Morgunblaðið - 30.09.2021, Page 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Skeifan 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is
Asa Selection
LIGNE NOIR
matarstell
Kaffikrús – 1.690,-
Skál 11,5 cm – 1.690,-
Pastadiskur 22 cm – 2.990,-
Matardiskur 26,5 cm – 2.990,-
Forréttadiskur 21 cm – 2.290,-
Eftirréttadiskur 15 cm – 1.890,-
Kaffibolli m/undirskál – 2.090,-
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ríkisfjölmiðlar Norður-Kóreu lýstu
því yfir í gær að eldflaugin, sem skot-
ið var á loft í fyrradag, hefði verið
ofurhljóðfrá. Sagði í frétt norðurkór-
eska ríkisútvarpsins KCNA af eld-
flaugarskotinu að það hefði haft mik-
ið „strategískt mikilvægi“, en slík
yfirlýsing bendir til þess að eldflaug-
in geti borið kjarnaodda.
Ofurhljóðfráar eldflaugar ferðast
á minnst fimmföldum hljóðhraða og
eiga þær því auðveldara með að forð-
ast eldflaugavarnakerfi á borð við
það, sem Bandaríkjastjórn er nú í
óðaönn að þróa.
Sagði í frétt KCNA að tilrauna-
skotið hefði staðfest stýringarhæfni
og stöðugleika eldflaugarinnar, sem
fékk nafnið Hwasong-8, sem og flug-
hæfni hennar.
Eldflaugin enn á þróunarstigi
Herráð suðurkóreska hersins
staðfesti ekki gerð eldflaugarinnar í
yfirlýsingu sinni í gær, og greindi
það heldur ekki frá hámarkshæð og
-lengd flugsins líkt og venja er. Sagði
herráðið hins vegar ljóst að herir
Suður-Kóreu og Bandaríkjanna
gætu greint og stöðvað eldflaugina í
miðju flugi. Þá væri ljóst að eldflaug-
in væri enn á þróunarstigi og nokkuð
langt væri í að Norður-Kórea gæti
tekið hana í gagnið.
Í frétt KCNA sagði að þróun ofur-
hljóðfráu eldflaugarinnar væri eitt af
fimm helstu hernaðarmarkmiðum
Norður-Kóreu, en Kim Jong-un, ein-
ræðisherra landsins, setti þau fram í
janúar síðastliðnum á flokksþingi
norðurkóreska kommúnistaflokks-
ins. Voru njósnagervihnettir og
kjarnorkuknúnir kafbátar einnig á
þeim lista.
Vopnakapphlaup í vændum?
Bæði Kóreuríkin hafa byggt upp
hernaðargetu sína á síðustu misser-
um og náðu Suður-Kóreumenn fyrr í
mánuðinum að prófa í fyrsta sinn
eldflaug sem skotið er úr kafbáti.
Ræður suðurkóreski herinn nú yfir
þremur kafbátum sem borið geta
eldflaugar. Er þróunin sögð geta
leitt til vopnakapphlaups á Kóreu-
skaga sem gæti aftur valdið áhyggj-
um meðal nágranna þeirra, einkum
Kínverja og Japana.
Lim Eul-chul, prófessor í Austur-
landafræðum við háskólann í
Kyungnam, sagði við AFP-frétta-
stofuna að hegðun Norður-Kóreu-
manna nú væri á vissan hátt fyrirsjá-
anleg. Þeir myndu reyna að nýta
frekari tilraunir með eldflaugar til
þess að gefa sér pólitískt andrými í
samskiptum sínum við umheiminn.
AFP
Eldflaugaskot KCNA birti þessa mynd af ofurhljóðfráu eldflauginni í gær.
Eldflaugin sögð ofurhljóðfrá
- Ríkisfjölmiðlar Norður-Kóreu fagna mikilvægi tilraunaskotsins - Eldflaugin
geti ferðast á fimmföldum hljóðhraða - Langt í að eldflaugin verði tekin í notkun
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í Jap-
an kaus í gærmorgun Fumio Kishida
sem formann sinn, og verður hann því
næsti forsætisráðherra Japans næst-
komandi mánudag, samþykki þingið
útnefningu hans, en flokkurinn hefur
þar traustan meirihluta.
Kishida, sem var utanríkisráðherra
frá 2012-2017, hafði betur í leiðtoga-
kjörinu gegn Taro Kono, ráðherra
umbóta í stjórnsýslu og regluverki
Japans, sem einnig hefur leitt bólu-
setningarherferð Japana gegn
kórónuveirunni.
Einungis munaði einu atkvæði á
Kishida og Kono eftir fyrri umferð at-
kvæðagreiðslunnar, en þegar kosið
var á milli þeirra tveggja í seinni um-
ferðinni fékk Kishida 257 atkvæði
gegn 170 atkvæðum Kono.
Hinn 64 ára gamli Kishida sagði í
þakkarræðu sinni að flokkurinn yrði
að sýna landsmönnum að hann væri
nú endurborinn og sækjast eftir
stuðningi þeirra, en kosið verður til
japanska þingsins í nóvember næst-
komandi. Sagði Kishida helsta styrk
sinn að hlusta á fólkið og að hann
myndi vinna að bjartri framtíð fyrir
Japan.
