Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 48
Ræðismaður Inga Lind, fjölmiðlakona og ræðismaður Spánverja á Íslandi,
var einn af gestum Síðdegisþáttarins en hún var sjálf í fríi á Tenerife.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Siggi Gunnars og Logi Bergmann í
Síðdegisþættinum á K100 nutu síð-
ustu viku í sólinni á Tenerife þar
sem þeir voru á vegum ferðaskrif-
stofunnar Aventura og sendu Síð-
degisþáttinn út í beinni frá para-
dísareyjunni.
Eins og sést á myndum leiddist
þeim félögum ekki ferðalagið. Fóru
þeir meðal annars á sæþotur, en
mynd af Sigga á sæþotu fór heldur
betur á flug í netheimum þar sem
fjöldi netverja sýndi fótósjopp-
hæfileika sína með myndinni og
færðu Sigga, á sætþotunni, í ýmsar
bráðfyndnar aðstæður. Þá ræddu
Logi og Siggi við fjölmarga áhuga-
verða Tenerifebúa og gesti á eyjunni
en meðal gesta voru Anna Kristjáns-
dóttir, fyrrverandi vélstjóri, Inga
Lind, fjölmiðlakona og ræðismaður
Spánverja, og Andri Ingólfsson, eig-
andi Aventura, auk fjölda annarra.
„Það var algjörlega geggjað á Te-
nerife, eins og alltaf. 25 stiga hiti og
sól og mikil slökun,“ segir Siggi
Gunnars sem er sólbrúnn og sæll
eftir ferðina. Segir hann að það hafi
verið einstaklega gaman að spjalla
við fólkið sem býr og starfar á eyj-
unni. „Maður bara finnur eftir þessa
ferð að það er öruggt að ferðast. Ég
hvet alla sem langar út í sólina að
drífa sig,“ segir hann.
Aðspurður segir Siggi að
það hafi verið dásamlegt
að ferðast með
Loga enda
nái þeir mjög
vel saman.
„Það kom aldr-
ei „cabin fever“ hjá
okkur Loga. Það var
trúnó á hverju einasta
kvöldi,“ segir Siggi.
Trúnó á hverju kvöldi hjá
Sigga og Loga á Tenerife
Siggi Gunnars og Logi
Bergmann eru nú snúnir
aftur á klakann eftir frá-
bæra ferð til Tenerife
þaðan sem þeir sendu
Síðdegisþáttinn í beinni
útsendingu frá K100 í
síðustu viku.
Sló í gegn Þessi mynd af Sigga Gunnars sló sannarlega í gegn á netinu
þar sem fjöldi fólks tók sig til og fótósjoppaði Sigga inn í ýmsar bráð-
fyndnar aðstæður en Siggi sagðist hafa verið á öskrinu í klukkutíma og
stokkið eins og óður maður á sæþotunni.
Sólbrúnir og sætir Logi Bergmann
og Siggi Gunnars fóru alla leið í
fatavali á Tenerife en þeir klæddust
meðal annars þessum sumarlegu
stuttermaskyrtum.
Eldibrandur Logi Bergmann naut sín vel á sæþotu í öldugangi en hann var
hugsanlega yfirvegaðri á farartækinu en Siggi Gunnars.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Elsa Pálsdóttir, 61 árs kraftlyft-
ingakona frá Njarðvík, fattaði það
fyrir einungis tveimur og hálfu ári
að styrkleikar hennar lægju í kraft-
lyftingum en nú er hún heimsmeist-
ari í -76 kg flokki öldunga, 60 ára og
eldri.
Þrjú heimsmet
Hún keppti í síðustu viku í klass-
ískum kraftlyftingum á heimsmeist-
aramóti í Halmstad í Svíþjóð þar
sem hún sett þrjú heimsmet.
Hún ræddi um árangurinn og
uppruna áhugans á kraftlyftingum í
morgunþættinum Ísland vaknar á
dögunum en þar sagðist hún hafa
komist á bragðið með keppnisheim-
inn eftir að hún prófaði að taka þátt
í þrekmótaröð með fjölbreyttum æf-
ingum ásamt æfingafélögum árið
2011.
Uppgötvaði að hún væri sterk
„Eiginlega í gegnum það fór ég að
uppgötva styrkleika mína í rækt-
inni, að ég væri kannski svolítið
sterk.
Svo var það bara fyrir tveimur og
hálfu til þremur árum sem ég upp-
götvaði kraftlyftingar og í hverju
væri keppt og það allt saman og átt-
aði mig á því að þarna lægju styrk-
leikar mínir,“ sagði Elsa í viðtalinu.
Elsa tók 132,5 kíló í hnébeygju á
síðasta móti í Svíþjóð og heil 160
kíló í réttstöðulyftu (deadlift). Í báð-
um greinunum setti Elsa heimsmet.
Hún bætti eigið heimsmet í rétt-
stöðulyftunni um 2,5 kg en sam-
anlagður árangur hennar, 352,5 kíló,
er nýtt heimsmet í greininni.
Vann fyrir heimsmetunum
„Maður er náttúrulega búinn að
vinna svolítið fyrir þessu. Þetta
kemur svo sem ekki bara með vatn-
inu,“ sagði Elsa sem kveðst yfirleitt
æfa ein.
Aðspurð sagði hún það stundum
vera einmanalegt. „Maður hefði al-
veg gott af því að vera stundum með
öðrum. En maður sér til,“ sagði hún.
Elsa keppti á sínu fyrsta al-
þjóðlega móti í júlí síðastliðnum en
þar setti hún heil fimm heimsmet.
Hlustaðu á viðtalið í heild sinni á
K100.is.
Uppgötvaði seint
styrkleika sinn
Sterk Elsa Pálsdóttir, 61 árs heims-
meistari í kraftlyftingum, lyftir 160
kg í réttstöðulyftu á síðasta móti.
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar í góðan mat
og notalegt andrúmsloft
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
Nýttu ferðagjöfina
hjá okkur
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf