Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 var þriggja daga gamalt svo yngsti sonurinn var tekinn með í þá vinnu,“ rifjar séra Inga upp af fyrstu skrefum sínum eftir útskriftina, en hún er þriggja barna móðir, gift Guðmundi Vigni Karlssyni tónlistarmanni og búa þau í norsku höfuðborginni. Þangað lá leiðin fyrir rúmum tveimur árum, sem fyrr segir, þá fýsti guðfræðinginn að taka næsta skref í lífinu og sótti um stöðu prests ís- lenska safnaðarins í Noregi þar sem séra Þór- ey Guðmundsdóttir þjónaði þá sem afleysinga- prestur. „Mér fannst ég vera búin að fullnýta mína krafta í æskulýðsstarfinu og langaði að spreyta mig á prestshlutverkinu, ég frétti að það vantaði prest hér, mér fannst það spenn- andi og ég fékk að koma í heimsókn hingað og prófa,“ segir séra Inga frá. Trúarlegt og samfélagslegt Hún kveðst hafa hrifist af verkefninu frá fyrstu byrjun og þótt það í senn spennandi, krefjandi og margþætt svo hún lét slag standa og tók við brauðinu. Ætli munurinn á kirkju- legum störfum sé mikill á fósturjörðinni og ut- an hennar? „Já, á því er talsverður munur,“ svarar séra Inga umhugsunarlaust. „Við erum ekki með kirkju og ekki með fólk sem er bundið við einn stað, eða eitt hús, eins og gildir um kirkjur á Íslandi, sem sinna sínu nærumhverfi að mestu leyti. Við þjónum öllum Noregi og við lítum líka á það þannig að okkar starf sé ekki ein- göngu trúarlegt heldur einnig samfélagslegt, það er að segja að vera til staðar fyrir Íslend- inga fjarri heimahögum,“ segir presturinn og kveður Íslendinga í Noregi duglega við að leita til prests síns. Allt í einu á byrjunarreit á ný „Þeir eru það, eða það er allt að koma alla vega. Nú eru auðvitað búnir að vera skrýtnir tímar. Ég náttúrulega kom bara haustið 2019 og tók þá við starfi, sem hafði verið í millibils- ástandi um stund, svo mér finnst þetta hafa verið ákveðið slönguspil síðan ég byrjaði, mað- ur er á byrjunarreit og fer svo nokkur skref áfram, þá kemur Covid og allt í einu er maður aftur kominn á byrjunarreit í uppbyggingu og að mynda tengsl við fólk. Aðaláskorunin núna er að byggja þessi tengsl aftur upp og viðhalda þeim,“ segir séra Inga af þeim áskorunum, sem henni hafa mætt á veginum. Eins og víða um heim setti heimsfaraldurinn flest svið mannlegrar tilveru úr skorðum og hefur andlega sviðið ekki heyrt þar til neinna undantekninga, kannski síst af öllu. Séra Inga lítur til baka á liðin misseri og segist ákaflega stolt af teyminu á bak við íslensku kirkjuna í Noregi. „Við fórum bara á fullt við að hugsa upp allar leiðir sem okkur komu í hug til að kasta líflínum til fólks í einangruninni,“ segir hún frá, „við reyndum bara að nota hugmynda- flugið og tæknina eins vel og við gátum og það var eiginlega bara mjög mikið að gera þótt við fengjum ekki að hittast, við vorum bara í því að búa til efni, sem fór svo á netið, fyrirlestra, sunnudagaskóla, fjölskyldustundir og jafnvel prjónakvöld, þetta fór allt fram gegnum net- ið,“ segir séra Inga og kveður þau starfsfólk ís- lensku kirkjunnar hafa lært gríðarmargt á starfinu í faraldrinum. Spennt fyrir nýjum hlutum Hjá séra Ingu er allur Noregur undir, þar sem íslenska kirkjan í Noregi þjónar, eins og nafnið gefur til kynna, öllu landinu. „Ég fer þangað sem þarf að fara að skíra og gefa sam- an hjón, og svo erum við í því að byggja upp