Morgunblaðið - 30.09.2021, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Þ
að er á ekki hverjum degi sem íslensk
kvikmynd er frumsýnd í keppnis-
flokki á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es. Reyndar telst það til algerra und-
antekninga og er mikil viðurkenning í sjálfu
sér, en ekki nóg með það heldur hlaut Dýrið
sérstök frumleikaverðlaun í Un Certain Reg-
ard-flokknum. Eyru gagnrýnenda voru því
löngu sperrt þegar dómar fóru að berast
beggja vegna Atlantshafs, þar sem talað var
um „snargeggjað“ söguupplegg myndarinnar.
Undirritaður reyndi í framhaldinu að lesa sem
allra minnst um innihaldið og hélt meðal ann-
ars fyrir eyrun þegar stiklur voru spilaðar í
kvikmyndahúsum í þeirri von að verða ekki
fyrir áhrifum fyrir fram. Mælt er með því að
fólk sjái myndina og viti sem minnst áður, en
það er ómaksins virði.
Styrkur Dýrsins felst nefnilega umfram allt í
leik að væntingum áhorfandans. Hvurslags
saga er þetta eiginlega? spyr hann sig trekk í
trekk, þegar snúið er á það sem á undan kom.
Mismunandi greinarhefðum er hrært í seðj-
andi graut með ólíkum fæðutegundum sem
ættu ekki að passa saman, en gera það þó, að
mestu leyti. Grunnurinn er sóttur í þjóðsagna-
arfinn. Þetta er saga af karli og kerlingu í koti
sínu. Á jólanótt heimsækir þau óvæntur gest-
ur, sem setur atburðarás af stað. Klassíkt stef
um samband manns og náttúru er rauði þráð-
urinn. Myndin fellur einnig vel að íslenskri
kvikmyndahefð, þar sem sveitin hefur auðvitað
verið ráðandi sögusvið frá upphafi. Frá Landi
og sonum (1980) til Barna náttúrunnar (1991)
hefur hefðbundna sveitamyndin dafnað og lík-
lega náð fullþroska með Hrútum (2015) en nú
er greinin komin í nýjan fasa þar sem meðvit-
und og írónía gagnvart forminu einkenna frá-
sagnirnar. Í þessu ljósi er skemmtilegt að bera
Dýrið saman við aðra gjörólíka íslenska kvik-
mynd frá þessu ári, Hvernig á að vera klassa
drusla, þar sem sveitin hýsir femínískt ung-
lingamyndaneðanbeltisgrín. Í báðum tilvikum
eru íslenska sveitamyndin og lögmál hennar
afbyggð á einhvern máta og notuð sem bygg-
ingarstólpi fyrir söguheim sem einkennist af
sérstöku „bíóraunsæi“, þ.e.a.s. það sem fyrir
augu ber endurspeglar ekki síður aðrar kvik-
myndir en raunveruleikann.
Byrjun Dýrsins gengur í takti alþjóðlegu
listamyndarinnar og fylgir fyrirmynd frá
Börnum náttúrunnar að því leyti en líklega líða
tíu mínútur áður en orð er talað. Dulúð og
drunur dynja undir í hljóðrás þegar sauðum
fjárhússins er stillt upp á móti heimilishaldi
þeirra hjóna í myndmálinu. Í rólegum gír eru
sögupersónurnar, hjónin María (Noomi Rap-
ace) og Ingvar (Hilmir Snær Guðnason), kynnt
til leiks. Einn daginn taka þau á móti sérstöku
lambi, sem þau taka að sér og ala upp sem sitt
eigið og kalla Ödu. Ingvar sækir barnarúm út í
fjós, sem gefur í skyn sitthvað um fortíð þeirra,
en þau eru vitanlega barnlaus í nútíð myndar-
innar. Ada sýgur mjólk úr pela, sefur í hjóna-
herberginu og María horfir á hana uppnumin í
fallegri birtu sumarnátta á meðan feðginin
sofa.
