Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Starfsemi skotvalla á Álfsnesi í
Reykjavík samræmist ekki land-
notkun samkvæmt aðalskipulagi.
Aldrei var gert deiliskipulag af
svæðinu. Þess vegna felldi úrskurð-
arnefnd umhverfis- og auðlindamála
(ÚUA) úr gildi starfsleyfi Skotfélags
Reykjavíkur (SR) og starfsleyfi
Skotveiðifélags Reykjavíkur (Skot-
reynar).
ÚUA kvað upp tvo úrskurði föstu-
daginn 24. september sl. um starfs-
leyfi umræddra skotvalla. Í fram-
haldi af niðustöðu
ÚUA afturkallaði
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur
starfsleyfi beggja
svæðanna. Þau
eru því lokuð. SR
fékk endurnýjað
starfsleyfi 11.
mars sl. og Skot-
reyn 4. maí. Leyf-
in voru til tveggja
ára.
Upphaf málarekstursins var þeg-
ar íbúar og landeigendur í nágrenni
Álfsness kærðu ákvarðanir Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur um að
gefa út starfsleyfin. Þess var krafist
að þau yrðu felld úr gildi. Jafnframt
var þess krafist að hlutlausir aðilar
mældu mengun í sjó og við strönd
neðan við aðstöðu Skotfélags
Reykjavíkur og að óháður aðili verði
fenginn til að gera hljóðmælingar,
jarðvegsmælingar og mælingar á
blýmengun við strönd og sjó norðan
við aðstöðu Skotreynar.
Deiliskipulag aldrei gert
Fram kemur í úrskurðunum að
ekkert deiliskipulag sé til fyrir svæð-
ið en samkvæmt aðalskipulagi er það
skilgreint sem hafnar- og iðnaðar-
svæði. Svæðið hafi frá upphafi verið
ráðgert til tímabundinna afnota.
Vegna kvartana íbúa taldi skipulags-
fulltrúi nauðsynlegt að setja ströng
skilyrði um notkunartíma svæðisins
og bann við notkun blýhagla. Þá var
ekki mælt með því að gefa út starfs-
leyfi til lengri tíma en tveggja ára.
ÚUA komst að þeirri niðurstöðu í
báðum tilvikum að sú starfsemi sem
var heimiluð með hinum kærðu
starfsleyfum samræmdist ekki land-
notkun umræddra svæða eins og hún
er tilgreind í aðalskipulagi. Af þeim
sökum voru hin kærðu starfsleyfi
felld úr gildi.
Engar skotgreinar utanhúss
„Þetta þýðir að skotíþróttir utan-
húss leggjast af í Reykjavík. Við get-
um ekki heldur sinnt verklegum
þætti skotvopnanámskeiða sem Um-
hverfisstofnun heldur. Landsliðsfólk
okkar og aðrir skotíþróttamenn geta
ekki lengur æft þarna. Það var skellt
í lás fyrirvaralaust og við fengum
ekki neinn fyrirvara,“ segir Guð-
mundur Kr. Gíslason, framkvæmda-
stjóri SR. Félagið er elsta starfandi
íþróttafélag landsins og var stofnað
2. júní árið 1867. Á svæði þess eru
fjórir haglabyssuvellir og riffilsvæði
með 18 brautum. Undanfarið hefur
svæðið verið opið fjóra daga í viku.
Guðmundur segir að lokun svæð-
isins fylgi mikill tekjumissir fyrir
SR. Launaðir starfsmenn hafa séð
um rekstur svæðisins og nú verður
að segja þeim upp. Þá segir Guð-
mundur það bagalegt fyrir seljendur
skotvopna að missa svæðið því þeir
hafi notað það til að stilla byssur sem
þeir selja. Einnig hafa margir hrein-
dýraveiðimenn tekið þarna skotpróf
sem yfirvöld krefjast áður en haldið
er til veiða.
Stendur upp á borgina
„Þessi lokun verður til þess að
skotmenn í höfuðborginni þurfa að
aka langar leiðir til að komast á riff-
ilvelli t.d. í Höfnum eða Þorláks-
höfn,“ segir Guðmundur. Hann
bendir á að Smáþjóðaleikarnir hafi
verið haldnir á svæði SR 2015. Það
sé eina skotæfingasvæði landsins
sem getur tekið við slíkum viðburði.
Guðmundur segir ljóst af úrskurði
ÚUA að Reykjavíkurborg hafi ekki
staðið rétt að skipulagsmálum og
fyrir það sé skotmönnum refsað.
„Það stendur klárlega upp á borgina
að leysa þetta mál. Fyrst að ákveða
hvort þarna á að vera skotsvæði og
ef svo er að gera deiliskipulag,“ segir
Guðmundur og bendir á að ÚUA hafi
ekki tekið afstöðu til kvartana um
hávaða eða mengun.
„Við vorum í viðræðum við borg-
ina um að leysa þau atriði sem íbúar
höfðu kvartað yfir. Til dæmis að
færa til haglabyssuvelli og bæta
hljóðvarnir, að koma í veg fyrir
mengun og fleira,“ segir Guðmund-
ur. Hann áætlar að það kosti minnst
um 400 milljónir að færa aðstöðu SR
á annan stað.
Skipulagsmál stoppa skotæfingar
- Skotæfingavellir á Álfsnesi samræmast ekki landnotkun í aðalskipulagi - Deiliskipulag var aldrei
gert - Vellir SR og Skotreynar lokaðir - Borgarinnar að leysa málið, segir framkvæmdastjóri SR
Ljósmynd/SR
Álfsnes Á skotíþróttasvæði SR er 18 brauta riffilsvæði, sem sést á mynd, og fjórir haglabyssuvellir. Á æfingasvæði Skotreynar eru fimm haglabyssuvellir.
Guðmundur
Kr. Gíslason
Tvö tilboð bárust í umferðarörygg-
isaðgerðir í Borgarnesi, en tilboð
voru opnuð hjá Vegagerðinni á
þriðjudaginn.
Borgarverk ehf. í Borgarnesi
bauðst til að vinna verkið fyrir
krónur 148.754.000 og PK Verk
ehf., Hafnarfirði fyrir krónur
164.309.790. Áætlaður verktaka-
kostnaður var 130 milljónir króna.
Framkvæmdir við Hringveg í
Borgarnesi felast í breytingum á
gatnamótum Hringvegar og
Hrafnakletts og uppsetningu
gönguljósa. Einnig verða lagfær-
ingar á hraðahindrun við göngu-
þverun Hringvegar við Klettaborg
og lagfæring á gönguþverun við
Vegagerðina. Verkinu skal að fullu
lokið eigi síðar en 15. júní 2022.
Unnið er að því yfirfara tilboðin.
sisi@mbl.is
Umferðaröryggi verður bætt í Borgarnesi
www.gilbert.is
VIÐ KYNNUM NÝTT ÚR
GILBERT ADVENTURER
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku