
mennur söngur.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17.
Davíð Sigurgeirsson tónlistarstjóri kirkjunnar
leiðir tónlistina. Prestur er Arnór Bjarki Blomster-
berg. Ókeypis heitur matur á eftir guðsþjónustu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn.
Síðdegisguðsþjónusta í Bessastaðakirkju kl.
17. Lærisveinar hans og Ástvaldur organisti
spila undir sönginn. Margrét djákni, Vilborg Ólöf
djáknanemi og sr. Hans Guðberg.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hausthátíð sunnu-
dagaskólans í Breiðholtsprestakalli kl. 11. Sam-
eiginleg hátíð Breiðholtskirkju og Fella- og Hóla-
kirkju. Hátíðin hefst með helgistund í kirkjunni. Í
safnaðarsalnum verður margt til skemmtunar,
andlitsmálun, þrautir og föndur. Popp og pylsur,
gleði og gaman. Alþjóðlegi safnaðurinn, guðs-
þjónusta kl.14.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa og kveðju-
messa! Barnamessa sunnudag kl. 11. Sóley
Adda, Katrín Eir, sr. Eva Björk, Jónas Þórir og
Rebbi taka á móti börnunum. Kveðjumessa sr.
Pálma kl. 13. Sr. Pálmi Matthíasson lætur af
störfum sem sóknarprestur. Hann verður kvadd-
ur í guðsþjónustu sunnudag 26. sept. kl. 13. Sr.
Pálmi og Hólmfríður djákni þjóna. Tónlistarveisla
Kammerkórs, Jónasar Þóris og vina. Allir vel-
komnir. Eftir messu verður boðið upp á léttar
veitingar.
DIGRANESKIRKJA | Digraneskirkja kl. 11.
Guðsþjónusta með altarisgöngu. Sr. Helga leiðir
stundina ásamt Kára Allanssyni og félögum í
Karlakórnum Esju.
Sunnudagaskóli í umsjá Höllu æskulýðsfullrúa
og leiðtoga. Léttar veitingar í safnaðarsal kirkj-
unnar að messu lokinni.
Hjallakirkja kl. 17. Guðsþjónusta með léttara
ívafi. Fermingarbörnin eru sérstaklega boðuð til
þessarar helgistundar. Sr Karen, sr. Helga og
Halla æskulýðsfulltrúi leiða stundina, Sálmari
sér um tónlist. Pizza í safnaðarsal eftir stundina
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prestur er El-
ínborg Sturludóttir, Kári Þormar dómorganisti og
Dómkórinn.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta og hausthátíð Breiðholtsprestakalls í
Breiðholtskirkju kl. 11. Sr. Pétur Ragnhildarson
og sr. Magnús Björn Björnsson þjóna ásamt
Steinunni djákna, Mörtu og Dagnýju. Hoppu-
kastali, andlitsmáling, skemmtilegt föndur og
grillaðar pylsur.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjón-
usta á sunnudag kl. 14.
Dr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina.
Barnakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Álf-
heiðar Björgvinsdóttur. Sönghópurinn við Tjörn-
ina og hljómsveitin Mantra leiða sönginn ásamt
Gunnari Gunnarssyni. Fermingarfjölskyldur sér-
staklega boðnar til guðsþjónustu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 26.
september fellur guðsþjónustan niður vegna
framkvæmda. Sunnudagaskólinn verður á neðri
hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hefur Ásta Jó-
hanna Harðardóttir.
Selmessa verður í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13.
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Vox Populi
leiðir söng. Undirleikari er Gísli Magna Sigríð-
arson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messuþjón-
um. Organisti er Antonía Hevesi, Kirkjukór
Grensáskirkju leiðir almennan messusöng. Ritn-
ingarlestrar sunnudagsins eru sérstaklega
áhugaverðir ,,að harma hefur sinn tíma og að
dansa hefur sinn tíma,“ segir í Predikaranum.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Leifur
Ragnar Jónsson sem prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kirkjukór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn
Hrannar Helgadóttur organista.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra til að
koma í messuna.
Sunnudagaskóli í safnarheimilu í umsjá Ástu
Guðmundsdóttur og félaga. Kirkjuvörður Lovísa
Guðmundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11 með fjölbreyttri dagskrá sem Helga, Rósa
Hrönn og Inga Steinunn stýra. Djassmessa kl.
