Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fækka á akreinum fyrir bílaumferð úr fjórum í tvær á Suðurlandsbraut og efri hluta Lauga- vegar, samkvæmt frumdragaskýrslu borgar- línunnar. Lagt er til að borgarlínan verði öll í sérrými á Suðurlandsbraut og efri hluta Laugavegar. Sérrýmin verða að mestu mið- læg og svo ein akrein í hvora átt fyrir bílaum- ferð. Lagt er til að vinstri beygja verði ekki lengur möguleg nema á hluta gatnamóta. Auk breytinga á götunni er gert ráð fyrir fækkun bílastæða næst Suðurlandsbraut. Þetta kemur fram í skipulagslýsingu um- hverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skipulagsfulltrúa, að deiliskipulagi fyrir borg- arlínu um Suðurlandsbraut og efri hluta Laugavegar frá leikskólanum Steinahlíð í austri að Katrínartúni í vestri. Leggurinn er 3,3 kílómetra langur. Skipulagslýsingin var kynnt í borgarráði Reykjavíkur 18. nóvember. Ekki rugla saman aðskildum atriðum „Frá okkar bæjardyrum séð er ekki nauð- synlegt að fækka akreinum á Suðurlands- braut til að koma fyrir hraðvagnakerfi, eða borgarlínu, eins og frumdrög skipulags hafa gert ráð fyrir,“ sagði Árni Mathiesen, stjórn- arformaður Betri samgangna ohf. Félagið mun hafa yfirumsjón með framkvæmdum vegna uppbyggingar samgönguinnviða á höf- uðborgarsvæðinu og fjármögnun þeirra. Að félaginu standa íslenska ríkið og sex sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes. Ríkið á 75% en sveitarfélögin 25% og skiptist eignarhlutur þeirra eftir íbúafjölda. Árni sagði að í umræðunni um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu sé oft rugl- að saman tveimur aðskildum en tengdum þáttum. „Annars vegar því að byggja upp betri sam- göngur, sem eru þá stofn- brautirnar og hraðvagna- kerfið, og hins vegar því hvaða ákvarðanir eru tekn- ar varðandi skipulag byggðar á svonefndum þróunar- og samgönguás- um sem svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins ger- ir ráð fyrir. Betri sam- göngur ohf. hafa ekki yfir skipulagsmálum sveitarfé- laganna að segja. Bílastæði tengjast ekki ein- göngu umferðaræðunum heldur einnig því hvaða starfsemi á að vera á hverju svæði,“ sagði Árni. -Ef ekki er þörf á að fækka akreinum fyrir bíla á Suðurlandsbraut, hvernig á þá að leysa málið? „Það er Reykjavíkurborgar að ákveða það. Hún verður að gera það í samráði og sam- starfi við aðra sem að þessu koma,“ sagði Árni. Hann sagði að væntanlega þurfi að gera einhverjar breytingar á Suðurlandsbraut en ekki eigi að þurfa að fækka akreinum til að koma fyrir hraðvagnakerfi eða borgarlínu. „Reykjavíkurborg hefur skipulagsvaldið og þarf að ákveða hvar göturnar liggja en aðrir geta einnig haft eitthvað um það að segja. Þessir aðrir eru þá þeir sem taka ákvarðanir um vegaáætlun og allar framkvæmdir sem henni fylgja, það er Alþingi. Síðan þarf að ákveða hvaða ákvarðanir eru teknar hjá Betri samgöngum ohf. og hvaða ákvarðanir borgin tekur. Það þarf að taka tillit til margs við svona framkvæmdir eins og til dæmis hvar ýmsar lagnir eiga að liggja. Kostnaður við þær getur skipst eftir því hvort komið var að endurnýjun á lögnunum eða ekki. Þessi hluti samgöngukerfis höfuðborgarsvæðisins er í hönnun og það er ekki enn orðið ljóst hvað kemur í okkar hlut hjá Betri samgöngum ohf. og hvað kemur í hlut borgarinnar,“ sagði Árni. Borgarlínan 1. lota Laugavegur frá Katrínartún að Suðurlandsbraut við Steinahlíð Borgarlína sniðmynd Fyrirhugað skipulag gatnamóta Fyrirhuguð Borgarlína, séð frá Suðurlandsbraut við Laugardal Deiliskipulagssvæðið 1. lotu Borgarlínu nær yfir Suðurlandsbraut við Mörkina og Skeifuna, Suðurlandsbraut meðfram Laugardalnum og efri hluta Laugavegar frá Katrínar- túni að Kringlumýrarbraut. Mörk skipulags- svæðis 1. lotu Heimild: Reykjavíkurborg Gangandi vegfarendur Hjólastígur Borgarlína Akandi umferð S æ b ra u t S æ b ra u t H á a le it is b ra u t K ri n g lu m ý ra rb ra u t G re n s á s v e g u r Miklabraut Katrínartún Steinahlíð Laugavegur S uðurlandsbraut LAUGARDALUR Teikning: borgarlinan.is Teikning: borgarlinan.is Te ik n in ga r: b o rg ar lin an .is Loftmyndir ehf. Segir óþarft að fækka akreinum - Frumdragaskýrsla borgarlínu gerir ráð fyrir tveimur akreinum fyrir bíla á Suðurlandsbraut og efst á Laugavegi - Stjórnarformaður Betri samgangna ehf. segir skipulagsmálin vera hjá sveitarfélögunum Árni Mathiesen „Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa skipulagsvaldið. Um leið sækja þau á ríkið um fjármagn til framkvæmda í samgöngum,“ sagði Vilhjálmur Árnason, alþingismaður sem hefur setið í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins. Hann minnti á að gerður hafi verið samgöngu- sáttmáli milli ríkisins og sex sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu, oft kallaður höfuðborgarsátt- máli. Í honum felst að sveitarfélögin hagi skipulagsmálum sínum þannig að áform ríkisins um uppbyggingu gangi eftir. „Sundabraut er hluti af höfuðborgarsáttmál- anum og sveitarfélögin þurfa að gera hana skipu- lagslega mögulega. Ef þau eru tilbúin að mæta ríkinu í skipulagsmálum þannig að hægt sé að bjóða upp á betri samgöngur og fjölbreytta ferða- máta á öllu svæðinu þá kemur ríkið að fjár- mögnun á uppbyggingunni,“ sagði Vilhjálmur. Hann var framsögumaður umhverfis- og sam- göngunefndar þegar samgönguáætlun 2020-2024 var rædd á þingi. Vilhjálmur sagði að í fyrra nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar um sam- gönguáætlun 2019-2023 hafi Alþingi gefið tóninn. Höfuðborgarsáttmálinn sem síðar var undirrit- aður hafi tekið mið af því. Tónninn var sá að farið yrði eftir skýrslu sem verkefnishópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra gerði í samráði við stýrihóp sveitarfélaganna um uppbyggingu sam- gangna á höfuðborgarsvæðinu til 2033. „Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og fleiri bentu okkur í nefndinni á að það ætti að vera mis- lægur samgönguás í gegnum höfuðborgarsvæðið þannig að t.d. þungaflutningar þurfi ekki að stoppa í borgartraffík heldur komist greiðlega leiðar sinnar. Þótt hágæðaalmenningssamgöngur gangi upp 100% þá segir skýrslan að það verði 24% aukning bílaumferðar með breyttum ferða- venjum en annars 40% aukn- ing. Það eru því ekki for- sendur fyrir því að þrengja að umferð bíla. Við í meiri- hluta nefndarinnar vildum uppbyggingu fjölbreyttra samgangna en ekki þannig að einn samgöngumáti gengi á annan. Það að ætla að fækka akreinum á Suður- landsbraut er ekki í þessum anda og er í andstöðu við for- sendur þessarar skýrslu um að bílaumferð muni aukast þrátt fyrir öflugri almenningssam- göngur.“ Vilhjálmur bendir á að höfuðborgarsáttmálinn og þar með Betri samgöngur ohf. séu sam- komulag um samgöngumál á höfuðborgarsvæð- inu öllu. Sáttmálinn snúist ekki bara um borg- arlínu heldur gerir mögulegt að rjúfa framkvæmdastopp sem hefur verið á höfuðborg- arsvæðinu síðan borgin samdi við innanríkis- ráðherra á sínum tíma um tíu ára frestun á stærri framkvæmdum við umferðarmannvirki. „Það á að bæta almenningssamgöngur, göngu- og hjólastíga en líka að greiða fyrir almennri um- ferð og byggja upp stofnbrautirnar. Ríkið hefur verið í vandræðum með að byggja upp þær stofn- brautir sem það ber ábyrgð á vegna skipulags- mála sveitarfélaga. Þetta þarf að vera heildar- nálgun fyrir samgöngur á öllu höfuðborgarsvæðinu en ekki bara að einblína á einn samgöngumáta. Fólk á að geta valið þann samgöngumáta sem það kýs hverju sinni. Með fleiri íbúum, fleiri ferðamönnum og stærri byggð eykst umferðin. Það er samfélagslega mikilvægt að finna heildarlausn á samgöngumálunum.