Morgunblaðið - 25.10.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 25.10.2021, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 2021 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vefverslun brynja.is L Opið virka daga frá 9-18 lau frá 10-16 Lærisstandur Verð 8.890,- Í fyrstu greininni af sextán í Morgunblaðinu var komist þannig að orði: „Undirritaður mun sýna fram á í nokkrum greinum að framin hafa verið alvar- leg stjórnsýslubrot þar sem stærstu laxeldis- fyrirtæki Íslands höfðu mikla aðkomu að breyt- ingu nýgerðra fiskeld- islaga.“ Í greininni var rakið hvað hafði verið gert til að reyna að vekja at- hygli stjórnmálamanna á málinu án þess að þeir hefðu fyrir því að svara eða þakka fyrir ábendingarnar. Ítrekað hefur verið farið fram á að gerð verði opinber rannsókn, m.a. beiðni til stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis og umboðsmanns Alþingis, án þess að það hafi skilað árangri. Ólígarkar Eftir að hafa skrifað nokkar grein- ar í Morgunblaðið fékk ég ábendingu um að það sem væri verið að fjalla um væri skilgreint „Að fanga ríkis- valdið“ (e. state capture). Í því sam- bandi var einnig bent á: „Í umbreyt- ingarhagkerfum (e. transition economies) hefur spilling tekið á sig nýja mynd; hinir svokölluðu klíku- bræður, „ólígarkar“, vasast í stefnu- mótun stjórnvalda og móta jafnvel leikreglurnar sjálfir til að þjóna eigin hagsmunum og gefa sjálfum sér þannig einstakt forskot á aðra á markaði.“ Stefnumótunin Í greinunum hefur verið fjallað um hvernig íslenskir leppar erlendra fjárfesta hafa unnið með lobbíisma að því að ná miklum fjárhagslegum ávinningi, m.a. að koma sér í þá stöðu að vera helstu ráðgjafar stjórnvalda við stefnumótun í fiskeldi. Stjórnar- formenn Arnarlax og Fiskeldis Aust- fjarða voru í stefnumótunarhópnum þar sem fyrirhuguð stefnumótun stjórnvalda og atvinnugreinarinnar breyttist í að vera að stærstum hluta stefnumótun íslenskra leppa og er- lendra fjárfesta. Hindranir og tækifæri Vinna íslenskra leppa í stefnumót- uninni hefur miðast við að setja hindranir eða koma í veg fyrir að hindranir yrðu settar og í mjög stuttu máli má t.d. nefna: Blokkera: Til að geta haldið svæð- um var heimild gefin í lögum til að blokkera eldissvæði í a.m.k. fimm ár með það að yfirskini að það eigi að hefja eldi á ófrjóum laxi. – Þróun á ófrjóum laxi er búið að stunda í um 30 ár og ekkert sem bendir til að þeirri vinnu verði lokið á næstunni. Erlent eignarhald: Með því að koma í veg fyrir takmarkanir á erlent eignarhald laxeldisfyrirtækja var hægt að skrá þau á erlendan hluta- bréfamarkað, auka eftirspurnina og ná miklum fjárhagslegum ávinningi. Leiðin til ávinnings: Engar reglur um eignaraðild gáfu einum eða fáum erlendum aðilum möguleika á að eignast meirihluta í laxeldisfyrirtækjunum, verðleggja hlutabréfin, selja síðan ákveðinn hluta bréfanna við skráningu á erlendan hlutabréfamarkað og eiga þannig möguleika á ná til baka öllum þeim fjármunum sem búið var að leggja í félagið – og jafnvel eignast fyrir- tækið án þess að leggja í raun neina fjármuni til þess. Tryggja enn meiri ávinning: Unnið var á móti því að tak- markanir væru settar á stærð laxeldisfyrirtækja til að tryggja sem mestan fjárhagslegan ávinning. Úthlutunarkerfi: Komið var á áhættumati erfðablöndunar sem út- hlutunarkerfi fyrir laxeldisfyrirtæki í meirihlutaeigu erlendra aðila sem hefur ekkert eða lítið með umhverf- isvernd að gera. Fjárhagslegur ávinningur