Morgunblaðið - 30.09.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.09.2021, Qupperneq 25
hendinni, en í dag erum við enn þá að byggja kennslu að miklu leyti á ræðuhöldum kennara. Við höfum flutt fyrirlestrana úr stofunni yfir í Zoom og í stað þess að nemendur sitji og sofni fyrir framan töflu sitja þeir og sofna fyrir framan skjáinn. Nemendur eru nú þegar að upplifa gjá á milli sín og menntakerfisins, sem virðist ekki halda í við almenna tækniþróun,“ segir Hinrik. Hann bendir á að sífellt fleiri greinist nú með einhvers konar námsörðugleika, sem sé ekkert ann- að en birtingarmynd þess, að menntakerfið nái ekki að laga sig að breyttum tímum. „Við erum allt of gjörn á að tæknivæða eitthvað sem er úrelt í stað þess hugsa hlutina upp á nýtt í ljósi tækniframfaranna og spyrja okkur sjálf: hvernig gæti nám framtíðarinnar gengið fyrir sig ef við byrjuðum með alveg hreint blað?“ kastar Hinrik fram og varla hægt að neita því að stórt er spurt. Og þá verður líka stundum fátt um svör svo sem alkunna er. „Ég hef verið einstaklega lán- samur í gegnum tíðina og á yndis- lega fjölskyldu, hef frelsi til að ferðast hvert sem mig langar og vinna við það sem ég elska. Ég passa mig á að taka engu af því sem sjálfsögðum hlut og að vera auð- mjúkur gagnvart því að einhver heppni spili þar inn. En nýlega fór ég að sjá betur og betur að gott að- gengi að menntun hafði mikið að segja um það hvernig fór,“ játar Hinrik. Auðvelt sé að taka menntun sem sjálfsögðum hlut þar til maður kynnist betur þeim, sem ekki fái sömu tækifæri vegna ástands, and- legs eða líkamlegs, sem þeir ráða ekki við og mæta jafnvel takmörk- uðum skilningi á. Heill heimur af fróðleik „Margt lesblint fólk veit nefnilega ekki að það er lesblint og heldur að því gangi bara illa í skóla eða að það sé ekki nægilega gáfað, og það er skelfilegt veganesti að hafa með sér út í lífið,“ segir Hinrik af sannfær- ingu. „Sumt lesblint fólk á foreldra sem þekkja ekki einkenni lesblindu og mæta því heldur ekki miklum stuðningi heima fyrir, en að hafa gott bakland er það sem ég heyri oftast nefnt sem ástæðu þess að fólk kemst í gegnum menntakerfið þrátt fyrir að vera lesblint. Í dag er heill heimur af fróðleik, afþreyingu, rómantík, sigrum, átök- um, gleði, sorg, lífi og dauða loks orðinn aðgengilegur lesblindum í gegnum hljóðbækur, og við getum gert það sama með námsefni. Ein- staklingsmiðað nám og gott aðgengi að leiðbeinanda, jafnvel gervi- greindum, breytir öllu fyrir marga og staðsetur drauminn um menntun og betra líf innan seilingar fyrir suma sem hefðu annars aldrei feng- ið tækifærið,“ segir Hinrik.Hann segir Atlas Primer ekki bara vera enn eitt lesblinduforritið, heldur sveigjanlegt námsumhverfi, sem all- ir nemendur geti nýtt sér. Með því að bæta aðgengi að námsefni og veita nemendum aukna stoð og styttu verði vonandi minni þörf á sértækum kennsluúrræðum svo vel gefnum og klárum ungum nem- endum verði gert kleift að komast gegnum menntakerfið án þess að upplifa sig á einhvern hátt vitlausa eða fatlaða eingöngu vegna þess að kerfið útiloki þá. Hinrik segir almennt talað um það sem þumalputtaviðmið að tíu prósent mannkyns séu lesblind, sem mörgum þyki þó hóflega áætlað