Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
✝
Kristín Ingi-
björg Ketils-
dóttir fæddist á
Stafni í Reykjadal
14. desember 1939.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Grenilundi 19. sept-
ember 2021.
Foreldrar Krist-
ínar voru Ketill
Sigurgeirsson frá
Stafni í Reykjadal
og Aðalbjörg Þorvaldsdóttir frá
Völlum í Þistilfirði. Þeim varð
tveggja dætra auðið, en auk
Kristínar eignuðust þau Jónínu,
sem fædd er árið 1945.
Árið 1959 giftist Kristín
Tryggva Stefánssyni frá Hall-
gilsstöðum í Fnjóskadal, f. 30.
desember 1936, d. 15. maí 2016.
Börn Kristínar og Tryggva eru
fjögur: 1) Ketill Ingvar, f. 1960,
sambýliskona hans er Guðrún
Valgerður Ásgeirsdóttir, f.
1960. Guðrún á fimm börn úr
fyrra sambandi, þau a) Sigurvin
Guðlaug, f. 1987, b) Unni Rósu,
þær Elísu Sofiu, f. 2011 og
Hönnu Júlíu, f. 2015.
Kristín, eða Dinna eins og
hún var oftast kölluð, ólst upp á
Stafni í faðmi stórrar fjölskyldu,
en þar bjuggu þá, auk föður
hennar og móður, fjórir bræður
Ketils með fjölskyldur sínar,
auk föðurömmu hennar. Hún
gekk í farskóla í sveitinni eins
og þá tíðkaðist, en eftir ferm-
ingu var hún einn vetur á Hér-
aðsskólanum á Laugum. Þar
lágu leiðir þeirra Tryggva fyrst
saman. Annan vetur nam hún
við Húsmæðraskólann á Laug-
um, en eftir það lá leiðin í
Fnjóskadalinn þar sem þau
Tryggvi eignuðust börnin fjög-
ur og sinntu ævistarfinu saman í
rúm 50 ár. Þar var rauði þráð-
urinn sauðfjárrækt, þó ýmsar
aðrar tegundir dýra og ræktun
af ýmsu tagi kæmu þar við sögu.
Hún var sérstaklega skapandi
og handlagin. Í vinnustofu sinni
í „Beinhorninu“ í gamla bænum
töfraði hún fram hina fegurstu
smíðisgripi úr horni og beini og
gat sér gott orð fyrir sér-
staklega vandað handverk. Hún
tók þátt í félagsstörfum, starfaði
með Kvenfélagi Fnjóskdæla,
Harmonikkufélagi Þingeyinga
og hafði gaman af tónlist.
Útförin fór fram í kyrrþey.
f. 1988, c) Þórhildi
Helgu, f. 1990, d)
Stefán Ásgeir, f.
1997 og e) Guðrúnu
Borghildi f. 1999. 2)
Stefán, f. 1961,
kvæntur Ósk
Helgadóttur, f.
1963. Börn þeirra
eru þrjú: a) Hannes
Garðar, eiginkona
hans er Eva Grét-
arsdóttir. Þau eiga
eina dóttur, Yrju Sif, f. 2020. b)
Sævar Páll, eiginkona hans er
Björg María Jónsdóttir. c) Sig-
urbjörg Arna. 3) Aðalbjörg, f.
1966, gift Sigurði Hlyni Snæ-
björnssyni, f. 1969. Þau eiga
þrjú börn: a) Kristínu Ingi-
björgu, f. 1990, eiginmaður
hennar er Óskar Árnason.
Þeirra börn eru Hlynur Agnar,
f. 2011, Árni Sólon, f. 2014 og
Tryggvi Hrafn, f. 2020, b)
Tryggva Snæ, f. 1992 og c)
Starkað Snæ, f. 1997. 4) Helgi
Viðar, f. 1969, kvæntur Önju
Müller og eiga þau tvær dætur,
Elsku amma.
Það er sérstök tilfinning að
hugsa til þess að ég muni aldrei
aftur fá að faðma þig og finna
þína hlýju strauma. Að geta
ekki átt við þig samtal um það
sem er að gerast í lífi okkar, það
sem er að gerast úti í heimi, eða
bara átt spjall um daginn og
veginn yfir hlaðborði alls kyns
kræsinga sem birtust á borðinu
um leið og mann bar að garði.
Ég veit að þú hafðir einstak-
lega gaman af því að fá heim-
sóknir og eiga gott spjall við
vini og kunningja, og því get ég
ekki ímyndað mér hvernig það
hefur verið að vera seinasta eitt
og hálfa árið við þær aðstæður
að fólk veigri sér við að hitta
eldri ættingja af ótta við veik-
indi.
