Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Invacare Colibri
Létt og nett rafskutla
sem auðvelt er að taka
sundur og setja í bíl
RAFSKUTLUR
Upplifðu frelsi
og aukin tækifæri
Hámarkshraði 8 km/klst
Hámarksdægni 16 km
Verð 269.000 kr.
Félagsstofnun stúdenta áformar
byggingu nýrra húsa í Skuggahverfi í
Reykjavík en í hverfinu hefur FS
leigt út íbúðir allt frá árinu 2006.
Í þremur nýjum húsum sem Fé-
lagsstofnun stúdenta áformar að
byggja í Skuggahverfinu verða 24
leigueiningar en ekki 122 eins og fram
kom í frétt Morgunblaðsins sl. laug-
ardag. Heildarfjöldi leigueininga
verður 122 að framkvæmdum lokn-
um. Þetta er hér með leiðrétt og beð-
ist velvirðingar á misherminu.
Forhönnun húsanna er lokið, upp-
lýsir Rebekka Sigurðardóttir, upplýs-
ingafulltrúi Félagsstofnunar stúd-
enta. Utanhússklæðningar og litir
verða í samræmi við byggðina í kring,
þök húsa við Vitastíg hallandi með
kvistum eins og þekkist í hverfinu en
á húsi við Lindargötu verður þak með
torfi. Lóð verður einnig lagfærð og
gerð vistleg með útisvæði en engin
aðstaða eða gróður er á lóð Skugga-
garða í dag, segir Rebekka.
Lindargata 44 verður rifin enda er
húsið í slæmu ástandi og óhentugt. Í
stað þess kemur hús með 10 stúdíó-
íbúðum og samkomusal á jarðhæð
sem nýtast mun öllum íbúum Skugga-
garða. Útlit hússins skal falla vel að
stúdentagörðunum sem umlykja það.
Framan við húsið verða settir djúp-
gámar. Verður lóðin talsvert falllegri
og snyrtilegri þegar sorpgámar sem
nú eru ofanjarðar á miðri lóðinni
hverfa. Þá má reikna með minna
ónæði vegna sorplosunar í götunni.
Á Vatnsstíg verður hús nr. 10 rifið,
enda ónýtt. Hús á lóð nr. 12 verður
fært á lóð nr. 10. Verður það ekki nýtt
af FS. FS mun hins vegar byggja tvö
ný hús á Vatnsstíg. Verða þau í sam-
ræmi við umhverfið og eldri bygging-
ar á svæðinu. Minjastofnun hefur
veitt ráðgjöf/umsögn í gegnum ferlið.
sisi@mbl.is
Útlit í samræmi
við önnur hús
- FS byggir hús í Skuggahverfinu
Morgunblaðið/sisi
Lindargata Eitt húsanna sem FS
hefur byggt í Skuggahverfinu.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Viðbygging við elsta stúdentagarð
háskólastúdenta, Gamla Garð, verð-
ur vígð í dag. Það gera Isabel Alej-
andra Díaz og Björn Bjarnason, nú-
verandi og fyrrverandi forsetar
Stúdentaráðs Háskóla Íslands, en
Björn var forseti SHÍ þegar Fé-
lagsstofnun stúdenta var stofnuð árið
1968.
Um er að ræða tvær byggingar
og þar eru 69 einstaklingsherbergi
með sér salernum. Þá eru þar setu-
stofur, samkomusalur og sameigin-
leg eldhúsaðstaða.
Borgarráð samþykkti í ágúst
2019 deiliskipulag fyrir svæðið byggt
á tillögu Andrúms arkitekta. Stúd-
entaíbúðirnar eru á reit á horni Suð-
urgötu og Hringbrautar og afmark-
ast af þeim götum til norðurs og
austurs og af Sæmundargötu til suð-
urs og vesturs. Lóðin er á eignarlandi
Háskóla Íslands.
Gamli Garður var byggður árin
1933-34 og nýttur sem stúdenta-
íbúðir/sumargisting. Hinn þjóðþekkti
arkitekt Sigurður Guðmundsson
teiknaði húsið. Fyrstu stúdentarnir
fluttu þangað inn haustið 1934.