20 þar sem Barbörukórinn undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar syngur verk eftir Bob Chil-
cott, Billy Joel og Duke Ellington. Tríó Andrésar
Þórs leikur. Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar. Sjá
nánar í heimasíðu Hafnarfjarðarkirkju
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eirík-
ur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða. Forsöngvarar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni
Eggertsson. Barnastarf í umsjón Kristnýjar Rós-
ar Gústafsdóttur og Ragnheiðar Bjarnadóttur.
HÁTEIGSKIRKJA |
Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór
Háteigskirkju syngja. Organisti er Arngerður
María Árnadóttir.
HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14. Organisti
er Keith Reed, prestur er Sigurður Grétar Sig-
urðsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma
með lofgjörð og fyrirbænum kl. 13. Ræðumaður
er Guðjón Vilhjálmsson. Kaffi að samverustund
lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagskvöld kl. 20
bjóðum við til Eidemessu. Félagar úr Kór Kefla-
víkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vilbergs-
sonar organista. Helga Jakbobsdóttir og Þórey
Eyþórsdóttir eru messuþjónar. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn er í
höndum leiðtoganna Marínar, Helgu og Alexand-
ers og fer fram í kirkjunni kl. 11.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa verður í Kirkju
döff í Grensáskirkju 26. september kl. 14. Tákn-
málskórinn syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafs-
dóttur. Kaffi eftir messu.
KIRKJUSELIÐ í Spöng | Sunnudag 26. sept-
ember verður Selmessa kl. 13. Sr. Guðrún Karls
Helgudóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undir-
leikari er Gísli Magna Sigríðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 11 í kap-
ellu safnaðarheimilisins Borga. Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar í kór Kópavogskirkju syngja undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11, umsjón hafa þær Hjördís Perla
Rafnsdóttir og Laufey Brá Jónsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Börn úr krúttakórnum syngja undir stjórn Bjargar
Þórsdóttur og Móeiðar Kristjánsdóttur. Prestur
er Aldís Rut Gísladóttir. Kaffisopi eftir messu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 13.
Söngur, bæn, gleði og gaman! Stundin er í
umsjá Boga, Þórðar og Bryndísar. Messa dagins
verður í Mosfellskirkju kl. 11.
www.lagafellskirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Linda-
kirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar.
Rolf Gaedeke leikur á básúnu. Loksins verður
gengið til heilagrar kvöldmáltíðar eftir langt hlé.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. Mess-
unni verður streymt á Facebook-síðu Linda-
kirkju.
MOSFELLSKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11.
Blóma - og grænmetisbændur úr Mosfellsdaln-
um leggja fram uppskeru sína til blessunar.
Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir, organisti er
Þórður Sigurðarson, Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur og leiðir söng. Bryndís Böðvarsdóttir er
meðhjálpari.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli kl. 11. Þema í guðsþjónustu er sköpunin,
náttúran og vernd hennar. Félagar úr kór Nes-
kirkju syngja og leiða söng undir stjórn Láru
Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er sr.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Umsjón með sunnudagaskóla hafa Kristrún
Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir
og Ari Agnarsson. Söngur, leikir, sögur og gleði.
Hressing og samfélag á Torginu eftir stundirnar.
Meðal annars boðið upp á myntute úr garði kirkj-
unnar.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 20 í Njarðvíkurkirkju
(Innri) á sunnudaginn. Sr. Baldur Rafn þjónar til
altaris og félagar úr kirkjukórnum leiða söng
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista.
Munum eftir andlitsgrímunum, það er grímu-
skylda í athöfninni þar sem ekki er unnt að við-
halda eins metra reglunni.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Á sunnudaginn kl.
14 verður tónlistarmessa. Sr. Pétur sér um
messuhald og flutt verður tónlistarguðsþjónusta
Per Harling við íslenskan texta Þórhalls Heim-
issonar. Óháði kórinn leiðir messu og sálma-
söng undir stjórn Kristjáns Hrannars og Óskar
Kjartansson við trommurnar. Petra aðstoðar og
Ólafur mun að venju taka á móti kirkjugestum.
Barnastarf og maul eftir messu.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 13.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar
úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti
er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Léttmessa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgel og flygil. Fé-
lagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.
Sólveig Ragna, sr. Bára og Messíana sjá um
sunnudagaskólann. Veitingar í safnaðarheim-
ilinu eftir athöfn. Sýning Sigrúnar Jónsdóttur
stendur yfir í kirkjunni. Á þriðjudag kl. 12.30
verður kótelettuveisla í safnaðarheimilinu.
