Morgunblaðið - 30.09.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.09.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Sturtustólar og kollar í miklu úrvali með og án snúningsdisks. Einfaldir í notkun, með hæðarstillanlegum og stöðugum fótum. Verð frá: 9.350,- VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Það er auðvelt að taka menntun sem sjálfsögðum hlut, þangað til maður kynnist betur þeim sem fá ekki sömu tækifæri vegna líkamlegs ástands sem þeir ráða ekki við og mæta takmörkuðum skilningi á.“ Þetta segir Hinrik Jósafat Atla- son, stundakennari við Háskólann í Reykjavík, í samtali við Morgun- blaðið um Atlas Primer, kennslu- forrit byggt á gervigreind, sem hann vinnur að og er ætlað að vera eins konar einkakennari nemenda, sem stríða við sértæka námsörðug- leika á borð við lesblindu, eða eiga af öðrum ástæðum í vandræðum með hefðbundið nám, sem byggist á lestri og lesskilningi. „Ég man vel eftir jafnöldrum mín- um, sem fundu sig aldrei í mennta- kerfinu. Mögulega lá áhuginn bara annars staðar en mögulega voru þeir að glíma við eitthvert líkamlegt ástand eins og lesblindu, sem gerir þeim erfitt fyrir að lesa, þrátt fyrir eðlilega greind,“ rifjar Hinrik upp, sjálfur faðir tveggja og fimm ára drengja, en hann kennir viðskipta- greind við tölvunarfræðideild HR og hagnýta upplýsingatækni við við- skiptafræðideildina. Á bóndabæ í Noregi Hinrik skartar meistaragráðu í gervigreind frá háskólanum í Essex á Englandi og má segja að leið hans í háskólanám hafi verið allóhefð- bundin, hann ólst upp í Garðabæ og fluttist til Noregs árið 2000 þar sem hann fékk vinnu á bóndabæ, en veg- ir virðast sannarlega liggja til allra átta úr norskum landbúnaði sé litið til viðtals Vignis Arnarsonar bónda í Noregi við Morgunblaðið í síðustu viku. Leið Hinriks þaðan lá nefnilega til Danmerkur í háskólanám í tölvunar- fræði áður en hann hélt í áðurnefnt nám í Essex. Að því loknu flutti hann til Barcelona á Spáni í forritarastarf hjá sænska fyrir- tækinu Transcom. „Þaðan lá leiðin aftur til Noregs þar sem ég vann sem stjórnunarráðgjafi, þangað til ég kom aftur heim árið 2011 og hóf störf hjá [upplýsingatæknifyrirtæk- inu] Advania. Árið 2015 stofna ég mitt eigið ráðgjafarfyrirtæki en sný mér svo alfarið að Atlas Primer árið 2020,“ segir Hinrik frá. Kennsla hans við HR hófst árið 2013 og var þar um að ræða lið í samstarfi HR, Advania og Microsoft á Íslandi um að tengja skólakerfið atvinnulífinu betur. Hinrik segir áfangana, sem hann kennir, við- skiptagreind og hagnýta upplýs- ingatækni, kallast mikið á, annar kenni tölvunarfræðingum að hugsa um viðskiptalegan ávinning þess, sem þeir hafa fram að færa, en hinn kenni viðskiptafræðingum að til- einka sér tæknina og þannig verða meira sjálfbjarga og ná forskoti á vinnumarkaði. Fátt breyttist í Covid „Ég hef alla tíð lagt mig fram um að hafa námið eins nútímalegt og hægt er,“ segir kennarinn. „Þannig hafa allir fyrirlestrar verið teknir upp og aðstoð við nemendur er líka í boði í gegnum fjarfundi, svo allir eigi auðveldara með að stunda námið, líka þeir, sem voru til dæmis heima með veikt barn eða þurftu að sinna öðrum áskorunum sem lífið á það til að leggja fyrir. Þegar Covid skellur svo á breytast mínir kennsluhættir í raun ósköp lítið því allt var þá þegar orðið meira eða minna rafrænt.“ Hinrik segist ekki hafa verið fróð- ur um lesblindu þegar hann steig sín fyrstu skref í kennslunni fyrir átta árum. „En þegar við byrjum að bjóða nemendum að læra með Atlas Primer byrjum við að heyra meira og meira um hvernig þessi tækni gæti nýst þeim hópi sérstaklega. Í kjölfarið gerum við nokkrar tilraunir og kynnum okkur málið betur, og þá opnuðust augu okkar fyrir því hversu alvarlega vanrækt margt ungt og flott fólk er vegna ástands sem það fæðist með og ræður í raun lítið við,“ segir hann og vísar til les- blindunnar, sem orðið hefur mörg- um nemandanum myllusteinn um háls í íslensku skólakerfi. „Með Atlas Primer erum við að gera einmitt það sem okkur finnst vanta, það er að segja að leyfa nem- endum að læra þegar þeim hentar, þar sem þeim hentar, og ekki síst eins og þeim hentar. Námsefnið má nálgast á annan hátt en aðeins sem texta eða glærur, sem hvort tveggja sér til þess að nemendur eru fastir fyrir framan skjáinn heilu og hálfu dagana með meðfylgjandi álagi á geðheilsuna og stoðkerfið,“ segir Hinrik um hugmyndina bak við gervigreindarkennarann. Enn fremur kveður hann unnt að bæta gagnvirkni náms svo um mun- ar með því að setja samræðugervi- greind í hendur hvers einasta nem- anda, það er gervigreind sem bjóði upp á þann möguleika að svara spurningum um námsefnið í venju- legu töluðu máli. Þangað sé Atlas Primer að komast í dag og er sú lausn aðgengileg nemendum í gegn- um tilraunaverkefni við HR og Há- skólann á Bifröst, að sögn Hinriks. Þessu hljóta þó að fylgja tungu- málaörðugleikar enn sem komið er, eða hvað? „Við leggjum mikla áherslu á að Atlas Primer tali og skilji íslensku, en sú tækni er því miður komin tölu- vert styttra hér á landi en til að mynda í Bandaríkjunum,“ útskýrir Hinrik. „Því er okkar næsta verkefni að byggja á góðu gengi hér heima og sækja á stóra erlenda markaði og erum við nú þegar með tvær starfs- stöðvar erlendis, eina í Bangladess og eina í Níkaragva, en þar er furðu- lega mikið um djúpa tæknilega þekkingu á talþjónum og höfum við verið það lánsöm að fá frábært fólk þaðan inn í félagið með okkur,“ segir hann. Núna er upplýsingaöld „Menntakerfið sem við búum við í dag er menntakerfi iðnaðaraldar- innar. Þegar það var sett á laggirnar var markmiðið að tryggja jafnan straum af vinnuafli sem passaði inn í fyrirframákveðin hlutverk á færi- bandi atvinnulífsins. Núna er upp- lýsingaöld og menntakerfið þarf að vera í takti við breytta tíma,“ segir Hinrik og nefnir sem dæmi að leggja mætti mun meiri áherslu á frásagn- arhefð innan menntakerfisins, svo sem að segja sögur úr atvinnulífinu til viðbótar við glærur og kennslu- bækur, taka viðtöl við fólkið með reynsluna, eiga samræður um náms- efnið og deila hugleiðingum um tengsl þess við atburði líðandi stund- ar. Allar umræður og skoðanaskipti megi einnig taka upp sem hljóð með einföldum hætti og mun fyrirferðar- minni en ef myndefni þyrfti að fylgja. „Fyrir utan hversu auðvelt er að búa til hljóðefni er það gætt þeim kostum að við getum flest neytt þess á meðan hendur og augu eru upp- tekin við annað, samanber útvarpið og sprenginguna sem varð nú nýver- ið í útbreiðslu hlaðvarpa og hljóð- bóka,“ segir Hinrik. Hann segir mikinn lestur alls ekki á allra færi og henti í raun aðeins þeim sem hann kallar stærsta minni- hlutann, á meðan fjölda annarra henti mun betur að neyta námsefnis og læra það gegnum aðrar boðleiðir á borð við hljóð, mynd eða jafnvel athafnir. „Nú er talað um að allt að þriðjungur grunnskólanema fái sér- úrræði á meðan hlutfallið er um tíu prósent í háskólum og þá spyr mað- ur sig: hvers vegna er hlutfallið svona mikið lægra því hærra sem við förum upp menntastigann, og hvað varð um alla þessa einstaklinga á leiðinni?“ spyr kennarinn. Hann kveður það vissulega stór- kostlegt að sjá hve miklar tækni- framfarir hafi orðið í heiminum síð- ustu ár og áratugi og þrátt fyrir að fjöldi vandamála sé enn óleystur sé einstaklingsmiðuð þjónusta komin verulega langt, hvort sem litið sé til verslunar eða afþreyingar. Spjalla við Siri og Alexu „Nánast öll stafræn afþreying er í dag orðin ólínuleg, sem þýðir að við getum sótt það sem við viljum þegar við viljum það, andstætt við til dæm- is fyrirframákveðna sjónvarps- dagskrá,“ bendir Hinrik á. „Við sjáum til dæmis varla ungt fólk í dag án þess að það sé með eitthvað í eyrunum, hlustandi á hlaðvörp eða hljóðbækur, og flest er þetta unga fólk nú þegar að tala við Siri, Alexu og hina talþjónana. Enn þá vantar upp á að við getum boðið talþjóna- notendum upp á íslenskt viðmót sem er á pari við aðra, en við erum á réttri leið og munum ná því á end- anum. Það verkefni er gríðarlega mikilvægt ef við eigum að tryggja að tungumálið okkar lifi af vegna þess að tilkoma talþjóna mun gjörbylta bæði neyslu- og hegðunarmynstri okkar innan fárra ára, rétt eins og snjallsímarnir hafa gert síðasta ára- tuginn og netið þar á undan,“ segir Hinrik og bætir því við að sá galli sé á gjöf Njarðar, að þessar stórkost- legu framfarir allar hafi skilað sér afar takmarkað inn í menntakerfið. Sofið við töflu eða skjá „Í Covid voru blikur á lofti og útlit fyrir að við gætum loksins látið til skarar skríða og virkilega tekið til Teflir gervigreind gegn lesblindu - Stundakennari við HR þróar gervigreindarkennsluforrit - Búum við menntakerfi iðnaðaraldar- innar - Nám gegnum lestur ekki allra - Erum of gjörn á að tæknivæða eitthvað sem er úrelt Gervigreindarmeistarinn Hinrik Jósafat Atlason kveðst ekki hafa verið sérstaklega fróður um lesblindu þegar hann steig sín fyrstu skref í kennslunni. Nú er öldin önnur og vinna hans gæti reynst mörgum ljós í myrkri. Samningar Hinrik og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, kennslustjóri á Bifröst, undirrita samning um innleiðingu Atlas Primer fyrir nemendur skólans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.