Kishida sóttist einnig eftir forsæt-
isráðuneytinu í fyrra þegar Shinzo
Abe steig til hliðar, en hann laut þá í
lægra haldi fyrir Yoshihide Suga.
Óánægja með viðbrögð stjórnvalda
gegn kórónuveirufaraldrinum knúði
Suga hins vegar til þess að segja af
sér fyrr í sumar.
Sagði Kishida á blaðamannafundi
eftir kjörið að brýnt væri að sinna
sóttvarnaaðgerðum eftir öllum leið-
um. Vildi hann búa til andrúmsloft
þar sem allir legðust á eitt um að tak-
ast á við vandann.
Stjórnmálaskýrendur sögðu við
AFP-fréttastofuna að kjör Kishida
væri merki um að flokksmenn hefðu
talið hann líklegri en Kono til þess að
koma með stöðugleika til lengri tíma í
japönsk stjórnmál.
Kishida nýr for-
sætisráðherra
- Hafði naumlega betur gegn Kono
AFP
Japan Fumio Kishida ræðir við
blaðamenn eftir formannskjörið.
Franskir jarðfræðingar tilkynntu í
gær að nýjar mælingar sýndu að
Mont Blanc, hæsta fjall Vestur-
Evrópu, væri 4.807,81 metri á hæð,
en það er nærri heilum metra
lægra en opinberar tölur segja.
Hæð fjallsins var síðast mæld
árið 2017, og nam hún þá 4.808,72
metrum.
Hæð fjallsins er sífellt á reiki, þar
sem efsta lag þess er úr jökulís.
Hefur hæðin verið mæld á tveggja
ára fresti frá árinu 2001, og verið á
milli 4.810 til 4.806 metra hátt á
þeim tíma. Vöruðu jarðfræðing-
arnir við því að of mikið væri lesið
út úr tölunum, en tilgangur mæl-
inganna er að búa til gagnabanka
um efsta lag fjallsins.
FRAKKLAND
AFP
Mont Blanc Fjallið er nú 4.807 m hátt.
Mont Blanc lækkar
um næstum metra
Rússnesk stjórnvöld hótuðu því í
gær að þau myndu loka fyrir að-
gang myndbandsvefsíðunnar You-
Tube í Rússlandi eftir að forsvars-
menn síðunnar ákváðu að loka fyrir
þýskumælandi rásir ríkisfjölmiðils-
ins RT, sem áður hét Russia Today,
á síðunni.
Sagði YouTube í tilkynningu að
fyrirtækið hefði áður varað RT við
að brjóta gegn viðmiðum sínum um
dreifingu rangra upplýsinga um
kórónuveiruna. Utanríkisráðuneyti
Rússlands sagði aðgerð YouTube
vera „árás“ og gaf til kynna að hún
væri að undirlagi þýskra stjórn-
valda. Kynni því að vera óhjá-
kvæmilegt að grípa til aðgerða
gegn þýskum fjölmiðlum. Steffan
Seibert, talsmaður Angelu Merkel,
vísaði þeim ásökunum á bug og var-
aði Rússa við því að hefna sín á
þýskum fjölmiðlum í Rússlandi.
RÚSSLAND
Stjórnvöld hóta að
loka fyrir YouTube
Yfirvöld á Kanaríeyjum sögðu í gær
að lítil hætta væri á því að eiturgufur
frá eldgosinu þar myndu valda skaða
eftir að hraunbreiðan náði út í Atl-
antshaf um tíuleytið í fyrrinótt, þar
sem vindáttin hefði ýtt þeim á haf út.
Höfðu eldfjallafræðingar óttast að
samspil hafs og hrauns myndi leysa
úr læðingi gufur sem myndu erta
húð, augu og öndunarfæri fólks.
Eldfjallið, La Cumbre Vieja, hef-
ur nú gosið í tíu daga og neytt um
6.000 manns frá heimilum sínum.
Um 300 manns var gert á mánudag-
inn að halda kyrru fyrir í bænum
Tazacorte á eyjunni La Palma vegna
hættunnar á eiturgufum, auk þess
sem spænsk stjórnvöld settu upp
bannsvæði í 3,5 kílómetra frá gosinu
og tvær sjómílur á haf út.
Hraunbreiðan er um 600 metra
breið, og hefur hún lagt undir sig
656 byggingar og rúmlega 268 hekt-
ara lands samkvæmt evrópsku jarð-
fjarkönnunaráætluninni, sem kennd
er við Kópernikus. Þá hefur eldgosið
lagt um þriðjung allrar bananafram-
leiðslu á eyjunum í eyði, en það er
helsti útflutningsvegur þeirra. Er
tjónið áætlað um 400 milljónir evra.
Hraunbreiðan komin að Atlantshafi
- Hagstæð vindátt blés eiturgufum á
haf út - Gríðarmikið tjón á tíu dögum
AFP
Kanaríeyjar Hraunbreiðan hefur nú teygt sig alla leið út í Atlantshaf.