reglubundið starf um allt landið, við erum mjög spennt fyrir því að prófa nýja hluti og halda áfram að kynnast fólki hér,“ segir séra Inga. Ýmislegt er fram undan hjá íslensku kirkj- unni nú þegar aðventan stendur fyrir dyrum. „Á sunnudaginn erum við með aðventuhátíð hér í Ósló þar sem Ískórinn kemur fram, Inga Þyri Þórðardóttir söngkona, Ólína Ákadóttir, Íris Björk Gunnarsdóttir sópransöngkona ásamt litla barnakórnum, sem heitir Litla- Laffí [í höfuðið á Ólafíu Jóhannsdóttur, Laffí, sem meðal annars kom á fót heimili fyrir nauð- staddar konur í Ósló á öndverðri 20. öldinni]. Svo förum við teymið héðan frá Ósló til Bergen, Stavanger, Kristiansand, Sandefjord og Þrándheims. Við köllum þetta jólahátíðir af því að mér finnst mikilvægt að við mætum þörfum hvers staðar fyrir sig, sem eru mis- jafnar. Við viljum aðallega vera opin og sveigj- anleg og mæta fólkinu þar sem það er statt,“ segir séra Inga Harðardóttir, sóknarprestur íslensku kirkjunnar í Noregi, um starfið meðal Íslendinga hjá frændþjóðinni í Noregi. „Ég passa ekki alveg inn í kassana“ - Fékk starf með barnið þriggja daga gamalt - Langaði að spreyta sig á prestsstarfinu í Noregi - Íslendingar ytra duglegir að leita til síns prests - Starfið í faraldrinum krefjandi en lærdómsríkt Sóknarpresturinn Séra Inga Harðardóttir hefur gegnt starfi sóknarprests íslenska safn- aðarins í Noregi í tvö ár og lætur vel af þrátt fyrir heimsfaraldurinn sem reyndi á þolrifin. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Það var bara langt og ringlað ferli,“ segir séra Inga Harðardóttir glettnislega, sóknar- prestur íslensku kirkjunnar í Noregi, innt eftir því hvernig leið hennar hafi á sínum tíma legið í guðfræðinám við Háskóla Íslands, en séra Inga er tiltölulega nýtekin við brauði sínu í Ósló, það gerði hún á haustdögum 2019, tíma sem ef til vill mætti kalla kortéri fyrir Covid. „Ég var ekki ein af þeim sem vissu nákvæm- lega hvað þau langaði að gera, ég var alltaf að byrja og hætta og prófa ýmislegt annað, en svo sá ég að lokum að í guðfræðinni sameinaðist svo margt sem ég hafði áhuga á og svo bara endaði ég þar,“ segir séra Inga, sem er Reyk- víkingur að uppruna og starfaði árum saman við æskulýðsstarf, samhliða námi sínu í Kópa- vogskirkju og að því loknu í Hallgrímskirkju, auk þess sem Fríkirkjan í Hafnarfirði fékk að njóta krafta hennar. Gott að vera skapandi „Ég er frekar flókin hvað þetta varðar, ég passa ekki alveg inn í kassana,“ segir prest- urinn í tilraun sinni til að útskýra starfsferilinn fyrir blaðamanni, en kveður málin þó hafa ein- faldast töluvert eftir að námi lauk árið 2012, eftir það hafi Hallgrímskirkja fyrst og fremst verið hennar vinnustaður. „Ég er mjög þakk- lát fyrir að hafa fengið tækifæri til að sinna þessu starfi, mér finnst svo gott að vinna við eitthvað skapandi með börnum og unglingum, og svo er bara svo gaman að syngja með kornabörnum í Krílasálmum, tala um lífið og tilveruna við fermingarbörnin og leika sér í barnastarfinu.“ Hún sótti á sínum tíma um stöðu æskulýðs- fulltrúa við Hallgrímskirkju. „Ég fór gegnum það ferli kasólétt og fékk vinnuna þegar barnið Ljósmynd/Freydís Heiðarsdóttir Hreint loft –betri heilsa Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hreinsar allt að 99.9% af óhreinindum. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.