Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 57

Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND FRÁBÆR NÝ MYND FRÁ MARVEL STUDIOS MYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ Í BÍÓ SIMU LIU AWKWAFINA WITHMICHELLE YEOH ANDTONY LEUNG 92% KOMIN Í BÍÓ T H E T E L E G R A P H T H E G U A R D I A N E M P I R E TOTA L F I L M 90% T itill kvikmyndarinnar Minari er fenginn frá plöntu sem er upprunnin í Austur-Asíu og þekkt sem vatnasteinselja eða vatnanípa á íslensku. Í Minari fær plantan tákn- ræna merkingu þar sem hún verður sterkari á öðru vaxtarári sínu eftir að hafa dáið í lok þess fyrsta og endur- fæðst. Þessi hugmynd um dauða og endurfæðingu er áberandi stef í kvik- mynd Chung sem segir frá kóreskri fjölskyldu á níunda áratug tuttugustu aldar. Hjónin Jacob (Steven Yeun) og Monica (Yeri Han) flytja til Arkansas ásamt börnum sínum tveimur, David (Alan S. Kim) og Anne (Noel Cho), til þess að byrja nýtt líf, endurfæðast. Þetta er ákvörðun sem Jacob tekur upp á sitt eindæmi. Hann telur að með því að byggja frá grunni bónda- býli á nýrri lóð sinni geti hann orðið að þeim manni sem hann telur sig þurfa að vera fyrir fjölskylduna. Þrátt fyrir að segja sögu fjölskyldu innflytjenda í bandarísku samfélagi dvelur leikstjórinn ekki sérstaklega við það heldur beinir sjónum sínum almennt að mannlegum samskiptum og kemur ekki til móts við væntingar áhorfenda sem bíða eftir að kynþáttafordómar skíni í gegn. Fyrsta og eina augljósa rasíska athugasemdin í myndinni hljómar í messu þar sem lítill drengur spyr David af hverju hann sé með flatt andlit. Eftir samtalið verða David og drengurinn bestu mátar. Leikstjór- inn leggur þannig ekki sérstaka áherslu á að um sé að ræða fjölskyldu innflytjenda heldur er þetta fremur sígild saga af fjölskyldu sem er að reyna að lifa af og elta uppi ameríska drauminn. Hugmyndin um ameríska draum- inn kemur snemma fram í myndinni. Þeir feðgar, Jacob og David, sitja fyrir utan verksmiðjuna þar sem þau hjónin vinna við að flokka hænsn eftir kyni. David bendir á brennslustöð verksmiðjunnar og spyr föður sinn hvaða tilgangi hún þjóni. Jacob svar- ar án þess að hika að þangað sé karl- fuglunum fleygt af því að það séu engin not fyrir þá; þeir verpi ekki eggjum. Þessi setning endurspeglar hugmyndir Jacobs um sjálfan sig og sem föður. Hann finnur sig þving- aðan til þess að framfleyta fjölskyld- unni og bjóða henni upp á betra líf. Jacob gengur út frá hugmyndum Bandaríkjamanna um velgengni í stað þess að spyrja hvað það sé sem fjölskyldan raunverulega þarf. Til þess að uppfylla drauminn er hann reiðubúinn til þess að gera hvað sem er, jafnvel þó það gæti kostað hann fjölskylduna. Á meðan Jacob eyðir öllum klukkustundum sínum í garð- inum, ásamt hinum ógleymanlega vini sínum og nágranna Paul (Will Patton), fyrrverandi hermanni úr Kóreustríðinu og trúarofstækis- manni, veltir Monica fyrir sér hvort hjónaband þeirra Jakobs sé dautt. Snemma í sögunni fær Monica Jacob til þess að samþykkja að móðir hennar flytji frá Suður-Kóreu og inn á heimilið. Amman, sem Yuh-Jung Youn leikur listilega, stelur allri athygli áhorfandans og samband hennar við David gefur myndinni gáskafullan blæ. Þess má geta að fyr- ir leik sinn í myndinni vann Yuh- Jung Youn til Óskarsverðlauna fyrir besta leik í aukahlutverki kvenna. Amman kemur færandi hendi með afleggjara af vatnanípu og gróður- setur þar sem hún telur að plantan geti best vaxið sjálfstætt. Þessi