Morgunblaðið - 15.10.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021
SÖFNUNARÁTAK
Á RAFTÆKJUM í október
Í tilefni af alþjóðlegu átaki í söfnun raftækja 14. október
Við hvetjum landsmenn til að skila inn raftækjum, ljósaperum
og rafhlöðum til endurvinnslu á næsta gámasvæði.
Lestu meira um átakið á: www.gamafelagid.is
HÚN HAFÐI SIÐAÐ HANN VEL TIL – EN
ÞAÐ KOSTAÐI MIKIÐ AF SÆTINDUM.
„VINSAMLEGAST FARÐU ÚR SKÓNUM.
ÉG VAR AÐ DREYFA HREINUM
DAGBLAÐAPAPPÍR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... oft einfalt að tjá.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG VAR AÐ GRAMSA Í
RUSLAGÁMUNUM Í MORGUN…
OG FESTI HAUSINN Á MÉR Í
TÚNFISKDÓS
BARA EF
ÉG GÆTI
TOPPAÐU
ÞAÐ
SJÁÐU! SEKKUR AF PENINGUM! VIÐÆTTUM AÐ FINNA
EIGANDANN!
JÁ, ÞAÐ ER RÉTT
HJÁ ÞÉR!
HANN GÆTI ÁTT
MEIRA!
Tangófélags Reykjavíkur, en ég hef
tekið þátt í starfinu þar sem plötu-
snúður og við Sigga höfum verið
ákafir tangódansarar í um sjö ár.
Ég hef, með öðrum störfum, ætíð
haldið áfram að stunda myndlist, hef
aldrei náð að hætta í henni. Ég rek
nú um þessar mundir eigin mynd-
listarvinnustofu úti á Granda þar
sem ég býð gestum reglulega í opið
hús.“ Myndir Hlyns og verk, teikn-
ingar, málverk, ljósmyndir og vídeó-
verk, hafa verið sýnd víða, í Tékk-
landi, Danmörku, Argentínu, auk
þátttöku hans í fjölda sýninga hér
heima. Listasafn Íslands og Lista-
safn Reykjavíkur eiga bæði verk
eftir Hlyn.
Fjölskylda
Eiginkona Hlyns er Sigríður D.
Þorvaldsdóttir, f. 30.4. 1960, aðjúnkt
í íslensku við Háskóla Íslands. Þau
eru búsett við Skólavörðuholt í
Reykjavík. Foreldrar Sigríðar voru
hjónin Þorvaldur Kristmundsson
arkitekt, f. 8.9. 1922, d. 11.1. 2011, og
Sólveig Gísladóttir hjúkrunarkona,
f. 5.11. 1922, d. 4.4. 2007. Fyrri kona
Hlyns er Hervör Alma Árnadóttir, f.
7.7. 1963, lektor í félagsráðgjöf við
HÍ.
Börn Hlyns og Ölmu eru 1)
Hrund, f. 20.12. 1990, upptökustjóri,
búsett í Reykjavík. Maki: Sverrir
Sigfússon kvikmyndagerðarmaður;
2) Ívar, f. 5.9. 1997, myndlistarnem-
andi, búsettur í Reykjavík. Maki:
Birna Karlsdóttir, f. 10.4. 2000, nem-
andi í samtímadansi.
Systkini Hlyns eru: Linda Björk
Helgadóttir, f. 25.5. 1964, læknir í
Ósló, og Ástþór Helgason, f. 1.2.
1975, gullsmiður í Reykjavík.
Foreldrar Hlyns eru hjónin Sig-
fús Helgi Scheving Karlsson, f. 30.4.
1940, alþjóðamarkaðsfræðingur og
Ásdís Munda Ástþórsdóttir, f. 20.12.
1941, fyrrv. verslunarkona. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Hlynur
Helgason
Anna Ásdís Johnsen
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Gísli Jóhannsson Johnsen
stórkaupmaður í
Vestmannaeyjum
Sigríður Jóhanna Gísladóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Ástþór Matthíasson
lögfræðingur í Vestmannaeyjum
Ásdís Munda
Ástþórsdóttir
fv. verslunarkona,
bús. í Kópavogi
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík.
Matthías Þórðarson
útgerðarmaður og rithöfundur í Reykjavík
Sesselja Sigurðardóttir Scheving
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Sigfús Scheving
stýrimaður í Vestmannaeyjum
Guðrún Sigríður Scheving
Sigfúsdóttir
verkakona í Vestmannaeyjum
Karl Óskar Jón Björnsson
bakarameistari í Vestmannaeyjum
Sigríður Jónsdóttir
bústýra í Reykjavík
Björn Jónsson
bakarameistari í Reykjavík
Ætt Hlyns Helgasonar
Sigfús Helgi
Scheving Karlsson
alþjóðamarkaðsfræðingur,
bús. í Kópavogi
Þetta er gátan mikla, – Eyjólfur
Ó. Eyjólfsson yrkir á Boðnar-
miði:
Þá frægu svo mikils ég met
og margan á goðstallinn set
en mest þó þann snjalla
sem ærði hér alla
og engin man lengur hvað hét.
Ármann Þorgrímsson spáir í
veðrið;
Skuggar lengjast, lækkar sól
lægðir yfir fara
verður lítið vetrar skjól
veðrin harðna bara.
Ólafur Stefánsson skrifar og kall-
ar „Vellíðunarhormón“: „Skáld er
ég ei,“ sagði Jónas, og Steinn tók
það upp eftir honum. Svo er líka
sagt að margur sé skáld þótt hann
yrki ekki.
Hvað sem um það er, þá fær
margur maðurinn eitthvað út úr því
að reyna að forma hugsanir sínar
svo úr verði eitthvað annað en dag-
legt mál. Margur kallaður, auðvit-
að.
Það er heilmikið hormónaflæði,
hrifning og fullnægja bæði,
er kveðirðu ljóð,
– kannski’ ekki góð,
en nothæf á næstlægu svæði.
Anton Helgi Jónsson yrkir limr-
una „Geimferðalimra dagsins í boði
kafteinsins Kirk“. Hún er undir
mynd af fjórmenningum og yfir-
skriftin er „Vandræði í könnunar-
leiðangri“:
Jú, flest virðist Kringlunni flott í
og framboðið verslunum gott í
en blankheit mig hrjá
ég biðja þig má
að bíma mig upp, kæri Scotty.
Mér þykir þetta góð limra, þótt
ég kannist ekki við né skilji orða-
sambandið „að bíma upp“.
Guðmundur Stefánsson skrifar:
„Hlustaði (1995) um stund á ræður
á Búnaðarþingi, sem þá mun hafa
staðið í viku. Ræðumaður einn
sagði að „þann akur þyrfti að
kemba“. Þá varð þetta til“:
Hér er ekki í vinnu vægð,
verkin áfram ganga.
Akur kembdur, ullin plægð
eina viku stranga.
Um kaldlyndan karl og önugan
orti ung stúlka, H.J.:
Þána myndi þankinn minn,
þótt hann væri freðinn,
yndi ég ástarylinn þinn,
yndislegi Héðinn!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gátan mikla og
vellíðunarhormón