Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 68

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 68
AF GRÍNI Þorgeir Tryggvason Sketsagerðarhópurinn Kanarí fangaði fyrst athygli mína með efni sem þau gerðu fyrir RÚV núll, ungmenna-netrás ríkis- sjónvarpsins. Nánast allt mjög fynd- ið, vel skilað í leik og framleiðslu en þó fyrst og fremst frábærlega skrif- að og hugsað innan hefðarinnar. Þetta var greinilega fólk sem var búið að horfa á, kryfja og tileinka sér það besta sem gert hefur verið í þessu stranga en samt lausbeislaða formi, og voru strax komin með sterkan persónulegan svip á verk sín. Augljóslega sá maður fyrir sér glæsta framtíð og meira áberandi vettvang fyrir hópinn og meðlimi hans. Og sjá, nú eru boðaðir sjón- varpsþættir á aðalrás RÚV í vetur, og sýning í Leikhúskjallaranum hóf göngu sína síðasta föstudag. Aðalsmerki hópsins eru hér, eins og áður, frábært vald á að skrifa skothelda sketsa og færni í að finna og velja þær hugmyndir sem virka í forminu. Efnistökin hvíla á rótgró- inni hefð sem á heimavöll í sjónvarp- inu og lítið hlaupið útundan sér í til- efni þess að hafa áhorfendur fyrir framan sig. Enginn spuni, ekkert uppistand. Lítið gert út á að hafa beint samband við áhorfendur, fyrir utan endurteknar tilraunir eins leik- arans við að koma sér á framfæri sem klarínettuleikara. Ekkert sjá- anlegt þema heldur; hver skets þarf einfaldlega að réttlæta plássið sitt í dagskránni með því að gera það sem hann á að gera: fá fólk til að hlæja. Það gera þeir allir, og öll axla þau Eygló Hilmarsdóttir, Máni Arnar- son, Pálmi Freyr Hauksson og Steiney Skúladóttir ábyrgðina á að leiða grínið til lykta þegar á þurfti að halda. Þetta er ekki sýning sem stendur og fellur með að leikarar fari á kostum, enda leggja þau ekki þunga áherslu á persónusköpun heldur á miðlun efnisins. Enda hrað- inn slíkur að lítill tími gefst til að skipta um hlutverk, hvað þá að gefa þeim dýpra innihald en sem nemur yfirborðinu. Það myndi, og mun væntanlega, lofta betur um efnið á sjónvarps- skjánum og meiri tími gefast til að nostra. Hugkvæm leikmynd Krist- ins Arnar Sigurðssonar tryggir að allt gangi eins snurðulaust fyrir sig og hægt er, og stundum mátti furðu gegna hve greiðlega gekk að svipta okkur milli staða og leikurunum milli persóna. Guðmundur Felixson stýrir þessu vel, en öguð framsetn- ing og vald yfir því sem verið er að gera er eitt af höfuðeinkennum sýn- ingarinnar og annarra verka hóps- ins. Það er varla sanngjarnt gagnvart tilvonandi kjallaragestum að útlista að neinu marki innihald einstakra þátta, eða fara of djúpt í dæmi um það sem best heppnast. Brilljant er hugmyndin um hvernig megi fara á hundavaði yfir Harry Potter. Áber- andi hvað sketsar sem snúast um kynlíf eru snjallir og afhjúpandi án þess að beita ódýrum klúrheita- trikkum. Skoðanakönnun smokka- fyrirtækisins mætti nefna sem frá- bært dæmi. Tveir þættirnir ganga út á sam- skipti persóna við sinn innri mann sem leitaðist við að afvegaleiða og/ eða lama með ofhugsun og tauga- veiklun. Mjög vel gert með einfaldri og dálítið barnaleikritalegri nálgun. Súrrealískar dæmisögur sem eiga að kenna okkur að vera ekki of fljót að dæma hvert annað voru líka eins og úr mjög myrkum sunnudaga- skóla sem ekki væri ráðlegt að senda nein börn í. Andstyggilega fyndnar. Með