Í tillögu Andrúms arkitekta að
viðbyggingunni var lagt upp með að
hún félli vel að núverandi byggingum
á háskólasvæðinu. Dregið var til
muna úr umfangi byggingarmagns-
ins frá fyrstu áformum þannig að
byggingar sem eru fyrir á svæðinu
njóta sín áfram. Í greinargerð And-
rúms segir: „Í því sambandi skiptir
mestu að álmurnar tvær með her-
bergjum nemenda liggja samsíða
meginálmum Gamla Garðs og Þjóð-
minjasafnsins og styrkja með því þá
formheild og hrynjandi sem einkenn-
ir þessar tvær byggingar í götumynd
Hringbrautar.“
Vígslan í dag fer fram með af-
hjúpun listaverks sem Félagsstofnun
stúdenta færir Stúdentaráði Háskóla
Íslands að gjöf í tilefni 100 ára af-
mælis ráðsins á síðasta ári. Er það
tileinkað hagsmunabaráttu stúdenta.
Verkið sem er 2,10 x 7 metrar að
stærð er eftir Helga Þórsson mynd-
listarmann, útfært af Rúnu Kristins-
dóttur.
„Nýr“ Gamli Garður
verður vígður í dag
Morgunblaðið/sisi
Nýbyggingar Nýr Gamli Garður stendur fyrir austan eldri bygginguna, á horni Hringbrautar og Sæmundargötu.
- Við bætast 69 einstaklingsherbergi fyrir háskólastúdenta
Morgunblaðið/Ófeigur
Gamli Garður Stílhrein bygging
sem tekin var í notkun árið 1934.
Samband íslenskra sjóminjasafna
veitti í vikunni þremur mönnum við-
urkenningu fyrir farsæl störf á sviði
sjó- og strandminja um áratuga
skeið. Segir í fréttatilkynningu að
þeir Geir Hóm, Hafliði Aðalsteinsson
og Þór Magnússon hafi starfað hver
á sínu sviði en allir skilað sérlega
drjúgu og merku lífsverki.
Geir Hólm varð safnstjóri Sjó-
minjasafns Austurlands á Eskifirði
1982 og starfaði við safnið til 75 ára
aldurs 2008 eða í 26 ár. Hann var
meðal annars ötull við söfnun sjó-
minja á þeim tíma og gerði safnið að
einu af merkustu sjóminjasöfnum
landsins, segir í fréttinni.
Hafliði Aðalsteinsson hefur verið
starfandi tréskipasmiður alla tíð.
Hann hefur smíðað nokkurn fjölda
báta og einnig og ekki síst unnið að
viðgerð og endurgerð eldri báta.
Hafliði var stofnfélagi og í forystu
fyrir Félag áhugamanna um Báta-
safn Breiðafjarðar á Reykhólum.
Þór Magnússon var þjóðminja-
vörður á árunum 1968-2000. Eitt af
þeim sviðum sem hann lét sig miklu
varða var sjóminjar og bátavarð-
veisla, segir m.a. í fréttatilkynningu.
Viðurkenningar Helgi Máni Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra
sjóminjasafna, Hafliði Már Aðalsteinsson, Geir Hólm og Þór Magnússon.
Þökkuð störf að
sjó- og strandminjum
Fimmtíu kórónuveirusmit greindust
innanlands í sýnatöku sl. þriðjudag,
samkvæmt uppfærðum tölum á co-
vid.is frá í gær. Þar af voru 26 í
sóttkví við greiningu eða 52 prósent
og 24 greindust utan sóttkvíar.
Af smituðum sem greindust inn-
anlands voru 24 fullbólusettir og 26
óbólusettir.
2.866 sýni voru tekin og var hlut-
fall jákvæðra sýna 6,64 prósent.
Alls voru 1.632 í sóttkví í gær, 390 í
skimunarsóttkví og 448 í einangrun.
Í fyrradag voru 1.562 í sóttkví og 451
í einangrun.
45 greindust í einkennasýnatökum
og fimm í sóttkvíar- og handahófs-
sýnatökum Fjórir voru á sjúkrahúsi í
gær með Covid-19, sem er einum
færri en daginn áður, þar af einn á
gjörgæslu.
Fimm greindust með Covid-19 við
landamæraskimun þar sem þrír voru
fullbólusettir en tveir óbólusettir.
50 veirusmit og um
helmingur í sóttkví
Morgunblaðið/Eggert
Skimun Veiran er ekki á útleið.