Morgunblaðið - 25.10.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.10.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 5. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 250. tölublað . 109. árgangur . UNGMENNA- FÉLAGSANDI LIFIR VEL MUNCH-SAFNIÐ OPNAR LOKS DYR SÍNAR SALAH STÝRÐI NIÐURLÆGINGUNNI Í MANCHESTER 28 ÞÚSUND VERK 28 0-5 27JÓHANN STEINAR 11 Sigurður Bogi Sævarsson Inga Þóra Pálsdóttir „Mér sýnist margt benda til þess að eldgosið sé alveg á lokametrum. Enn mælist þó minniháttar útstreymi gass úr gígnum og hrauninu, sem segir okkur að enn leynist þarna líf, þótt lítið sé,“ segir Þorvaldur Þórð- arson, eldfjallafræðingur við HÍ, í samtali við Morgunblaðið. Eldgosinu á Reykjanesskaga, sem hófst 19. mars síðastliðinn, verður ekki aflýst fyrr en eftir að minnsta kosti þriggja mánaða stopp. Nú eru liðnar fimm vikur frá því að hraun rann síðast við Fagradalsfjall. Því verður beðið með yfirlýsingar í að minnsta kosti tæpa tvo mánuði enn. Að þrír mánuðir líði frá því að elds- umbrotum lýkur uns formleg yfirlýs- ing um goslok er gefin út er í sam- ræmi við gildandi viðmið. Nefna má að í eldgosinu í Eyjafjallajökli árið 2010 varð umbrota þar síðast vart dagana 6. og 7. júní. Hins vegar var liðið langt á október það ár þegar jarðvísindamenn settu lokapunkt í söguna. „Þegar kraftur í gosinu við Grinda- vík var mestur hefur hraunstreymið verið á bilinu 5-10 rúmmetrar á sek- úndu. Til að gosrás haldist opin þarf straumur glóandi hrauns að vera þrír rúmmetrar á hverri sekúndu og framleiðslan við Fagradalsfjall er núna komin langt þar undir. Út- streymi gosefna nú er sáralítið,“ seg- ir Þorvaldur. Jarðhræringar við Keili sem mældust á dögunum gefi vís- bendingar um að enn sé kvika í jörðu á Reykjanesskaga, en hún sé þó í lág- marki. „Að líkja eldgosinu við sjúk- ling sem er enn með lífsmarki en er í öndunarvél, er samlíking sem gæti átt við,“ segir Þorvaldur. Naut góðs af „Flestir bæjarbúar væru ánægðir ef þessu væri lokið,“ sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, í samtali við Mbl.is í gær. Ferðaþjón- ustan í bænum hafi notið góðs af gos- inu en mengun og hættan sem fylgdi hraunflæði hafi verið til baga. Telur eldgosið vera alveg á lokametrum - Útstreymi gass minniháttar - Þrír mánuðir líði til loka Morgunblaðið/Eggert Eldgos Engin glóð hefur sést við Fagradalsfjall síðustu vikurnar. „Það eru auðvitað rosaleg vonbrigði að vera stoppaður með þessum hætti en ég er bara sannfærður um að við skoðun verðum við í fullum rétti og byrjum vonandi sem fyrst aftur,“ segir Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda NRS. Fyrsta uppboð fyrirtækisins átti að halda á föstudag en þann sama dag féllst sýslumaður á kröfu Reiknistofu fiskmarkaða ehf. um lögbann á starfsemi NRS. Reiknistofan hefur hingað til verið ein um fiskmarkaðinn á Íslandi, en starfsemi NRS felst í því að veita sömu þjónustu, þ.e.a.s. sjá um upp- boð á fiski, innheimtu, uppgjör og önnur tengd verkefni. NRS stefnir auk þess á að bjóða fram nýjung í kaupum og sölu, svokallað tilboðs- kerfi. Þannig var reiknistofan komin með keppinaut, uns lögbannið tók gildi, en nú færist öll sala aftur til reiknistofunnar, þar til annað kemur í ljós. Kröfur RSF byggjast helst á því að Eyjólfur hafi ekki haft heimild til að nýta þekkingu sína með þess- um hætti, í þágu keppinautar, eftir þrjátíu ára starf fyrir Reiknistofu fiskmarkaða ehf. Þetta telur Eyjólf- ur af og frá en bíður niðurstöðu dómstóla. »4 Lögbann á samkeppnina - Fyrsta uppboð varð að fyrsta lögbanni Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Sala RSF hefur verið eitt um að reka fiskuppboðsmarkað hérlendis. Sem framandleg geimvera, jafnvel Marsbúi, birtist fallhlífarstökkvari fólki þegar sá kom af himnum ofan og lenti á Laugarnestanganum í Reykjavík í gær. Hægur vindur hélt fallhlíf stökkvarans vel á lofti, svo lendingin varð dún- mjúk enda þótt hátt væri af himnum stokkið. Veður var hið besta í borginni um helgina og því tilvalið að stunda útivist; ganga, hlaupa, hjóla – eða svífa um loftin blá. Fjör í fallhlífarstökki á fallegum haustdegi í borginni Morgunblaðið/Óttar Geirsson Mjúklega lent á Laugarnestanganum _ Birgir Brynj- ólfsson hjá Ant- arctica Advisors segir að áður hafi þurft að hafa mikið fyrir því að sýna fram- takssjóðum fram á kosti fjárfest- inga í sjávar- útvegi en í dag hafi sjóðirnir sam- band að fyrra bragði í leit að góð- um fjárfestingartækifærum. Antarctica annaðist nýlega kaup bandarísks framtakssjóðs á þremur sjávarútvegsfyrirtækjum í Norður- Ameríku. Verða félögin sameinuð til að gera reksturinn hagkvæmari og nýta vaxtartækifæri betur. Birgir bendir á að aðkoma fjár- sterkra framtakssjóða geti verið stökkpallur út í heim fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og leið til að nýta íslenska þekkingu og reynslu á nýjum mörkuðum. »12 Birgir Brynjólfsson Framtakssjóðir sjá tækifæri í sjávarútvegi _ Kynjakvóti hefur verið tekinn upp í Verzlunarskóla Íslands þar sem ekki má vera innritað hærra hlutfall en 60 prósent af einu kyni. Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzl- unarskólans, segir í samtali við Morgunblaðið að ef horft sé aðeins til stigagjafar við innritun séu stúlk- ur 70 prósent innritaðra. Elísabet Siemsen, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir kynjahlutföll allt önnur í MR og ekki þörf á slíkum inngripum þar. Fleiri skólameist- arar taka í sama streng. »2 Verzlunarskólinn tek- ur upp kynjakvóta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.