Íslenskir leppar og erlendir fjár- festar hafa náð og geta náð enn meiri fjárhagslegum ávinningi: Arnarlax getur verið með eldisleyfi að verðmæti rúmir 60 milljarðar króna. Fiskeldi Austfjarða getur verið með eldisleyfi að verðmæti um 45 millj- arðar króna. Heildarverðmæti eldisleyfa laxeld- isfyrirtækja gæti numið um 170 milljörðum króna. Framtíðarsýn Það má gera ráð fyrir enn meiri ávinningi ef stjórnvöld fara ekki að vinna sína heimavinnu og engin breyting verður gerð. Að óbreyttu getur framtíðarsýnin verið þessi: Mismunandi stefna: Eldisleyfi til sjókvíaeldis á laxi verði að mestu í eigu útlendinga en á sama tíma er mikil andstaða og hindranir fyrir er- lendri eignaraðild á sjávarútvegs- fyrirtækjum, laxveiðiám og bújörð- um. Hagnaðurinn fluttur út: Erlendir fjárfestar, sem fyrst komu að laxeld- isfyrirtækjunum og eignuðu sér auð- lindina „íslenskir firðir“, geta verið búnir að selja sín hlutabréf og ná miklum fjárhagslegum ávinningi sem byggist á verðmæti eldisleyfa. Mikill slagkraftur: Laxeldis- fyrirtæki í meirihlutaeigu erlendra aðila sameinuð í eitt fyrirtæki sem er þá þrisvar sinnum stærra en Brim og hefur þannig mikinn slagkraft til að fá sitt fram, bæði gagnvart litlum sveitarfélögum og ríkisvaldinu. Að lokum Það sem einkennir þetta mál er að opinberir starfsmenn, stjórnmála- menn og aðrir hafa verið misnotaðir eða hreinlega blekktir og því eðlilegt að þeir vilji ekki vekja mikla athygli á málinu. Uppbygging laxeldis á Ís- landi hefur tekið mið af því að ís- lenskir leppar og erlendir fjárfestar nái sem mestum fjárhagslegum ávinningi. Það sorglega er að við- gengist hafa vinnubrögð eins og tíðk- ast í vanþróuðum ríkjum. Þótt fram- gangurinn í þessu máli hafi verið lítill eða enginn verður haldið áfram að vekja athygli á því og koma ábend- ingum á framfæri til þeirra sem hafa vilja, vald og getu til að taka á spill- ingarmálum. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » „Ólígarkar“ vasast í stefnumótun stjórn- valda og móta jafnvel leikreglurnar sjálfir til að þjóna eigin hags- munum. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Lög um fiskeldi og ólígarkar Merkilegt hvað mikið er gert úr þess- ari mistalningu at- kvæða í NV- kjördæmi. Það eru engin álitamál uppi um framkvæmd sjálfra kosninganna og frágang kjörgagna í kjördeildum. At- kvæðatalningin á veg- um yfirkjörstjórnar kjördæmisins hefur verið leiðrétt með endurtalningu strax og vísbending um misræmi kom upp. Ekki ástæða til að ve- fengja þá niðurstöðu. Losaraleg umgengni í einhverjum atriðum með kjörgögn á talningarstað er hins vegar ámælisverð og getur eftir atvikum talist saknæm en það er hins vegar langsótt að farið hafi verið í kjörgögnin til þess að rugla í þeim. Þá hefði þurft einbeittan brotavilja til. Yfirkjörstjórnin hefur beðist afsökunar enda er ábyrgðin hennar. Sett á laggirnar rannsókn- arkjörnefnd til að skoða málið. Þar eiga allir þingflokkar fulltrúa sem munu skv. formanni nefndarinnar þurfa að halda marga fundi en til hróss skal það sagt að opnir fundir nefndarinnar með gestum eru til fyrirmyndar. En eins og þetta mál er vaxið hefði mátt leysa það í tveggja manna tali undir hlöðuvegg á nokkrum mínútum og tala svo bara um veðrið sem er óþægilega rysjótt þessa dagana. Þetta þykir sjálfsagt gáleysislegt tal en til hvers er landskjörstjórn ef ekki má treysta því að kjörbréfin sem hún gefur út séu lögmæt? Kosn- ingar til Alþingis eru þannig í raun þriggja