Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 191867.
Nýskráður 10/2018, ekinn 126 þ.km., bensín/
rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, stöðugleikakerfi,
bluetooth, umferðarskiltanemi, bakkmyndavél.
Verð 3.690.000 kr.
MERCEDES-BENZ - SPRINTER – RN. 331538.
Nýskráður 6/2015, ekinn 119 þ.km., dísel, hvítur,
beinskiptur, túrbína, forhitun á miðstöð, bakk-
myndavél, stöðugleikakerfi, fjarlægðarskynjarar.
Verð 7.150.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
HONDA - CR-V LIFESTYLE – RN. 191884
Nýskráður 1/2013, ekinn 130 þ.km., bensín,
dökkgrár, sjálfskipting, stöðugleikakerfi, spólvörn,
fjarlægðarskynjarar, dráttarkrókur (aftengjanlegur),
Verð 1.850.000 kr.
MERCEDES-BENZ - GLS 350 4MATIC
RN. 340419. Nýskráður 4/2017, ekinn 15 þ.km.,
dísel, svartur, sjálfskiptur, topplúga, GPS, 360°
myndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth, leður.
Verð 13.990.000 kr.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ný þáttaröð um Stellu Blómkvist,
Stella Blómkvist II, verður aðgengi-
leg í Sjónvarpi Símans Premium í
dag, 30. september, en sú fyrsta
hlaut góðar viðtökur þegar hún var
sýnd haustið 2016. Þættirnir eru
byggðir á bókum hulduhöfundarins
sem kallar sig Stellu Blómkvist og
segja af andhetjunni, tálkvendinu og
lögfræðingnum Stellu sem tekur að
sér snúin mál þar sem hún sér
möguleika á að uppræta spillingu og
glæpi hjá einstaklingum í valdastöð-
um, eins og segir á vef Símans.
Sem fyrr leikur Heiða Rún Sig-
urðardóttir Stellu en hún gengur er-
lendis undir nafninu Heiða Reed og
hefur gert það gott bæði í sjónvarps-
þáttum og kvikmyndum. Fór hún
lengi vel með eitt af aðalhlutverkum
ensku þáttanna Poldark og þegar
blaðamaður nær tali af henni er hún
stödd í Búdapest í Ungverjalandi
þar sem tökur fara fram á banda-
rísku þáttunum FBI: International.
Þættirnir eru svokallaðir „spin-off“
þættir eða afleggjari af FBI-
þáttaröðunum sem hófu göngu sína
árið 2018 og segir Heiða að hún fái
það besta af hvoru tveggja; fái að
leika í bandarískum þætti og í Evr-
ópu. „Það er miklu auðveldara fyrir
mig,“ segir hún um þetta fyr-
irkomulag en heimili hennar er í
London og auðvelt að fljúga á milli
Bretlands og Ungverjalands. Heiða
leikur FBI-konuna Jamie Kellett
sem glímir við FBI-mál á erlendri
grundu með teymi sínu. Eitt mál er
tekið fyrir í hverjum þætti og var sá
fyrsti frumsýndur 21. september.
Sogast aftur inn í hringiðu
glæpa og stjórnmála
Stella Blómkvist II hefst tveimur
árum eftir örlagaríka atburði í
stjórnarráðinu þar sem lögfræðing-
urinn Stella hjálpaði Dagbjörtu Kon-
ráðsdóttur, sem nú er orðin forsætis-
ráðherra, við að koma þáverandi
forsætisráðherra frá. Stella er enn í
harki sem lögfræðingur og við blasir
gjörbreytt Ísland, svo vitnað sé í lýs-
ingu á þáttaröðinni á vef Símans.
Líkt og í fyrri þáttaröð þarf Stella að
leysa þrjú ólík mál með aðstoð vina
sinna Gunnu og Ragga og sogast
hún aftur inn í hringiðu glæpa og
stjórnmála þar sem hún neyðist til
að takast á við hættulegri og sam-
viskulausari andstæðinga en hún
hefur áður kynnst.
Þættirnir eru sex talsins og með
önnur helstu hlutverk fara Krístín
Þóra Haraldsdóttir, Þorsteinn Guð-
mundsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir,
Jóhannes Haukur Jóhannesson,
Edda Björgvinsdóttir, Saga Garð-
arsdóttir og Halldór Gylfason. Leik-
stjórar eru Óskar Þór Axelsson og
Þóra Hilmarsdóttir og handritið var
skrifað af Jóhanni Ævari Grímssyni,
Snjólaugu Lúðvíksdóttur, Dóru Jó-
hannsdóttur og Jónasi Margeiri Ing-
ólfssyni.