“ Sundabraut hluti af samgöngusáttmála - Umferð eykst þótt almenningssamgöngur vaxi Vilhjálmur Árnason Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Lýsing á deiliskipulagi fyrirhugaðrar borg- arlínu um Suðurlandsbraut og efri hluta Laugavegar hefur verið kynnt í borgarráði og varð hún kveikjan að miklu flóði bókana. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Við- reisnar, Pírata og Vinstri grænna, Heiða Björg Hilmisdóttir, Þórdís Lóa Þórhalls- dóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Líf Magn- eudóttir, bókuðu að borgarlínan muni skapa hágæða grænan valkost í ferðamátum á höf- uðborgarsvæðinu. Skipulag og samgöngu- innviðir geti mótað venjur íbúa að miklu leyti en auk þess sé mikilvægt að hið opinbera axli sína ábyrgð í því að skapa samgönguinnviði sem draga úr útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda. Sá kafli sem hér um ræðir gegni lyk- ilhlutverki í því að borgarlínan í heild sinni verði hágæða BRT-kerfi. „Við leggjum mikla áherslu á að borgarlínan eigi að njóta for- gangs þegar kemur að plássnotkun, í borg- arrými og við gatnamót.“ Eyþór Laxdal Arnalds og Valgerður Sig- urðardóttir, borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins, bókuðu að með þessari breytingu verði þrengt verulega að Suðurlandsbraut sem muni þyngja umferð og dreifa henni inn í aðrar götur og lengja ferðatíma borgarbúa. Jafnframt muni aðgerðin við Suðurlands- braut lengja ferðatíma á milli hverfa og raska rekstrarumhverfi þeirra sem eru með starfsemi við Ármúla og Síðumúla. „Þessar róttæku breytingar munu hafa þau áhrif að umferð sem nú fer um Suðurlandsbraut mun flytjast annað og auka umferðarþunga á Miklubraut og Sæbraut auk annara gatna.“ Rétt væri að skoða aðrar útfærslur á sérrým- um sem þrengja ekki að almennri umferð enda mikilvægt að stórbæta samgöngur í Reykjavík, ekki síst almenningssamgöngur. Hildur Björnsdóttir, borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, bókaði að mikilvægt væri að vinna samgöngusáttmála framgang en hann boðar byltingu í samgöngum höf- uðborgarsvæðisins. Sáttmálinn væri undirrit- aður af sveitarstjórum Sjálfstæðisflokks í ná- grannasveitarfélögum og formanni Sjálfstæðisflokks sem fjármálaráðherra. Engin framkvæmdanna sé hafin yfir gagn- rýni og mikilvægt að gefa svigrúm fyrir lif- andi umræðu. Breytingar á Suðurlandsbraut muni fyrirséð vekja úlfúð meðal fjölda borg- arbúa og eru ekki til þess fallnar að fjölga fylgismönnum borgarlínu. Þvert á móti ýti þær undir óþarfa menningarstríð í sam- göngumálum. Ekki verður séð að skipulags- lýsingin þurfi að liggja fyrir svo snemma í ferlinu. „Betur færi á því að kynna lýsinguna þegar vinna við einkaframkvæmd Sunda- brautar er hafin og fyrirhugaðar stokka- lausnir samgöngusáttmála eru langt á veg komnar.“ Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins, Vigdís Hauksdóttir, bókaði að samgöngur eigi að vera fyrir alla, ekki bara suma. „Draumsýnin um borgarlínu er gífurleg fjárhagsleg skuld- binding fyrir íslenska ríkið án þess að nokkur ávinningur sé tryggður fyrir samfélagið.“ Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, Kolbrún Baldursdóttir, bókaði að í raun sé borg- arlínan gamaldags kerfi. Ekki sé hugsað um nýjungar í ferðatækni svo sem léttlestir á teinum tengdar rafmagni, stundum fyrir ofan aðra umferð stundum fyrir neðan, og sem ekki skerða aðra umferðarmöguleika, nokk- uð sem borgir í nágrannalöndum hafa inn- leitt eða eru að innleiða. „Reykjavík er sem nátttröll í þessu samhengi.“ Skiptar skoðanir - Fjöldi bókana um á fundi borgarráðs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.