þar sem lesblinda sé mjög einstaklings- bundin og þar með ólík í saman- burði. Miðað við þetta hlutfall megi gera því skóna að tugþúsundir Ís- lendinga fái hugsanlega aldrei tæki- færi til að læra það sem þeir kjósa og hætt sé við að margir alist upp með brostna sjálfsmynd vegna þessa. Snertir okkur öll „Vissulega fá nemendur sér- úrræði á borð við lengri próftíma, en það er eins og að binda um sárið án þess að gera nokkuð í því sem olli því til að byrja með. Ég dáist svo innilega að námsráðgjöfunum í HR og á Bifröst – sem ég þekki vel og hef verið heppinn að fá að vinna með – fyrir það óeigingjarna starf sem þeir vinna á hverjum degi, og hafa þessir skólar báðir sýnt í verki að þeir taka þessu máli af alvöru. En þetta mál snertir ekki bara skólana, það snertir okkur öll,“ seg- ir Hinrik. Hann segist hafa verið í góðu samstarfi við Háskólann í Reykja- vík frá fyrstu byrjun, þar sem fólk hafi fljótt séð möguleikana í Atlas Primer, en auk þess vinni fyrir- tækið nú að spennandi tilrauna- verkefni með skólanum á Bifröst, sem í stuttu máli gangi út á að gera námsefnið aðgengilegra og efla þá nemendur, sem hafi þurft að nýta sér sérúrræði, í raun gera þeim kleift að taka völdin yfir sínu eigin gagnvirka námsumhverfi og aðlaga það sínum persónulegu þörfum. Framtíðarsýn Hinriks Jósafats Atlasonar, forritara, gervigreindar- sérfræðings, en kannski umfram allt kennara, undir lok fróðlegs viðtals, er að sú gjá, sem í dag sé milli nem- enda og menntakerfisins, eigi aðeins eftir að breikka, einfaldlega vegna þess að nú á tímum alist allir nem- endur upp í heimi, sem í grundvall- aratriðum sé gjörólíkur þeim, sem menntakerfið var hannað fyrir, þar sé ekki einvörðungu á ferð sá þriðj- ungur, sem nýtur sérúrræða, heldur allir. „Ungt fólk í dag þekkir ekkert annað en að geta sótt hvaða efni sem er, þegar því hentar, og allir eru meira og minna byrjaðir að tala við tækin sín.“ Rökstólar Hinrik ræðir um val á viðskiptagreindarlausn á haustráðstefnu Advania árið 2012. Kennslan í HR hófst sem liður í samstarfi við Advania. Lengri útgáfa af viðtalinu verður birt á mbl.is. mbl.is Ljósmynd/Advania FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Framtíðin er okkar mál Málræktarþing um íslenskukennslu á 21. öld Íslensk málnefnd býður til málræktarþings í dag kl. 15 á Þjóðminjasafninu. Verið hjartanlega velkomin! www.ms.is www.islenskan.is Setning. Ármann Jakobsson, formaður Íslenskrar málnefndar. Kynning á ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2021. Ásgrímur Angantýsson les. Hanna Óladóttir: Málfræði er ekki bara málfræði. Um málfræðikennslu í skólakerfinu. Hjalti Halldórsson: Íslenskan verður ekki kennd í tómarúmi: Um kennslu fornbókmennta í grunnskólum. 15.00 15.05 15.15 15.30 15.45 16.00 16.15 16.30 16.40 Jón Yngvi Jóhannsson: Af rykugum bókakompum og blönkum skólasöfnum. Vandi bókmenntakennara í upphafi 21. aldar. Renata Emilsson Pesková: Tungumálasjálfsmyndir og skólareynsla fjöltyngdra nemenda. Halldóra Sigtryggsdóttir: Markviss málörvun í leikskóla. Afhending viðurkenningar Íslenskrar málnefndar 2021. Kaffiveitingar. Fundarstjóri: Eva María Jónsdóttir dagskrá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.