Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 72

Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 72
ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 Virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 Virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is FAST SENDINGARGJALD MEÐ PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER! FANO SÓFABORÐ 34.900 kr. NÚ 26.175 kr. VENUS LOFTLJÓS Ø50CM 19.995 kr. NÚ 14.996 kr. FLORA BLÓMAVASI 3.995 kr. NÚ 2.996 kr. CALE BORÐLAMPI 13.995 kr. NÚ 10.496 kr. ALESSO VASAR 2 STÆRÐIR 8.995 kr. NÚ 6.746 kr. 22.995 kr. NÚ 17.246 kr. NORRLAND BORÐSTOFUSTÓLL 39.900 kr. NÚ 29.925 kr. NEPTUN SÓFABORÐ 2 SAMAN 99.800 kr. NÚ 74.850 kr. SICILIA 3JA SÆTA SÓFI 144.900 kr. NÚ 108.675 kr. SPARAÐU 25% AF ÖLLUM VÖRUm Danski sellóleikarinn Jonathan Swensen leikur selló- konsert Dvoráks á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30. Swensen er aðeins 24 ára og hefur hlotið mörg verðlaun á ferli sín- um þrátt fyrir ungan aldur. Á tónleikunum verður líka flutt nýtt verk eftir Halldór Smárason sem nefnist infinite image og er samið undir áhrifum frá ljóðinu „Þoka“ eftir Sigurð Pálsson. Eftir hlé verður leikinn Konsert fyrir hljómsveit eftir bandaríska tón- skáldið Joan To- wer sem er eitt fremsta tónskáld Bandaríkjanna af sinni kynslóð, fædd árið 1938. Stjórnandi á tónleikunum verður hinn virti Peter Oundjian. Swensen leikur einleik með SÍ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við höfum lengi verið með það í píp- unum að auka framleiðslugetuna til að missa ekki af sölu á álagstímum. Við höfum til dæmis lent í því síð- ustu þrjú sumur að klára allt sem við eigum á bæjarhátíðinni Mærudög- um. Þetta var því tímabært,“ segir Þorsteinn Snævar Benediktsson, bruggmeistari og eigandi Húsavík öl. Vill stækka bruggstofuna Húsavík öl hefur verið rekið í gömlu mjólkurstöðinni á Húsavík síðan í lok árs 2017. Tæp þrjú ár eru síðan bruggstofa var opnuð í hús- næðinu og hefur hún notið mikilla vinsælda. Svo mikilla reyndar að Þorsteinn sá þann kost vænstan að bæta nýlega við 1.200 lítra gerj- unartanki sem eykur framleiðslu- getu Húsavík öl um ríflega 30%. „Ég vonast líka til að geta stækkað bruggstofuna og fengið meira pláss. Hvort við gerum það í ár eða á næsta ári á eftir að koma í ljós,“ seg- ir Þorsteinn. Ekki hrifinn af ÁTVR Erfitt hefur verið að anna eftir- spurn og um tíma fékkst bjór Húsa- vík öl aðeins fyrir norðan. Nú horfir til betri vegar og sem stendur fæst hann á þremur stöðum í höfuð- staðnum; á Brewdog, Skúla craft bar og Session. Þorsteinn segir þó engin áform um að selja handverksbjór sinn í Vínbúðunum. „Nei, ég er ekk- ert sérstaklega hrifinn af einokunar- verslun ríkisins. Ég bíð bara eftir því að mega selja mínar vörur sjálf- ur. Vonandi verður það mál keyrt í gegn á þinginu í vetur.“ Fagna októberfest En hvað sem Þorsteini kann að finnast um ÁTVR er þó ljóst að nú í vikunni gefst áhugasömum færi á að kaupa bjór sem hann tók þátt í að framleiða. Er þar um að ræða sam- starfsbrugg Húsavík öl og Borgar brugghúss í tilefni þess að nú er tími októberfests. „Þetta verður þrusu bjór,“ segir Þorsteinn um bjórinn sem kallast því áhugaverða nafni Veður fyrir leður og er lýst sem bragðfjörugum pilsner. Alltaf veður fyrir leður Spurður út í nafnið segir brugg- meistarinn að það sé vísun í þýskan frasa sem hentur hafi verið á lofti þegar bjórinn var framleiddur. Hann hafi þótt passa ágætlega inn í umhverfi októberfests þegar hefð er fyrir því að fólk klæðist lederhosen. „Þetta var eitthvað sem kom upp og var fyndið; „Das ist immer Wetter für Leder.“ Það útlagðist vel á ís- lensku og er bæði fallegt og satt.“ Stækkaði brugghúsið um 30% vegna vinsælda - Húsavík öl í mikilli sókn - Veður fyrir leður á leið í sölu Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Vinsældir Þorsteinn Snævar Benediktsson við dæluna á bruggstofu Húsa- vík öl. Hann þurfti að bæta við gerjunartanki til að anna þar eftirspurn. Samstarf Þorsteinn ásamt þeim Halldóri Darra Guðjónssyni og Árna Theo- dór Long frá Borg brugghúsi þegar Veður fyrir leður var bruggaður. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breiðablik og Þróttur úr Reykjavík mætast í úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu kvenna á Laugardals- velli annað kvöld. Félögin búa yfir ólíkri reynslu þegar kemur að bikarkeppninni. Breiðablik hefur þannig tólf sinnum orðið bikarmeistari kvenna, síðast árið 2018, á meðan Þróttur leikur til úrslita í keppninni í fyrsta skipti í sögu félagsins. Fyrirliðar beggja liða, þær Ásta Eir Árnadóttir hjá Breiðabliki og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir hjá Þrótti, kveðast afar spenntar fyrir viðureigninni. »62 Stóra stundin rennur upp á morgun ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.