Heiða segir Stellu enn sára yfir
því að hafa verið notuð af Dagbjörtu
sem Sara Dögg leikur. „Nú hittum
við Stellu í annarri seríu og hún er
búin að breyta aðeins til, flytja og
lita á sér hárið en fyrrverandi kær-
asta hennar er ennþá forsætisráð-
herra og með dálítinn einræðis-
herrastíl,“ segir hún.
Fær ekki samviskubit
–Stella drekkur viskí og reykir
vindla í bókunum og er dálítið sér-
stök í hegðun og framkomu. Hvernig
nálgastu hana og hvað myndir þú
segja að þið eigið sameiginlegt?
„Ég myndi segja að ég sé líka svo-
lítill nautnaseggur þannig að það er
gaman að leika einhvern sem leyfir
sér hlutina og er aldrei með sam-
viskubit yfir því. Ég fæ alveg sam-
viskubit stundum en hún er með
miklu fínni smekk en ég, hún er ekk-
ert að sturta í sig M&M og Coca
Cola, hún er með rándýrt súkkulaði
og Kobe-steik, það besta af öllu. Hún
er þannig með allt, húsgögn og list
og eyðir peningunum í fallega hluti
sem hún getur notið af því að hún er
ekki með nein alvöru persónuleg
sambönd. Þetta er það sem henni
þykir vænt um,“ segir Heiða kímin
og bætir við að ef til vill sé það dálít-
ið sorglegt.
–Þetta er mjög sterkur karakter
og kraftmikill, er það ekki?
„Jú, henni er í rauninni bara skít-
sama um hvað öðrum finnst og það
er mjög frelsandi að fá að stíga inn í
þannig persónu.“
–Hún lendir ansi oft í hættulegum
aðstæðum …
„Já, það er það óþægilegasta við
hana, það er alltaf verið að ræna
henni og tuska hana til, kefla hana
og svoleiðis sem getur verið svolítið
óþægilegt,“ svarar Heiða kímin.
Höfundur ábyggilega karl
–Þú hefur væntanlega lesið bækur
Stellu Blómkvist áður en þú lékst í
fyrri seríunni og eins og þú þekkir er
umdeilt hvort höfundurinn er karl
eða kona. Hvort heldur þú að hann
sé?
„Ég held alveg 100% að hann sé
karl,“ svarar Heiða að bragði. „Hún
er skrifuð eins og karlmaður hafi
skrifað hana,“ útskýrir hún, „og ég
fíla það samt alveg. Það er svona
gaur í henni, svolítið frekur karl. Ég
er ekki að segja að kona gæti ekki
skrifað konu þannig en mér finnst
fílingurinn dálítið þannig. Mér finnst
eins og karlmaður hafi skrifað hana
og hugsað hvernig hann væri ef
hann væri kona.“
–Íslenskt samfélag í bókunum er
samfélag spillingar og klíkuskapar.
Hversu raunsönn heldurðu að sú
mynd sé af íslensku samfélagi?
„Það er náttúrlega sannleikur í öll-
um sögum,“ segir Heiða og að lík-
lega sé alltaf leitað fanga í sönnum
aðstæðum. „Allt í heimi Stellu er
svakalega ýkt og við tökum okkur
það leyfi að hafa svolítið gaman af
því og vera ekki að biðjast afsökunar
á neinu.“
Heiða verður áfram við tökur á
FBI: International fram á vor og
segir hún ekkert ákveðið með næstu
verkefni. „Þetta er svo langt ferli að
það er í rauninni ekki hægt að segja
hvað kemur á eftir, alla vega hjá mér
sem leikkonu en ég er með nokkra
hluti í bígerð sem ég skrifaði og leik-
stýrði þannig að við sjáum til með
hvað kemur út úr þeim þegar þeir
eru tilbúnir.“
Ljósmynd/Saga Sig.
Við tökur Heiða með leikstjóranum Óskari Þór Axelssyni við tökur á annarri þáttaröðinni um Stellu Blómkvist.
Skítsama um hvað öðrum finnst
- Stella Blómkvist snýr aftur í nýrri þáttaröð - Heiða Rún segir gaman að fá að leika nautnasegg
sem fær aldrei samviskubit - Í tökum í Ungverjalandi fram á vor á nýjum þáttum, FBI: International
FBI Heiða með leikaranum Luke Kleintank í FBI: International.