Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
var þriggja daga gamalt svo yngsti sonurinn
var tekinn með í þá vinnu,“ rifjar séra Inga
upp af fyrstu skrefum sínum eftir útskriftina,
en hún er þriggja barna móðir, gift Guðmundi
Vigni Karlssyni tónlistarmanni og búa þau í
norsku höfuðborginni.
Þangað lá leiðin fyrir rúmum tveimur árum,
sem fyrr segir, þá fýsti guðfræðinginn að taka
næsta skref í lífinu og sótti um stöðu prests ís-
lenska safnaðarins í Noregi þar sem séra Þór-
ey Guðmundsdóttir þjónaði þá sem afleysinga-
prestur. „Mér fannst ég vera búin að fullnýta
mína krafta í æskulýðsstarfinu og langaði að
spreyta mig á prestshlutverkinu, ég frétti að
það vantaði prest hér, mér fannst það spenn-
andi og ég fékk að koma í heimsókn hingað og
prófa,“ segir séra Inga frá.
Trúarlegt og samfélagslegt
Hún kveðst hafa hrifist af verkefninu frá
fyrstu byrjun og þótt það í senn spennandi,
krefjandi og margþætt svo hún lét slag standa
og tók við brauðinu. Ætli munurinn á kirkju-
legum störfum sé mikill á fósturjörðinni og ut-
an hennar?
„Já, á því er talsverður munur,“ svarar séra
Inga umhugsunarlaust. „Við erum ekki með
kirkju og ekki með fólk sem er bundið við einn
stað, eða eitt hús, eins og gildir um kirkjur á
Íslandi, sem sinna sínu nærumhverfi að mestu
leyti. Við þjónum öllum Noregi og við lítum
líka á það þannig að okkar starf sé ekki ein-
göngu trúarlegt heldur einnig samfélagslegt,
það er að segja að vera til staðar fyrir Íslend-
inga fjarri heimahögum,“ segir presturinn og
kveður Íslendinga í Noregi duglega við að leita
til prests síns.
Allt í einu á byrjunarreit á ný
„Þeir eru það, eða það er allt að koma alla
vega. Nú eru auðvitað búnir að vera skrýtnir
tímar. Ég náttúrulega kom bara haustið 2019
og tók þá við starfi, sem hafði verið í millibils-
ástandi um stund, svo mér finnst þetta hafa
verið ákveðið slönguspil síðan ég byrjaði, mað-
ur er á byrjunarreit og fer svo nokkur skref
áfram, þá kemur Covid og allt í einu er maður
aftur kominn á byrjunarreit í uppbyggingu og
að mynda tengsl við fólk. Aðaláskorunin núna
er að byggja þessi tengsl aftur upp og viðhalda
þeim,“ segir séra Inga af þeim áskorunum,
sem henni hafa mætt á veginum.
Eins og víða um heim setti heimsfaraldurinn
flest svið mannlegrar tilveru úr skorðum og
hefur andlega sviðið ekki heyrt þar til neinna
undantekninga, kannski síst af öllu. Séra Inga
lítur til baka á liðin misseri og segist ákaflega
stolt af teyminu á bak við íslensku kirkjuna í
Noregi. „Við fórum bara á fullt við að hugsa
upp allar leiðir sem okkur komu í hug til að
kasta líflínum til fólks í einangruninni,“ segir
hún frá, „við reyndum bara að nota hugmynda-
flugið og tæknina eins vel og við gátum og það
var eiginlega bara mjög mikið að gera þótt við
fengjum ekki að hittast, við vorum bara í því að
búa til efni, sem fór svo á netið, fyrirlestra,
sunnudagaskóla, fjölskyldustundir og jafnvel
prjónakvöld, þetta fór allt fram gegnum net-
ið,“ segir séra Inga og kveður þau starfsfólk ís-
lensku kirkjunnar hafa lært gríðarmargt á
starfinu í faraldrinum.
Spennt fyrir nýjum hlutum
Hjá séra Ingu er allur Noregur undir, þar
sem íslenska kirkjan í Noregi þjónar, eins og
nafnið gefur til kynna, öllu landinu. „Ég fer
þangað sem þarf að fara að skíra og gefa sam-
an hjón, og svo erum við í því að byggja upp
reglubundið starf um allt landið, við erum
mjög spennt fyrir því að prófa nýja hluti og
halda áfram að kynnast fólki hér,“ segir séra
Inga.