Kyrrðarstund miðvikudag kl. 12.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Axel Á. Njarðvík annast prestsþjónustuna. Org-
anisti er Jón Bjarnason.
SKJÓL, hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta á
sal á 2. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl.
14.15. Séra Sigurður Jónsson þjónar. Bjartur
Logi Guðnason leikur á orgelið. Almennur söng-
ur.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 16. Organisti er
Keith Reed, prestur er Sigurður Grétar Sigurðs-
son.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henning
Emil Magnússon. Félagar úr kór Vídalínskirkju
syngja, organisti er Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10 og kl.
11 í Vídalínskirkju, ath. gengið inn um Safnaðar-
heimili. Biblíusögur, brúðuleikhús og söngur.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Popp-
messa kl. 17. Guðrún Árný sér um tónlistarflutn-
ing ásamt Sveini Arnari organista kirkjunnar og
sóknarprestur þjónar með aðstoð messuþjóna.
Morgunblaðið/KristinnBústaðakirkja
Messur á morgun
Umræða um nýja
stjórnarskrá hefur að
vonum vaknað til lífs-
ins í aðdraganda kosn-
inga, enda hafa Píratar
gert það að skilyrði
fyrir þátttöku í nýrri
ríkisstjórn að lögfesta
tillögur stjórnlagaráðs
þar að lútandi. Vísað er
til þjóðarviljans, sem
fram hafi komið í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í október árið
2010, þar sem tillögur stjórnlag-
aráðs hafi verið samþykktar með yf-
irgnæfandi meirihluta kosn-
ingabærra Íslendinga. Full ástæða
er til að draga þessar fullyrðingar í
efa. Flestir eru sammála um að
tímabært hafi verið að gera
ákveðnar breytingar á gömlu lýð-
veldis-stjórnarskránni, enda væri
hún barn síns tíma. Menn eru hins
vegar ekki á eitt sáttir um aðferða-
fræðina sem beitt var og hvernig að
þessum tillögum var staðið á sínum
tíma.
Staðreyndir málsins eru í stuttu
máli þessar: Í kosningunum til
stjórnlagaþingsins var þátttakan að-
eins 36,8%, það er að 63,2% virtust
ekki hafa áhuga á framgangi máls-
ins. Hæstiréttur dæmdi þessa kosn-
ingu ólöglega vegna alvarlegra
formgalla og voru þá kjörnir fulltrú-
ar skipaðir í svokallað
stjórnlagaráð og þeim
falið að semja drög að
nýrri stjórnarskrá.
Kjörsóknin um tillögur
stjórnlagaráðs var
48,4%. Með öðrum orð-
um höfðu 51,6% þjóð-
arinnar ekki áhuga. Af
þeim sem kusu vildu
67% miða við uppkastið
frá stjórnlagaráðinu.
Þetta merkir að þriðj-
ungur kjósenda sam-
þykkti þetta uppkast.
Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar sam-
þykktu það ekki, mættu annaðhvort
ekki á kjörstað eða greiddu ekki at-
kvæði með því. Í ljósi þessara stað-
reynda eru fullyrðingar um þjóð-
arvilja og yfirgnæfandi meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu því afar
vafasamar, svo vægt sé til orða tek-
ið. Fremur mætti tala um hreinar og
klárar rangfærslur.
Falleinkunn Feneyjanefndar
Frumvarp stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá var sent til Feneyja-
nefndarinnar svokölluðu, sem skip-
uð er helstu sérfræðingum Evrópu í
stjórnskipunarrétti. Er skemmst frá
því að segja að Feneyjanefndin gerði
alvarlegar athugasemdir við frum-
varpið og gaf því í raun falleinkunn.
Fréttastofa RÚV birti frétt 12. febr-
úar 2013 þar sem greint er frá áliti
Feneyjanefndarinnar og þar segir
m.a.: „Í áliti nefndarinnar er sér-
staklega tekið fram að margar
greinar frumvarpsins eru of almennt
og óljóst orðaðar sem leiðir til þess
að afar erfitt getur verið að túlka
þær og fara eftir þeim. Stofn-
anakerfið, sem lagt er til í frumvarp-
inu, er sagt frekar flókið og að það
skorti á samræmi. Þetta eigi við um
þau völd sem falin eru þingi, rík-
isstjórn og forseta, valdajafnvægið
og samspil þessara þriggja stoða
stjórnkerfisins sé í mörgum tilfellum
of flókið. Þetta eigi líka við um hið
beina lýðræði, sem tryggja á sam-
kvæmt frumvarpinu.
Sérfræðingar Feneyjanefnd-
arinnar segja að þótt fagna megi
þeim möguleikum sem frumvarpið
færir almenningi til að taka þátt í
ákvarðanatöku þá þurfi að skoða þá
möguleika mjög vel, bæði hina laga-
legu hlið og hina pólitísku. Feneyja-
nefndin telur jafnvel hættu á póli-
tísku þrátefli og óstöðugleika, sem
geti grafið undan stjórn landsins. Í
mannréttindakaflanum telja hinir
erlendu sérfræðingar að þótt fjöl-
mörg grundvallarréttindi séu tryggð
skorti bæði á nákvæmni og innihald
hvað varðar umfang og eðli þeirra
réttinda og þær skyldur sem réttindi
leggja á bæði hið opinbera og einka-
aðila. Það mætti skýra betur þær
greinar sem fjalla um dómskerfið,
segir í álitinu, sérstaklega þær sem
fjalla um sjálfstæði dómara og rík-
issaksóknara.“ – Fjölmargt fleira
mætti tína til úr áliti Feneyjanefnd-
arinnar sem dregur úr trúverð-
ugleika frumvarps stjórnlagaráðs.
Þjóðaratkvæðagreiðslan
Píratar hafa frá upphafi lagt
áherslu á að fá frumvarp stjórnlag-
aráðs samþykkt nánast óbreytt. Og
þeir eru ekki einir um það því stofn-
að hefur verið félag áhugafólks um
framgöngu málsins. Nú skal ekkert
um það sagt hvort þetta fólk viti ekki
af áliti Feneyjanefndarinnar eða
kæri sig kollótt og sé ráðið í að hafa
álitið að engu. Það er auðvitað sjón-
armið út af fyrir sig. Þetta fólk klifar
stöðugt á því að nýja stjórnarskráin
hafi verið samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta í lýðræðislegri þjóð-
aratkvæðagreiðslu, sem er rangt. Í
tillögum stjórnlagaráðs er gert ráð
fyrir 114 greinum og hafa margir
lögfróðir menn talið að slíkur
greinafjöldi sé óheppilegur þegar
um stjórnarskrá sé að ræða, sem
reyndar kemur fram í áliti Feneyja-
nefndarinnar. Í „þjóðaratkvæða-
greiðslunni“ var einungis spurt um
sex greinar frumvarpsins. Fyrsta
spurningin var: Vilt þú að tillögur
stjórnlagaráðs verði lagðar til
grundvallar frumvarpi að nýrri
stjórnarskrá? Að túlka það þannig
að þeir sem segðu já við þessu væru
hlynntir því að nýja stjórnarskráin
verði tekin upp óbreytt er villandi og
beinlínis forheimskandi að mínu
mati.
Það er auðvitað margt í frumvarpi
stjórnlagaráðs sem nota má til hlið-
sjónar við breytingar á stjórnar-
skránni, en þar er líka fjölmargt sem
ekki á heima í slíkum sáttmála. Þær
þjóðir sem hafa borið gæfu til að
fara frekar í breytingar á gildandi
stjórnarskrám en umbylta þeim frá
grunni hafa jafnan náð farsælli lausn
í þessum efnum. Stjórnarskráin til-
heyrir allri þjóðinni og því er mik-
ilvægt að ná víðtækri sátt um breyt-
ingar á henni. Að setja í
stjórnarskrá ákvæði sem orka tví-
mælis eða eru í andstöðu við afstöðu
meirihluta landsmanna er ekki lík-
legt til sátta í samfélaginu. Ég fæ því
ekki betur séð en að með einstreng-
ingslegri afstöðu sinni í þessum efn-
um séu Píratar að dæma sig úr leik í
stjórnarmyndunarviðræðum að
loknum kosningum.
Rangfærslur um nýja stjórnarskrá
Eftir Svein
Guðjónsson » Að setja í stjórnar-
skrá ákvæði sem
orka tvímælis eða eru í
andstöðu við afstöðu
meirihluta landsmanna
er ekki líklegt til sátta í
samfélaginu.
Sveinn Guðjónsson
Höfundur er blaðamaður
á eftirlaunum.