Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 55

Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 55 Aðstoðarsaksóknari við embætti ríkissaksóknara Laus er til umsóknar staða aðstoðarsaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Starfshlutfall er 100%. Hæfniskröfur Umsækjendur skulu hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði og er einkum leitað eftir lögfræðingum sem hafa lagt sig eftir námsefni á sviði refsiréttar og sakamálaréttarfars í laganámi sínu. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi reynslu af lögfræðistörfum. Einnig er nauðsynlegt að umsækjendur hafi mjög gott vald á íslensku og gott vald á ensku. Lögð er á það áhersla að viðkomandi hafi skipulagshæfileika, geti viðhaft öguð og sjálfstæð vinnubrögð og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Lýsing á starfi: Meginverkefni starfsmannsins eru: a. Meðferð réttarbeiðna frá erlendum yfirvöldum og mál vegna kröfu um framsal/afhendingu erlendra ríkisborgara, þ.m.t. beiðnir á grundvelli Norrænu- og Evrópsku handtökuskipunarinnar. b. Meðferð kærumála vegna ákvarðana héraðssaksóknara og lögreglustjóra um að vísa kæru frá, hætta rannsókn, fella mál niður eða falla frá saksókn, sbr. 52. gr., 145. gr., 146. gr. og 147. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. • Starfsmaður á samskipti við lögreglumenn, lögmenn, dómstóla og ýmis embætti og stofnanir, þ.m.t. erlendar stofnanir, í tengslum við mál sem honum eru falin til meðferðar og afgreiðslu. • Starfsmaður tekur þátt í gæðastarfi ríkissaksóknara eftir því sem óskað er eftir. • Starfsmaður sinnir öðrum verkefnum sem ríkissaksóknari felur honum. Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Stéttarfélags lögfræðinga. Nánari upplýsingar veitir Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari – sjf@saksoknari.is, s. 444-2900. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, skal senda til embættis ríkissaksóknara, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík, eða á netfangið saksoknari@saksoknari.is. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Deildarstjóri upplýsingatækni Helstu verkefni Ábyrgð á upplýsingatæknistefnu og stafrænni þróun Ósa Ábyrgð á rekstri upplýsingatæknideildar, s.s. skipulagi, mannauði og áætlanagerð Ábyrgð á samskiptum er varða rekstur og þróun upplýsingatæknimála dótturfélaga Ábyrgð á samskiptum við úttektaraðila sem varða upplýsingatæknimál Breytingastjórnun og ábyrgð á innleiðingum kerfa Menntunar- og hæfnikröfur Menntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg Farsæl reynsla í starfi og þekking á upplýsingatæknimálum Reynsla af innleiðingu breytinga Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund Hæfni til að miðla upplýsingum Gott vald á íslensku og ensku Ósar hf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi til að veita upplýsingatæknimálum og stafrænni vegferð fyrirtækisins forstöðu. Framundan er spennandi og metnaðarfull vegferð sem hefst með stefnumótun meðal samstarfsaðila og viðskiptavina. Markmið Ósa er að veita dótturfélögum og viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og notendaupplifun. Til þess þurfa grunninnviðir að vera öruggir, aðgengilegir og traustir, kerfi að vera notendavæn og skilvirk og þjóna sínu hlutverki vel. Rík þjónustulund og gott samstarf eru í hávegum höfð og stöðugt þarf að leita tækifæra til nýsköpunar og umbóta ásamt því að leitast við að sýna hagkvæmni í rekstri. Hefur þú víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og innleiðingu á stefnu í upplýsingatækni? Hefur þú metnað og góða samskiptahæfni til að leiða stafræna vegferð Ósa? Við hvetjum hæfileikaríkt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir óskast fylltar út á vef Hagvangs, hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 4. október. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is. Ósar er nýstofnað móðurfélag Icepharma hf., Parlogis ehf.ogLYFISehf. Hlutverk félagsins er aðveita vandaða og faglega stoðþjónustu til dótturfélaga m.a. á sviði fjármála og upplýsingatækni, svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.