Morgunblaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Meirihluti Hæstiréttar staðfesti dóm
Landsréttar um að landsvæðið Þór-
eyjartún skyldi undiropið beinum
eignarrétti Sjálfseignarstofnunar-
innar Oks, m.a. með vísan til lýsinga á
landnámi Skalla-Gríms í Landnámu.
Með því ógilti Hæstiréttur ákvæði í
úrskurði óbyggðanefndar frá árinu
2016 þar sem svæðið var flokkað sem
þjóðlenda í afréttareigu Oks.
Sjálfseignarstofnunin Ok freistaði
þess að hnekkja ákvæðinu og fá bein-
an eignarrétt yfir landinu en hluti
ágreiningsins sneri að því hvort land-
ið hefði orðið hluti af jörðinni Hrísum
sem gekk á milli Reykholtskirkju og
sveitarfélags.
Hæstiréttur féllst á kröfu Oks,
meðal annars með vísan til þess að
óbyggðanefnd hafði úrskurðað að-
liggjandi jarðir, Lundartungu og
Oddstaðatungu, sem eignarlönd sem
hefðu verið numin í öndverðu: „Þrátt
fyrir að hinar ýmsu gerðir Land-
námu af landnámi á þessu svæði séu
ekki að öllu leyti glöggar og samrým-
anlegar verður sú ályktun dregin af
þeim að allar Þóreyjartungur, sem
liggja milli Flókadalsár í vestri og
norðri og Syðri-Sandfellskvíslar í
suðri, eins og þær hafa verið afmark-
aðar í máli þessu, hafi í upphafi til-
heyrt hinu víðfeðma landnámi Skalla-
Gríms.“
Dómurinn klofnaði í tvennt
Tveir dómarar skiluðu sératkvæði
en þau Björg Thorarensen og Bene-
dikt Bogason, forseti Hæstaréttar,
sögðu samanburð við aðliggjandi
svæði ekki geta sagt alla söguna.
Samanburður við aðliggjandi svæði
væri því „aðeins einn af mörgum
þáttum í heildarmati en kemur ekki í
stað kröfu um að efnislega áþekkar
heimildir séu til stuðnings eignar-
haldi á samliggjandi landsvæðum“.
baldurb@mbl.is
Skalla-Grímur
gerði útslagið
- Vísað til lýsinga Landnámu á landnámi
Morgunblaðið/Þorkell
Dómur Hæstaréttar Landnámabók
er varðveitt í Árnastofnun.
Oddur Þórðarson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Inga Þóra Pálsdóttir
Fullt var út úr dyrum er setningar-
athöfn Arctic Circle-ráðstefnunnar
hófst klukkan eitt í Hörpu í gær.
Um 1.300 stjórnmálamenn, sér-
fræðingar og vísindamenn, emb-
ættismenn, fulltrúar frumbyggja
og fólk úr viðskiptalífinu frá yfir 50
löndum sækja ráðstefnuna að þessu
sinni sem lýkur á laugardagskvöld.
Létt var yfir Ólafi Ragnari
Grímssyni, formanni stjórnar Arc-
tic Circle, sem hóf ræðu sína á:
„Gott fólk, okkur tókst þetta.“
Uppskar hann lófatak viðstaddra
enda kom kórónuveirufaraldurinn í
veg fyrir að ráðstefnan í fyrra færi
fram auk þess sem fjöldi málþinga
undir merkjum hennar fór aðeins
fram í gegnum fjarskiptabúnað.
Hnattræn hamfarahlýnun er
mannanna verk og þess vegna hvíl-
ir það á mannkyninu að bregðast
við og snúa þróuninni jörðinni í vil.
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra í opnunarávarpi
sínu. Katrín sagði að vísindamenn
væru ómyrkir í máli þegar þeir
segðu að hamfarahlýnun væri stað-
reynd. Kvaðst hún telja mikilvægt
að eiga samtal um málefni norður-
slóða, í stað þess að fara fram með
hernaðarbrölti og stríðsrekstri. Því
fagnaði hún því að ráðstefnan færi
fram í dag.
