Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 63
Úrvalslið yngri leikmanna 21 árs og yngri, í PepsiMax-deild karla 2021 3-4-3 Fjöldi sem leik- maður fékk á leiktíð 2 7 11 9 8 11 13 13 10 9 15 8 Árni Marinó Einarsson ÍA 2002 Kristall Máni Ingason Víkingur 2002 Stefán Árni Geirsson KR 2000 Ísak Snær Þorvaldsson ÍA 2001 Daníel Finns Matthíasson Leiknir R. 2000 Orri Hrafn Kjartansson Fylkir 2002 Sævar Atli Magnússon Leiknir R. 2000 Viktor Örlygur Andrason Víkingur 2000 Birkir Heimisson Valur 2000 Gísli Laxdal Unnarsson ÍA 2001 Atli Barkarson Víkingur 2001 Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík eiga þrjá fulltrúa í úr- valsliði yngri leikmanna í úrvals- deild karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, keppnistímabilið 2021 samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Kristall Máni Ingason fékk 13 M fyrir frammistöðu sína í sumar og þeir Atli Barkarson og Viktor Ör- lygur Andrason 8 M hvor. ÍA og Leiknir úr Reykjavík eiga tvo fulltrúa hvort í liðinu. Orri Hrafn Kjartansson, leik- maður Fylkis og besti ungi leik- maður tímabilsins samkvæmt M- gjöfinni, fékk 15 M en Fylkir féll úr efstu deild á nýliðnu tímabili. Þrír Íslandsmeistarar á meðal þeirra bestu ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Það vekur gleði mína að enn geti hið óvænta gerst á hæsta stigi knattspyrnu karla. Í Meist- aradeild Evrópu á þriðjudags- kvöld litu tvenn óvænt úrslit dagsins ljós. Sheriff Tiraspol frá Moldóvu vann spænska stór- veldið Real Madríd á Santiago Bernabeu-vellinum í Madríd. Sheriff er okkur Íslendingum ágætlega kunnugt þar sem það mætti Val í 3. umferð und- ankeppni Evrópudeildarinnar ár- ið 2018. Valur vann heimaleikinn 2:1 en tapaði leiknum í Moldóvu 0:1 og Moldóvarnir fóru því áfram á útimörkum. Liðið hefur á undanförnum árum komist nokkrum sinnum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en tekur þátt í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar í fyrsta skipti í sögunni þetta tímabilið. Sheriff er með 6 stig á toppi D-riðils eft- ir fyrstu tvo leikina þar sem liðið vann einnig fyrsta leik sinn gegn Shakhtar Donetsk. Þar sem bilið milli bestu og ríkustu liðanna og annarra liða hefur sífellt verið að breikka und- anfarna áratugi er ekki laust við það að með úrslitum sem þess- um kvikni von í brjósti manns um að leikurinn fagri sé ekki í and- arslitrunum, að minnsta kosti ekki enn þá. Vissulega er Sheriff ríkt lið en ætti þó að öllu jöfnu ekki að standa jafnfætis stór- veldi á við Real Madríd. Ekki jafn óvænt úrslit, en þó ansi, var 2:1 útisigur Belganna í Club Brugge gegn orkudrykk- jafrömuðunum í RB Leipzig í A- riðlinum, dauðariðlinum svokall- aða, sama kvöld. Hin moldríku París Saint-Germain og Man- chester City eru líka í honum en sem stendur er Brugge taplaust í öðru sæti riðilsins eftir að hafa gert jafntefli gegn stjörnum prýddu PSG-liði í 1. umferð. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.isKaren María Sigurgeirsdóttir er gengin til liðs við kvennalið Breiða- bliks í knattspyrnu en hún kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Þór/KA. Karen hefur verið lykil- kona í liði Þór/KA undanfarin ár þrátt fyrir að vera einungis tvítug en hún á að baki 61 leik í efstu deild þar sem hún hefur skorað tólf mörk. Þá hafa Blikar einnig samið við Zandy Soree, belgíska landsliðs- konu, en hún lék síðast með Houst- on Dash í Bandaríkjunum. Þær eru báðar komnar með leikheimild og löglegar í Meistaradeildinni. Liðstyrkur í Kópavoginn Ljósmynd/Þórir Breiðablik Karen getur tekið þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þjálfarateymi úrvalsdeildarliðs Þórs/KA hefur látið af störfum og mun stjórn Þórs/KA hafa nýtt sér uppsagnarákvæði í ráðningarsamn- ingum þjálfaranna eftir að Íslands- mótinu í knattspyrnu lauk á dög- unum. Andri Hjörvar Albertsson hefur stýrt Akureyringum frá árinu 2019 en Bojana Kristín Besic og Perry Mclachlan voru aðstoð- arþjálfarar hans á nýliðnu keppnis- tímabili. Þór/KA hafnaði í 6. sæti úrvalsdeildarinnar, Pepsi Max- deildarinnar, í sumar en leit að nýj- um þjálfurum stendur nú yfir. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Hættur Andri Hjörvar Albertsson hefur látið af störfum á Akureyri. Akureyringar í þjálfaraleit MEISTARADEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Cristiano Ronaldo reyndist hetja Manchester United þegar liðið tók á móti Villarreal í F-riðli Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í gær. Leiknum lauk með 2:1-sigri United en Ronaldo skoraði sigurmark leiks- ins þegar fjórar mínútur voru liðnar af uppgefnum uppbótartíma síðari hálfleiks. Paco Alcacer kom Villarreal yfir á 53. mínútu en Alex Telles jafnaði met- in fyrir Manchester United sjö mín- útum síðar. Sigurinn var afar mikilvægur fyrir United sem er með 3 stig í þriðja sæti riðilsins eftir tvær umferðir, stigi minna en topplið Atalanta. _ Cristiano Ronaldo er næstelsti leikmaður í sögu Manchester United til þess að skora mark í Evr- ópukeppni eða 36 ára gamall og 236 daga gamall. Bryan Robson er sá elsti en hann skoraði gegn Galatasaray ár- ið 1993, þá 36 ára og 282 daga gamall. _ Ronaldo lék sinn 178. leik í Meistaradeildinni gegn Villarreal og varð um leið leikjahæsti leikmaður í sögu keppninnar. Hann tók fram úr Iker Casillas, fyrrverandi fyrirliða Real Madrid, sem lék 177 Meist- aradeildarleiki á ferlinum. Þá skoraði Federico Chiesa sig- urmark Juventus þegar liðið tók á móti Evrópumeisturum Chelsea í H- riðlinum á Allianz-vellinum í Tórínó á Ítalíu. Leiknum lauk með 1:0-sigri Juven- tus en Chiesa skoraði sigurmarkið strax í upphafi síðari hálfleiks. Chelsea er með 3 stig í öðru sæti riðilsins en Juventus er í efsta sætinu með fullt hús stiga eða 6 stig. _ Chiesa kom Juventus yfir þegar tíu sekúndur voru liðnar af síðari hálfleik en enginn hefur skorað jafn snemma í síðari hálfleik í Meist- aradeildinni síðan tölfræðisíðan Opta hóf mælingar árið 2003. Barcelona bíður enn þá eftir sínum fyrsta sigri í Meistaradeildinni á þessu tímabili en liðið tapaði illa fyrir Benfica á Da Luz-vellinum í Lissabon í Portúgal. Darwin Núnez skoraði tvívegis fyr- ir Benfica í leiknum og Rafa Silva eitt mark en leiknum lauk með 3:0-sigri Benfica. Í hinum leik riðilsins vann Bayern München 5:0-stórsigur gegn Dynamo Kiev á Allianz Arena í München þar sem Robert Lewandowski skoraði tvívegis fyrir Bæjara og þeir Serge Gnabry, Leroy Sané og Eric Choupa- Moting sitt markið hver. Bayern München er með 6 stig í efsta sæti riðilsins en Barcelona er án stiga í neðsta sætinu. _ Robert Lewandowski hefur nú skorað 119 mörk í síðustu 100 leikjum sínum fyrir Bayern München. Ronaldo bjargaði United AFP Sigurmark Cristiano Ronaldo reif sig úr að ofan og fagnaði að hætti hússins þegar hann tryggði Manchester