sketsakvöldi Kanarí heldur velgengni Leikhúskjallarans sem vettvangs fyrir bitastæða gleði áfram, og verður vonandi enginn endir þar á. Með grínið á valdi sínu Öguð framsetning „Guðmundur Felixson stýrir þessu vel, en öguð framsetn- ing og vald yfir því sem verið er að gera er eitt af höfuðeinkennum sýning- arinnar og annarra verka hópsins,“ segir í rýni um sketsasýninguna Kanarí. » Með sketsakvöldi Kanarí heldur vel- gengni Leikhúskjall- arans sem vettvangs fyrir bitastæða gleði áfram, og verður von- andi enginn endir þar á. Ljósmynd/Saga Sig 68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Bleika slaufan, árlegt átaksverk- efni Krabba- meinsfélagsins tileinkað barátt- unni gegn krabbameini hjá konum, hefst í dag og til að marka upphaf þess verður sér- stök sýning á kvikmyndinni Mamma Mia! í Háskólabíói. Bleik stemning verður í anddyri bíósins frá kl. 19 þar sem samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar kynna bleikar vörur og dagskrá hefst kl. 20 með forsýningu á aug- lýsingu átaksins og skemmtidag- skrá þar sem söngkonurnar Regína Ósk og Stefanía Svavarsdóttir koma meðal annars fram. Aðgangs- eyrir er kr. 4.500. Bleika slaufan í ár er hálsmen úr smiðju Hlínar Reykdal. Bleik stemning og Mamma Mia! Meryl Streep í Mamma Mia! European Emerging Bands Contest 2021 nefnist keppni þar sem leitað er efnilegustu evr- ópsku hljóm- sveitanna og að framtíðarhljómi Evrópu og hefur nú verið tilkynnt um sex sigurvegara og er hin íslenska Possimiste þeirra á meðal. Hátt í 150 sveitir frá 27 löndum tóku þátt í keppninni og dómnefnd skipuð sérfræðingum valdi sex sig- urvegara sem fengu verðlaunapen- ing og koma fram á European Youth Event 2021 í Evrópuþinginu í Strasbourg, að því er fram kemur í tilkynningu. Possimiste er sólóverkefni Leeni Laasfeld sem býr og starfar á Íslandi og á ættir að rekja til Eist- lands. Fyrsta plata hennar, Youni- verse, kom út 25. júní og sagði um hana í tilkynningu að Possimiste færði lög sem hún heyrði í draum- um sínum yfir í þennan heim og „gripi hlustendur beint í eteríska poppævintýraheiminn sinn“. Possimiste meðal sex sigurvegara Possimiste »Það var sannarlega öllu tjaldað til þegar Bond- myndin No Time To Die var frumsýnd í Royal Albert Hall í London í fyrrakvöld. Hefur frumsýn- ingu margoft verið frestað vegna heimsfaraldurs en loksins varð nú af henni. Karl Bretaprins og Vilhjálmur sonur hans mættu með eiginkonum sínum og lúðrasveit lék á rauða dreglinum við tónlistarhúsið heimskunna. Dómar eru þegar farn- ir að birtast um myndina og flestir þeirra jákvæðir. Nýjasta kvikmyndin um James Bond, No Time To Die, frumsýnd í London Hátíðlegt Lúðrasveit hersins lék fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar. Glæsilegar Katrín hertogaynja af Cambridge ræddi við ensku leikkonuna Lashana Lynch sem fer með eitt af aðalhlutverkum myndarinnar. Kóngafólk Katrín, Vilhjálmur, Kamilla og Karl voru glæsileg á rauða dreglinum og ræddu við leikara og aðra sem komu að gerð myndarinnar. Hressir Vilhjálmur Bretaprins og Daniel Craig slógu á létta strengi fyrir frumsýningu Bond-myndarinnar enda ástæða til að gleðjast. Kát Bandaríski leikarinn Rami Malek, sem fer með hlutverk illmennisins í kvikmyndinni, og handritshöfundurinn Phoebe Waller-Bridge. AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.