Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 37

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 37
» Skammstöf- unin fyrir kílómetra á klukkustund er km/h að ís- lenskum lögum Metrakerfið var lögtekið á Alþingi 1907 og innleitt á Ís- landi 1910-01-01. Í lögum 91/2006 segir í 5. grein: „Á Íslandi skal nota alþjóðlega SI-einingakerfið.“ Í lögum nr. 36/2003 er 3. grein svo: „Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun tilgreinds staðals skyldubundna með vísun til hans og hlutaðeigandi laga. Skal hann þá staðfestur með reglugerð af hlutaðeigandi ráðuneyti og skal í reglugerð vísa til staðalsins.“ Það mun ekki eiga við þá staðla sem hér er fjallað um. SI-kerfið Reglugerð 1160/2011 (+ reglug. 199/2020) fjallar um mælieiningar á Íslandi á grunni laga 91/2006. Í viðauka við reglugerðina er gerð nánari grein fyrir SI-kerfinu. Grein 2 í viðaukanum fjallar um „mælieiningar sem skilgreindar eru á grunni SI-kerfisins en eru ekki margfeldiseiningar“. Mínúta (60 s) er táknuð með „min“, klukkustund (3.600 s) með „h“ og sólarhringur (86 400 s) með „d“. Því ber að nota á Íslandi táknið „h“ fyrir klukku- stund (en ekki „klst.“). Hraðaein- inguna „kílómetrar á klukkustund“ skal því skammstafa „km/h“. Viðaukinn er vísast útdráttur úr ISO 80000-1, en þar eru ítarlegar reglur um notkun SI-mælieininga og rithátt þeirra. Sá staðall gildir því vísast á Íslandi. 2 x 12 h/d Fyrir nokkrum árum tók Ríkis- útvarpið upp það nýmæli að nota 2 x 12 stunda sólarhring í útsendingu í stað 24 stunda; bæði kl. 10 og 22 er sagt „klukkan er tíu“. Prentuð dagskrá er þó ennþá miðuð við 24 stunda sólarhring. Ástæðan gæti verið að árið 2004 var gefinn út íslenskur staðall ÍST 130:2004, Upplýsingatækni – ís- lenskar kröfur. Gerðar voru veiga- miklar athugsemdir við drög að þeim staðli og breytingartillögur lagðar fram, en þeim var öllum vís- að á bug nema einni (lið 3.C í gr. 4.15.3). Í staðli ÍST 130:2004 er „birtingu tíma“ lýst svo í grein 4.15.5: „Í rit- uðu máli er 24 stunda klukka al- gengust á Íslandi. Í daglegu tali er 12 stunda klukka þó algeng. Tím- inn frá morgni til hádegis er fyrir hádegi (f.h.) en tíminn frá hádegi til kvölds er eftir hádegi (e.h.).“ Þegar sagt er í RÚV hvað klukk- an sé er þess ekki getið hvað sólar- hringnum líður. Skoðanir kunna að vera skiptar um hvort í ríkisútvarpinu eigi að tala „daglegt mál“. En tímasetn- ingar hljóta þar að vera einhlítar og í samræmi við prentaða dag- skrá. ÍST 130 Í staðli ÍST 130:2004, Upplýs- ingatækni – íslenskar kröfur, hefst gr. 4.15.3, Birting dagsetninga, á málsgreininni: „Dagsetningar skulu birtar í röðinni dagur, mánuður, ár og árið ritað með 4 tölustöfum, sjá þó lið 3.C hér fyrir neðan.“ Í lið 3.C stendur: „Dagsetning rituð sam- kvæmt ISO 8601 í röðinni ár, mán- uður, dagur. Skiltákn er bandstrik: „2004-06-09“.“ Næsta gr. 4.15.4, Innsláttur dag- setninga, hefst á setningunni: „Dagsetningar skulu ætíð slegnar inn í röðinni dagur mánuður, ár.