United sigur gegn Villarreal í Manchester. - Juventus lagði Chelsea á Ítalíu - Barcelona án sigurs í Meistaradeildinni „Ég er búinn að vera dómari síðan árið 2012 en ég var fimmtán ára gam- all þegar ég byrjaði að dæma,“ sagði Gunnar Oddur Hafliðason knatt- spyrnudómari í samtali við Morg- unblaðið. Gunnar er á leið í dómarabúðir á vegum Evrópska knattspyrnu- sambandsins, UEFA, í Nyon í Sviss ásamt Kristjáni Má Ólafs og Ey- steinn Hrafnkelssyni. Dómarabúðirnar eru haldnar einu sinni á ári en Knattspyrnusamband Íslands velur þrjá einstaklinga ár hvert, einn dómara og tvo aðstoð- ardómara, til að taka þátt í búðunum. „Ég byrjaði að dæma eftir að ég gekk upp í annan flokk. Ég byrjaði bara að dæma til að fá frítt á völlinn og fá inn smá auka tekjur. Mark- miðið var alltaf að vera áfram í bolt- anum en svo bara fannst mér þetta mjög gaman. Eftir að ég kláraði annan flokkinn sá ég fram á það að ég myndi líkleg- ast spila áfram í neðri deildunum ef ég myndi halda áfram í boltanum. Ég sá hins vegar fram á að ef ég myndi halda áfram að dæma gæti ég gert góðan feril úr því, ferðast erlendis, dæmt í efstu deild og jafnvel erlend- is,“ sagði Gunnar. Ísland á fjóra milliríkjadómara í dag, þá Helga Mikael Jónasson, Ívar Orra Kristjánsson, Vilhjálm Alvar Þórarinsson og Þorvald Árnason, og er markmiðið með búðunum að undr- búa dómara fyrir milliríkjadómgæslu og þjálfun dómara. „Ég vonast fyrst og fremst til þess að fá dýrmæta reynslu í þessum dómarabúðum sem mun vonandi nýt- ast mér mjög vel í leikjum hérna heima á Íslandi. Markmiðið er svo bara að bæta sig áfram sem dómari og vonandi get ég hjálpað íslenskri dómgæslu að taka næsta skref. Með þátttöku á svona námskeiði getur maður líka miðlað sinni reynslu til annarra dómara hér á landi sem er mjög jákvætt,“ bætti Gunnar Oddur meðal annars við í samtali við Morg- unblaðið en nánar er rætt við Gunnar á mbl.is/sport/efstadeild. Framtíðarferill í dómgæslunni Ljósmynd/Sigfús Gunnar Gult Gunnar Oddur spjaldar Sel- fyssinginn Gary Martin í sumar. Meistaradeild karla Motor Zaporozhye - Kielce ................ 25:26 - Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Kielce og Haukur Þrastarson eitt. Vardar Skopje - Aalborg.................... 30:28 - Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari liðsins. Zagreb - Elverum ................................ 27:27 - Orri Freyr Þorkelsson komst ekki á blað hjá Elverum. Noregur Aker - Oppsal ....................................... 33:19 - Birta Rún Grétarsdóttir komst ekki á blað hjá Oppsal. Svíþjóð Guif - Alingsås ..................................... 24:31 - Daníel Freyr Andrésson varði sjö skot í marki Guif en Aron Dagur Pálsson var ekki í hóp. 8-liða úrslit bikarkeppninnar, fyrri leikur: Kristianstad - Lugi .............................. 37:23 - Andrea Jacobsen skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad. - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. $'-39,/*" Belgía Antwerp Giants – Mechelen................ 85:90 - Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig, tók tvö fráköst og gaf sex stoðsendingar á 27 mínútum hjá Antwerp Giants. >73G,&:=/D Handknattleikur Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Ásvellir: Valur – Fram.............................. 18 Ásvellir: KA/Þór – FH ......................... 20.30 Í KVÖLD!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.