endurfædda jurt ögrar Jacob sem hefur unnið að því allt sumarið að rækta grænmeti. Jacob er fangi hug- mynda sinna en amman fylgir takti umhverfisins og öðlast þannig lækn- ingamátt sem græðir hjartasár fjöl- skyldunnar. Lee Isaac Chung ólst sjálfur upp á litlum sveitabæ í Arkansas. Minari er í raun byggð að hluta til á bernsku leikstjórans og mætti líkja kvik- myndinni við minningarskírn sem framkallar blendnar tilfinningar sorgar og ástar hjá leikstjóranum og um leið áhorfendum. Ástin birtist skýrast í óvæntu sambandi ömm- unnar og Davids. Það er þó sorgin sem Chung tekst að framkalla með áhrifaríkustum hætti en hana má meðal annars finna sterkt í atriðinu þar sem börnin kasta pappírsskutlu í átt að foreldrum sínum sem eru að rífast. Á skutluna hafa þau skrifað „ekki rífast“. Minari var frumsýnd á Sundance- kvikmyndahátíðinni í byrjun síðasta árs og vann þar til tvennra verðlauna. Hún er á lista American Film Insti- tute (AFI) yfir tíu bestu kvikmyndir ársins 2020 og hlaut sex tilnefningar til Óskarsverðlauna núna í vor, þar á meðal fyrir bestu mynd og bestu leik- stjórn. Það kemur ekki á óvart; Minari er vel heppnuð og mannleg kvikmynd sem dregur upp sannferð- uga mynd af samskiptum innan fjöl- skyldna og flóknum tengslum hennar við umhverfið. Þetta er mynd sem kvikmyndaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Að deyja og endurfæðast Mannleg Minari er vel heppnuð og mannleg kvikmynd sem dregur upp sannferðuga mynd af samskiptum innan fjölskyldna og flóknum tengslum hennar við umhverfið, að því er fram kemur í gagnrýni. Bíó Paradís Vatnanípa/ Minari bbbbn Leikstjórn: Lee Isaac Chung. Handrit: Lee Isaac Chung. Aðalleikarar: Steven Yeun, Yeri Han, Yuh-Jung Youn, Alan S. Kim og Noel Cho. Bandaríkin, 2020. 115 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Streymisveitan Netflix hefur keypt höfundarréttinn að öllum bókum Roalds Dahl af fjölskyldu höfund- arins. Netflix mun því framvegis stjórna allri útgáfu bókanna og kvik- myndaaðlögunum. Í frétt um málið á vef BBC kemur fram að samning- urinn feli í sér að fyrirtækið The Roald Dahl Story Company, sem Luke Kelly, barnabarn Dahl, stýrir og áður var í eigu fjölskyldunnar og starfsfólks, verður deild hjá Netflix. Heildartekjur The Roald Dahl Story Company vegna höfundar- réttargreiðslna námu árið 2019 sam- tals 26 milljónum sterlingspunda sem jafngildir rúmlega 4,6 millj- örðum íslenskra króna. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem Kelly og Ted Sarandos, forstjóri Netflix, sendu frá sér kemur fram að þeir séu að „sameina krafta sína til að miðla sumum af ástsælustu sög- um heims til núverandi og komandi aðdáenda á nýjan skapandi hátt.“ Samkomulagið nú byggist á grunni samkomulags sem fjölskylda Dahl og Netflix gerðu 2018 sem heimilaði streymisveitunni að búa til teikni- myndir byggðar á bókum höfund- arins. Samkvæmt því samkomulagi vinnur Taika Waititi um þessar mundir að þáttagerð sem byggist á sögunni um Kalla og súkkulaði- verksmiðjuna auk þess sem Sony og Working Title vinna að aðlögun á söngleiknum Matthildi. „Þessi verk- efni opnuðu augu okkar fyrir enn metnaðarfyllra samstarfi – gerð ein- staks sköpunarverks sem nær yfir teiknimyndir og leiknar kvik- og sjónvarpsmyndir, bókaútgáfu, leiki, leiksýningar, varning og meira,“ er haft eftir Kelly og Sarandos. Netflix kaup- ir réttinn að bókum Dahl Rithöfundur Roald Dahl lést 1990.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.