Morgunblaðið - 15.10.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 15.10.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Meirihluti Hæstiréttar staðfesti dóm Landsréttar um að landsvæðið Þór- eyjartún skyldi undiropið beinum eignarrétti Sjálfseignarstofnunar- innar Oks, m.a. með vísan til lýsinga á landnámi Skalla-Gríms í Landnámu. Með því ógilti Hæstiréttur ákvæði í úrskurði óbyggðanefndar frá árinu 2016 þar sem svæðið var flokkað sem þjóðlenda í afréttareigu Oks. Sjálfseignarstofnunin Ok freistaði þess að hnekkja ákvæðinu og fá bein- an eignarrétt yfir landinu en hluti ágreiningsins sneri að því hvort land- ið hefði orðið hluti af jörðinni Hrísum sem gekk á milli Reykholtskirkju og sveitarfélags. Hæstiréttur féllst á kröfu Oks, meðal annars með vísan til þess að óbyggðanefnd hafði úrskurðað að- liggjandi jarðir, Lundartungu og Oddstaðatungu, sem eignarlönd sem hefðu verið numin í öndverðu: „Þrátt fyrir að hinar ýmsu gerðir Land- námu af landnámi á þessu svæði séu ekki að öllu leyti glöggar og samrým- anlegar verður sú ályktun dregin af þeim að allar Þóreyjartungur, sem liggja milli Flókadalsár í vestri og norðri og Syðri-Sandfellskvíslar í suðri, eins og þær hafa verið afmark- aðar í máli þessu, hafi í upphafi til- heyrt hinu víðfeðma landnámi Skalla- Gríms.“ Dómurinn klofnaði í tvennt Tveir dómarar skiluðu sératkvæði en þau Björg Thorarensen og Bene- dikt Bogason, forseti Hæstaréttar, sögðu samanburð við aðliggjandi svæði ekki geta sagt alla söguna. Samanburður við aðliggjandi svæði væri því „aðeins einn af mörgum þáttum í heildarmati en kemur ekki í stað kröfu um að efnislega áþekkar heimildir séu til stuðnings eignar- haldi á samliggjandi landsvæðum“. baldurb@mbl.is Skalla-Grímur gerði útslagið - Vísað til lýsinga Landnámu á landnámi Morgunblaðið/Þorkell Dómur Hæstaréttar Landnámabók er varðveitt í Árnastofnun. Oddur Þórðarson Gunnlaugur Snær Ólafsson Inga Þóra Pálsdóttir Fullt var út úr dyrum er setningar- athöfn Arctic Circle-ráðstefnunnar hófst klukkan eitt í Hörpu í gær. Um 1.300 stjórnmálamenn, sér- fræðingar og vísindamenn, emb- ættismenn, fulltrúar frumbyggja og fólk úr viðskiptalífinu frá yfir 50 löndum sækja ráðstefnuna að þessu sinni sem lýkur á laugardagskvöld. Létt var yfir Ólafi Ragnari Grímssyni, formanni stjórnar Arc- tic Circle, sem hóf ræðu sína á: „Gott fólk, okkur tókst þetta.“ Uppskar hann lófatak viðstaddra enda kom kórónuveirufaraldurinn í veg fyrir að ráðstefnan í fyrra færi fram auk þess sem fjöldi málþinga undir merkjum hennar fór aðeins fram í gegnum fjarskiptabúnað. Hnattræn hamfarahlýnun er mannanna verk og þess vegna hvíl- ir það á mannkyninu að bregðast við og snúa þróuninni jörðinni í vil. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í opnunarávarpi sínu. Katrín sagði að vísindamenn væru ómyrkir í máli þegar þeir segðu að hamfarahlýnun væri stað- reynd. Kvaðst hún telja mikilvægt að eiga samtal um málefni norður- slóða, í stað þess að fara fram með hernaðarbrölti og stríðsrekstri. Því fagnaði hún því að ráðstefnan færi fram í dag. „Er von til framtíðar?