Það koma til með að lifa lengi
með manni minningar frá mín-
um yngri árum þar sem við fór-
um saman út á Flateyjardal,
hvort sem það var í rekaviðar-
ferð, í smalamennsku, berjat-
ínslu eða hvert sem tilefnið var.
Alltaf hlakkaði maður mikið til
þessara ferða og áttum við alltaf
góðar stundir saman. Gulróta-
og rófnaræktin er líka ofarlega í
huga, sitjandi á rófnaakrinum
og borða rófur og rætur ferskar
upp úr moldinni. Kartöflugarð-
urinn var líka stór hluti af tím-
anum okkar saman og ég man
einhvern tímann að þú sagðir að
þú hefðir alveg getað hugsað
þér að vera eingöngu garð-
yrkjubóndi. Garðurinn í kring-
um húsið var alltaf eins upp á 10
( nema kannski þegar ákveðnir
heimalningar virtu girðingar að
vettugi) og ég held að ég hafi
engan þekkt hvorki fyrr né síð-
ar með eins græna fingur.
Það voru einstök forrétttindi
að fá að hafa þig sem ömmu.
Hvíl í friði.
Palli.
Sævar Páll Stefánsson.
„Sibba mín!“ sagði hún alltaf
og brosti út að eyrum þegar ég
kom í dyrnar. „Má ekki bjóða
þér …“ fylgdi svo gjarnan í
beinu framhaldi.
Ég á svo margar minningar
frá Hallgilsstöðum sem mér
þykir óskaplega vænt um.
Hvort sem það var verið að æfa
flugtökin með því að stökkva
niður af frystikistunni með álft-
arfjöður hvorri hönd, stelast í
eitthvað gott í búrinu, gæða sér
á rófusköfu í litlu stofunni, gera
misgáfulegar tilraunir í eldhús-
inu, fá að prófa kjólana hennar
ömmu að ótöldum fjárhúsverk-
unum og Heiðarferðum, alltaf
var maður velkominn og aldrei
var dauð stund.
Þegar ég hugsa um ömmu
Dinnu detta mér strax í hug
„klessurnar“ hennar, eins og
hún kallaði allt það dásamlega
sætabrauð sem hún töfraði fram
hvort sem það voru smákökur
eða hinar glæsilegustu margra
laga tertur, hænurnar hennar
ástkæru, sykurhúðað hlaup,
kjarakaup í Hernum eða þum-
alnöglin sem gegndi hlutverki
ýmiskonar verkfæra (yfirleitt
skrúfjárns). Ég heyri ennþá
hláturinn hennar og sé ljóslif-
andi fyrir mér prakkaraglottið
sem kom á hana þegar hún
sagði eitthvað sem henni fannst
jaðra við að fara yfir strikið. Afi
talaði oft um það hvað amma
væri mögnuð kona og lét gjarn-
an fylgja hvað það hefði verið
flott þegar þessi netta rauð-
hærða stelpa úr Reykjadalnum
keyrði um á herjeppa, fyrst
kvenna í dalnum, hvað hún væri
ráðagóð og lagin við ýmsa hluti.
Hann hafði svo sannarlega rétt
fyrir sér þar eins og stundum
áður, að amma Dinna var alveg
einstök.
Elsku amma mín, takk fyrir
hlýjuna, klessurnar, knúsin og
hvatninguna í gegnum tíðina.
Bið að heilsa afa.
Sigurbjörg Arna
Stefánsdóttir.
Kristín Ingibjörg
Ketilsdóttir
Smáauglýsingar
Hljóðfæri
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
$+*! '(! %&&*% )"#
Mikið úrval
Hljómborð
á tilboði
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Gítarar
í miklu úrvali
$+*! '(! %&&*% )"#
Kassagítar
ar
á tilboði
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Tölvur
Sérhæfð gagnabjörgun
af hörðum diskum o.fl.
Datatech.is sérhæfir sig í gagna-
björgun af öllum gerðum af tölvum og
hörðum diskum. Hafðu samband í
síma 571-9300 eða kíktu á
heimasíðuna okkar Datatech.is
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um liðveislu við
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
892-2367.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Nýr 2021 Hyundai Kona EV
Premium rafmagnsbíll með 64
kWh rafhlöðu.Raun drægni um 380
km. Flottasta typa með leðri og gler-
topplúgu + fullt af öðrum lúxus. Nýtt
útlit. 5 litir á staðnum.
Til afhendingar strax !
Okkar verð aðeins: 5.790.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Sá vinsælasti í dag.
MMC Outlander Intense Plug in
Hybrid . Árgerð 2021, Nýr bíll.
Bensín/ Rafmagn sjálfskiptur.
Bakkmyndavél. Verð 5.350.000.
Rnr.215689.
Einn Eigandi.
TOYOTA Land Cruiser 200 VX .
