Morgunblaðið - 26.11.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 278. tölublað . 109. árgangur .
HÁPUNKTUR
JÓLATÓN-
LISTARINNAR
SMÁKÖKUR,
SYKURPÚÐAR
OG SÆTINDI
GEITURNAR
EINS OG LITLIR
HESTAR
BLAÐAUKI 8 SÍÐUR SKRIFUÐU BÓK UM HESTA 12JÓLAÓRATÓRÍAN Í HÖRPU 72
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikill munur er á þeim kjörum sem
ríkið býður stofnendum svokallaðra
smávirkjana sem nýta land í eigu
ríkisins og Landsvirkjun sem rekur
stórvirkjanir á þjóðlendum á Þjórs-
ársvæðinu. Sem dæmi má nefna að
eigandi tæplega 10 megavatta virkj-
unar greiðir jafn mikið fyrir vatns-
réttindi í krónum talið, eftir að hafa
rekið virkjunina í fimm ár, og Lands-
virkjun greiðir fyrir réttindi
Sigölduvirkjunar sem er fimmtán
sinnum aflmeiri og er með fjórtán
sinnum meiri orkugetu.
Landsvirkjun greiðir ríkinu tæp-
lega 90 milljónir króna á ári fyrir af-
not af þjóðlendum til rafmagnsfram-
leiðslu í sex virkjunum á Þjórsár-
svæðinu, samkvæmt nýlegum
samningi. Samsvarar það um 0,39%
af áætluðum orkusölutekjum virkj-
ananna. Uppsett afl sem samning-
urinn nær til er liðlega 800 MW eða
sem svarar til 40% af uppsettu afli
allra vatnsaflsvirkjana fyrirtækisins.
Hluta þessara virkjanaréttinda hafði
Alþingi veitt Landsvirkjun án nokk-
urra skilyrða um endurgjald en eigi
að síður samdist svo um að greitt
yrði af öllum virkjununum nema
Búrfellsvirkjun og miðast gjaldið
mikið við niðurstöðu dómstóla um
vatnsréttindi Kárahnjúkavirkjunar.
Mikill munur á leigu
- Ríkið krefur stofnanda smávirkjunar um jafn háa leigu
fyrir vatnsréttindi og greidd er af stórvirkjun í Þjórsá
Sigöldustöð Landsvirkjun rekur
sjö virkjanir á Þjórsársvæði.
MVatnsréttindi virkjana »38,40
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknar-
flokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd um
staðfestingu allra útgefinna kjörbréfa vegna al-
þingiskosninganna 25. september var samþykkt
með 42 atkvæðum gegn 5 á Alþingi í gær, 16
greiddu ekki atkvæði.
Fjórar tillögur voru lagðar fram og ræddar;
tillaga meirihlutans um staðfestingu allra kjör-
bréfa, tillaga Svandísar Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra og Þórunnar Sveinbjarnar-
dóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um
staðfestingu kjörbréfa 47 þingmanna sem
hvorki eru uppbótarþingmenn né þingmenn
Norðvesturkjördæmis, sem leiða myndi til upp-
kosningar í Norðvesturkjördæmi, tillaga Björns
Levís Gunnarssonar, þingmanns Pírata, um að
öll kjörbréf væru ógild og boðað yrði til nýrra
kosninga og breytingartillaga Indriða Inga Stef-
ánssonar, varaþingmanns Pírata, við tillögu
meirihlutans þess efnis að ógilda skyldi kjörbréf
þeirra þingmanna sem hlutu kjör á grundvelli
kosningaúrslita í Norðvesturkjördæmi sem
byggðust á endurtalningu og að gefin yrðu út
kjörbréf til þeirra sem hlotið hefðu kjör hefði
ekki verið talið aftur. Þingsetningarfundi var
fram haldið klukkan 13 og lá niðurstaðan fyrir á
tíunda tímanum í gærkvöldi. »4
Morgunblaðið/Eggert
KJÖRBRÉFIN STAÐFEST
- Meirihluti þingmanna
greiddi atkvæði með stað-
festingu allra útgefinna
kjörbréfa á Alþingi
Alþingi Birgir Ármannsson mælti fyrir áliti meirihluta kjörbréfanefndar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stýrði þingfundinum.
dagatöl!
Öll jóla-
leikföng!
Öll Playmo
50%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
SVARTUR
FÖSSARI
25.--28. NÓVEMBER
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Frá okkar bæjardyrum séð er ekki
nauðsynlegt að fækka akreinum á
Suðurlandsbraut til að koma fyrir
hraðvagnakerfi, eða borgarlínu, eins
og frumdrög skipulags hafa gert ráð
fyrir,“ segir Árni Mathiesen, stjórn-
arformaður Betri samgangna ohf.
Félagið mun hafa yfirumsjón með
framkvæmdum vegna uppbyggingar
samgönguinnviða á höfuðborgar-
svæðinu og fjármögnun.
Fækka á akreinum fyrir bílaum-
ferð úr fjórum í tvær á Suðurlands-
braut og efri hluta Laugavegar,
samkvæmt frumdragaskýrslu
borgarlínunnar. Lagt er til að vinstri
beygja verði ekki lengur möguleg
nema á hluta gatnamóta. Auk þessa
er gert ráð fyrir fækkun bílastæða
við Suðurlandsbraut.
Vilhjálmur Árnason alþingis-
maður, sem hefur setið í umhverfis-
og samgöngunefnd, segir að í sam-
göngusáttmála milli ríkisins og
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
felist að sveitarfélögin hagi skipu-
lagsmálum þannig að áform ríkisins
um uppbyggingu vega gangi eftir.
Spár geri ráð fyrir aukningu bíla-
umferðar og því séu ekki forsendur
fyrir því að þrengja að henni. »22
Engin nauðsyn að
fækka akreinum
- Hugmynd að þrengja að bílaumferð