Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hið nýja varðskip Íslendinga,
Freyja, er væntanlegt til landsins í
nóvember. Freyja er stærri og að
sumu leyti öflugri en flaggskip
Landhelgisgæslunnar, Þór. Með til-
komu hins nýja varðskips eykst
björgunargeta Landhelgisgæsl-
unnar á hafinu til muna enda skipið
sérlega vel búið til björgunar- og
löggæslustarfa.
Í byrjun mars sl. tilkynnti Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir dóms-
málaráðherra að ríkisstjórnin hefði
samþykkt tillögu hennar um kaup á
nýju varðskipi, sem myndi fá nafnið
Freyja. Við slipptöku á varðskipinu
Tý í janúar kom í ljós að tveir af
tönkum skipsins voru ónýtir sökum
tæringar og sjókælikerfi skipsins
lak. Því til viðbótar kom í ljós alvar-
leg bilun í aðalvél. Var ekki talið
svara kostnaði að lagfæra skipið.
Þjónaði áður olíuiðnaðinum
Ríkiskaup og Landhelgisgæsla Ís-
lands efndu til alþjóðlegs útboðs
vegna kaupa á varðskipi. Bárust
fimm tilboð en einungis tvö þeirra
reyndust gild og var lægra tilboðinu
tekið. Það var frá fyrirtækinu Unit-
ed Offshore Support GmbH og nem-
ur kaupverðið rúmum 1,7 millj-
örðum íslenskra króna. Skipið var
smíðað í Suður-Kóreu árið 2010 og
hét fyrstu árin Vittoria. Það hefur
fyrst og fremst þjónustað olíu-
iðnaðinn. Hið nýja varðskip Freyja
er 4.566 brúttótonn og er nokkru
stærra en Þór, sem er 4.049 brúttó-
tonn. Mesti ganghraði er 17 mílur á
klukkustund. Skipið er 86 metra
langt og 20 metra breitt og vel búið
að öllu leyti. Það er að mörgu leyti
svipað Þór en býr þó yfir mun meiri
dráttargetu, eða 200 tonnum. Skipið
er mjög vel búið dráttarspilum svo
taka má stór og öflug skip í tog.
Vistarverur eru fyrir 35 manns og
gott þilfarspláss sem gerir skipið
einstaklega vel búið til að flytja
björgunarbúnað þegar samgöngur á
landi bregðast. Þá er Freyja útbúin
sambærilegum ísklassa og varð-
skipið Þór. Nokkrir starfsmenn
Landhelgisgæslunnar héldu til Hol-
lands á dögunum og fengu kennslu á
varðskipið Freyju. Létu þeir vel af
skipinu.
Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir
að Freyja verði afhent í litum Gæsl-
unnar í Rotterdam í Hollandi seinni
hluta október og verði komin til
landsins í nóvember, upplýsir Ásgeir
Erlendsson upplýsingafulltrúi. Eng-
ar breytingar þarf að gera á skipinu
en búnaður úr varðskipinu Tý verð-
ur færður yfir í Freyju. Gert er ráð
fyrir að skipið verði útbúið fallbyssu
eins og önnur varðskip Gæslunnar.
Landhelgisgæslan og dómsmála-
ráðuneytið hafa í sameiningu tekið
þá ákvörðun að heimahöfn varð-
skipsins Freyju verði Siglufjörður
og njóti skipið þjónustu þar og á Ak-
ureyri eftir þörfum. Þór verður sem
fyrr gerður út frá Reykjavík. Þess-
ari ráðstöfun er ætlað að tryggja ör-
yggi sjófarenda, landsmanna og auð-
linda í hafi.
„Með auknum skipaferðum um
norðurslóðir fjölgar ferðum stórra
flutninga- og olíuskipa með austur-
og norðurströnd landsins. Útlit er
fyrir að ferðum skemmtiferðaskipa
fjölgi einnig og þarf ekki að fjölyrða
um þær hættur sem lífríkinu eru
búnar ef eitthvað hendir eitt af þess-
um skipum. Þá geta klukkustundir til
eða frá skipt sköpum,“ segir í frétt á
heimasíðu Landhelgisgæslunnar.
Þessi ráðstöfun er í samræmi við
ábendingar sérfræðinga, sem komið
hafa fram í skýrslum um norð-
urslóðir.
Ægir og Týr úr þjónustu
Með Þór í Reykjavík og Freyju í
Siglufirði verður viðbragðsgeta
Landhelgisgæslunnar umhverfis
landið aukin frá því sem nú er.
Í 6. gr. fjárlaga ársins 2021 kemur
fram að heimilt sé að selja varðskipin
Tý og Ægi og leigja eða kaupa hag-
kvæmari skip í staðinn.
Þetta eru systurskip, smíðuð í
Danmörku, Ægir 1968 og Týr 1975.
Ægi var lagt fyrir nokkrum árum og
nú er komið að því að taka Tý úr
þjónustu. Bæði skipin hafa reynst af-
ar vel við gæslustörfin undanfarna
áratugi. Einnig gegndu þau veiga-
miklu hlutverki í þorskastríðunum
sem við háðum við Breta fyrr á árum.
Freyja er öflugt björgunarskip
- Hið nýja varðskip Íslendinga er væntanlegt til landsins í nóvember - Sérlega vel búið til björg-
unar- og löggæslustarfa - Viðvera í Siglufirði tryggir skjót viðbrögð við atburðum á norðurslóðum
Mynd/Gæslan/Navis
Varðskipið Freyja Á þessari mynd er búið að færa skipið í liti Landhelg-
isgæslunnar. Freyja er frambyggð og líkist að mörgu leyti varðskipinu Þór.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskipin þrjú Þór, Týr og Ægir í Reykjavíkurhöfn. Þau síðarnefndu hverfa úr flotanum eftir dygga þjónustu.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Í brúnni Nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar fengu kennslu á varð-
skipið Freyju. Garðar Nellett háseti og Einar H. Valsson skipherra.
www.danco.is
Heildsöludreifing
Haust- og jólalínan
komin í hús
Tímabókanir í sýningarsal í síma 575 0200
Opið alla daga 8.30-16.30 nema föstudaga 8.30-15.45
Fyrirtæki og verslanir
Járn Hreindýr
gold
60x125 cm Járn Hreindýr
gold 58x125 cm
Púði EG hvítur 45 cmStrá Natrual 3 teg. 78 cm
Vasi Glaze cream
22x26 cm
Kertaglas Leafs
15x15 cm
Vasi Matte Svargrár
19x41 cm
Grenikrans
Malmö
50 cm
Winter bliss
17.995 kr.
St.36- 40 / 2 litir
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
HLÝIR VETRARSKÓR
Fasteignir