Árgerð 2015, ekinn 107 Þ.KM,
Bensín, sjálfskiptur 6 gírar.
Verð 11.650.000. Rnr.226764.
Seljandi skoðar skipti á ódýrari.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Einlægar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hluttekningu vegna fráfalls
elsku mömmu,
SIGRÍÐAR ÞÓRU INGADÓTTUR,
Sísíar,
Hjaltabakka 14, Reykjavík.
Rósa, Laufey og Ingi
fjölskyldur og vinir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BIRNU FRIÐGEIRSDÓTTUR,
Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hornbrekku, Ólafsfirði og Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði,
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sigurður Guðmundsson
Valgerður Sigurðardóttir Rúnar Guðlaugsson
Guðmundur Sigurðsson Sigurborg Gunnarsdóttir
Friðgeir Sigurðsson Ragnhildur Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku yndislegi
afi okkar.
Við eigum enn
bágt með að trúa því
að þú hafir farið svona snögglega
frá okkur. Takk fyrir allar góðu
samverustundirnar og skemmti-
legu tímana sem við áttum sam-
an. Það sem okkur systkinunum
finnst lýsa þér best er að taka allt
á hörkunni. Það er virkilega erfitt
að koma því í orð hversu yndis-
legur maður þú varst. Í raun er
ekkert lýsingarorð nógu sterkt til
að lýsa þér algjörlega eins og við
myndum vilja. Þú varst dásam-
legur karakter, traustur og ávallt
til staðar. Þú varst líka alltaf svo
kátur og stutt í grínið. Það er
okkur ofarlega í minni hvað þú
hafðir gaman af flugeldum. Þér
fannst fátt skemmtilegra en að
stríða okkur með því að sprengja
kínverja og hlóst svo manna hæst
þegar þú sást viðbrögðin. Ára-
mótin voru þín uppáhaldshátíð
þar sem þú og pabbi fylltuð alltaf
bílskúrinn af flugeldum og kök-
um frá KR. Það sem þér þótti
gaman að kveikja í flugeldunum
og njóta þeirra. Þegar við hugs-
um til stundanna okkar eru utan-
landsferðir og sumarbústaða-
ferðir mjög ofarlega í huga. Þú
ferðaðist mikið með okkur allt frá
Spáni til Egyptalands. Ein minn-
ing af mörgum er þegar þú fórst
með Halldóri í Terra Mitica á
Spáni. Þar varst þú harðákveðinn
í að fara í stærsta rússíbana Evr-
ópu. Þú og Halldór fóruð saman
og sátuð hlið við hlið. Þú passaðir
vel upp á barnabarnið þitt og
Guðmundur
Reynir Jónsson
✝
Guðmundur
Reynir Jónsson
fæddist 10. janúar
1940. Hann lést 15.
september 2021.
Útförin fór fram
23. september
2021.
hélst honum alveg
klesstum í sætinu,
það fast að mögu-
lega beyglaðist sæt-
ið. Þér fannst þessi
rússíbani alveg
svakalegur og þegar
þú loksins komst úr
honum ákvaðstu að
þú værir orðinn of
gamall fyrir svona
upplifanir. Þú varst
ávallt fyrsti maður
upp í bústað um verslunar-
mannahelgina og þótti þér fátt
skemmtilegra en að eyða tíma
með stórfjölskyldunni þinni.
Knúsin þín voru þau bestu og
þegar maður kyssti þig á kinnina
fékk maður fullan munn af rak-
spíra, því aldrei gastu lyktað illa.
Þú varst ávallt til í að gera allt
fyrir okkur og alla í kringum þig.
Þú varst með yndislega og góða
nærveru. Varst besti afi sem
maður gat hugsað sér og ávallt til
í að styðja við bakið á manni sama
hvað maður tók sér fyrir hendur.
Kærleikur þinn og ást í garð okk-
ar og langafabarna þinna var
ómetanlegur. Þú áttir einstakt
samband við langafabörnin þín
og hafðir svo gaman af því að
fylgjast með þeim þroskast og
dafna. Það var aðdáunarvert að
sjá hversu góðir vinir þú og pabbi
voruð. Þið voruð duglegir að fara
saman í veiði, á völlinn, til út-
landa og yfirleitt hófuð þið dag-
inn á því að hringjast á. Við von-
um að samband okkar við börnin
okkar verði jafn gott og sam-
bandið sem þið áttuð. Það ein-
kenndist af virðingu, vináttu og
ást. Minningar um þig munu lifa
með okkur og þín verður sárt
saknað. Við munum sjá þig aftur
þegar okkar tími kemur.
Þín barnabörn,
Elín Rut Elíasdóttir,
Ragnhildur Dóra Elíasdóttir
og Halldór Ingi Elíasson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins: www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar