Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
✝
Jóhann Sæ-
mundsson
fæddist 16. október
1928 í Búðardal á
Skarðsströnd,
Dalabyggð. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Silfurtúni í
Búðardal 4. sept-
ember 2021.
Foreldrar hans
voru Sæmundur
Guðmundsson og
Margrét Jóhannsdóttir. Systkini
Jóhanns eru: Lilja Lára, f. 1933,
d. 1998, Kristján Finnur, f. 1937
og Grétar Sigmundur, f. 1943,
d. 2020.
Þann 22. október 1952 giftist
Jóhann eiginkonu sinni, Jar-
þrúði Ingibjörgu Kristjáns-
dóttur, f. 10. sept. 1933, d. 18.
okt. 2018. Foreldrar hennar
voru Kristján Ó. Jóhannsson og
Valgerður Hannesdóttir. Jó-
hann og Jarþrúður eignuðust
sjö börn, þau eru: 1) Kristján
Valgeir, f. 2. júní 1954, d. 3. des.
1963, 2) Sæmundur Grétar, f.
23. janúar 1956, dætur Sæ-
mundar og Jóhönnu B. Ein-
arsdóttur: a) Kolbrún Rut, f.
1996 og b) Eyrún Harpa, f. 1984
(fósturdóttir Sæmundar), 3) Jó-
hanna Björg, f. 9. okt. 1957,
maki Guðbjörn Guðmundsson,
þau í Búðardal og síðar að Ási í
Laxárdal árið 1968 þar sem þau
bjuggu allt til ársins 2014 er
þau fluttu í Búðardal aftur.
Bjuggu þau síðustu árin á Dval-
arheimilinu Silfurtúni.
Jóhann starfaði í 30 ár sem
gjaldkeri og síðar skrifstofu-
stjóri hjá Búnaðarbanka Íslands
en auk þess lagði hann í gegn-
um tíðina stund á ýmis önnur
störf, s.s. smíðavinnu, vega-
vinnu og sem ökukennari í rúm
20 ár. Auk þessa voru þau hjón-
in með búskap til ársins 1984 og
ráku einnig til lengri eða
skemmri tíma sveitaverslun í
Ási, gistiheimili í Búðardal og
Saumastofuna Saum. Eftir að
hefðbundinni starfsævi lauk
lagði Jóhann stund á útskurð,
rennismíði og ýmiss konar fönd-
ur.
Jóhann var mikill félagsmála-
maður og starfaði hann mikið í
félagsmálum alla tíð. Meðal fé-
laga sem hann starfaði með og
gegndi trúnaðarstörfum fyrir
má nefna ungmennafélögin
Stjörnuna og Ólaf Pá, UDN,
Veiðifélag Laxdæla, Lands-
samband veiðifélaga, Lions,
Rauða krossinn, handverkshóp-
inn Bolla og Félag eldri borgara
í Dölum. Enn fremur starfaði
Jóhann í ýmsum nefndum á veg-
um sveitarfélagsins.
Útför Jóhanns fer fram frá
Staðarhólskirkju í dag, 25. sept-
ember 2021, og hefst athöfnin
kl. 14.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
börn þeirra: a)
Björk, f. 1977, b)
Ólöf Inga, f. 1980,
c) Auður, f. 1984 og
d) Guðmundur, f.
1997, 4) Margrét, f.
8. sept. 1960, maki
Finnbjörn Gíslason.
Börn Margrétar: a)
Jóhann Ingi, f.
1980, b) Bjarni
Marel, f. 1982 og c)
Lísa Margrét, f.
1995, 5) Kristján Valgeir, f. 8.
mars 1967, maki Svanhildur
Halldórsdóttir, börn þeirra: a)
Kristjana, f. 1990, b) Signý Rut,
f. 1993 og c) Brynjar Óli, f.
1999, 6) Ingibjörg, f. 6. janúar
1969, maki Þórður Már Svav-
arsson, börn þeirra: a) Þröstur
Leó, f. 1991 og b) Sóley Rós, f.
1996, 7) Jarþrúður Hanna, f. 7.
nóv. 1974, maki Freyr Jónsson,
börn þeirra: a) Jón Bald, f. 2000,
b) Jarþrúður Pálmey, f. 2000, c)
Júlíus Már, f. 1986 (fóstursonur
Jarþrúðar) og Þórarinn Ágúst,
f. 1987 (fóstursonur Jarþrúðar).
Barnabarnabörnin eru 20 tals-
ins með fósturbörnum.
Jóhann og Jarþrúður hófu
búskap sinn að Skógum á Fells-
strönd, Dalasýslu, bjuggu síðan
að Neðri-Brunná og Litla-Múla í
Saurbæ en árið 1965 fluttust
Elsku pabbi.
Það er skrítið að koma í Búð-
ardal núna og vera ekki á leið í
heimsókn til þín (ykkar) líkt og
undanfarin rúm 40 ár. Það er
margs að minnast frá þessum 60
árum sem við höfum verið sam-
ferða, en þakklæti er mér samt
efst í huga. Þakklæti fyrir að fá að
fæðast í þennan heim sem dóttir
ykkar mömmu og fá að njóta sam-
vista við ykkur svona lengi. Þakk-
læti fyrir hvað þið voruð alla tíð
góðar fyrirmyndir fyrir okkur
systkinin og afkomendur og að þið
kennduð okkur að vera góð við
hvert annað og koma af virðingu
fram við alla í kringum okkur og
mæta þeim sem jafningjar. Þakk-
læti fyrir að þið kennduð okkur
nýtni og nægjusemi og að fara vel
með það sem við eigum.
Þrátt fyrir mikla vinnu ykkar
alla tíð höfðuð þið samt ætíð tíma
til að taka þátt í því sem var á döf-
inni hverju sinni, hvort sem það
voru íþróttaviðburðir, menningar-
viðburðir eða ferðalög. Kannski
var það vegna þess að þið bjugguð
alla tíð í litlu samfélagi þar sem
allir skipta máli og fá að vera með.
Minnisstæðar eru t.d. ferðir í
Húsafell um verslunarmanna-
helgar í kringum 1970, þátttaka í
hátíðarhöldum 17. júní ár hvert,
spilakvöld í veiðihúsinu, áramóta-
brennur o.m.fl. Þið mættuð einnig
á mörg Landsmót UMFÍ, enda
varst þú mikill áhugamaður um
næstum allar íþróttir fram á síð-
asta dag. Það var ógleymanlegt að
fara með ykkur í fyrstu utanlands-
ferðina ykkar og að fara í tveggja
vikna ferð um hálendi Íslands, í
sumarbústaði og ýmislegt fleira.
Að því ógleymdu að horfa með þér
á kosningasjónvarp og fylgjast
með nýjustu tölum, því er vel við
hæfi að útför þín sé á kosninga-
degi.
Það er ótrúlegt að þú hafir ver-
ið stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins alla tíð, ekki síst þegar
horft er til þess hvernig sá flokkur
hefur hagað sér undanfarin ár, því
græðgi og að skara eld að eigin
köku var ekki til í fari þínu. Þar
sem allt sem þú tókst þér fyrir
hendur fólst í því að koma góðu til
leiðar með hagsmuni heildarinnar
að leiðarljósi. Eins og sést best á
því að þú stóðst að því að koma á
fót saumastofu ásamt öðru góðu
fólki til að skapa atvinnu og einnig
að stofna ásamt fleirum fyrirtæki
til að yfirtaka rekstur verslunar
þegar Kaupfélagið varð gjald-
þrota til að íbúar yrðu ekki versl-
unarlausir. Þú fékkst aldrei nein
laun eða aðra umbun fyrir vinnu-
framlag þitt við þennan rekstur,
en þú varst samt sáttur við að hafa
getað orðið að liði. Það sama er að
segja um handverkshópinn Bolla,
Félag eldri borgara, uppbyggingu
Eiríksstaða, söfnun muna fyrir
Byggðasafnið, rekstur Veiði-
félagsins, umsjón sjúkrabíla að
ógleymdu ötulu starfi fyrir Lions í
55 ár.
Ég er mjög þakklát fyrir að
geta eytt mér þér mörgum góðum
stundum síðustu mánuði. Það var
gaman að geta farið með þér á
landafundasýninguna í Leifsbúð í
fyrra. Og síðan að sjá hvað þú
varst glaður og ánægður að kom-
ast á ættarmótið í Ási í sumar og
hitta alla ættingja þína sem þar
voru, enda vissir þú þá að þetta
yrði þitt síðasta ættarmót.
Takk fyrir samfylgdina og hvíl í
friði elsku pabbi.
Ég, Finnbjörn og börnin mín
söknum ykkar mömmu mikið.
Margrét Jóhannsdóttir.
Jóhann
Sæmundsson
✝
Áslaug Sigrún
Sigurðardóttir
fæddist í Hafnar-
firði 23. desember
1929. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 3. september
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Magnea
Ingileif Símonar-
dóttir og Sigurður
Kristjánsson. For-
eldrar Áslaugar byrjuðu að búa
í Reykjavík og bjuggu þau með-
ormur Vigfússon frá Neskaup-
stað. Hann lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 15. júlí 2015. Þau
kynntust meðan hann var í Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík,
hann lauk námi með skipstjóra/
stýrimannaréttindi 1951. Áslaug
fór svo til Kaupmannahafnar og
vann þar í eitt ár. Saman áttu
þau dreng, f. 1954, látinn, Magn-
eu Sigríði, f. 1956, gift Guðjóni
Sigmundssyni, þeirra dætur eru
Tinna Björt, f. 1985 og Áslaug
Sif, f. 1991. Yngri dóttir þeirra
hjóna er Sigurbjörg Ásta, f.
1961, gift Svein Refsli. Dætur
hennar eru Evin Sigrún, f. 1984
og Helin Ásta, f. 1987. Evin á
börnin Lilju, f. 2014 og Björn, f.
2016
Útför hennar hefur verið
gerð í kyrrþey.
al annars í Víðinesi,
Brunnastöðum á
Vatnsleysuströnd
og í Hafnarfirði.
Systkini hennar
voru Kristján, f.
1931, látinn, Ás-
mundur, f. 1932,
látinn, stúlka, f.
1938, látin, Finnur,
f. 1939, Finnbogi, f.
1941, Símon, f.
1943, og Ástráður,
f. 1945.
Maður Áslaugar var Gutt-
Mamma fór í húsmæðraskól-
ann á Blönduósi, þar sem mikið
var brallað miðað við bréfin frá
vinkonum hennar frá þessum
tíma. Eftir að hún kynntist
pabba bjuggu þau á Akranesi í
örfá ár, en fluttust svo til Hafn-
arfjarðar, þar sem hún bjó það
sem eftir var ævinnar.
Mamma var mikil sauma-
kona og saumaði oft kjóla og
dragtir á sig sjálfa og okkur
systur. Við systurnar neituðum
mjög fljótt að vera í heima-
saumuðum fötum. Hún saum-
aði stundum eins föt á barna-
börnin. Mamma vann um stund
sem saumakona en lærði svo
snyrtifræði. Hún vann á snyrti-
stofum í Reykjavík og Hafnar-
firði, einnig opnaði hún snyrti-
stofu á Álfaskeiði 105 í
Hafnarfirði þegar þau fluttu
þangað í 1967.
Mamma og pabbi áttu sum-
arbústað fyrir austan fjall, þar
áttu þau margar góðar stundir
saman. Pabbi plantaði trjám
meðan mamma sá um blómabeð-
in. Við áttum þar margar góðar
stundir með þeim. Barnabörnin
höfðu mikið gaman af að heim-
sækja þau þangað. Alltaf var
eitthvað fyrir þær að gera, hvort
sem það var í rólunum og sand-
kassanum sem afi þeirra bjó til
handa þeim eða að labba um lóð-
ina með afa og sjá hvar öll fugla-
hreiðrin voru. Mamma elskaði
að ferðast bæði innanlands og
erlendis, saman ferðuðust þau
pabbi til Englands, en aðallega
til Danmerkur, Svíþjóðar og
Noregs. Þau fóru oft til Línu
mágkonu hennar mömmu í Dan-
mörku og til Sigurbjargar sem
býr í Noregi.
Elsku mamma, takk fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Magnea Sigríður
Guttormsdóttir og
Sigurbjörg
Ásta Guttormsdóttir.
Áslaug Sigrún
Sigurðardóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Okkar ástkæra
HERDÍS Þ. SIGURÐARDÓTTIR,
Garðarsbraut 2, Húsavík,
lést laugardaginn 18. september á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík.
Útför fer fram frá Húsavíkurkirkju
miðvikudaginn 29. september klukkan 14.
Óli Halldórsson
Halldór Tumi Elín Anna
Sigurður Búi Brynjúlfur Nóri
Anna María Karlsdóttir Sigurður Brynjúlfsson
Herdís Þ. Arnórsdóttir
og aðrir aðstandendur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR RÓSINKRANS GUÐNASON,
Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu 10. september. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Gunnar Ólafsson
Birgir Ólafsson Jónína Ásbjörnsdóttir
Anna Kristín B. Jacobsen Eiríkur Fannar Jónsson
Katrín Birgisdóttir Bjarki Þór Ingimarsson
Ólafur Egill Birgisson
Okkar ástkæra eiginkona, móðir
og tengdamóðir,
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar á hjartadeild
Landspítalans við Hringbraut
föstudaginn 3. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinar látnu. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk hjartadeildar Landspítalans fyrir einstaka
alúð og umhyggju.
Guðmundur Helgason
Friðrik Helgi Guðmundsson Rebekka Rún Oddgeirsdóttir
Elskuleg móðir mín og amma,
BIRNA S. ÓLAFSDÓTTIR
lést á heimili sínu miðvikudaginn
22. september.
Einar Viðar Gunnlaugsson Ásta Halldórssdóttir
Birkir Einarsson Silfá Björk Jónsdóttir
Fanney Gunnlaugsdóttir
Ástkær faðir okkar, bróðir og afi,
SIGURBJÖRN BLÖNDAL
SIGURBJÖRNSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
21. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 7. október klukkan 13.
Ari Blöndal Sigurbjörnsson
Sandra Dögg Einarsdóttir
Páll Blöndal Sigurbjörnsson Elfa Dís Austmann
Sigurður Sigurbjörnsson Hafdís Ingimundardóttir
Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir Sigurður Eyþórsson
Hafþór Sigurbjörnsson Erla Magnúsdóttir
Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir
og barnabörn
MAGNÚS ÓLAFUR EINARSSON
lést föstudaginn 10. september.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn 28. september klukkan 13.
Aðstandendur