“ Engin frávik eru leyfð. Þetta ákvæði stangast á við næstu setn- ingu á undan, lið 3.C í gr. 4.15.3. Í bréfi til mín frá Staðlaráði Ís- lands 1996-10-17 segir svo: „Staðlar eru til frjálsra afnota og því er ekki rétt að verið sé að banna í einum staðli það sem boðið er í öðrum. Þeir sem er tamt að rita dagsetn- ingu samkvæmt fST EN 28601 geta haldið því áfram ef þeir svo kjósa.“ ISO 8601 Alþjóðastaðall ISO 8601 (evró- staðall EN 28601) er afsprengi nefndar SÞ til að samræma ritun dagsetninga um víða veröld. Hann mun gilda hvarvetna á sviði raf- rænna samskipta (er t.d. notaður við að nefna ljósmyndir í snjall- símum og skönnuð skjöl í tölvum). Á vefsíðu „https://en.wiki- pedia.org/wiki/Date_format_by_co- untry“ er samantekt um dagsetn- ingakerfi ýmissa landa, sögð frá 2017-02. Í nokkrum löndum er ein- vörðungu notað dagsetningakerfi ÁMD (ár-mánuður-dagur) í sam- ræmi við ISO 8601, þar á meðal í Evrópuríkjunum Ungverjalandi og Litháen. Ísland er talið með lönd- um þar sem aðeins er notað DMÁ. Í Bandaríkjunum má dagsetninga- kerfið MDÁ heita einrátt (nema í hernum). Auðvitað eru margir á Íslandi sem skrifa dagsetningar í samræmi við ISO 8601, enda var sá staðall í gildi hér í mörg ár. Það er ósatt að á Íslandi sé einvörðungu notaður rithátturinn DMÁ. Furðu margir virðast líta svo á að það sé til marks um lofsverða þjóðernisvitund að halda í rithátt- inn DMÁ, rétt eins og það að sunnudagur sé fyrsti dagur viku. Í raun er hvort tveggja komið frá Danmörku, – en nú er mánudagur talinn fyrsti dagur vikunnar í Dan- mörku, eins og í öllum Evr- ópulöndum nema Íslandi (á netinu er mánudagur sagður fyrsti dagur vikunnar í Bretlandi). Ökuskírteini og vegabréf Á ökuskírteini konu minnar stendur að það gildi til 06-07-2022. Þetta á að vísa til 6. júlí 2022. Í Bandaríkjunum yrði þessi talna- runa lesin svo: „June 7, 2022“, þ.e. 7. júní 2022. Rithátturinn 2022-07- 06 getur hinsvegar ekki misskilist. Vegabréfið mitt gildir til 28 NÓV /NOV 24. Má geta sér til um að átt sé við 2024-11-28, en 28 NÓV /NOV 24 getur líka átt við 2028-11-24 eða 2124-11-28. Niðurstaða Á Íslandi er mönnum (bæði kvenmönnum og karlmönnum) skylt að fara að staðli ISO 80000-1 um mælieiningar. Öllum er frjálst að fara að haganlegum reglum al- þjóðastaðals ISO 8601, m.a. að rita dagsetningu og tíma sólarhrings svo: 2021-09-23T09:40. Mál, vog og klukka Eftir Hauk Jóhannsson Haukur Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. haujo@simnet.is UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 BÓNUS NETTÓ KRÓNAN FLY OVER ICELAND ÐUR OPIÐ ALLA DAGA kl. 10–19 Á FISKISLÓÐ 39 MARKAÐURINN ER LÍKA Á NETINU: WWW.FORLAGID. IS | GJÖF FYRIR ALLA SEM KOMA 990 kr. 990 kr. 990 kr. 690 kr. 1.990 kr. 690 kr. 990 kr. 990 kr. HEITT Á KÖNNUNNI ÓTRÚLEGTVERÐ! LÖ ENDA- LAUST ÚRVAL NÆG BÍLA- STÆÐI 2.490 kr.690 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.