Samspil klippingar og kvikmyndatöku er
athyglisvert í þessum atriðum þar sem Ada er
nánast ekkert sýnd, heldur er einblínt á
mennska foreldrana í nærmyndum, og sjaldan
eða aldrei er áhorfendum veitt sjónarhorn
þeirra. Á þennan hátt er upplýsingum
skammtað og komandi krókar fléttunnar
undirbúnir. Dag einn hverfur Ada og hjónin
ráfa leitandi um hvort í sínu lagi í þokunni. Enn
á ný er skotið framan á leikarana og sjónarhóll
þeirra ekki sýndur, sem er merki um stílrænan
aga, og eykur dulúðugt andrúmsloft og spennu.
Í öðrum kafla myndarinnar er kafað dýpra í
fjölskyldulífið þegar óvæntur gestur ríður í
hlað. Hér er á ferðinni klassíska frásagnar-
minnið um óþekkta aflið eða aðkomumanninn
sem rýfur lífsins vanagang en hér gegnir sá
líka hlutverki áhorfandans eða samfélagsins
með því að spegla og hneykslast á hegðun
hjónanna. Gesturinn er Björn Hlynur Haralds-
son í hlutverki Péturs, bróður Ingvars. Koma
hans er einkar kómísk þar sem snjáður kaggi
stöðvast með skransi á malarvegi og manni er
fleygt úr bílskottinu á mölina og skilinn eftir í
reykskýi. Björn Hlynur er djammaratýpa
klædd í leðurjakka, í skörpu mótvægi við sveit-
ina og söguheim myndarinnar hingað til. Per-
sónan er annað tilbrigði við frábæra frammi-
stöðu leikarans í Agnesi Joy, þar sem
skemmtilega var leikið með stjörnuímynd (ef
hægt er að tala um slíkt í tilfelli íslenskra leik-
ara) Björns Hlyns. Einnig mætti tala um Hilmi
Snæ og Noomi Rapace sem ákveðið „meta“-
leikaraval, þar sem stjörnuímyndir þeirra (þó
að slíkt nái jafnvel ekki út fyrir íslenskt
kvikmyndasamhengi) ýta undir „bíóleika“
söguheimsins. Frammistaða þeirra er mjög
sannfærandi og gefur myndinni vigtina sem
þörf er á til að heildarmyndin gangi upp og
furðusagan verði trúanleg.
Koma Björns Hlyns færir frásögnina meira í
átt að hefðbundnu fjölskyldudrama, þó með
þeim fyrirvara að fyndinn fáránleikinn er ávallt
til staðar. Þetta gerir myndina kannski „ís-
lenskari“ fyrir vikið, enda mikil hefð fyrir fjöl-
skyldusögum en minni fyrir hreinræktuðum
hrollvekjum sem einhverjir bjuggust við út af
markaðsherferð myndarinnar (en myndin er
það alls ekki). Á köflum vottar fyrir óþarfa
endurtekningu í handriti og of mikið er sagt
(senan við leiðið er til að mynda óþörf og sýnir
ýmislegt sem áhorfandi hafði þegar orðið
áskynja).
Heilt yfir er Dýrið skemmtilegur darraðar-
dans og tekst að búa til söguheim þar sem hinu
fáránlega er blandað við þjóðsagnaminni og
bíóhefð, og útkoman er í senn spennandi og
fyndin. Hér er á ferðinni sterk frumraun leik-
stjórans Valdimars Jóhannessonar og verður
spennandi að fylgjast með næstu skrefum hans
(og Sjóns) á hvíta tjaldinu.
Sveitasælan hamflett
Borgarbíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og
Smárabíó.
Dýrið bbbbn
Leikstjórn: Valdimar Jóhannesson. Handrit: Sjón
og Valdimar Jóhannesson. Klipping: Agnieszka
Gliñska. Kvikmyndataka: Eli Arenson. Aðalleikarar:
Noomi Rapace, Hilmir Snær Guðnason og Björn
Hlynur Haraldsson. Ísland/Svíþjóð/Pólland, 2021.
106 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR
Sterk Dýrið er sterk frumraun
leikstjóra, að mati rýnis. Noomi
Rapace í hlutverki Maríu.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
FRÁBÆR NÝ MYND FRÁ MARVEL STUDIOS
MYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ Í BÍÓ
SIMU LIU AWKWAFINA WITHMICHELLE YEOH ANDTONY LEUNG
92%
KOMIN Í BÍÓ
T H E T E L E G R A P H
T H E G U A R D I A N
E M P I R E
TOTA L F I L M
90%