Morgunblaðið - 30.09.2021, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Þættirnir um Stellu eru sex talsins og eru þeir byggðir á samnefndum glæpasögum
eftir höfund sem skrifar undir dulnefninu Stella Blómkvist. Í þáttunum er fylgt eftir
andhetjunni, tálkvendinu og lögfræðingnum Stellu Blómkvist, sem fetar sínar eigin
slóðir. Í starfi sínu sem lögfræðingur vílar hún ekki fyrir sér að beita brögðum til að
fá sínu framgengt og tekur að sér snúin mál þar sem hún sér möguleika á að upp-
ræta spillingu og glæpi hjá einstaklingum í valdastöðum.
Óskar Þór Axelsson og Þóra Hilmarsdóttir leikstýrðu Stellu Blómkvist en Saga-
film stendur að baki framleiðslunni. Handritið skrifuðu þau Jóhann Ævar Gríms-
son, Snjólaug Lúðvíksdóttir, Jónas Margeir Ingólfsson og Dóra Jóhannsdóttir.
Ásamt Heidu Reed fara þau Krístín Þóra Haraldsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson,
Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Edda Björgvinsdóttir,
Saga Garðarsdóttir og Halldór Gylfason með stór hlutverk ásamt mörgum öðrum
landsþekktum leikurum. mm@mbl.is
Önnur þáttaröð af Stellu Blómkvist var frumsýnd fyrir
fullum sal í Smárabíói en þáttaröðin kemur í heild sinni í
Sjónvarp Símans Premium í dag. Heida Reed, sem leik-
ur Stellu, komst því miður ekki á sýninguna þar sem
hún er stödd í Búdapest þar sem hún fer með aðal-
hlutverk í glænýrri bandarískri þáttaröð, FBI:Internatio-
nal, sem er nýhafin í Sjónvarpi Símans Premium.
Björk Pálmadóttir, Salka Pálmadóttir og Pálmi Guðmundsson.
Eiður og Manuela
mættu saman
Gunnþórunn
Jónsdóttir og
Silvía Lovetank.
Eiður Birgisson
og Manuela Ósk
Harðardóttir.
Þórunn Antonía
Magnúsdóttir lét
sig ekki vanta.
Saga Garðarsdóttir
og Snorri Helgason.
Dóra Jóhannsdóttir og
Lilja Jóhannsdóttir.
Snjólaug Lúðvíksdóttir
og Júlíana Lára
Steingrímsdóttir.
Selma Ágústsdóttir og Pétur Benedikt
Pétursson mættu saman. Hún er gift
Orra Haukssyni forstjóra Símans.