Ýmislegt er fram undan hjá íslensku kirkj-
unni nú þegar aðventan stendur fyrir dyrum.
„Á sunnudaginn erum við með aðventuhátíð
hér í Ósló þar sem Ískórinn kemur fram, Inga
Þyri Þórðardóttir söngkona, Ólína Ákadóttir,
Íris Björk Gunnarsdóttir sópransöngkona
ásamt litla barnakórnum, sem heitir Litla-
Laffí [í höfuðið á Ólafíu Jóhannsdóttur, Laffí,
sem meðal annars kom á fót heimili fyrir nauð-
staddar konur í Ósló á öndverðri 20. öldinni].
Svo förum við teymið héðan frá Ósló til
Bergen, Stavanger, Kristiansand, Sandefjord
og Þrándheims. Við köllum þetta jólahátíðir af
því að mér finnst mikilvægt að við mætum
þörfum hvers staðar fyrir sig, sem eru mis-
jafnar. Við viljum aðallega vera opin og sveigj-
anleg og mæta fólkinu þar sem það er statt,“
segir séra Inga Harðardóttir, sóknarprestur
íslensku kirkjunnar í Noregi, um starfið meðal
Íslendinga hjá frændþjóðinni í Noregi.
„Ég passa ekki alveg inn í kassana“
- Fékk starf með barnið þriggja daga gamalt - Langaði að spreyta sig á prestsstarfinu í Noregi
- Íslendingar ytra duglegir að leita til síns prests - Starfið í faraldrinum krefjandi en lærdómsríkt
Sóknarpresturinn Séra Inga Harðardóttir
hefur gegnt starfi sóknarprests íslenska safn-
aðarins í Noregi í tvö ár og lætur vel af þrátt
fyrir heimsfaraldurinn sem reyndi á þolrifin.
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Það var bara langt og ringlað ferli,“ segir
séra Inga Harðardóttir glettnislega, sóknar-
prestur íslensku kirkjunnar í Noregi, innt eftir
því hvernig leið hennar hafi á sínum tíma legið
í guðfræðinám við Háskóla Íslands, en séra
Inga er tiltölulega nýtekin við brauði sínu í
Ósló, það gerði hún á haustdögum 2019, tíma
sem ef til vill mætti kalla kortéri fyrir Covid.
„Ég var ekki ein af þeim sem vissu nákvæm-
lega hvað þau langaði að gera, ég var alltaf að
byrja og hætta og prófa ýmislegt annað, en svo
sá ég að lokum að í guðfræðinni sameinaðist
svo margt sem ég hafði áhuga á og svo bara
endaði ég þar,“ segir séra Inga, sem er Reyk-
víkingur að uppruna og starfaði árum saman
við æskulýðsstarf, samhliða námi sínu í Kópa-
vogskirkju og að því loknu í Hallgrímskirkju,
auk þess sem Fríkirkjan í Hafnarfirði fékk að
njóta krafta hennar.
Gott að vera skapandi
„Ég er frekar flókin hvað þetta varðar, ég
passa ekki alveg inn í kassana,“ segir prest-
urinn í tilraun sinni til að útskýra starfsferilinn
fyrir blaðamanni, en kveður málin þó hafa ein-
faldast töluvert eftir að námi lauk árið 2012,
eftir það hafi Hallgrímskirkja fyrst og fremst
verið hennar vinnustaður. „Ég er mjög þakk-
lát fyrir að hafa fengið tækifæri til að sinna
þessu starfi, mér finnst svo gott að vinna við
eitthvað skapandi með börnum og unglingum,
og svo er bara svo gaman að syngja með
kornabörnum í Krílasálmum, tala um lífið og
tilveruna við fermingarbörnin og leika sér í
barnastarfinu.“
Hún sótti á sínum tíma um stöðu æskulýðs-
fulltrúa við Hallgrímskirkju. „Ég fór gegnum
það ferli kasólétt og fékk vinnuna þegar barnið
Ljósmynd/Freydís Heiðarsdóttir
Hreint loft –betri heilsa
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum.
Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum,
bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E
Air Genius 5.
Hreinsar allt að 99.9%
af óhreinindum.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420