“ spurði Katrín í ræðu sinni. „Menn eru ábyrgir fyrir stöðunni og menn geta lagað hana. Ég er viss um að vísindin geti breytt stöðunni,“ sagði Katrín. Vill samning við Íslendinga Það vakti töluverða athygli fund- argesta Arctic Circle er Lisa Mur- kowski, öldungadeildarþingmaður Alaska-ríkis á Bandaríkjaþingi, lýsti því yfir á málþingi um nýja stefnu Bandaríkjanna á norður- slóðum að full ástæða væri til að brýna fyrir ríkisstjórn Joe Bidens, forseta Bandaríkjanna, mikilvægi fríverslunarsamnings Bandaríkj- anna við Ísland. Þá sagði hún jafn- framt að vakin hefði verið athygli Biden-stjórnarinnar á þessu. Murkowski sagði áhuga Banda- ríkjanna á norðurslóðum hafa vaxið mikið á undanförnum árum og sú þróun muni halda áfram á komandi árum óháð því hver sitji í Hvíta húsinu. „Áhugi Bandaríkjanna á norðurslóðum hefur breyst alger- lega frá því að við hófum þessa veg- ferð,“ sagði hún og vísaði til upp- hafs Arctic Circle-ráðstefnunnar, en Murkowski hefur sótt hana frá upphafi. „Fæstir áttuðu sig á að Banda- ríkin eru norðurslóðaríki og á það við embættismenn, stjórnmála- menn og almenning,“ sagði Mur- kowksi. Sú staða væri nú breytt. Það sæist bersýnilega í ráðstöfun fjármagns til málaflokksins og því, að komið hefði verið upp sérstakri skrifstofu innan bandarísku utan- ríkisþjónustunnar um málefni norðurslóða, stýrihóp í Hvíta hús- inu og að stofnaðir hefðu verið rannsóknasjóðir. Jafnframt hefði verið fjárfest í smíði ísbrjóta og ræðismannaskrifstofa opnuð í Nuuk á Grænlandi. Gera kröfur til Kína Þegar rætt var um aðkomu Kín- verja að málefnum norðurslóða sagði Jim Dehart, umsjónarmaður norðurslóðamála hjá banadaríska utanríkisráðuneytinu, að „Kína sýnir vilja til auka viðveru sína með tilliti til öryggismála. Frá okkar sjónarhóli er það hlutverk ríkja á norðurslóðum að stýra svæðinu. […] Við leggjumst ekki gegn öllum fjárfestingum frá Kína, en förum fram á að gerðar séu strangar kröf- ur og farið eftir alþjóðalögum.“ Húsfyllir á Arctic Circle í Hörpu - Bandarískur öldungadeildarþingmaður vill hefja viðræður um fríverslunarsamning milli Banda- ríkjanna og Íslands - 1.300 fundargestir - Katrín Jakobsdóttir lagði áherslu á loftslagsmál Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra kveðst ánægður með hugmyndir Lisu Mur- kowski öldungadeildarþing- manns um að Bandaríkin ættu að gera fríverslunarsamning við Ísland. „Lisa er auðvitað mikill Ís- landsvinur og einn af þeim öld- ungadeildarþingmönnum sem við höfum rætt þetta mikið við. Við höfum fengið nokkuð stöð- ugar fréttir af því að Lisa, og fleiri öldungadeildarþingmenn, séu að ýta á það að gerður verði fríverslunarsamningur við Ísland. Þetta skiptir verulega miklu máli og er mikil breyting frá því sem var,“ sagði Guð- laugur við mbl.is í gær. Yfirlýsingin skipti máli FRÍVERSLUN Morgunblaðið/Eggert Ráðstefnugestir Um 1.300 manns frá yfir 50 löndum sækja ráðstefnu Arctic Circle, sem hófst í Hörpu í gær. Morgunblaðið/Eggert Setið fyrir svörum Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, og Ólafur Ragnar Grímsson, stjórnarformaður Arctic Circle, svara spurningum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.