Morgunblaðið - 26.11.2021, Page 6

Morgunblaðið - 26.11.2021, Page 6
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Nei, við erum ekki búin að gefast upp á stjórnvöldum heldur viljum að- stoða við að leita leiða til að fjár- magna verkefnið,“ segir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Sveitarstjórnin hefur hafið hópfjármögnun á Karolina Fund fyrir lagningu nýs vegar um Vatnsnes. Vegur númer 711 um Vatnsnes er slæmur og frægt „þvottabretti“. Íbú- ar og sveitarstjórn hafa lengi barist fyrir því að fá veginn byggðan upp en alltaf hefur strandað á fjármagni. Vegurinn er nú kominn inn á sam- gönguáætlun en ekki gert ráð fyrir framkvæmdum fyrr en á síðasta tím- bili áætlunarinnar, eftir árið 2030. Það telur sveitarstjórn óviðunandi fyrir íbúa og vill að framkvæmdum verði flýtt. Hristast kvölds og morgna Ragnheiður segir mikilvægt að hönnun vegarins hefjist sem fyrst þannig að hægt verði að hefja verk- legar framkvæmdir með stuttum fyr- irvara ef það takist að flýta fram- kvæmdum. Hópfjármögnunin miðast við að safna 100 milljónum sem dygði til að hefja þá vinnu. Framkvæmdin í heild er þó mun fjárfrekari, kostar um 3,5 milljarða króna. Margir ferðamenn fara um Vatns- nes enda eru þar vinsælir viðkomu- staðir. Það er sveitarstjórninni þó enn ofar í huga að skólabörn þurfa að fara um veginn á hverjum degi. „Er ástand vegarins því miður orðið það Fá að opna nýjan veg með veglegu framlagi - Efnt til hópfjármögnunar fyrir nýjan Vatnsnesveg Vatnsnesvegur Börn og bílstjóri hristast lengi í skólabílnum, tvisvar á dag. slæmt að skólabörn sem ferðast um veginn tvisvar á dag alla sína skóla- göngu ná því ýmsa daga að hrista bæði morgun- og hádegismat upp úr sér í ferðinni til lítillar ánægju bæði fyrir börn og aðstandendur enda er- um vér Húnvetningar algerlega á móti matarsóun á við þessa,“ segir í kynningu á hópfjármögnuninni. Berjamór og pönnsur í boði Áhugafólki er boðið að leggja til mismunandi fjárhæðir og fá umbun fyrir framlag sitt. Það er allt frá þakklæti eða steinvölu með nafni sínu sem lögð verður í veginn til þess að fá að fara í berjamó eða fá kaffi og pönnsur á Sauðadalsá og upp í það að fá leiðsögn um Vatnsnesveginn hjá fyrsta varaþingmanni Framsóknar í kjördæminu eða opna veginn með samgönguráðherra. Til þess að fá að opna veginn þarf að greiða milljón í söfnunina. Leiðsögnin sem Friðrik Már Sigurðsson, varaþingmaður og formaður byggðarráðs, lofar er ódýr- ari, hún fæst með 150 þúsund króna framlagi. Fyrstu loforðin bárust í gær en tekið er fram að þau verði ekki inn- heimt nema takmarkið um 100 millj- ónir náist. Ef það tekst verður söfn- unarféð afhent í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti með skil- yrðum um að því verði varið í fram- kvæmdir við veginn. Ragnheiður segist hafa fengið góð viðbrögð frá íbúum. Þeim finnist þetta jákvæð nálgun á mikilvægt verkefni. 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 Sigurður Bogi Sævarson sbs@mbl.is Húfa úr flaueli með blúndum sem eru kniplaðar úr silkiþræði og er frá 17. öld fannst við fornleifauppgröft á Þingeyrum nú í sumar. Yfir vafa þykir hafið að húfan hafi verið í eigu Jóns Þorleifssonar klausturhaldara, því samliggjandi húfunni í moldinni voru meðal annars innsiglishringur hans og skjaldarmerki. Þá eru ein- hyrningar eins þeir sem sjást á inn- siglinu einkennandi fyrir ætt Jóns. Vitnisburður um tísku Jón Þorleifsson var staðarhaldari á Þingeyrum seint á 17. öldinni og lést á þrítugsaldri árið 1683. „Þetta er merkur fornleifafundur sem vitn- ar um tísku síns tíma,“ segir Stein- unn Kristjánsdóttir fornleifafræð- ingur í samtali við Morgunblaðið. Fornleifarannsóknirnar á Þing- eyrum í Austur-Húnavatnssýslu hófust árið 2016 og hafa verið undir verkstjórn Steinunnar, sem hefur rannsakað rústir margra fleiri klaustra á landinu og ritað um þau efni. Í sumar lögðu vísindamenn sig sérstaklega eftir því að finna minjar og merki um handritagerð á Þing- eyrum, en þekkt er að fyrr á öldum hafi tíðkast að skrá þar fornar sögur á skinnhandrit. Flauelið er fallegt Höfuðfat Jóns Þorleifssonar var eftir rannsókn sumarsins flutt til á Þjóðminjasafn Íslands. Þar hefur Sandra Sif Einarsdóttir forvörður hreinsað gripinn og í ljós er