„Er von til framtíðar?“ spurði
Katrín í ræðu sinni. „Menn eru
ábyrgir fyrir stöðunni og menn
geta lagað hana. Ég er viss um að
vísindin geti breytt stöðunni,“ sagði
Katrín.
Vill samning við Íslendinga
Það vakti töluverða athygli fund-
argesta Arctic Circle er Lisa Mur-
kowski, öldungadeildarþingmaður
Alaska-ríkis á Bandaríkjaþingi,
lýsti því yfir á málþingi um nýja
stefnu Bandaríkjanna á norður-
slóðum að full ástæða væri til að
brýna fyrir ríkisstjórn Joe Bidens,
forseta Bandaríkjanna, mikilvægi
fríverslunarsamnings Bandaríkj-
anna við Ísland. Þá sagði hún jafn-
framt að vakin hefði verið athygli
Biden-stjórnarinnar á þessu.
Murkowski sagði áhuga Banda-
ríkjanna á norðurslóðum hafa vaxið
mikið á undanförnum árum og sú
þróun muni halda áfram á komandi
árum óháð því hver sitji í Hvíta
húsinu. „Áhugi Bandaríkjanna á
norðurslóðum hefur breyst alger-
lega frá því að við hófum þessa veg-
ferð,“ sagði hún og vísaði til upp-
hafs Arctic Circle-ráðstefnunnar,
en Murkowski hefur sótt hana frá
upphafi.
„Fæstir áttuðu sig á að Banda-
ríkin eru norðurslóðaríki og á það
við embættismenn, stjórnmála-
menn og almenning,“ sagði Mur-
kowksi. Sú staða væri nú breytt.
Það sæist bersýnilega í ráðstöfun
fjármagns til málaflokksins og því,
að komið hefði verið upp sérstakri
skrifstofu innan bandarísku utan-
ríkisþjónustunnar um málefni
norðurslóða, stýrihóp í Hvíta hús-
inu og að stofnaðir hefðu verið
rannsóknasjóðir. Jafnframt hefði
verið fjárfest í smíði ísbrjóta og
ræðismannaskrifstofa opnuð í
Nuuk á Grænlandi.
Gera kröfur til Kína
Þegar rætt var um aðkomu Kín-
verja að málefnum norðurslóða
sagði Jim Dehart, umsjónarmaður
norðurslóðamála hjá banadaríska
utanríkisráðuneytinu, að „Kína
sýnir vilja til auka viðveru sína með
tilliti til öryggismála. Frá okkar
sjónarhóli er það hlutverk ríkja á
norðurslóðum að stýra svæðinu.
[…] Við leggjumst ekki gegn öllum
fjárfestingum frá Kína, en förum
fram á að gerðar séu strangar kröf-
ur og farið eftir alþjóðalögum.“
Húsfyllir á Arctic Circle í Hörpu
- Bandarískur öldungadeildarþingmaður vill hefja viðræður um fríverslunarsamning milli Banda-
ríkjanna og Íslands - 1.300 fundargestir - Katrín Jakobsdóttir lagði áherslu á loftslagsmál
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra kveðst ánægður
með hugmyndir Lisu Mur-
kowski öldungadeildarþing-
manns um að Bandaríkin ættu
að gera fríverslunarsamning
við Ísland.
„Lisa er auðvitað mikill Ís-
landsvinur og einn af þeim öld-
ungadeildarþingmönnum sem
við höfum rætt þetta mikið við.
Við höfum fengið nokkuð stöð-
ugar fréttir af því að Lisa, og
fleiri öldungadeildarþingmenn,
séu að ýta á það að gerður
verði fríverslunarsamningur við
Ísland. Þetta skiptir verulega
miklu máli og er mikil breyting
frá því sem var,“ sagði Guð-
laugur við mbl.is í gær.
Yfirlýsingin
skipti máli
FRÍVERSLUN
Morgunblaðið/Eggert
Ráðstefnugestir Um 1.300 manns frá yfir 50 löndum sækja ráðstefnu Arctic Circle, sem hófst í Hörpu í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Setið fyrir svörum Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, og Ólafur
Ragnar Grímsson, stjórnarformaður Arctic Circle, svara spurningum.