þrepa verkefni. Rannsókn- arverkefni eins og það sem nú fer fram á vegum þingsins ætti fremur að heyra undir landskjörstjórn. Svo er það í fyllsta máta eðlilegt að kjörbréfanefnd Alþingis yfirfari kjörbréfin og þingið sjálft staðfesti gildi þeirra. Þar með væri þingið að lýsa yf- ir trausti sínu á nið- urstöðu landskjör- stjórnar um lögmæti kosninganna en ekki að taka sér sjálfdæmi um kjör sitt. Þannig sé ég tilganginn með þessu fyrirkomulagi. En það má alveg setja spurningarmerki við rannsóknarhlutverk þingsins þegar álita- mál koma upp. Verði kjörstjórnir hins vegar uppvísar að einhverju athæfi eða athafnaleysi sem ruglar niðurstöðu kosninga horfa mál öðruvísi við. Ekki er um slíkt að ræða nú. Ís- lendingar mega vera þakklátir fyr- ir að geta treyst því regluverki sem hér gildir um framkvæmd kosninga þótt gott megi lengi bæta. Næsta víst er að svo verði gert fyrir næstu kosningar. Óvilj- andi mistök fyrirgefum við þegar þau eru leiðrétt og afsök- unarbeiðnir tökum við til greina. Refsiverð háttsemi hlýtur hins veg- ar að vera lögreglunnar að rann- saka. Það er auðvitað leitt þegar taln- ingarmistök valda þeim ruglingi fyrir jöfnunarsætisþingmenn sem raun bar vitni; það skilur maður. En þá er einnig hægt að velta því fyrir sér hvort jöfnunarsætis- þingmenn séu nokkurn tíma kór- rétt kjörnir. Þær reglur sem þar um gilda eru viðleitni til að jafna vægi atkvæðanna á milli flokka og landshluta. Þess vegna væri skyn- samlegt fyrir jöfnunarsætis- kandídata að bíða með að fagna sigri þar til kjörbréf hafa verið gefin út. En vitanlega er meira en að segja það að slökkva undir væntingunum. Viljayfirlýsing kjósenda á kjör- daginn 25. september sl. liggur hins vegar fyrir samkvæmt gild- andi reglum. Yfirgnæfandi meiri- hluti kjósenda í NV-kjördæmi treystir niðurstöðunni í sínu kjör- dæmi skv. skoðanakönnun. Upp- kosning gengur því gegn vilja meirihluta kjósenda þar en mundi örugglega breyta niðurstöðunni frá fyrri kosningu; ekki bara í kjör- dæminu heldur einnig á landsvísu. Hverjum í hag eða óhag vitum við ekki fyrir fram en réttmæti niður- stöðunnar yrði eftir sem áður um- deilt vegna þess að þá skapast einnig tækifæri til að hafa áhrif á úrslit nýrra kosninga í ljósi þeirra fyrri. Þá er ekki ólíklegt að kæru- glaðir sjái sér leik á borði hvernig sem fer. Og aftur yrði allt togað og teygt til hins ýtrasta. Lítið hefur þó borið á umræðu um rétt kjós- enda í þessu samhengi öllu. Nið- urstaða kosninganna var þó skýr. Vilja kjósenda á kjördegi á ekki að virða að vettugi svo augljós sem hann var. En er ekki hindrunarlaust brott- hlaup nýkjörins þingmanns úr ein- um flokki í annan ríkari ástæða til uppkosningar? Nei víst ekki, því þingmenn hafa óskoraðan rétt til að hlaupast undan þeim merkjum sem þeir bjóða sig fram til og það bara að eigin geðþótta. En þetta er samt ekki einkamál þingmannsins. Skýrar pólitískt málefnalegar ástæður bjuggu ekki að baki hjá honum og athæfi hans er á skjön við vilja kjósenda í Suðurkjördæmi í nýafstöðnum kosningum. Það er lokaniðurstaða talningar í NV- kjördæmi ekki. Á að refsa kjósendum að ósekju fyrir hvernig þeir kusu? Eftir Jón G. Guð- björnsson » Lítið hefur þó borið á umræðu um rétt kjósenda í þessu sam- hengi öllu. Vilja kjós- enda á kjördegi á ekki að virða að vettugi svo augljós sem hann var. Jón G. Guðbjörnsson Höfundur er kjósandi í NV- kjördæmi. SMARTLAND MÖRTUMARÍU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.