komin mikil gersemi. „Flauelið er fallegt og þótti það líka fyrr á tíð. Fjöldi málverka og teikninga er til frá fyrri öldum sem sýna yfirstéttarfólk með svona húf- ur, þar sem silkiþræðirnir eru áber- andi. Geta má sér til þess til að ein- mitt í þessu liggi og felist uppruni orðsins silkihúfa,“ segir Steinunn um þennan merka fornleifafund. Silkihúfa Íslands var í moldinni á Þingeyrum - Með innsiglishring og skjaldarmerki Jóns Þorleifssonar Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands Höfuðfat Eftir margar aldir við góð varðveisluskilyrði í jarðveginum og nú síðast yfirferð forvarðar er húfan í góðu ástandi og hæfir hvað höfði sem er. Steinunn Kristjánsdóttir Sandra Sif Einarsdóttir „Ávinningur úttektarinnar fyrir fé- lögin er að þau fá tækifæri til að leggjast í smá sjálfsrýni auk þess að fá upplýsingar um styrkleika og veikleika sína á sviði jafnréttis- og mannréttindamála. Úttektin er leiðbeinandi og gefst félögunum tækifæri til bregðast við, ásamt því að starfsfólk mannréttinda- og lýð- ræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar er reiðubúið til að veita aðstoð,“ segir í niðurstöðukafla nýrrar jafn- réttisúttektar á þremur íþrótta- félögum í borginni. Umrædd félög eru ÍR, Fram og Víkingur en áður hafði verið gerð sambærileg úttekt á Fjölni, Þrótti og KR árið 2016 og í fyrra var úttekt gerð á Ármanni, Fylki og Val. Í úttektinni var skoðað hvort fé- lögin séu með virkar jafnréttisáætl- anir og siðareglur, kynjahlutfall iðkenda og skipting fjármagns á milli kynjanna innan félaganna var skoðað. Einnig var kannað hversu aðgengilegar jafnréttisáætlanir fé- laganna eru og hvort þær séu kynntar fyrir starfsfólki, iðkendum og forsjáraðilum iðkenda undir 18 ára og þá hvernig. Tekið er fram að fyrri jafnréttisúttektir mannrétt- inda- og lýðræðisskrifstofu Reykja- víkurborgar á hverfisíþrótta- félögum hafi meðal annars leitt í ljós að vinna þurfi gegn staðal- myndum og stuðla að fræðslu um mannréttindi og margbreytileika hjá hverfisíþróttafélögum borg- arinnar. Úttektin á Fram, ÍR og Víkingi sýndi að í félögunum þremur eru 66% iðkenda á aldrinum 6-30 ára karlkyns og 34% kvenkyns. Lágt hlutfall iðkenda er með erlent þjóð- erni. Í öllum félögunum þykja stjórnir nokkuð einsleitar hvað varðar kyn og uppruna, 65% karlar og 35% konur. Þá er þess sér- staklega getið að hjá ÍR séu hærri laun greidd fyrir þjálfun meistara- flokks karla en kvenna. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Meistarar Eitt af þeim íþróttafélögum sem gengust undir könnun á jafn- réttismálum var Víkingur í Reykjavík. Úttektin er sögð kalla á sjálfsrýni. Kortlögðu stöðu á jafnréttismálum - Úttekt á þremur íþróttafélögum Líklegt er að skipum fjölgi á loðnu- miðum úti fyrir Norðurlandi á næstu dögum. Margir eru í startholunum og bíða veðurs og frétta af loðnugöngum og ákvörðun sjávarútvegsráðu- neytisins um stækkun trollhólfs. Vart hefur orðið við loðnu vestan Kolbeinseyjar, en hún hefur staðið það djúpt að hún hefur ekki náðst í nót. Útgerðarmenn hafa óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að svæði þar sem leyft er að veiða með trolli verði stækkað. Ráðuneytið segir erindið í vinnslu og til skoðunar. Útgerðarmaður sem rætt var við í gær sagði að þessi árstími gæti verið erfiður fyrir norðan land og veður oft erfið. Menn yrðu því að sæta lagi og nýta glugga þegar vinnuveður væri. Þannig hafa þrjú skip legið inni á Ak- ureyri síðustu daga, meðal annars vegna veðurs, Svanur RE, Víkingur AK og Bjarni Ólafsson AK. Heimaey VE, skip Ísfélagsins, var komin til loðnuleitar úti fyrir Norður- landi í gær. Sigurður fer væntanlega á loðnu um helgina og Álsey í næstu viku. Fjórða uppsjávarskip Ísfélags- ins, Suðurey VE 11, er væntanlegt til landsins um miðjan desember, en skipið er keypt frá Svíþjóð. aij@mbl.is Bíða loðnufrétta og veðurs fyrir norðan Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is SVARTUR FÖSTUDAGUR Tilboð 22.-27. nóvember Sjá nánar á patti.is 2 sæta sófi 3 sæta sófi Hægindastóll Kíktu í heimsókn! Verð áður 210.000 kr. Verð áður 250.000 kr. Verð áður 160.000 kr. Forli rafstillanlegir hægindasófar og hægindastólar 170.000 kr. 199.000 kr. 120.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.