Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 46
Einn þessara staða er Brauð-
kaup í Kópavogi – nánar tiltekið
í Kársnesinu – þar sem hefur
myndast einstök stemning með-
al íbúa sem líta á staðinn sem
sitt samkomuhús ef svo má að
orði komast – enda Kópa-
vogsbúar þekktir fyrir heitar
tilfinningar til heimahaganna.
Að baki Brauðkaupum eru
sex vinir úr Kársnesinu sem
ákváðu að opna saman veit-
ingastað. Eins og nafnið gefur
til kynna er staðurinn með
handverksbrauð og -bakkelsi,
þó að aðaláherslan sé á grillið.
Þar er boðið upp á steik-
arhamborgara úr grófhökk-
uðum ribeye-steikum, nauta-
lund og chucksteik með ríkri
fituprósentu. Borgararnir eru
eldgrillaðir á gamla mátann og
njóta gríðarlegra vinsælda.
Einnig þykja kjúklingavæng-
irnir í sérflokki og sérstaklega
þeir kóresku, en þeir eru í
heimalagaðri teriyaki-bbq-sósu
með wasabihnetum.
Bæði er hægt að borða á
staðnum sem og taka matinn
með heim og alltaf er passað
upp á að hafa rjúkandi á könn-
unni og hádegistilboð á virkum
dögum.
Um helgina hefst svo Októ-
berfest og þar verður öllu tjald-
að til. Búast má við mikilli
stemningu enda staðurinn
þekktur fyrir hátíðahöld á tylli-
dögum. Hátíðahöldin hefjast á
föstudaginn kl. 17 og verður
boðið upp á risatjald, Götubitinn
mætir með sína bestu bíla og
boðið verður upp á tónlistar-
atriði svo fátt eitt sé nefnt.
Bjórinn verður frá brugghús-
unum Viking og Malbikk og
boðið verður upp á sérleg Októ-
berfest-tilboð.
Aðalstjörnurnar á matseðl-
inum verða þó pretzel-
borgarinn, 120 g steikarborgari
úr nautalund; ribeye-steik með
reyktri svínasíðu, pikkluðum
dillgúrkum, rauðlauk, salati,
dijonsinnepi og majónesi; og
eldgrillað bratwurst með súrkáli
og sinnepi.
Ekkert kostar inn og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Það fer að bresta á með október og eru öldurhús og hverfisbúllur
landsins í startholunum með Októberfest af bestu gerð þar sem
bjórinn verður kneyfaður með dýrindisgóðgæti.
Októberhátíðin hefst um helgina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alvöruhamborgari Þessi girnilegi steikarborgari verður seint topp-
aður enda búinn til úr nautalund og rib-eye. Brauðið er svo alvöru-
pretzel eins og vera ber þegar þýsk stemning er í hávegum höfð.
Bratwurst-draumur Þessi ógnarfagra
pylsa verður seint toppuð og passar
einstaklega vel með ísköldum bjór á
Októberfesti Brauðkaups.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021